Vísir - 06.04.1959, Blaðsíða 7

Vísir - 06.04.1959, Blaðsíða 7
ilánndaginn 6. april 1959 Vf SIB Bréfkorn til „ko» kret" í dálkum lausra orða, í Tím- anum, ávarpar Gunnar S. Magnúss alþjóð í sambandi við fyrirhugaða listsýningu í Ráð- stjórnarríkjunum. En mig sér- staklega, vegna ímyndaðra gaddavírsgirðinga og vinnu- bragða við þær. Talar Gunnar um „asna- spörk í menn“. Enda þótt jafn- vel asnar sparki sjaldan án til- efnis, þá tel ég orð þessi nokk- uð óljós. Ef hann meinar að ég hafi unnið að því að girða milli óskildra listgreina, þá fer hann villtur vegar. Minnist þess ekki að hafa reynt að einangra boð- bera fjarskyldra stefna. Vil minna hinn unga listamann á að félögum hans var vel tekið í öndverðu bæði af mér og svo félagi voru, hvorki notaðar girðingar, vírtangir eða strekkj arar innan Félags ísl. lista- manna þá. Ávallt síðan, og einnig í grein minni í Morgunbl., er bréfritari getur um, var ég andvígur öll- um höftum, taldi heppilegast að hver listamaður hefði sína hentisemi við listsköpun. En „konkret“-listamaðurinn G. S. Magnússon verður að afsaka, ég hef ekki ennþá auga á veru- legan listrænan árangur af „abstrakt- konkret“-starfinu. Að minnsta kosti ekki í sam- ræmi við einlægan vilja og sannfæringarkraft hinna mörgu efnilegu listamanna er iðka þessa tegund „nútímalist“: Allt er þetta á byrjunarstigi og stendur vonandi til bóta hér sem annars staðar, en það er svo með tízkustefnur, sem hatta og pokakjóla, hvort tveggja tapar ljóma sínum um leið og ný týzka skapast. Breyt- ingar hafa verið tíðar, þau 45 ár sem ég hef fylgzt með þró- uninni, þetta 3—5 ár. Síðan lenda sérstæðustu myndirnar á söfnum eða hjá listsnobbum, eru eftirsótt númer á uppboð- um, þar sem nöfn gilda frekar en listgildi. Varla held ég að strika tígla eða pappírsrimlatízkuverk okkar efli hróður landsins er- lendis, þótt slíkt sé tekið gilt á heimavíkstöðvum með atbeina ,.listfræðings“. Vitaskuld varð útkoman afleit nú er aðeins 7 af abstrakt-konkret-listamönn- um vorum skyldu bjarga heiðri treysta á, að hið opinbera sjfj fyrir þeim, kannske áratugum saman. Sumir listamenn virðast telja sig yfir aðra hafna — næst- um guði en ekki menn — og eiga að njóta forréttinda um fram þá, en það eru takmörk íyrir öllu. Miklir ættu þeir dýrgripir að vera sern þjóðin eignast jafn- margir og eru þó taldir verðugir þeirrar vafasömu viðurkenning- ar að fá listamannastyrk. — Eg veit ekki betur — og munu marg ir svo mæla, að á undangengn- nm tíma hafi margir hlotið styrki, stundum árum saman, sem mikill meiri hluti þjóðarinn- ar hvorki þekkir eða man nema sem nafn á úthlutunarlista, hafa sem sé lítinn sem engan hljóm- grunn fengið hjá þjóðinni, en kannske eru verk þeirra dýrgrip- ir, þrátt fjTÍr allt, og nöfn þeirra eigi eftir að lifa á ókomnum öld- um, og „bækurnar óseldu“ verði eftirsóttar? — K. R. vorum, en aðeins 4 sýndu rétt- an lit, hinir gripu til gamalla hálf náttúrlegra mynda! Bréfritarinn virðist hafa komið auga á að Rússar leiki tveim skjöldum í heimi listar- innar, að „konkret“-list sé illa þokkuð meðal þeirra. Þó telur hann að dugandi menn á því sviði vinni þar á laun. Telur hann að við íslendingar hefð- um vel mátt styðja hina undir- okuðu, með því að senda til . Rússlands sem mest af „kon- kret“-abstraktverkum. Þetta er fögur hugsjón, en næstum hóf- . laus bjartsýni að mér finnst. Er þó fæddur bjartsýnismaður. Heiðraði starfsfélagi, tví- I hyggja er ekkert grín. Þótt Ráð- (stjórnarríkin hafi tekið upp | vönduð vinnubrögð — að vísu jfull „kommisarizk“, þá er ekki þar með sagt að hægt sé að inn- leiða vor „konkret“ vinnu- brögð þar. Glundroðastefnur eru frekar ar til þess þénanlegar að rugla dómgreind fólks í löndum hand an girðinganna. Þannig var það áður fyrr er huldufólk vildi ná tangarhaldi á mennsku fólki, þá var það umkringt og hróp- að: „Ærum hann, ærum hann!“ En það er svo með hentistefn- ur, orsakalögmálið kemur til skjalanna fyrr en varir, og af- leiðingarnar láta ekki á sér standa. Að endingu, þakka ég þér liðsyrði í bréfi þínu, sömuleið- is skörulega samþykkt ungra listamanna, þar sem vítt er ein- ræðisbrölt þriggja meðlima Menntamálaráðs. Munu allir hugsandi menn sammála um að slík ráðsmennska megi ekki endurtaka sig, og að stöðva beri þetta frumhlaup. Vinsamlegast, Guðmundur Einarsson frá Miðdal. Bréf þetta var „geymt“ hjá Tímanum í 12 daga, svo ég varð að fá annan brébera. Síð- an þetta var skrifað, hefur sýn- ing menntamálaráðsgæðinga verið send áleiðis, en þó með þeirri leiðréttingu að 15 mynd- um eftir Ásgrím, Jón Stefáns- son og Kjarval var bætt við. Ekkert hefur heyrzt um að 15 myndir hafi verið fjarlægðar í stað þeirra. Virðist því vegg- pláss ekki vera takmarkað. G. E. Frá landsfundinum: Hefja þarf isndirbiíning nýrrar 10 ára áætlunar. RaforkiQMéltvi hjá Sjálf- stæðisflokknum. 1. Landsfundur Sjálfstæðis- flokksins endurtekur þakkir síð- asta landsfundar til þeirrar rík- isstjórnar, er fór með völd á ár- unum 1953—1956 undir forustu Sjálfstæðisflokksins, og til þá- verandi meirihluta Alþingis, fyr- ir það mikla átak í raforkumál- um þjóðarinnar, sem gjört var á því tímabil. Sem kunnugt er fóru þessar framkvæmdir langt fram úr þvi, sem gjört hafði ver- ið ráð fyrir, er 10 ára fram- kvæmdaáætlunin var sett árið 1953. Þetta var glæsileg byrjun á miklum og kostnaðarsömum raforkuframkvæmdum, sem fyr- irhugaðar eru um land allt. Þess . ar framkvæmdir styrktu mjög trú fólks á framtíð sveitanna og urðu jafnframt mikilverður þátt- I ur i eflingu iðnaðarins. I 2. Fundurinn verður því að harma það, að svo hefur til tek- izt að þær dreiíilínur fyrir raf- magn, sem átti að leggja um sveitirnar í tíð vinstri stjórnar- irnar, aðallega á árinu 1938, eru margar enn ólagðar. Hegur það að vonum valdið ibúum hlutað- eigandi sveita miklum vonbrigð- um, auk þess sem þetta seinkar raforkuframkvæmdunum í heild. 3. Fundurinn fagnar því, að hinni nýju Sogsvirkjun er senn lokið og þar með enn náð stór- um áfanga i raforkumálum okk- ar Islendinga, en með þvi á stór- um og smáum iðnaði, dreifbýl-. inu á Suður- og Suðvesturlandi og Vestmannaeyjakaupstað, einni stærstu útgei-ðarstöð landsins, að vera örugglega tryggt rafmagn. 4. Til þess að hraða fram- kvæmdum á rafvæðingu lands- ins telur landfundurinn nauð- syn á að örfað verði fram- úak bæja. og sveitarfélaga, fé- (lagssamtaka og einstaklinga um þátttöku á þeim málum, svo og (til roforkuvirkjana til stóriðju á (landinu. Slík þátttaka, samhliða raforkuframkvæmdum ríkisins, j sé þó háð eftirliti og samþykki þess, varðandi hagræna sam- j vinnu á milli raforkuvirkjana landsins. 5. Landsfundurinn telur tima- bært og æskilegt að hraðað verði athugunum á möguleikum til stórra raforkuvirkjana vegna hugsanlegrar störiðju, svo og til sölu á raforku til annarra landa. | 6. Fundurinn vil benda á, að þó enn séu 4 ár til stefnu, þar til 10 ára rafvæðingaráætluninni er lokið, þá er engu að síður á- stæða til að hefja undirbúning að næstu 10 ára áætlun, svo með- al annars verði Ijóst hvaða byggðarlög koma ekki til greina samkvæmt henni. Jafnframt verði rannsakað sérstaklega hvernig ríkið geti stuðlað að því að þau bygðarlög eða heimili geti fengið rafmagn, sem verða utan þessa svæðis. 7. Fundurinn treystir þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins tii þess að vinna enn sem fyrr og með sama áhuga og festu að á- framhaldandi framkvæmd raf- orkumálanna, byggingu orku- vera og dreifingu orkunnar um sveitirnar og til þeirra kaup- staða og kauptúna, sem enn hafa ekki fengið raforku frá vatns- aflsstöðvum, þannig að sem mest gagn verði að, við búskap og hvers konar framleiðslu. 8. Landsfundurinn leggur á það áherzlu, sökum mikilvægis þessara framkvæmda fyrir fram tíð sveitanna og iðnaðarins, að Ghana lýðveldi næsta haust. Ghana verður lýðveldi næsta haust. Upplýsingamálaráðherrann lýsti yfir þessu í gær. Kvað hann þetta verða að aflokinni heimsókn Elisabethar drottn- ingar í nóvember, en Ghana mundi verða áfram í samveld- inu. ----•----- Vfflnudeila við Sogið íeyst. Samningar hafa tekizt út af áeilu bílstjórafélagsins Mjölnis i Ámessýslu við Sogsvirkjun- ina. Hafði Mjölnir boðað til verk- falls frá og með síðustu mán- aðamótum hefðu samning'ar ekki tekizt fyrir þann tíma. En krafa félagsins var sú, að Mjölnir fengi að einhverju leyti að nota bíla sína í stað stór- virkra vinnuvéla, sem notaðar eru við virkjunina. Verkfallinu var frestað um nokkra daga og s.l. föstudag leystist deilan. Hafnað var al- gerlega kröfum Mjölnis og samningar framlengdir óbreytt- ir. Tvö prestaköil laus. Tvö prestaköll hafa verið auglýst laus til umsóknar, en það eru Hofsprestakall (Hof í Vopnafirði) og Laufáspresta- kall (Laufás við Eyjafjörð). Prestar þeir, sem sagt hafa þessum prestaköllum lausum, hafa báðir til þess heimild að hætta störfum sökum aldurs, og báðir hafa þeir þjónað þess- um prestaköllum hvor fyrir sig: yfir þrjátíu ár. Það eru þeir séra Jakob Einarsson, prófast- ur á Iiofi, og séra Þorvarðurr Þormar í Laufási. Oridge: Sveit Sigurhjartar varð Reykjavíkurmeistari. Meistaramóti Reykjavíkur í bridge lauk í gær með sigri sveitar Sigurhjartar Pétursson- ar, er nú varð Reykjavíkur- meistari. Næst síðasta umferð mótsins var spiluð á laugardaginn. Þá sigraði Hörður Þórðarson Vig- dísi Guðjónsdóttur, Hilmar Guðmundsson Hjalta Elíasson, Ásbjörn Jónsson vann Stefán. Guðjohnsen og Sigurhjörtus* Pétursson Ólaf Þorsteinsson. í síðustu umferðinni í gœr urðu úrslit þau að Hörður og Sigurhjörtur gerðu jafntefli, Stefán vann Ólaf, Vigdís vannt Hilmar og Hjalti vann Ásbjörn. Urslit urðu því þau, að sveit Sigurhjartar varð Reykjavík- urmeistari og hlaut 12 stig, Hörður 10 stig, Ásbjörn 8 stig, Stefán 6 stig, en sveitir Hilm- ars, Vigdisar, Hjalta og Ólafs hlutu 5 stig hver. Lávarðurinn talar ekki við þeldökka. Hume lávarður, brezki sam- veldisráðherrann, er kominn til Rhodesíu til bess að kynna sér deiluatriði, ástand og horfur, £ sambandsríkinu. Hann sagði við komuna, að hann mundi ekki hafa tal af leiðtogum þeldökkra manna, sem í fangelsi eru. Alls hafa tæplega 1000 menn verið hand- teknir í Nvassalandi, og munu yfir 500 enn bíða dóms. Söngkonan, sem Lido hcfur fengið til að skemmta gestum sínum, Susan Sorelí, ætlar ekki að láta nægja að syngja útlend dægur- lög, því að hún er þcgar iarin að læra íslenzka texta. Myndin var tekin á föstudaginn, Þegar Kristinn Vilhelms, stjórandi Neo-kvintettsins, var að segja henni til um ffamburðinn. „Að- stoðarkennari“ er píanóleikari kvintettsins, ðlagnús Pétursson. á næstu árum verði allt kapp lagt á það að fullnægja orkuþörf þjóðarinnar til heimilisþarfa og iðnaðar svo fljótt sem verða má og fjárhagur”ríkissjóðs og láns- traust þjóðarinnar leyfir. Hagnýting jarðliitans. 1. Landsfundurinn telur að legg^a- beri áherzlu á að auka mjög hagnýtingu jarðhitans til afnota fyrir bæjarfélög, kaup- staði og einstök sveitaheimili eða _ fleiri saman, þar sem skilyrði [ eru fyrir hendi. Reynslan hefur þegar sannað að hagnýting jarð- hitans hefur mjög mikla þjóð- hagslega þýðingu, auk þess sem hún styður mjög að bættum líís skilyrðum almennings. 2. Landsfundurinn telur nauð- syn á því, að sett verði itarlegri lagaákvæði, en nú gilda, varö- andi afnotarétt .jarðhita. Þó verði þess gætt. að hinn almenni eign- arréttur landeigenda verði ekki skertur. ^ I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.