Vísir - 07.01.1959, Side 4

Vísir - 07.01.1959, Side 4
V.ÍSIK . IvliSvikudaginn 7. janúar Í959 ; \ ' j ./ •) atvir Krókettur (úr soðnu kjöti). 2 tebolar af fínthökkuðu kjöti. Tómatsósa. 1 þeytt egg. 2 matsk. af hveiti. 2 tebollar af fínthökkuðu kapers. Palmin eða flot. Salt, pipar. Brauðmylsna, eggjahvíta. Kjötið, eggið, hveitið, hakk- að kapers, salt og pipar eftir smekk, er hrært vel saman. Tómatsósu er bætt í þangað til það er hæfilega þykkt. Síðan er þetta mótað í aflöng lítil bjúgu. (Krókettur). Dyfið í eggjahvítu og velt upp úr brauðmylsnu. Látið bíða svo sem kl.stund. — Þá er það steikt í djúpu palmínu eða floti. Bóndadóttir með blæju. Djúpur diskur fullur af rifnu rúgbrauði (nialtbr.). Djúpur diskur af þykkum eplagraut. 125 gr. smjörlíki. Hindberjamauk ef til er, annars rabarbaramauk. Rjómafroða. Smjörlíkið er brúnað lítíls- háttar á pönnu og rifna rúg- brauðinu snúið þar í þangað til það fer að dökkna. Glerskál er skoluð með köldu vatni og í botninn á henni er látið lag af rúgbrauði. Þar ofan á er lagt lag af ávaxtamauki eftir smekk. Þar næst heitur eplagrautur — og þessu er haldið áfram þar til skálin eða mótið er fullt. Efsta lagið á að vera rúgbrauð. Kökunni er þrýst vel saman og hún er geymd þar til hún er alveg köld. Henni er þá hvolft á fat, hún er sléttuð og snyrt. Rjómaíroðu er dreift yfir. (Þessir matarskammtar eru ætlaðir 4). Hvenær er kona ham- Hvenær er konan hamingju- sömust? Þessi spurning var borin upp við morgunverð, sem haldinn er árlega íyrir „konur ársins" í Lundúnum. Og svörin voru eftirtektarverð. „Þegar hún fær góðan mann,“ sagði lady Attlee, kona hins fyrrverandi verkamálaráð- herra. „Þegar liún getur gefið og þegið,“ sagði dansmærin Beryl Grey. „Þegar hún elskar aðra manneskju, vinnu sína og líf- ið“, sagði yfirhjúkrunarkonan Marjorie Marriott. En flestar konurnar voru þó samþykkar Íeikkonunni Joyce Grenfell þegar hún svaraði: „Þegar hún tekur af sér mjaðmabeltið á kvöldin.“ iirðíng fatanna er siiiicii vægt atriði. Mú ©rii .konurnar ©kkl Beng- ur esnar um Getið var lun það í dagblaði nýlega, að nú væri farið að kenna drengjum í skólum, minnir mig, að hirða föt sín og pressa. Þetta er nýjung og góð nýj- ung, því að það gefur auga leið, að þar sem ein manneskja á að sjá um alla hluti á heimilinu, þá hlýtur eitthvað að verða út- undan. Þessi sama manneskja vinnur þar að auki úti stund- um. Og er ekki furða þó að eitt- hvað fari úrleiðis á heimilun- um, þegar svo stendur á og er mikið undan börnum og ung- lingum kvartað. Það hefir hingað til verið. siður að kvenfólkið hirti fötin, bursti úr bletti og hreinsi þau yfirleitt og pressi buxur. En þetta er að breytast. Nú er allt- af leitað í efnalaugarnar ef blettir eru í fötum svo og til að pressa fötin. Þetta eru mikil aukaútgjöld fyrir heimilin, en veitir auðvitað fjölda manna atvinnu. Þó er sjálfsagt að ná úr bleítum heima og til eru þeir drengir, sem alltaf fara í ben- zínglasið eða blettahreinsunar- glasið, ef þeir imissa eitthvað niður í fötin sín. Ætti ætíð að vera til benzínglas á heimilun- um til þess að nota það þegar svo ber undir. Öllum mæðrum þykir gaman að sjá dætur sínar og syni vel til fara. En þó að börnin fái eins föt er ákaflega misjafnt hvern- ig þau fara með þau. Önnur telpan er kannske ákaflega snyrtileg í sér, en hin — sóði. Önnur vill hafa svuntu þegar hún er að leika sér með liti eða mótunarleir, en hin leggst ipeð ölnbogann ofan í litina og skilur svo ekkert í því, hvern- ig hún hefir getað fengið þessa bletti í ermina sína. Það er vandræðalaust að fást við fyrri flokkinn og móðirin þarf ekki alltaf að verg að lesa yfir þeim eða vanda um við þær. En það er þó huggun í því. að allflestum fer fram með aldrinum. Þær stúlkur, sem voru hálf sóðalegar fram á unglingsár eru síðar alltaf með tandurhreina ltraga og vel hirtar hendur og hafa allt í röð og reglu á heimilum sínum. Og svo þegar þær eignast börn kvarta þær undan því, hvað börnin séu sóðafengin — manni verður á að hugsa: öðruvísi mér áður brá. En reglusemi og hirtni getur lærzt, en það er oft ekki fyrr en fólk er komið á vissan ald- ur að það lærir það, þó að allt- af sé verið að reyna að kenna því það. Það er þegar stúlkan hefir unun af því að vera í hreinni og vel strokinni treyju og að hafa fallega gljáandi skó. Þá fer hún fyrst að huga að því hvernig heppilegast sé að halda hlutunum fallegum og í röð og reglu. En gott efni þarf að vera í fötum til þess þau þoli burstun og þvott. Og gott efni þarf að vera í skónum líka. Bezt er að þvo treyjur og annað slíkt áður en það er ó- hreint. — Nylon-sloppar t. d. verða gráir og ljótir, ef ekki er hirt um að þvo þá nógu snemma og nógu oft. — Hér er nóg af heitu vatni og er vand- ræðaaust að þVo oft það sem notað er daglega. Og það sem er úr nælon þarf helzt að þvo hvert sinn sem það hefir verið notað. Þetta má benda á um viðhald fatanna: Kjóllinn er skoðaður nákvæmlega og ef hvítur kragi er á honum verður ef til vill nauðsynlegt að þvo hann? Kjóllinn er hengdur upp á herðatré og er látinn hanga ut- an á skáphurðinni um nóttina, hafi menn verið, þar sem rakt hefir verið um kvöídið. Farið er .úr skónum og þeir skoðaðir vel. Þá þarf að bursta og fága. Þarf að gera við hæl- ana? Skórnir eru strax séttir á leist — sé þeir rakir á að troða inn í þá samankuðluðu dagblaði. Þá er farið ú.r nærfötunum. Séu þau úr nylon á að skola úr þeim strax. Sokkar eru að sjálfsögðu skolaðir. Fötin eru vandlega skoðuð. Það getur verið að eitthvað sé bogið við þau. Þarna er til dæmis sprunginn þráður á einum stað — í hann þarf að þræða strax. Þarna er axlastroffa, sem hangir á einum þræði — hana þarf að sauma fasta — þarna lykkja að bila — hana þarf að þræða. Svo er allt undifbúið undir morguninn, hrein nærföt lögð fram, svo að allt sé til þegar á að fara á fætur degi síðar. ] Það, sem sxðast er,neínt er jánðandi að kenna börnunum 1— það, að hafa til fötin íyrir morgundáginn og í rcð og reglu, svo að þau þurli ekki strax að byrja að k'veina þegar þau klæða sig: „Eg get ekki fundið — hvar hefir þú látið - - og — hver hafi tekið þá o. s. | frv.“ í stuttu máli: hafið gott efni í fötunum, svo að þau þoli burstun og þvott. Þvoið oft og nógu snemma. Gerið við fötin í tíma, svo að þau séu til þegar þarf að nota þau. Hafið ;þá hluti til, sem þið þurfið að nota og leggið þá á vissan stað. ]Og þegar er búið að nota þá á | að leggja þá á sinn stað. Hafið nóg af herðatrjám og hillum., Klæðið hillur og skúffur með ífallegum papír eða með þjáli í fögrum litum, sem líma má á. Það getur þá verið reglu- lega skemmtilegt að láta hlut- ina á sinn stað, þegar svo er um búið. Fáið jmgri börnin með í leikinn og leyfið þeim að taka þátt í því að klæða hillur og: skúffur að innan. Gefið þeirn. leista í skóna og herðatré fyrir kjólana og látið þau sjálf mála heratrén í stíl við skápinn, þá vinnið þér svolítið að smekk- vísi barnanna og þroska. breiðan h©fnr skipf u uppruuiiegt hisitwerk. Þt: Svissnesk tízkuverzlun á heið- urinn af þessari víðu kamb- garnsdragt með Iitlum nerz- kraga. Hana á að nota, þegar dálítið fer að kólna í veðri. í upphafi voru ábreiður ekki ætlaðar fyrir gólf. Þær voru ofn- ar til þess að bera á öxluniun, íil þess að breiða á borð eða legu- bekk, eða fyrir framan veglegt heiðurssæti. Þessi listiðnaður er mjcg forn og var kunnur í Egyptalandi 3 þúsund árum fyrir Kr.b. Eins og önnur forn kunnátta voru á- öreiður þessar aðallega hlunn- indi guða og vísindamanna og sú gerð, sem var notuð, var tákn- ræn og ti’úarlegs eðlis. Ábreiðui’, sem ekki urðu metnar til fjár voru lagðar fyrir fi-aman altari musteranna og fyrir framan há- sæti konunga. Bænaábreiður voru litlar en merkilegar og til þess ætlaðar að leggja á kalt musterisgólf. Og enn er það merki um virðingu, að í’ekia úr ábreiðu til að breiða fyrir vel metinn gest. Hið forna verk, vefnaðurinn, var mjög skemmtilegt, krafðist mikillar leikni og var erfitt og seinlátt. Endingargóð uppistaða var strengd á gi’ófan handvef- stól. Á hvern jvafsþráð var knýtt ur lítill lagður af silkimjúku hári geitarinnar eða úlfaldans. Gæði ábreiðunnar voru reiknuð með eftir því hvað margir voru hnút- arnir, þeir gátu verið frá 4Ó0 og upp í 1000. Eftir að hver uppi- stöðuþráður var fullknýttur var hann sleginn svo að rpðin væri slétt, og þá var hafist handa um næstu röð. Svo hægfara og ná- kvæmt var uhnið, að ábreiða af vandaðri gerð, varð ekki unnin af einni kynslóð og verkið gekk í arf til næstu kynslóðar. Þégar ábreiðan var búin var hún klippt, þar til hún var mjúk eins og flos og jurtalitirnir í henni voru svo fagrir og glóandi on þó mjúk ir, þegar þeir komu saman. Navaho-Indíánar i Amerku ófu mottur og ábreiður eftir sömu aðferðum að mestu, þeir notuðu grófarí ull en mikið af táknræn- um mynstrum. Serkjaveíarar, sem komu um Spán og Italíu störfuðu í Frakklandi á 13. öld, en árið 1685 var endurkölluð lagatilskipun frá Nantes og þá tvístruðust hinir lærðu vefarar um alla Evi’ópu og brátt kom að því að í Englandi, í Kidder- minster, Axminster og Wilton ( voru gólfábreiður ofnar í hand- , vefstóL Þær voru þannig til bún- | ar. þangað til árið 1839 er Erast- us Bigelovv fann upp yefstól, sem j var vélknúinn og þá loks urðu gólfábreiður ein af þægindum al- gengra heimila. Fornar gólfábi-eiður, með sínæ fögru liti og silkimjúku ló og því nær óslítandi, eru nú næstuni orðnar „safngripir", sem ekki er hægt að meta til fjár. En nýtízku: verksmiðjur stæla nú mjög hina mjúku persnesku liti, tákn kín- versku gei’ðanna og frumstæðar gólfábreiður frá Kákasus. Á dögum brautryðjenda í Ameríku var það sparsemisvenja að búa til gólfteppi úr tuskum og gólfá- breiður, sem voru ,,húkkaðar'‘ voru líka gerðar. Það sem fjöl- skyldan átti afgangs af vænum bómullartuskum var saumað í langar lengjur þegar húsfreyja hafði tóm til, og var síðan fengið vefara byggðarinnar í hendur og' hann breytti því í þokkalega og endingargóða gólfábreiðu. Væri svo strá lagt undir þessa gólfá- breiðu gerði hún mjög vistlegt í húsi, sem var heldur lítið hitað. „Húkkaðar" ábreiður voru og* nc.taðar eins og fyrr er sagt og- voru þær svo gerðar að klipptar voru sundur tuskur í örmjóai’ ræmur, svo voru þær litaðar eft- ir því sem til var ætlast og síðan voru þær dregnar með þar til gerðum krók í gegnum gróft léi’— eft eða striga. Vár mynstur dreg’ ið á strigann og farið eftir því. Gátu þetta verið mjög fallegar ábreiður og sérkennilegar og svo- endingargóðar voru þær að þær gátu enst lieila mannsævi. Snemma var byrjað á gerð gólfá breiðna í Ameríku. En fyrsta verksmiðjan, cem nokkuð kvað að, var stofnuð í Filadelfiu 1793' og önnur var opnuð 1804 í Wor- cester, Massachusetts. Aðrar uxu upp smátt og smátt og notuðu sér framfarir efnafræði og vís- inda í aðferðum sínum við að> lita, vefa o? selia. Alma Cogan, vísnasöngkon- an víðkunna, sem hingað kom eins og margir munu minnast, var fyrir nokkru á 16 daga söngferðalagi um Eire og Ulster. Irsku blöð- in segja, að hún hafi birgt sig vel upp af dúkum ým- iskonar úr írskum hör. I einu blaðinu var þess getið, að hún ætti svo marga kjóla, að hún hefði að jafn- aði 50 í geymslu, og greiddi fyrir 10 gíneur á viku. —• Kjólarnir liennar eru íaldir 20.000 stpd. virði.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.