Vísir


Vísir - 05.01.1959, Qupperneq 3

Vísir - 05.01.1959, Qupperneq 3
v f s i ge 3 Mánudaginn 5. janúar 1959 Ut vil ek. íslenzkir læknar hafa löng- um orðið að leita út í heim til þess að öðlast undirbúning undir starf sitt. Sá fyrsti, sem það er vitað um, var Hrafn Sveinbjarnarson á Eyri við Arnarfjörð, sem nálægt alda- mótunum 1200 ferðaðist til Englands, Frakklands og Spán- ar og varð ágætastur læknir á Norðurlöndum þeirra, sem þekktir eru frá miðöldum. Löngu síðar, eða þegar lærð íslenzk Jæknastétt hóíst fyrir um það bil tveimur öldum, og allt fram um síðustu aldamót, sóttu íslendingar læknisþekk- ingu sína til Danmerkur, en eftir það einnig nokkuð til annarra ianda, einkum Þýzka- lands og Austurríkis, en Vín- arborg var ein frægasta mið- stcð læknavísinda um hálfa aðra öld eða fram um heims- styrjöldina fyrri. Þegar eg útskrifaðist sem læknir vorið 1920, þá 25 ára gamall, hugsaði eg eins og aðrir námsfélagar mínir til utan- ferðar, en varð að fresta henni um tvö ár, meðan eg var að vinna mér fyrir farareyri sem praktiserandi læknir í Vest- mannaeyjum. Þá var náms- dvöl ódýr í Þýzkalandi og Austurríki sökum gífurlegs verðfalls á gjaldeyri þeirra landa, en þau lönd voru sokkin i evmd og volæði eftirstríðsár- anna, svo að um nýjar fram- farir í læknavísindum var þar varla að ræða í bili. Aftur á móti var auðsæld mikil og upp- gangur í Bandaríkjum Norður- Ameríku og þaðan voru farnar að berast fréttir af stórstígum framförum, einkum á sviði skurðlækninga. Eg ákvað þvi að fara þangað til framhalds- náms, þótt dýrara væri, og var eg fvrsti íslenzki kandídatinn, sem tók þá ákvörðun, en tveir læknar mér eldri, þeir Stein- grímur Matthíasson og Jónas Kristjánsson, höfðu nýlega farið þangað í kynnisferðir og ]étu mikið af því, sem þar væri að sjá. Hvöttu þeir mig báðir tíl vesturfararinnar. Fyrsta torfæran — passaáritun. Eg tók mér far á Botníu til Edinborgar og lét það vera mitt fyrsta verk, er þangað kom, að leita uppi bandaríska konsúl-1 atið til þess að fá áletrun á passann minn, því að hér á landi var þá ekkert amerískt' konsúlat. En nú kom babb í bátinn, konsúllinn í Edinborg! kvaðst ekki getað áletrað pass- ! ann. ísland lægi undir hina' dönsku deild utanríkisþjónust- ; unnar og yrði eg að fá áletrun í konsfdatinu í Kaupmanna- höfn, ef eg vildi fá inngöngu j i Bandaríkin. Það var því ekki um annað að gera fyrir mig! en að skoða Edinborgarkastala, ganga 283 tröppur upp í minn- ismerki Walter Scotts og glápa með undrun á skozku vagnhestana, einkurn á hrika- stærð hófa þeirra, sem er eitt af því, sem fengi'3 hefur mér mestrar undrunar í framandi ]öndum. Hélt eg svo áfram á Botniu til Hafnar. Þessi krókur á leiðinni varð mér auðvitað til allmikiis kostnaðarauka, en einnig til íróðleiks og skemmtunar, því að Kaupmannahöfn er falleg og forvitnileg borg, eða svo hefir mér fundizt í þau þrjú skipti, sem eg hefi haft þar einhverja dvöl. Það var auðsótt að fá á- letraðan passann, en auk þess gaf konsúlatið mér það ráð að kaupa far á afgreiðslu Cunard- skipafélagsins og iáta það sjá um mig vestur. Eftir viku eða 10 daga hélt eg svo áfram ferð minni, fyrst á járnbraut til Es- bjerg, þaðan á skipi til Har- wich og síðan í járnbraut um London til Liverpool til þess að an sinn farangur hnýttan í klút, þegar það kom um borð. Þessu fólki var skipað á land á Ellis- eyju utan við höfnina í New York og varð það þar að ganga í gegnum stranga læknisskoðun og annan hreinsunareld áður en því var sleppt inn í hið fyr- irheitna land. Það þurftum við á hinum farrýmunum ekki, því að látin var nægja skoðun skil- ríkja og ýmiskonar yfirheyrsla í borðsal skipsins, áður en það lagðist að bryggju. deildar Kristilegs alþjóðasam- bands stúdenta, sem annaðist fyrirgreiðslu erlendra stúd- enta í Bandaríkjunum. Eg fékk þar ágætisviðtökur, var m. a. boðinn í hádegisverð fyrir er- lenda stúdenta og voru margir frá Kína, Japan og Filipseyjum. Sagði forstjórinn mér, að margir þeirra ætu aldrei ame- ríska máltíð nema við þetta tækifæri, því að mörg þjóða- brot hafa sína eigin matsölu- staði, þar sem eingöngu eru P.V.^Jaia, icra&ifœlnír: - KANDÍDAT Á VESTURVEGUM ná í skipið Carmania, sem átti að fara þaðan beint til New York. Viðstaðan í London var að þess(u sinni ekki nema nokkrir klukkutímar og í Liverpool ekki nema ein nótt, en ekki var hætta á að villast, því að eg lenti í hópi vestur- fara, sem voru eins og þægur fjárrekstur i urnsjá góðra smalamanna, þar sem umboðs- menn Cunard-línunnar voru. Fljótandi hótel. Carmania var mikið skip, 22.000 smálestir, og ferðaðist eg á 2. farrými, en flestir far- þeganna voru Ameríkanar, sem voru að koma úr skemmtiferða- lagi frá Evrópu, og var fljót- legt að komast í kynni við ýmsa þeirra. Þeir munu flestir hafa verið sæmilega cfnað miðstétt- arfólk, margt miðaldra, og komst eg að þeirri niðurstöðu eftir lauslega áætlun, að hægt hcfði verið að borga mikið af þeim herkostnaði, sem Evrópu- löndin stundu þá undir, með öllu því gulli, sem Ameríkanar gengu með í tönnunum, en í þá daga þótti það fint að vefa gulltenntur. Vistin á 2. farrými var góð og jafnvel óhófleg, að því er mataræðið snerti, því að á morgnana var enskur árbít- ur með hafragraut og rjóma, steiktum eggjum og svínssíðoi, glóðuðu brauði og snúðum, appelsínumauki og smjöri, kaffi, kakaó eða te, en bæði hádegisverður og kvöldverður voru sexréttaðir og gat maður valið margs á milli. Auk þess var te og kökur um miðaftan og' þjónusta öll framúrskarandi góð. Fyrsta farrými var á efstu þilförunum og þar var auðvit- að fínna fólkið, enda ldæddust þar allir karlmenn „smoking“ fyrir kvöldverðinn, en á 2. far- rými tíðkaðist það ekki. Á framþiljunum, sem blöstu við fyrir neðan þilfar okkar, var 3. farrými og voru þar venjulegir innflytjendur, flestir frá Pól- landi og öðrum löndum Austur- Evrópu. Margt af því fólki var mjög fátæklegt, sumt með all- Fleiri Gyðingar en í Jerúsalem. í New York er aragrúi Gyð- inga, einkurn Austur-Júðar frá Póllandi og Rússlandi, margir hverjir stórauðugir. Flestir hafa þeir, foreldrar þeirra eða afar og ömmur kom- ið blásnautt á 3. farrými aust- an um haf og það á verri far- kostum en Carmaníu. Sagt var \ á þessurn árum, að fleiri Gyð- ingar væri í New York en í Jerúsalem, fleiri ítalir en í Rómaborg og fleiri írar en í Dublin. Það var og máltæki, að Gyðingarnir ættu New I York, en írarnir önnuðust j rekstur hennar, því að þeir eru ^ mjög fjölmermir mt’ðal starfsr j manna borgarinnar, einkum í lögreglunni. Ferðin vestur hafði orðið mér dýr, eitthvað um eða yfir 1500 krónur, sem var allmikil upphæð í þá daga, þegar byrj- unarlaun héraðslækna voru 2500—3500 krónur. Gengi íkrónunnar var þá nokkuð fall- jið, því að dollarinn kostaði þá jkr. 6.25 í stað kr. 3,75, meðan jkrónan var i gullgengi. Aftur : á rnóti var kaupmáttur doll- ; | arsins a. m. k. tvöfaldur á við !það, sem hann er nú. Eg átti afgangs ferðakostnaðinum eitt- hvað af lausum aurum og auk þess bankaávísun upp á 300 dollara og sá því, að eg yrði að fara spart með fé mitt. Niður á bryggju komu umboðsmenn ýmissa hótela, sumir borða- lagðir hátt og lágt, en eg réði mig til húsa hjá gömlum Gyð- ingi, sem bauð mér herbergi fyrir 2—3 dollara á Broadway Hotel. Mér fannst nafnið glæsi- legt, en húsið var það ekki að | sama skapi, því að þetta var gamall hjallur, en þó vand- ræðalaust að vera þar í tvær nætur, meðan eg var að útvega mér herbergi. ” "X -- Hitabylgja í New York. Á þessum árum var til í Reykjavík Upplýsingaskrifstofa stúdenta, sem Lúðvíg Guð- mundsson, síðar skólastjóri, veitti forstöðu og hafði eg feng- ið frá honum skilríki til þeirrar framreiddir réttir heima- landsins. Hann bauð að útvega mér herbergi á stúdentaheimili, sem hét Physicians and Surgeons Club og var ætlað læknanemum, eins og nafnið benti til, en ekki gæti eg feng- ið að vera þar nema þangað til kennslumisserið byrjaði, því að það var ekki ætlað kandidöt- um. Ekki gæti eg heldur feng- ið einkaherbergi, heldur yrði að vera á tvíbýlisstofu og tók eg því. Herbergi þetta var 15— 18 fermetrar, með tveimur hægindastólum, tveimur flöt- um, lágum svefnbekkjum og tveimur innbyggðum skápum. Öllu var skipt nákvæmlega til helminga og ekkert sameigin- legt nema dyrnar og andrúms- loftið, svo að um landamerkja- deilur gat varla orðið að ræða. Um þessar mundir gekk mikil hitabylgja yfir New York, svo að nokkrir hlutu af bráðan bana, en margt fólk svaf uppi á húsaþökum, sem víðast hvar eru flöt. Hitinn var upp undir 100 stig á Fah- renheit, eða 37—38 stig á Cel- síus, og verstur um miðnætur- bil. Eg þoldi hitann furðulega, enda borðaði eg ekki marga daga annað en egg, tómata, brauð, kalda mjólk og ísaða sítrónusafablöndu, sem alls staðar var seld á götunum fyr-l ir 5 cent glasið. Þetta fæði j kostaði mig um og innan við dollar á dag. Skrítinn félagi. Herbergisfélagi rninn, scnr var fyrir við komu mína, hefir vist ekki verið henni mjög feginn, því að hann taláði varla við mig orð, svo að eg var ekki viss um nafn hans fyrr en dag- inn, sem sambúðinni lauk, en þá gerðist hann hinn kátasti. Annars sarndi eg mig brátt að siðum hans. Eg lærði það af honurn að raka mig á hverjum morgni og lí'ður illa, ef eg bregð út af því, en það var ekki siður í Reykjavík á mínum ungdómsárum, enda rakaði sjálfur sólkonungurinn, Lúðvík 14., sig ekki nema tvisvar í viku, og Reykjavík var ekki komin fram úr Versölum að glæsibrag fyrir 30—40 árum síðan. Eg tók það líka eftir Williams, en svo hét þessi her- bergisnautur minn, að fá mér kalt steypibað þrisvar á dag í hitanum. Við fórum báðir snemma á fætur, komum heim um líkt leyti, svona kl. 5, tók- um kalt steypibað og sáturn síðan andspænis hvor öðrum, hvor við sinn galopna glugga, alstrípaðir, niðursokknir í lest- ur og létum sem við sæjum ekki hvor annan. Á kvöldin klæddist hann og fór út til að fá sér náttverð, en því sleppti eg oftast. Á náttmálum tókum við svo enn kalt bað og lögð- urnst svo til hvíldar hvor á sínu fleti, allsnaktir eða með eitt línlak ofan á okkur. Þetta var eiginlega allra viðkunnanleg- asti náungi, en eg æfðist lítið í enskunni af sambýlinu við hann. Heimagangur hjá ,,Roosevelt“. Mér hafði verið komið á framfæri við Charles Peck, yf- irlæknir á Roosevelt Hospital, og varð það mér til mikilla happa, því að þetta var einn af frægustu skurðlæknum lands- ins og sérstakur ágætismaður. Hann byrjaði með því að kynna mig fyrir öllum læknun- um á deild sinni og bjóða þeim að vera mér til liðsinnis. Ekk- ert kandídatspláss var laust % þar, en eg var alltaf velkom- inn að vera með læknunum þar og gerðist þar heimagangur. Bráðlega fékk eg þó kandí- datspláss í einn mánuð á Nur- sery and Childs Hospital, fæð- ingarspítala við 10. Avenue og 60. Stræti. Undir hann lá stórt svæði á Vestursíðu Manhattan- skagans og gátu allar konur á því fengið ókeypis skoðanir um meðgöngutímann og ókeypis fæðingarhjálp. Ljósmæður voru óvíða í Bandarikjunum, en læknir tekur á móti börnun- um og hjúkrunarkona, sem annast síðan móður og barn. Maður var ýmist við skoðun kvenna á spítalanum eða send- ur til að sitja yfir, því að þær gerðu vart við á spítalanum, þegar þær tóku jóðsóttina og var þá kandídat og hjúkrunar- kona sencl til þeirra, en þær ekki lagðar inn á spítalann nema fæðingin væri frábrigði- leg og sérstakra aðgerða væri þörf. Eg sat yíir allmörgum konum af allskonar þjóðerni, þar á meðal nokkrum svert- ingjakonum, og kynntist því talsvert lífskjörum fólksins í þessu verkamannahverfi, sem náði niður að höfninni við Hud- sonfljót.. Heimilisfeður höfðu flestir 10—30 dollara á viku, en um það var alltaf spurt, og mun það hafa staðið í sambandi við frílækninguna eða væntan- lega fátækrahjálp. Lítil birta og loftræsting. Á þessum. árurn og eru reyndar enn stórir flákar á Manhattan utan aðalgatnanna „brownstone“ eða „highstoop“ hús frá síðustu öld, sambyggð- ar raðir fimm hæða húsa, sem ekki eru nema sex metrar með- franr götu, en um 20 metrar á dýpt. Til þess að fá einhverja birtu í herbergin um húsið Frh. á bls. 10.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.