Vísir - 30.01.1959, Page 6

Vísir - 30.01.1959, Page 6
fc VÍSIR Föstudaginn 30. janúar 1950 wsan D A G B L A Ð Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H.F. Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Fálsson. y Skriístofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðslar Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: (11660 (fimm línur) Vísir kostar kr. 25.00 í áskrift á mánuði, kr. 2.00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðian h.f. Ósigur í fyrstu lotu. Um síðustu helgi var efnt til stjórnarkjörs í stærsta verkamannafélagi landsins, Dagsbrún, og gengu menn aldrei gruflandi að því, um hvað mundi fyrst og fremst verða kosið. Kommúnistar hafa skipt um skoðun rétt einu sinni, vilja leyfa vísi- tölunni að leika lausum hala, og í Dagsbrún ætluðu þeirra að skera upp herör og sýna þeim, sem vilja hemja vísitöluna og bægja verð- bólguhættuni frá, að þeir hefðu verkaiýðinn með sér í baráttunni. Kommúnistar ætluðu að auka atkvæða- magn sitt í Dagsrún til mik- illa muna og hræða með því aðra til að láta að vilja sínum. Það er nú á allra vitorði, að kommúnistar unnu engan veginn þann sigur, sem þeir gerðu sér vonir um. Það er vissulega rétt, að þeir héldu meirihluta sínum í félaginu, en þeir bættu ekki við sig einu atkvæði, hvað þá fleiri, því að þeir töpuðu einmitt nokkrum íugum. Leikur ekki á tveirn tungum, að þótt þeir haldi stjórn félags- ins áfram og geti notað það í sínar þarfir — ekki verka- manna — hafa þessar kosn- ingar bakað þeim mikil von- brigði. Þær benda kommún- istum nefnilega á það, að þeir verði að fara sér hægt, þeir verði að gæta sín, því að stefna þeirra sé ekki sig- urstrangleg. Kommúnistar hafa talað mikið um kauplækkun, en þeir hafa forðast að nefna það, að það er fleira, sem á að lækka en kaupið eitt. Það á að lækka allar vörur og þjónustu. En það nefna kommúnistar vitanlega ekki. Um það, þegja þeir vandlega eða kalla það blekkingu. Út á þenna heið- arlega áróður sinn ætluðu þeir svo að fá mörg hundruð ný atkvæði í Dagsbrún, en þau átti síðan að sýna sem sönnun fyrir því, að alþýð- an stæði með þeim gegn stjórninni og „kauplækkun- arliðinu“. Reyndin varð hinsvegar sú, að kommún- istar hafa ekkert að sýna, því að þeir töpuðu þarna fyrstu lotunni. Slæm vígsta&a Það er hættulegur leikur, sem kommúnista langar til að ieika. Þá langar til að hleypa af stað verkföllum miklum, löngum og skaðlegum verkföllum, til þess að hefha fyrir það, að þeir eru ekki lengur í stjórn. Dagsbrúnar- kosningarnar áttu að vera sönnun þess, að þeim væri óhætt að hefja þenna leik, en nú eru allar líkur fyrir, að kommúnistar neyðist til að hætta við hann eða fresta honum að minnsta kosti urn hríð. Við það vofir yfir þeim önnur hætta. Hún er fólgin í því, að önnur áhrif stöðvunar- stefnunnar en kauplæúkunin fara að koma í ljós, þegar kemur fram í næsta mánuð og síðan æ betur eftir því sem eldri birgðir seljast og nýjar með lægra verði koma fram í verzlanir. Þá fær al- menningur að sjá, hvers virði stöðvunin er og hversu óhætt er að trúa fullyrðing- um kommúnista. Er ljóst af þessu, að kommún- istar eru í hinum mesta vanda og honum margþætt- um. í fyrsta lagi voru þeir með stöðvun vísitölunnar og eftirgjöf af hálfu launþega fyrir fáum vikum. í öðru lagi hafa verkamenn í Dags- brún — aðrir en biindir kommúnistar— hafnað for- ustu þeirra í launamálum, svo að þeir munu vart þora í verkfall, og í þriðja lagi óttast þeir verðlækkanir, er verða kunna. Vígstaðan er er því mjög erfið. Alft er þeim andstætt. Það er óhætt að segja, að allt sé kommúnistum andstætt um þessar mundir. Þeir voru í hálft þriðja ár þátttakend- ur og mestir valdamenn í ríkisstjórn, sem sveik í fyrsta lagi öll sín fyrirheit við kjósendur, og gerði sig í öðru lagi seka um að skerða kjör almennings m°ð margvíslegum ; aðgerðum, ^ £VQ sem vísitölubindingu og gengislækkunum. Kommú- istar stóðu óhikað með stjórninni, á hverju sem gekk og vildu gera meira af sama tagi en komust ekki til þess, af því að stjórnin fór frá. Þegar reynt er að bæta að ein- hverju leyti fyrir afglöp þeirra og að nokkru með svipuðum aðgerðum, og þeir höfðu beitt, snúast þeir önd- Fiskimjölsframiei&slan meiri en nokkurn tíma fyrr 1958 — vegna hins mikía karfaafla togaranna á miðunum vio Nýfundnaland. — $ala gekk vel á áriiiu — S.I. ár var framleiðsla á fiskmjöli hér á landi meiri en nokkru sinni fyrr, ef karfa- mjölið er talið með, en eins og kunnugt eru stunduðu togar- arnir mjög karfaveiðar á hin- um nýfundnu miðmn við Ný- fundnaland, en karfanum var landað hér, og karfinn flakað- ur, en mjöl unnið úr úrgang- inum. í grein um fiskmjölsfram- leiðsluna í Ægi segir Jónas Jónsson: „Veldur hér hinn mikli karfaafli, sem fékkst á nýju miðunum við Nýfund’naland. Togarafloti landsmanna hefur stundað þessi mið allan seinni hluta ársins með mjög góðum árangri. — Hafa frystihúsin tekið á móti öllum aflanum til flökunar, en úrgangmánn, sem er um það bil % hlutar af afl- anum, hefur verið unnirih í fiskmjölverksmiðjunum. Er hér um að ræða miklu meira magn en nokkurn tíma áður hefur borist verksmiðjunum tii vinnslu. Ekki af sömu gæðum. Karfinn, sem veiðzt hefur á þessum miðum, er ekki af sömu gæðum og sá, sem fengist hefur hér á heimamiðum eða við Grænland. Hann er misjafnari að stærð og fitumagn hans mun minna. Svo virðist þó sem fitumagnið hafi heldur aukist, er kom fram á haustið. Þessi tilfinnanlegi gæðamunur kem- ur mjög illa við vinnslustöðv- arnar. Frystihúsin fá mun Aðaifundur vörubíl- stjcrafél. Þróttar. Aðalfuiulur VörubílstjóraféL Þróttar var hahlinn sunnudaginn 25. þ. m., og \ ar hann fjöLmenn- ur. Lagðir voru fram reikningar félagsins fyrir siðasta ár og sam- þykktir. Fráfarandi formaður flutti skýrslu stjórnarinnar fyrir liðið ár, og urðu um hana nokkrar umræður. Síðan var lýst úrslit- um stjórnarkjörs, er fram haíði íarið með allsherjaratkvæða- greiðslu, og tók svo hin nýja stjórn við, en hana skipa eítir- taldir menn: Einar Ögmundsson formaður, Ásgrímur Gíslason varaformaður, Gunnar S. Guð- mundsson ritari, Bragi Kristjáns son gjaldkeri, Árni Halldórssoii meðstjórnandi. Þó voru kosnir endurskoðend- ur fyrir félagið og skemmtinefnd ' en siðan var aðalfundi frestað og muuu þau mál, sem óaígreidd voru, verða tekin fyrir á fram- haldsaðalfundi, sem haldinn verð ur bráðlega. minna magn af flökum og verk smiðjurnar fá miklu minna af lýsi. Sala gekk vel á árinu. Sala á þorsk- og karfamjöii gekk vel og hækkaði verð, ei kom fram á haustið og var þá aðallega um karfamjöl að ræða, sem hægt var að bjóða, því að þorskmjölið var þá að mestu selt og afgreitt. „Lýsis- verð var aftur á móti ekki jafn gott, þegar miðað er við verð- lag á frjálsum markaði. Mun karfalýsi hafa komizt hæst í 72 stpd. lestin (c. i. f.) og er það lægra en árið áður.“ Afurðirnar seldust nokkurn veginn á sömu markaði og áð- ur. Nokkru meira en áður fór til A.-Þýzkalands og' Tékkó- slóvakíu. Danmörk keypti mest af karfamjölinu hinna frjálsu markaðslanda og fékkst þar jafnbezt verð. „Þó kom nú V.- Þýzkaland í fyrsta skipti og greiddist sambærilegt verð og virðist svo sem eftirspurn í þessu landi á karfamjöli fari vaxandi.11 Horfur. í greinarlok segir höfundur: „Menn eru vongóðir um, að nýju miðin við Nýfundnaland muni verða mjög notadrjúg einnig á hinu nýbyrjaða ári. Er þetta vafalaust langþýð- ingarmest hvað snertir starf- semi frystihúsanna og fiski- mjölsverksmiðjanna, að þessi mið verði eins gjöful í ár og á sl. ári. — Um verðlag af- urðanna er mjög erfitt að segja nokkuð fyrirfram. Kemur þar margt til, sem getur haft áhrif. Ekki er nein sérstök ástæða til að vera svartsýnn nú, sérstak- lega hvað þetta snertir." verðir og láta öllum illum látum. Þeirra kjörorð er greinilega á þessa leið: Ekkert má lagfæra, en ýmsu má spilla og við erum reiðu- búnir til þess. Kvikmyndasýning Germaníu Á rnorgun,laugardag, verður kvikmyndasýning á vegum fé- lagsins Germanía í Nýja bíói, og hefst hún kl. 2 e. h. Verða þar sýndar frétta- og fræðslumyndir, þar á meðal mjög athyglisverð kvikmynd um byggingu nýrrar borgar frá grunni. Var höfð samkeppni um skipulagningu borgarinnar og varð dr. Reichow hlutskarp- astur í þeirri samkeppni. Hann hefir nú hlotið alþjóðaviður- kenningu fyrir starf sitt. Borg- in heitir Sonnestadt og er skammt frá Bielfeld í Ruhrhér- aði. Þá verða ennfremur sýndar 2 fréttamyndir frá helztu við- burðum í lok síðasta árs, og er þar margt fróðlegt og skemmti- legt að sjá. Kvikmyndasýningar félags- ins Germanía hafa verið eink- ar vinsælar. Aðgangur er ókeypis og öll- um heimill. Jólapóstur í janúarlok. Sú var tíðin, áður en sæsíma- sambandið komst á að skipaferð- ir til landsins voru strjálar, að menn sættu sig við að bíða eftir póstinum frá útlöndum, vikum saman, jafnvel 1—2 mánuði. Það var tilgangslaust að kvrarta. Þá var póstur aðeins fluttur í skip- um. Nú er öldin önnur og menn gera þær kröfur, að póstflutning ar dragist ekki úr hófi fram. Og þar sem flugsamgöngur eru f góðu lagi milli Islands og ann- arra landa mun ekki yfir neinu að kvarta, þegar um flugpóst er að ræða. En það hefur gengið báglega til með annan póstflutn- ing hingað til lands á undan- gengnum vikum — svo báglega, að menn eru þessa dagana, í lok janúarmánaðar, að fá jólapóst er (lendis frá. Er hér um að ræða (jólakort t. d., sem ekki hafa ver- ið frimerkt til að senda í flug- pósti, bækur (jólagjafir frá kunn ingjum) og annað prentað mál Hvað veldur? | Hér skulu engar á.sakanir fram bornar i tilefni af því, að póstur, | sem manni virðist, að hefði átt að geta komizt til lands.ins i des- (ember, eða 3—4 vikum fyrr en reyndin varð, hefur seinkað svo mjög, en einhver skýring hlýtur að vera á þessum seina- gangi. Og því skal spurt hér hvernig á þessu standi og hvaða ráðstafanir verði gerðar, til þess ■ að girða fyrir, að þetta komi fyr- ir aftur. Það getur lika komi<5 sér illa, að fá slikan póst löngU síðar en menn ættu að réttu lagi að geta búizt við honum, og er undir öllum kringumstæðum til leiðinda, að fá ekki fyrr en í janúarlok t. d. blöð útgefin á Bretlandseyjum fyrir miðjau desember. ^ Niðurskurður útgjalda. Það hefur gengið treglega á undangengnum árum að dragaúr lítt þörfum útgjöldum ríkisins, og er minnt á það í bréfi til Berg- májs, að nú ætti ekki að gleym- ast enn einu sinni, að dragá úr nefndarfarganinu, vafalaust mætti spara með því talsvert fé, og á mörgum öðrum útgjaldalið- um fjárlaga, og er vitnað í nið- urlagi bréfsins visuorðanna frá fjárkláðatímab., en með tilliti til þess niðurskurðar, sem nú er mest þörf á: „Og ég fyrir mitt leyti játa það glaður, a<5 að ég er niðurskurðarmaður“. V élst jóranámskeiðí ný lokiö. Frá fréttaritara Vísis. Akureyri í morgun. Vélstjóranámskeiði, sem hald~ ið var á Akureyri i haust og vetur, að tilstuðlan Fiskifélags íslands, er nýlega lokið. Námskeiðið sóttu 14 nemend- ur víðsvegar að af landinu. Luku þeir allir prófi-, en hæstn einkunn hlaut Hjalti Einarsson, frá Siglufirði. Kennarar á námskeiðinu voru þeir Jón Ármann Jónsson frá Húsvaík, Grímur Sigurðsson út- varpsvirki á Akureyri og Bragi Sigurjónsson ritstjóri á Akur- eyri. Kennslan fór frarn í Verzl- unarmannahúsinu. Prófin frá námskeiðinu veita réttindi til stjórnar allt að 400 ha. véla.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.