Vísir - 23.12.1958, Side 4
4
VÍSIR
Þriðjudaginn 23. desember 1958
Lögreglatt lokar æfinga
skóla betlara á Ítalíu.
Tekjur neanenda nánw 5
millj. fiíra á dag.
RÓM, 20. des. (UPI). — Ný-
lega lokaði lögreglan hér
„æfingaskóla betlara“, sem var
við Via Casilina. Samtímis tók
lögreglan með sér sem sönn-
unargögn eina milljón líra, sem
voru tekjur skólastjórans eftir
daginn. Það eru 20% af tekjum
nemendanna — dagtekjunum.
„Æfináaskóli betlaranna"
var að vísu leynileg stofnun, en
lögreglan er viss um, að þetta
er ekki eini skólinn af þessu
tagi, sem rekinn er í borginni.
En betlaraskólinn við Via
Casilina var frægasti skóli
sinnar tegundar í Rómaborg og
jafnvel þótt víðar væri leitað,
og sá bezt skipulagðí.
Skólinn var í tveim deildum.
Var önnur deildin fyrir stjórn-
endur og um leið heimavistar-
deild fyrir þá nemendur, sem
voru að komnir. Hin var æf-
ingadeild, þar sem verklegt
nám fór fram.
Forstjórinn eða skólameist-
arinn var 40 ára gamall maður,
Pasquale Pugliese að nafni,
verkamaður frá Neapel.
Pugliese samdi allar kennslu-
reglur skólans og stofnaði hann
og sjálfur valdi hann nemendur
sína.
Lögreglan skýrir svo frá, að
Fugliese hafi komið til Rómar M
fyrir rúmu ári og þá sett skól-““
ann á stofn. Hann fór við og við
til Suður-Ítalíu til þess að velja
sér nemendur. Hann lét þá búa
hjá sér í skólanum, meðan þeir
voru að læra undirstöðuregl-
urnar. Eftir mánaðarnám fóru
þeir svo að ,vinna“ og skiluðu
20% af dagtekjunum í hendur
Pugliese.
Æfingakerfið var að nokkru
leyti skrifaðar reglur um hvað
gera skuli og hvað ekki og áttu
nemendurnir að kunna þær ut-
anbókar.
Þær voru á þessa leið m. a.:
Veljið ykkur góðan stað þar
sem mikil umferð er. Horfið í
augu fólks þegar þér betlið.
Látið það alltaf sjást að þér
séuð ekki vinnufær. Verið í
hreinum, en bættum fataræfl-
um. Hreinir um hendurnar og
skafið undan nöglunum — ekki
þó of hreinir. Setjið upp hæfi-
lega mikinn þjáningarsvip.
í geymslum sínum hafði
Pugliese föt fyrir betlarana,
stafi, ýmis gervi, hjólastóla og
margskonar undarlega hluti,
sem hann notaði við kennsluna.
Nemendunum var kennt
hvernig þeir áttu að leika halta
menn og lamaða og jafnvel
hvernig þeir gátu ranghvolft
augunum svo að þeir sýndust
blindir. Sumir nemendur
tregðuðust við að skila meist-
aranum hinni tvöföldu tíund,
en þá tók hann til sinna ráða
og hótaði að láta lögreglunni í
té upplýsingar, sem mundu
leiða til handtöku þeirra.
í s.l. mánuði neitaði einn
nemandinn að greiða Pugliese
20%. Þá greip meistarinn til
hótananna, en það endaði með
því að hinn 21 árs gamli nem-
andi réðist á meistara sinn og
misþyrmdi honum.
Pugliese var fluttur í sjúkra-
hús vegna meiðslanna og þegar
þangað kom kærði hann hinn
illa lærisvein og þá komst allt
upp. Skólanum var lokað.
Pugliese hefur nú verið kærður
fyrir margskonar afbrot svik
og pretti og allt fé hans — fleiri
milljón lírur — hefur verið
gert upptækt og verður senni-
lega afhent kristilegum góð-
gerðarstofnunum.
Hei'ðursmerki.
Síra Bjarni Jónsson vígslu-
biskup fær Dannebrogs-stór-
kross. — Við hátiðlega at-
höfn í danska sendiráðinu þ.
20. þ. m. afhenti ambassador
F.ggert Knuth greifi vígslu-
biskupi síra Bjarna Jónssyni
stórkrossinn af Dannebrogs-
orðurnL