Vísir - 07.01.1959, Síða 9

Vísir - 07.01.1959, Síða 9
Miðvikudaginn 7. jjanúar 1959 VISIR KANDfDAT k VESTURVEGUM Framh. af 3. síðu. sem líkunum er rennt inn í. Á efri hæðum hússins eru lík- skurðarstofur og ailskonar rannsóknarstofur. Sóttur til Kínverja. Skammt frá þessu hverfi 'rek- ur KFUM líka mjög merkiiegt hótel fyrir unga menn og alls- lausa. Þeir þurfa hvorki að borga mat né húsnæði, því að allt er skrifað hjá þeim í reikn- ing, en reynt er að útvega þeim atvinnu svo fljótt sem auðið er og þeir eru beðnir um að greiða skuld sína við hótelið svo fljó^ sem þeir geta, svo að aðrir ung- ir menn, sem líkt ster.dur á fyrir, geti notað sömu fyrir- greiðslu. Þetta fyrirkomulag, sem er reist á trausti annars vegar, en drengskap og þakk- læti hins vegar, gafst svo vel, að 80—90% greiddu skuldir sína fyrr eða seinna. Eg borðaði stundum kín- verskan mat í Port Arthur, sem var ágætur matsölustaður í Kínahverfinu, en einu sinni var eg sóttur þangað í svefnskála einhleypra Kínvérja. Rúm voru engin, heldur aðeins pallur, þar sem vistmennirnir sváfu hlið við hlið með höfuð upp að vegg, en fætur fram að pallbrúninni og var þarna sennilega pláss fyrir 15—20 manns í einni röð. Rúmföt voru engin heldur að eins strámotta á pallinum og trékubbur í kodda stað. Sjúk- lingurinn var dauður, þegar eg kom, en hvílunautar voru reykjandi og virtust ekki láta það neitt á sig fá, nema sonur hans 15—16 ára, sem var skæl- andi. Aftur á móti lá mjög vel á gestgjafanum, feitum og patt- aralegum Kínverja, enda var þetta á gamlárskvöldi Kínverja, sem er í febrúar, og voru að þvi íilefni mikið af marglitum pappírsluktum utan á húsunum og gleðskapur hjá mannfjöldan- um á götunum. Gestgjafinn gaf okkur vindla og tróð m. a. s. tveini dollurum upp á mig, en einum á Bill Sjrkes, bílstjórann minn, og þágum við það, þó það væri raunar á móti reglum að þiggja þóknun fyrir starf sitt. Þótt merkilegt megi virðast, voru það helzt gestgjafarnir í 25 centa hótelunum, sem buðu manni þóknun, og það voru þeir einu, sem maður þá hana hjá. Heim. Eg hef brugðið hér upp nokkru af því, sem fyrir augu mín og eyru bar á þessari náms- ferð minni til New York fyrir 35 árum, og er þó fátt eitt talið af þeim myndum, sem í hugann koma, þegar favið er að rifja þann tíma upp. Eg: kunni á þeim árum vel við hið þrot- lausa, ið-andi starf og stríð stór- borgarinnar, með öllu þess gliti og hyldjúpu skuggum. Eg var ekki aðeins sólginn í þá þekkingu á fræðigrein minni, sem dvölin þar færði mér, heldur einnig gráðugur í þekk- inguna á lífinu sjálfu, þótt það birtist manni stundum i sinni ömurlegustu og að því er virð- ist tilgangslausustu mynd. Það er ekki fyrr en maður fer sjálf- ur að vera saddur lífdaga, sem maður segir með Einari Bene- diktssyni: Mér finnst þetta líf allt sem uppgerðarasi og er- indisleysa með dugnaðarfasi. ' Eg hefði orðio lengur í New York, ef til vill sogast inn i hringiðuna og losnað ekki úr henni fyrr en út við feigðarós, ef eg hefði ekki átt konu og lít- inn son heima á íslandi. Eg átti kost á stöðu a&toðardeildar- læknis á Beekman Street spít- ala á kandídatstímanum lokn- um og það var efst í huga mín- um að sækja fjölskyldu mína og hverfa aftur vestur, þar sem fé og frami blöstu við í hillingum æsliuranna. En það fór svo, að eg hafði ekki fyrr stigið fæti á land heima en mér fór eins og Gunr.ari á Hlíðarenda forðum, er hann leit til Fljótshlíðar. Eg held lika, að þctt mér hefði tekizt að öðlast það gengi í framandi landi, sem auðvelt er að láta sig dreyma um meðan lífið hefur ekki stíft vang- brodda hugmyndaflugsins þá hefði eg aldrei sætt mig til fulls við þá hugsun, að niðjar I mínir hyrfu sem dropar í hafið langt írá mínum eigin upp- ' sprettuiindum. Að vísu hverf- um vér öll í haf tímans, þeir voldugu og vel metnu eins og | vesalingarnir, sem eg starfaði um tíma meðal á Bowery- svæðinu í New York. Norðmenn yf- ir 3.5 millj. Frá fréttaritara Vísis, — Oslo í jan. Hagstofan norska liefur til- kynnt, að við áramót s.l. hafi íbúatala Noregs verið áætluð 3.541.000. Konur eru 1.777.000, en karl- ar 1.764.000. Eru því konur 13 þús. fleiri í landinu en karlar, en 1950 voru konur 28 þús. fleiri en karlar. Talið er, að mismunurinn muni halda á- fram að minnka næstu ár. Eyfirðingar fá snjóbíl. Klutverk hans að fðytja sjúka, svo oy farþega ©§ vörur, þegar sasigöngBir feppast. Frá fréttaritara Vísis. Akureyri í gær. Á næstunni er von á nýjum og vönduðum snjóbíl til Akureyrar, sem fyrst og fremst gegnir því hlutverki að annst sjúkraflutn- inga, en einnig farþega. og vöru- flutninga þegar öðrum farartækj um verður ekki við komið. Það er Sesselja Eldjárn for- maður Slysavarnadeildar kvenna á Akureyri, sem hefur gengizt fyrir þessum bifreiðakaupum og unnið að því að afla fjár til þeirra, Hefúr henni orðið svo vel ágengt að fjáröflun er lokið, en bíllinn mun kosta röskar 200 þús. krónur. Hefur leyfi fengizt fyrir honum, en þarna er um að ræða bíl af sænskri gerð frá Nord- vork verksmiðjunni. Hann ér með 90 ha Volvovél, ber 1200 kg. þunga og getur auk þess drégið 2—-214 lestaþungan sleða. Billinn er væntanlegur til landsins fljót- lega eftir áramótin og verður byggt yfir hann hér heima. Það hefur þegar verið ráðið að þeir Lénharður Helgason og Friðrik Blöndal hafi umsjá með bílnum og starfrækslu hans á hendi og leggja þeir sjálfir fram 30 þús. kr. til bílkaupanna. Fram lög frá öðrum aðilum verða sem hér segir: Kaupfélag Eyfirðinga. leggur fram 100 þús. kr., Krist- neshælið 10 þús. kr., Fjórðungs- sjúkraliúsið 15 þús. kr. Dalvíkur- hreþpur og Árskógsstranflar- hreppur sínar 10 þús. kr. hvor, en aðrir hreppar í sýslunni svo- og Grýtubakkahreppur og Sval- barðsstrandarhi'eppur í Þingeyj- arsýslu, sinar 5 þús. kr. hver. ★ Vesturveldin liafa vísað formlega á bug tillögimi sowétstjórnarinnar um hlut- laust borgríki í Berlín. n. ms C. AÍSeEHSEIV: SlVÆDROTTOEVGm 17—18 1 Montreux bjó ljósa Babetie með dætrurxr sínum tveimur og ungum frænda þeirra. Malarinn yar búinn að tilkynna trúlofun Babettes og Rudys og nú urðu þau öll þrjú að koma og þess vegna komu þau öll. Móttökurnar voru hinar hjartanlegustu. Ljósan var stórvaxin kona, feitlaginn með hýran svip og frændi hennar var með svo myndarlega barta að þeir hefðu nægt þremur heldri mönnum og það leyndi sér ekki að hann var ekki svo lítið hrifinn af Babette. Rudy, sem venjulega var hress og glaður, var samt ekki í essinu sínu. Honum íannst tíminn aldrei ætla að líða. Og loksins átti nú a.ð íara í gönguferð. Það gekk alveg seint. Það var farið niður til Chillon, gamla ems skuggalega kastalans íil þess að skoða fangelsi hmna dauðadæmdu cg virða fynr sér ryðgaða fangahlekk- ina í múrnum. Rudy hallaði sér upp að emum kastala- glugganum og virti íyrir sér þessa emmanalegu litlu eyju og akasíu trén þrjú. Hann langaði þangað og vera laus við skvaídur samkvæmisgestanna. Frænd- inn hafði gefið Babette bók til minningar um Chillon. ,,B6kin er ekki sem verst,“ sagði Rudý, ,,'en þennan sléttgreidda náunga, sem gaf þér hana, lízt mér ekki á.“ ,,Hann leit út eins og tómur mjölpoki,“ sagði mal- arinn og hló að fýndni sinni. Rudy hló líka og sagði að þetta hefði verið vel og skemmtilega sagt. Þegar Rudy kcm aftur til myllunnar rakst hann a frændann þar aítur. Hvað var hann eiginlega að gera þar. Rudy var afbrýðisamur og Babette 'naíði gaman af því. Myllan síóð við þjóðveginn undtr háu sriaevi- þöktu fjalli. Vegurinn var Káll og mjór og meðfram myllunni fossaði áin, en það var hægt að fara fjalla- stíginn að myllunni og það gerðú þeir sem ætluðu að ílýta sér og það datt frændanum í hug að gera. Hann fór þessa leið kvöld nokkurt og stefndi að Ijósinu í giugga Babette. Hann var næstum dottinn í ána, en slapp samt og komst á land brókavotur. Hann khfraði upp í gamla linditréð fyrir utan gluggann hjá Babette og hermdi eftir uglunni, því hann kunni ekki að herma eftir öðrum fugli. Babette heyroi þetta og leit út, en slökkti Ijósið í fiýti cg gekk úr skugga um að glugginn væn læstur. Hún sá hvér þetta var og lét nann gaula og barma sér fyrir utan gluggann. Það væri hræðilegt ef Rudy væri nærstaddur, en það var nú einmitt svo. Hann var þar líka fyrir uían gluggann. Þeir skiptust á orðum í reiði og það mundu áreiðanlega verða áflog. Babette var hrædd og opnaði gluggann og lcallaði nafn Rudys og sagðist ekki þola að hann væri þar. ,,Þú getur ekki liðið að eg sé hér, það er þá ákveðið, kallaoi hann á móti. ,,Þú híður eftir vini sem er þér kærari en eg. Skarnmastu þín Babetteí“ Babette kastaði sér í rúmið og grét.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.