Vísir


Vísir - 06.04.1959, Qupperneq 9

Vísir - 06.04.1959, Qupperneq 9
Mánudaginn ’ apríl 195! VISIH Bróöir M a ber :a sökum. Segir þá drepa kornsr ©g b»:a í fsDrpumssn, - alia, sem ekki kosiiast undiin á fSétta. Thubten J. Norbu, elzti bróð- Dalai Lama, hins andlega leið- toga Tibetmanna, segir að 90 af Siverjum 100 Tibetmönnum, séu algerlega andvígir komm- aúaisma. Hann bar þungar sakir á kín- verska k'ommúnista. Kvað þá Tiafa skotið af vélbyssum á þús- undir karia, kvenna og barna. Hann kvað munkaklaustur og þorp kringum þau með allt að 5000 íbúum hafa verið jöfnuð \‘ið jörðu og munkarnir drepn- ir. í mörgum, stórum klaustrum ög þorpum hafa menn neitað með öllu að taka þátt í komm- únistisku félags- og samyrkju- starfi, og kínverskir kommún- istar segja þá fólkinu að fara, þótt það geti hvergi fengið samastað annars staðar. Þeir, sem eru ungir og hraustir, og geta riðið, reyna að ná sér í hesta og flýja til fjalla. Eftir er I gamla fólkið og börnin. Það er ■ á þetta fólk, sem skotið er af- vélbyssum — og svo eru kín- verskir landnemar látnir flytja inn í staðinn. Einn af fjórum albrseðrum. Norbu var staddur í Seattle, Washington, Bandaríkjunum, er hann sagði það, sem að ofan greinir. Hann kveðst vera einn af fjórum albræðrum Dalai Lama. Norbu er 38 ára og ætl- aði til New York til framhalds- náms í ensku. Tveir bræðra hans eru í Asíu, sá þriðji í Was- hington. Norbu gerir sér vonir um að fá starf við bandarískan háskóla, til þess að halda þar fyrirlestra um Tibet og þjóðina þar, trúarbrögð og siðvenjur. Norbu er hátt settur lama eða munkur, en hann kýs að vera réttur og sléttur „Mr. Norbu“ meðan hann dvelst í Bandaríkj- unum. Hann flýði frá Tibet 1951, eftir að fé hafði verið lagt til höfuðs honum. Seinast sá hann Dalai Lama, bróður sinn 1956, er hann kom í heim- sókn tilTndlands. Skyldan kallaði. Hann kvaðst þá hafa beðið bróður sinn, að hverfa ekki aft- ur til Tibet, en hann hefði svar- að því til, að skyldan kallaði, — hann gæti ekki skilið þjóð sína eftir án leiðtoga. Vonlítil barátta. Fæstir Tibetmanna gera sér nokkra von um, að geta sigrað Sænskur verkalýður lofaður fyrir ábyrgðartiffínningu. Fellst á raunverulega kauplækkun vegna óvissu í efnahags- og atvinnulífi. Fregnir frá Stokkhólmi tekið gildi aðeins fyrir þá 650 herma, að því sé mjög fagnað þús. verkamenn, sem starfa hjá að sænskur verkalýður hefur fallizt á raunverulega kaup- lækkun, til þess að Svíar geti á- fram verið samkeppnisfærir á heimsmarkaðinum með sölu af- urða sinna. Þykir þessi ríka á- byrgartilfinning sænsks verka- iýðs hin lofsverðasta. Fréttaritarinn Werner Wisk- ari segir í fréttaskeyti um þetta: Bertil Kugelberg, framkv,- stjóri Sænska vinnuveitenda- sambandsins, hefur sagt í við- tali, að sænskir verkamenn geri sér fyllilega ljóst, að út- flutningsþjóð megi ekki auka framleiðslukostnaðinn á erfið- um tímum. Þetta hafi komið í Ijós hinn 4. marz s.l., er sam- komulag náðdst milli sambands- ins og Sambands vei-kalýðsfé- laganna um grundvöll sam- komulagsumleitana um heild- ar kaupsamninga á árinu 1959, og er búizt við, að hin einstöku verkalýðsfélög verði búin að greiða atkvæði um samkomu- lagið fyrir lok þessa mánaðar, svo og einstök félög vinnuveit- enda. Gert er ráð fyrir, að kaup- kerfið, sem samkomulag er um, komi í rauninni til að gilda fyr- ir allt þjóðfélagið, — við það verði miðað hvarvetna í þjóð- íélaginu, — þótt það strangt 16500 fyrirtækjum innan sam- bands vinnuveitenda. í samkomulaginu er gert ráð fyrir meðal kaupaukningu á klst. sem nemur 1.6%, en þar sem aukning, sem nemur 2.7% hefði verið nauðsynleg til upp- bótar fyrir það, að viku vinnu- stundafjöldi lækkar á þessu ári úr 47 í 46 klst., verður þann- ig um raunverulega kauplækk- un að ræða. Sáttasemjari ríkisins hafði milligöngu í málinu og sat fundi með fulltrúum vinnu- veitenda og kaupþega. Arne Geijer, forstjóri Sam- bands verklýðsfélaganna. kvað sambandið hafa fallizt á sam- komulag, sem gildir til eins árs, vegna þess hve efnahagsástand ið væri alvarlegt. Hann benti á, að minnkandi útflutningur árið sem leið hefði bitnað hart á Svíum, en Svíar flytja út um 25% af framleiðslu sinni. Hann benti og á óvissuna í efna- hagslegri sambúð sex Evrópu- landa, sem standa að samtök- unum um sameiginlegan mark- að annars vegar, og annarra Evrópuþjóða hinsvegar. Næst- um % af sænskum útflutningi fara til Evrópulanda. Geijer gaf í skyn, að óánægjuraddir hefðu heyrzt í sumum verkalýðsfé- lögum. í baráttu sinni, en samt halda þeir henni áfram. í Tibet býr ein milljón manna, í Kína 600 milljónir. Gyalo Thondup, annar bróð- ir Dalai Lama, hefur sagt, að því er fregn frá Kalimpong á indversku landamærunum hermir: „Trú vor verður upprætt, þjóð vor verður upprætt — kínverskir kommúnistar munu þurrka okkur út.“ Thondup er nú í Darjeeling á Indlandi. Sigur í baráttunni er vitanlega algerlega vonlaus, án hernaðarlegrar hjálpar erlendis frá. Afstaða Indlands. Fyrir níu árum, þegar kín- verskir kommúnistar hófu inn- rásina í Tibet, áræddi Nehru forsætisráðherra Indlands að mótmæla. Kínverskir kommún- istar sögðu honum að skipta sér ekki af því, sem honum kæmi ekki við. Þessu hafa menn ekki- gleymt í Dehli. En það, sem þá gerðist, varpar ljósi á, hvers vegna Nehru er svo varfærinn nú. En í Indlandi er almenn samúð með Tibetmönnum og hafa miklar áhyggjur af Dalai Lama. Menn vona, að hann komist heilu og höldnu undan ofsækjendum sínum. En í Pek- ing virðast menn ekki hafa miklar áhyggjur af því, hverj- urn augum Indverjar líta á mál- in. Engrar hjálpar að vænta. Þótt Tibetmenn eigi samúð Indverja og Nehru sé látimi finna það æ betur, enda hefur hann sjálfur mælt samúðarorð, tók hann fram, að engrar íhlut- unar væri að vænta. Einn af kunnustu Indverjum, sem flyt- ur erindi um utanríkismál, hef ur tekið þá afstöðu, sem kemur fram í þessum orðum hans: „Það var öðru máli að gegna um Ungverjaland, atferli Rússa Bretsr vænta skattalækkanar — vegna batnandi efnahagsástands. í London hefur verið hirt efnahagsskýrsla, sem leiðir í Ijós gott efnahagsástand 1958. Segir þar, að framleiðsla hafi verið mikil, útflutningur auk- izt, atvinna mikil og vehnegun, sterlingspund standi traustari fótum, og þar fram eftir götun- um. Jafnframt er varað við of mikilli bjartsýni, — það verði erfiðara að selja 1959 en 1958, og samkeppni harðnandi. Blöðin taka skýrslunni vel og segja, að næstum megi líta á hana sem fyrirboða skatta- lækkunar. „Bretland hefur ráð á því, skattþegnarnir þurfa þess með, — og þeir eiga skatta lækkun skilið,“ segir eitt blað- ið. Samningu fjárlagaírumvarps ins er nú langt komið’ og verð- | ur það lagt fram í mánuðinum. var forkastanlegt, vegna þess að Ungverjaland er ekki hluti Sovétríkjanna — og Rússar sjálfir halda því ekki fram. Tibet er hluti Kína og við höfum alltaf lagt okkur í líma með að viðurkenna það .... Þess vegna er það sem gerist í Tibet löglega og stjórnarskrár- lega kínverskt mál, og við á Indlandi ættum ekki að segja Kinverjum hvað þær ættu að gera og hvað þeir ættu ekki að gera.“ Þessi Indverji, Prem Bathia, viðurkennir þó, að Tibetmenn byggjust við einhverjum stuðn- ingi frá Indlandi, en „þeir munu verða fyrir vonbrigð- um.“ Það þarf ekki að taka fram, að Tibetmenn skrifa ekki und- ir það, að Kínverjar hafi rétt til yfirráða í Tibet. Þeir telja sig hafa rétt til sjálfstæðis, og það er markið, að Tibet verði frjálst og óháð, jafnvel þótt þeir telji baráttuna vonlausa. Æsifregn út í bláinn. I síðastliðnum mánuði fluttu sum Keykjavíkurblaðanna einskonar æsifregn um mis- þyrmingu á ungu barni. Þessi fregn vakti að sjálf- sögðu nokkra athygli meðal al- mennings og málinu var skotið til meðferðar barnaverdnar- nefndar og síðan til rannsókn- ar hjá sakadómaranum í Reykjavík. í greinargerð, sem Vísir hef- ir borizt frá barnaverndar- nefnd segir að kæran um með- ferð barnsins hafi borizt frá á- kveðinni konu, kunnugri barns móðurinni. Hafi hún í upphafi haldið fram, að barninu hafi verið misþyrmt, það hafi verið bundið niður í rúm og móðir þess ekki sinnt um það. Við yfirheyrslu dró þessi kona mjög úr framburði sínum, þannig, að Við nánari rannsókn hefir ekkert komið fram, sem bent geti til þess, að barnið hafi sætt illri meðferð eða því verið misþyrmt. Enda þótt rannsókn málsins hafi, eins og áður segir, ekki leitt til þess, að fyrirskipaðar séu frekari aðgerðir í því af opinberri hálfu, mun barna- verndarnefndin hafa eftirlit með aðbúnaði barnsins eftir að það kemur heim af sjúkrahús- inu, enda hefir móðir þess ósk- að eftir því, að svo yrði. JJJannar óöaur — ejtir \Jems SAGAN UM SAUMAVÉLINA ☆ 5) í dag er fólk í fatasauma- iðnaðinum í Bandaríkjunum ein bezt launaða stétt af sínu tagi í heiminum. Stærsta stétt- arfélagið í þeirri grein Inter- national Ladies Garments Workers Union hefur náð inikl- um árangri að tryggja rétt og hagsmuni stéttarfélaganna og komið á merkum umbótum svo sem góðum vinnuskilyrð- um, sjúkratryggingum, elli- tryggingum og komið upp heilsuhælum fyrir sjúka fé- laga.-----------Saumavélarnar eins og þær eru í dag hafa margvísl. starfi að gegna. Þær geta saumað allt sem sauma þarf, hinn þykkasta dúk, eða leður og ííngerðasta efni. Framlag saurnavélarinnar til þæginda og aukinnar velmeg- unar hjá fólki allra stétta og allra þjóða er ómælanlegt. Klæðnaður manna eins og hann gerist í dag væri óhugsanlegur ef saumavélin væri ekki til. --------Auk alls þessa, hefur tilkoma saumavélarinnar af- sannað þá kenningu að vélam- ar væri böl fyrir hinar vinn- andi stéttir og stuðli cinúngis að því að skapa atvxnnuleysi. Sú kenning er nú að vísu úr sögunni en á upphafsskeiði iðn- væðingarinnar var hún mjög ofarlega á baugi og þótti hin ákjósanlegasta röksemd fyrir því að ryðja vélunum úr vegi. Hitt er sannara að vélarnar gera framleiðsluna ódýrari, auka hana stórkostlega og gera verkamanninum kleift að njóta meiri þæginda en kon- ungum voru ætluð fyrir aðeins tveimur öldum. — (Endir). —

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.