Vísir - 23.01.1959, Blaðsíða 4

Vísir - 23.01.1959, Blaðsíða 4
TtBIB Fjös4udagtnn 23. ,Janúar l'Söí Hvernig A.-Þjóðverjar una í landinu í EftEr Hlark PoSIer, sérfræðing um nreálefni 4.-Evrópia. Það dylst engnm háskóla- stúdenti í Austur-Þýzkalandi, að embættismenn kommúnista- flokksins, sem stjórna landinu, <-ru ofurseldir þeirri stefnu, að vilja stjórna hugsunmn manna. Allir fyrirlestrar, sem hann sækir, allar bækur, sem hann les, allir leikir, sem hann sér — allt hefir þetta verið sniðið eftir þörfum kommúnista- kenninga. Sjálfstæða hugsun getur hann aðeins leyft sér í leyni — eða þá sjaldan að hann fær tækifæri til að ræða í einlægni við tryggustu vini sína, og er það þó ekki áhættulaust. Hið hefðbundna hlutverk háskól- ans, sem miðdepill frjálsra skipta á hugmyndum og skoð- unum, hefir nú vikið fyrir þeirri hugsun, að kommúnista- kenningar verði ekki rengdar. Tilgangur stjórnarinnar er auðsær: að móta áhrifagjarna unga menn að geðþótta sínum og gera úr þeim pottþétta, kreddubundna kommúnista. Til þess að svo megi verða er vitanlega nauðsynlegt að loka augum hins unga manns fyrir þeirn staðreyndum, sem allir hugsandi menn sækjast eftir. Veldur hvcr á heldur. Við megum ekki gleyma því, að Austur-Þýzkaland er her- numið af sovézkum herjum og landinu er stjórnað af mjög litlum minnihluta þýzkra kommúnista, sem verða að fullnægja kröfum Moskuvalds- ins, ef þeir eiga að haldast í sessi. Það gefur svo auga leið, að skólakerfi austur-þýzku stjórnarinnar verður að byggja upp eftir sovézkri fyrirmynd. Einhvern tíma komst Stalín þannig að orði við erlendan blaðamann: „Menntun er vopn, og áhrif þess eru komin undir þeim, sem heldur á því, og þeim, sem verður fyrir því“. Sú kenning, að menntun sé ,,vopn“ er grundvallaratriðið í skólakerfi Sovétríkjanna sem og í Austur-Þýzkalandi og öll- um öðrum kommúnistalöndum. Þetta var undirstrikað í hinu opinbera sovézka tímariti Menntir og líf, hinn 31. ágúst 1947. Þar segir ,m. a.: „Hinn sovézki skóli getur ekki látið við, það eitt sitja að ala upp menntaða menn. Grundvöllur hans eru staðreyndir og niður- stöður, sem leiðir af hinum framsæknu visindum, og því skal hann blása hugsjónafræði kommúnismans í brjóst hinnar ungu kynslóðar, móta lífsvið- horf hennar í anda Marx og Lenins og innræta henni svo- ézka ættjarðarást og bolsé- vískar hugmyndir.“ Námsefni er ritskoðað. Hvernig framkvæmir Aust- ur-Þýzkaland þessa uppeldis- og skólaheimspeki kommún- ista? Það er í fyrsta lagi gert með því, að námsefni í öllum skólum landsins er lagt undir einskonar ritskoðun kommún- ista, en hún er ekkert annað en fjöldafölsun á mannkyns- sögu, landafræði og öðrum fræðigreinum. Á fyrstu árunum eftir að kommúnistastjómin fór að taka æðri menntastofnanir Austur-Þýzkalands fyrir — en þær höfðu áratugum saman verið miðstöðvar frelsis og ein- staklingshyggj u, eða þar til nazisminn og kommúnisminn komu til sögunnar — birtist eftirfarandi klausa í kennslu- málaritinu Die Neue Schule (16. tölublaði ársins 1951); „Hugur okkar er gagntekinn af flokkshugsjón kommún- ismans, og því verðum við í eitt skipti fyrir öll að binda endi* á óhlutdræga kennslu mannkynssögunnar.11 Sagan sé ski-ifuð á ný. Walter Ulbricht, flokksfor- ingi Stalínista í Austur- Þýzkal., sagði eftirfarandi um endurskoðun á mannkynssög- unni á flokksþingi kommún- ista í Austur-Berlín í desem- ber 1957: „Það er nauðsynlegt að endurskoða eða umskrifa þá kafla mannkynssögunnar, sem ekki sarhrýmast lengur lífsviðhorfi okkar. Þetta gera sérfræðingar í tækniháskólum og öðrum menntastofnunum landsins árlega. Hvers vegna skyldu þá ekki heimspekingar og lagaprófessorar eða lög- fræðingar gera það öðru hvoru? Það útheimtir að vísu nokkra vinnu, en um það er ekki að sakast.“ Á kennararáðstefnu, sem haldin var á vegum flokksins í | Austur-Berlín í marz 1958, gagnrýndi Kurt Hager, ritari kommúnistaflokksins, að „í flestum háskóladeildum er I f r sernámið að'greint frá hugsjóna legri og pólitískri fræðslu ^ stúdentanna" og benti á, að í framtíðinni yrðu háskólar landsins að samrýma starfsemi sína „kröftum sósíaliskrar (kommúniskrar) þróunar.“ Tryggiug framtíðar , vísindanna. I „Vísindin má ekki aðgreina jfrá stjórnmálunum“ sagði |hann. „Aðeins með því að Ifylgja aðfeiðum kommúnista jog viðurkenna hugsjónafræðá | kommúnismans verður framtíð þýzkra vísinda tryggð“. Og | austur—þýzkur útvarpsfyrirles- ari lagði eftirfarandi til mál- anna: „Við kommúnistaháskóla er ekkert rúm fyrir vísinda- störf fyrir vísindin sjálf“. Próf í skólurn landsins eru ekki notuð sem mælikvarði á kunnáttu nemendanna. Þau eru ekki til annars en skera úr um, hvort þeim hafi lærzt að hugsa á kommúnistiska vísu. í reglugerð um lokapróf mennta- skólanema segir, að prófspurn- ingarnar verði „að skera úr um, hvort nemendurnr .... geti hiklaust dæmt um ástand- ið í þjóðfélags og stjórnmálum landsins“. í reglugerð Die Ncue Schule segir, að eitt af skilyrð- unum fyrir því, að nemendur hljóti fyrstu einkun sé, „að þeir geti hagnýtt sögukunnáttu sína í sambandi við nútíma- vandamál og séu fúsir að vinna að framförum" (þ. e. kommún- isma). Bach og stjornmál. Jafnvel tónlistarnemendur verða að hafa rétt svör við pólitískum spurningum á reið- um höndum. Austur-þýzka flokksblaðið Neues Deutsch- land segir, að tónlistarstúdent, Jljf'óti klutí: HIÐ NÝJA sem spurður sé hver Bach hafi verið, eigi að svara: „Sósíal- iskt tónskáld, sem afturha-lds- samir borgarar hans tíma sýndu engan siiilning og hlaut aðeins viðurkenningu meðal hinna miklu rússnesku tón- skálda.“ Ausíur-þýzka stjórnin er eðlilega hreykin af því, hve æðri menntastofnunum í land- inu hefur fjölgað undanfarin ár. Fyrstu árin eftir stríð varj fjöldi þeirra nemenda, sem hófu nám í háskólum landsins,! að meðaltali 2.500 á ári, en skólaárið 1956—57 voru þeir orðnir 16,500. Nú stunda eitt- hvað 80.000 stúdentar nám við æðri menntastofnanir í land- inu. Mörgum vísað frá. Þá eru margir ungir menn, sem hafa hug á að stunda há- skólanám, en verður ekki að ósk sinni. Hinn 6. ágúst 1957 segir Neues Deutschland, að; skólaárið 1957—1958, muni austur-þýzkir háskólar aðeins geta tekið við „14,000 af 21,000 stúdentum, sem sótt hafa um inngöngu“. í sama blaði segir: „Það er mikill skortur á húsnæði, þarl sem stúdentar geta stundað þann hluta námsins, sem verð- ur að fara fram utan fyrirlestr- arsalarins. Þetta á einkum við um læknisfræði og tækni- og stærðfræðigreinar. Það voru níu, sem sóttu um hvert laust pláss í lyfjafræði, níu í flug- umferðarstjórn, sjö í dýra- fræði, fimm í garðyrkju, fjórir í alþjóðaviðskiptum og tveir í læknisfræði.“ „Það er einkum erfitt að fullnægja eftirspurn menntastéttarinnar í þessu sambandi“, segir ennfremiu- í sama blaði. „Það bárust t. d. fleiri umsóknir frá börnum menntamanna einna en hægt var að veita viðtöku alls í lyfjafræði, kjarnorkuvísindum, dýrafræði og líffræði.‘“ Erfiðisvinna er skylda. Það eru ströng skilyrði fyrir inngöngu í æðri menntastoín- anir í Austur-Þýzkalandi. Þeir sem vilja innrita sig í háskóla, verða ekki aðeins að ganga undir erfið inntökupróf, heldur verða þeir samkvæmt lögboði frá austur-þýzku stjórninni að vinna a. m. k. eitt ár við erf- iðisvinnu í ríkisverksmiðju eða á samyrkjubúi — eða gegna tveggja ára herþjónu.stu í austur-þýzka hernum — áður en. umspkn hans er tékin til greina. Þetta ef þó er.gan veginn trygging fyrir því, að þeir fái inngöngu. Skýrsla frá yfir- manni umsækjanda og fyrr- verandi starfsfélögum í Iðrtaðr. eða landbúnaði um hegðun hans, vinnuaga og stjómmála- skoðanir er einnig þung á metunum. Úr sögudeiíd í kolanámu. Þegar háskólanámið er svo loks hafiö, er gengid Jast eftir því, að stúdentarnii skuld- bindi sig til að vinna ’ð land- búnaðarstörf eða í ríMsverk- smiðjum í skólaleyfi rn . ’r.um. Neues Deutschland he. : t. d. skýrt svo frá, að gerður hafi verið samningur milli sögu- deildar Leipzighó ' pg stjórnar koianán í Thrana, þar sem r.endur deildarinnar eru sku ábundnir til þess að vinra n '..iega í námunum í skólaley ,.\ sín- um. Við skipulagningu slíkrar „frístundaiðju“ er stúdentun- um skipað í vinnuflokka undir stjórn hinnar svonefndu „frjálsu þýzku æsku“ (FDJ), sem er félagsskapur ungra kommúnista, og því hefur op- inberlega v.erið lýst yfir, að þessi vinna sé „mælikvarði á stjórnmálaviðhorf stúdent- anna“. Sumir hafa forréttindi. Stjórnin leggur rnikið kapp á að koma upp nýrri og á- reiðanlegri kommúnistayfir- stétt, og í þeim tilgangi kemur hún í veg fyrir . að börn úr „borgarastétt11 öðlist æðri menntim. Hér hafa hinsvegar börn þeirra foreldra, sem télj- ast til „öreigastéttarinnar" sér- réttindi. Þá hefur verið til- kynnt opinberlega, a‘ö stjórnin. hafi í hyggju að herða á eftir- litinu með innritun stúdenta í háskóla — jafnvel einnig framhaldsskóla. Áður voru það háskólarnir sjálfir, sem á- kváðu, hverjum ætti að veita skólagöngu, en í framtíðinni eiga þeir aðeins að anriast ,,undirbúning“ og lokaákvörð- unin verður falin ríkisfyrir- tækinu eða verksmiðjunni, þar sem annað foreldra viðkomandi nemanda vinnur. Ef foreldrarnir vinna hins- vegar ekki við neitt ríkisfyrir- tæki, veiða þeir að ráða barnið að fyrirtæki, sem viðkomandi skóla nýtur styrks frá, og þar Framh. á 9. síðu. =• ^ Ileldur cr kyrrð að færast yfir Kúbu, en þessi mynd var tekin fyr'ir skemmstu, þcgar Fidel Castro hélt inn í Havana við fagnaðarlæti borgarbúa.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.