Alþýðublaðið - 04.12.1965, Side 3

Alþýðublaðið - 04.12.1965, Side 3
L U N D I N N hefur vetursetu langt úti yfir grábláura haffleti Norður-Atlantshafsins, handan við þúsund mílna sjó Golf- straumsins. Þar hefur hann þol- að endalausan klið vestanstorms- ins, ýmist undir svörtum óveð- ursskýjum eða helðum og bláum himni milli dreifðra, hvítra ský- hnoðra. Stundum hylur grámóða austanáttarinnar himin og haf. Líklega hefur lífið verið hvað erfiðast í ofsastormum miðsvetr- arins, því að lundinn er ekki mikill flugfugl, og langvarandi rok af sömu átt hefur getað hrak- ið hann langt úr braut. Þótt svo færi, er sjaldan hætta á að hann reki á land, nema einstaka veik- an fugl eða þá, sem lent höfðu í úrgangsolíu, sem spýtt hafði verið úr tönkum oliuskipa. Þessa vesalinga rekur öðru hverju upp á strendur Vestur-Evrópu og segja strandgöngumenn eða fugla vinir til þcirra. En þó lærum við lítið um úthafsferðir lundans af þeim. Hægur andvarl hjálpar lundan- um, lyftir honum með byr undir vængjum. En þegar vindhæðin náði 90 km. á klukkustund yfir Skokhólmseyju reyndist lundan- um flugið erfitt, svo að hann komst ekki nema 4—6 km. á klukkustund. Þegar vindhraða- mælir sýndi 55 hnúta á opnu liafi, var talið að lundinn kæm- JÓLABLAÐ 1965 :.J ■ ; ; ií '■ > i.: \ ist aðeins 8—10 hnúta. Þegar vindhraðinn komst upp í 80 hnúta, hreyfði enginn lundi sig af sjónum. H.R.H. Vaughan mældi flughraða lunda frá skipi sem var í reynslusiglingu á Clydeflóa, og komst að þeirri niðurstöðu, að fuglinn flygi um 80 km. á klukkustund. í fárviðri er því öruggara fyrir lundann að synda en fljúga og bjarga sér með því að kafa, ef skip eða aðra hættu ber að. Smávaxnir vængir hans eru næstum eins vel fallnir til sunds og flugs, og í hinu þéttara umhverfi er fugl- inum léttara um hreyfingar. í vatni teygir lundinn ekki alveg úr vængjunum, lokar handflug- fjöðrum eins og viftu og notar þær eins og sterkar árar. Lundinn er eins og gömlu seglskipin að því leyti, að hann forðast að láta sig berast með vindi upp að ströndum, en dvelst fjarri landi þá tíma árs- ins, sem stormasamast er. — Vetrarmánuði, frá októberlokum fram í marz, liefur lundinn sjaldan sést á miðju Norður- Atlantshafi, en frá þeim tíma og fram í marz safnast mikill fjöldi lunda saman á hinum frægu fiskimiðum sunnan við Ný- fundnaland. Þar sem lundinn verpir í Vesturlieimi, þótt ekki V j'; VV-.'V . þriðja síða ? • * 1 .! eðlisfræðilega hentug, því fugl- inn fer yfir stærra svæði til fæðuöflunar. Það verður erfið- ara fyrir óvini að finna lundann. Og gangi stormar yfir tiltekin svæði, valda þeir aðeins tjóni á litlum hluta af svo dreifðum stofni. { Samt sem áður vitum við, að fullvaxta fuglar verða fyrir sérj- kennilegum en þó eðlilegunj Framhald á 11. síðu. j ■i I ——— I ....................... ..—-■TTWiWT—# 1 , i LUNDINN er einn sérkennilegasti og vinsælasti fugl á IsJ- landi. Hann hverfur á haustin og kemur aftur að vori, og er líti&’ vitað um ferðir hans allan veturinn. Brezki náttúrufræðingu^- inn R. M. Lockley hefur skrifað fróðlega bók um lifnaðarhætti lundans, og birtist kafli úr henni hér í lauslegri þýðingu. Segiý þar frá ferðum lundans að vetrarlagi og sitthvað fleira un^ háttu hans. Lockley hefur áætlað fjölda lunda í heiminum. Er um a$ ræða þrjár tegundir. Hin fyrsta er kallaður Naumanni og býr i norðlægustum slóðum, áætlað 500.000 varpfuglar. Næsta tegunij er Arctica. Af henn’i telur Lockley vera 100.000 í Ameríku, 5.00flt 000 á íslandi og 500.000 á Jan Mayen, Bjarnarey og í Noregi. Loks er tegundin Grabae. sem býr sunnar. Af henni telur hann 5.000.000 í Færeyjum, 4.000.000 á Bretlandseyjum og 125.00# í Frakklandi. Samtals eru þetta 15.225.000 varpfuglar. Lockley hefur allan vara á tölunum. Hann segir sjálfur, a<) draga megi þá ályktun, að til séu að minnsta kosti 10 mUljónif varpfugla, en þeir gætu verið 20 og jafnvel 30 mUljónir alls. Þó er þetta talin töluverð fækkun frá því, sem var fyrir svo seníi öld. Samt sem áður er lundinn einn útbreiddasti, ef ekki útbreidd- asti, sjófugl Atlantshafsins. sé þar margt um hann, getur verið, að sá fugl, sem sést hef- ur á miðju og vestanverðu At- lantsháfi eigi heima í Maine, Kanada og á Grænlandi. En hitt hefur verið fullsannað, að Evr- ópulundinn okkar fer vestur yf- ir Atlantshafið. Tveir fuglar, sem merktir voru við hreiður á St. Kilda við Skotland, fund- ust á Nýfundnalandi í desember sama ár. Líklega hafa þessir fuglar flogið beint yfir hafið án þess að snerta eða sjá önnur lönd, því að þetta var löng leið (um 4000 km.) fyrir ungfugla að fara á ekki lengri tíma. Sjaldan lítur maðurinn lund- ann augum þessa óblíðu vetrar- mánuði, er hann syndir á haf- inu eða kafar í það í vondu veðri, dreifður um norðanvert Atlantshaf og vestanvert Mið- jarðarhaf. Við getum samt leyft okkur að álykta, að lífið á haf- inu sé jafn eðlilegt og auðvelt fyrir þessa ævagömlu fuglateg- und og það nokkru sinni hefur verið. Lundinn hefur farið vetr- arferðir sínar i milljónir ára og þær geta ekki verið honum hættulegri en öðrum úthafs- fuglum. Ef til vill stendur lund- inn sig betur en ýmsir aðrir við þessar aðstæður. Víst er, að lundinn verpir aðeins einu eggi á ári, en mávarnir (sem venju- lega eru taldir sterkir og þrótt- miklir fuglar) verpa tveim eða þrem. Virðist því fljótt á litið að æviskeið lundans sé öllu lengra en mávanna. Þrátt fyrir allt vitum við sára- lítið um vetrarferðir lundans. Enginn hefur fundið liann í stórum liópum að vetrarlagi. Svo virðist, sem fuglinn sé mjög dreifður um miðjan vetur- inn, fari jafnvel einförum. — Þessi dreifing er auðvitað Iíf-

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.