Vísir - 10.06.1959, Blaðsíða 12

Vísir - 10.06.1959, Blaðsíða 12
Ekkert blaS er ódýrara i áskrift en Vísir. LátiS iuum fœra yður fréttir mg annaS loatrarefnl heim — án fyrlrbaínar mt yðar hálfu. Síinl 1-16-69. MuniS, að þeir, sem gerast askrifc-ndmr Vísis eftít 10 hven mánaðar, fá blaSiS 'kevpis til mánaðamót* áiuml 1-16-60. Vatneyrarbræður dæmdir. Annar hlaut 6 mánaða fangelsi skilorðsbundið og 75 þús. kr. sekí, en hinn 15 þús. kr. sekt. Máli þeirra Vatneyrarbræðra ®r nú loks lokið með dómsupp- kvaðningu í Sakadómi Reykja- víkur, en rannsókn málsins heí- ur staðið yfir í hálft fimmta ár ■og er það í röð hinna umfangs- mestu mála á síðari áratugum. Báðir bræðurnir voru sekir fundnir og hlaut Garðar Jó- hannesson 6 mánaða varðhald, skilórðsbundið og 75 þús. kr. sekt til ríkissjóðs, auk greiðslu imálskostnaðar, en Friðþjófur bróðir hans 15 þús. kr. sekt auk greiðslu málskostnaðar. Setudómari í máli þessu, sam kvæmt umboðsskrá var Valdi- mar Stefánsson sakadómari og kvað hann upp dóminn 22. maí s. 1. Alls voru lögð fram 235 skjöl í málinu og útskriftin af próf- unum var hvorki meira né minna en 408 fólíósíður. f árslok 1954 hófst að fyrir- mælum dómsmálaráðuneytisins og samkvæmt kæru gjaldeyris- eftirlits Landsbanka íslands rannsókn um meint gjaldeyris- brot hinna svonefndu Vatneyr- arfyrirtækja á Patreksfirði og þá einkum togaraútgerðarfyr- tækjanna Gylfa h.f. og Varðar h.f. og einnig Verzlunar Ó. Jó- hannesson h.f. Forstjóri þessara fju-irtækja hafði um langt ára- hil verið Garðar Jóhannesson, en Friðþjófur, bróðir hans, hafði þá um sumarið tekið við forstjórastarfi í þeim öllum. Hafði Friðþjófur einnig áður verið forstjóri tveggja Vatn- eyrarfyrirtækjanna. Gróttá h.f. og Sindra h.f. Inn í rannsóknina um hin meintu gjaldeyrisbrot fléttuð- ust brátt önnur atriði og þá einkum ásakanir nefndra hræðra hvors á hendur öðrum um ýmsar yfirtroðslur og fjár- drátt og voru þó ásakanir á Garðar að þessu leyti yfirgnæf- andi. Rannsókn stóð mjög lengi yfir, einkum vegna yfirgrips- mikillar bókhaldsrannsóknar hjá fyrirtækjunum og ítrek- aðra athugana gjaldeyriseftir- lits. Að rannsókn lokinni voru út- gefin ákæruskjöl hinn 8. des- ember 1958, Hvorugur bræðranna var á- kærður fyrir fjárdrátt, en báðir fyrir gjaldeyrisbrot auk 'þess sem Garðar var ákærður fyrir bókhaldsóreiðu og fyrir að hafa gefið gjaldeyrisyfirvöldum rangar og villandi upplýsingar um gjaldeyrisöflun og gjald- eyrismeðferð fyrirtækjanna. Ákært var fyrir fjölmörg sakaatriði, sem gerzt höfðu á löngum tíma, allt frá 1930 og fram á árið 1954. Dómur í máli Garðars Jó- hannessonar var kveðinn upp í sakadómi Reykjavíkur hinn 22. maí 1959 og var hann sakfelld- ur fyrir brot gegn gjaldeyris- löggjöfinni, fyrir bókhaldsó- reiðu og fyrir rangar og vill- andi upplýsingar til gjaldeyris- yfirvalda. Mikill fjöldi brota hans var þó fyrndur þegar rannsókn málsins hófst, en brot gegn gjaldeyrislögunum fyrn- ast á tveim árum, þ. e. frá því þau eru framin og þar til rann- sókn hefst. — Hvorugur bræðr- anna hefur óskað að áfrýja dóminum til hæstaréttar. Dæmdur var hann í 6 mán- aða varðhald, skilorðsbundið, og 75000,00 kr. sekt til ríkis- sjóðs auk greiðslu málskostnað- ar. Máli Friðþjófs Jóhannesson- ar lauk 23. maí 1959. Hlaut hann 15000,00 kr. sekt til ríkis- sjóðs fyrir brot gegn gjaldeyr- islöggjöfinni, auk greiðslu málskostnaðar. Stúlka uppvís að þjófnaði í fimsn verzlunum. Fjárhæðin nam nokkrum þús. króna en hafði verið eydd, þegar uppvíst varð um þjófnaðina. Stúlka ein hér í bœnum hef- ur orðið uppvís að stuldi úr nokkurum verzlunum í bœnum og hefur hún játað á sig þjófn- aðinn, en litlu sem engu getað skilað aftur af þýfinu. Mál þetta var kært til rann- sóknarlögreglunnar fyrir nokk- urum dögum, og við rannsókn þess kom í ljós, að stúlkan hafði framið þjófnaði í fimm vefnað- arvöru- og fataverzlunum hér í bænum á tímabilinu frá því um miðjan maímánuð og þar til í byrjun þessa mánaðar. Þjófnaðinn hafði stúlkan framið á sama hátt í öllum verzlununum, sem sé þannig, að faún hafði fengið að máta á sig ílíkur í til þess gerðum her- bergjum eða klefum, sem eru inn af sölubúðunum. En um leið notaði hún tækifærið til þess að fara ofan í veski eða töskur starfsfólksilns og hirða úr þeim þá peninga, sem þar voru geymdir. Mest náði stúlka þessi í 3500 krónur á einum stað, á öðrum stað nældi hún sér í 1000 krón- ur og nokkra dollara, á þeim þriðja í rúmlega 600 krónur, sléttar 600 krónur á fjórða staðnum og 110 krónur á þeim fimmta. Stúlkan hefur játað á sig stuldina, en peningarnir hafa að meetu eða öllu farið í eyðslu- eyri, og gat hún því ekki skilað þeim aftur. Veður fer nú batnandi. I tíit fsjrir hœga9 suðltrga átt. Erlendis eru karlmenn hár- greiðslu„konur“, eins og mynd- in gefur bendingu mn. Hún er annars telcin á hárgreiðslu- keppni, sem efnt var til í Kaup- mannahöfn nýlega. Leiðindaveður hefur verið um allt land síðan á sunnudag. Fór hann þá að blása og kólna af norðan og norð-austan. Um hádegi á sunnudag fór hann að rigna á norður- og austurlandi og fór úrkoman allt upp í 16 millimetra á Siglunesi. Enn kólnaði, og á mánudag var komin bleytuhríð um allt norðurland. Hiti var þá frá 1 til 3 stig, eða rétt til að bleyta í snjónum, en hríðarveður var þá víða fyrir norðan, og jafn- vel mikil snjókoma sums stað ar. Á Siglunesi snjóaði 8 mm. og 10 mm. á Sauðárkrók, og má segja að talsverður snjór hafi Hvít jöri) níiiur að sjö vii) Eyjafjöri). Rafstraumurinn til Akureyrar rofnaði á mánu- caagskvöldið, og ekki unnt a5 vmna að við- gerð fyrr en í gær. verið víða og yfirleitt alhvít 1 jörð. i í gærkveldi fór svo veðrið að ‘ skána og í nótt og í morgun var skaplegt veður norðanlands. —• Tveggja stiga hiti var á Rauf- arhöfn, 4 stig á Akureyri og 5 í Reykjavík. Útlit mun vera fyrir hæga suðlæga átt, og er yfirleitt skán andi útlit með veður. Abdullah og Feizal greinir á. Ágreiningur er sagður upp kominn milli Abdullah kon-. ungs í Saudi-Arabíu og Feizals prins, bróður lians. Feizal gegnir mörgum ráð- herraembættum, m. a. embætti utanríkisráðherra, og raunveru lega sá, sem heldur um stjórn- völinn, enda hefur hann hótað konungi að fara frá, ef hann hætti ekki afskiptum af utan- ríkismálastefnu sinni. Feizal vill tekjuhallalaus fjárlög, og sparnaðarviðleitni hans innan, fjölmennrar og eyðslusamrar: konungsfjölskyldu er óvinsæl. Frá fréttaritara Vísis. Akureyri í morgun. Aðfaranótt s.l. sunnudags breytti skyndilega um veður eftir langan bliðviðriskafla og gekk þá upp í livassa norðanátt með hríðarveðri til fjalla. Fram að þeim tíma höfðu ver- ig s,felldar blíður og næsta ó- venjulegir vorhitar. Hafði gras- spretta verið venju fremur góð og voru menn farnir að búa sig undir slátt þegar allt í einu gerði norðanhríð og alhvíta jörð niður að sjávarmáli. Var ofstopaveður strax og dró eitt- hvað til fjalla. Þannig var blind hríð bæði á Vaðlalieiði og Siglu- fjarðarskarði. Síðarnefndi fjall- vegurinn lokaðist og var Goða- foss sendur hingað til Akureyr- ar til þess að sækja siglfirzka ferðahópa, sem hér voru stadd- ir, var það bæði hópur sigl- firzkra kvenna, sem verið hafði á ferðalagi á Austurlandi og eins leikflokkur frá Siglufirði sem staddur var á Akureyri. Ætluðu þessir flokkar landleið- ina heim til sín, en urðu að hætta við sökum þess að Siglu- fjarðarskarð lokaðist og var m. s. Goðafoss sendur eftir þeim. Var veður svo vont að það var með naumindum að skipið kæm ist leiðar sinnar. Vegna veðurofsa á Vaðla- heiði slitnuðu rafmagnsleiðsl* ur og á mánudagskvöldið varð Akureyrarbær með ,öllu raf- magnslaus. Þá var ekki viðlit að athafna sig á heiðinni sökum stórhríðar, en í gærmorgun hafði veður heldur lægt og fór viðgerðarflokkur þá upp á heiðina. Komst rafmagn aftur á um tíuleytið í gærkveldi. Bílar hrjótast nú yfir Vaðla- heiði en færð er þung. Færðin er aftur á móti betri á Öxna- dalsheiði og þar hafa bílar kom- izt óhindrað leiðar sinnar. Virð- ist minna hafa snjóað eftir því sem sunnar og vestar dró. Enn er alhvít jörð allt niður undir sjó við Eyjafjörð og hitinn á Akureyri hefur verið 2—4 stig. í morgun var hann 5 stig. Á laugardaginn var hér blíð- skaparveður, en um nóttina versnaði veðrið skyndilega og á sunnudaginn varð að aflýsa öllum útihátíðarhöldum sjó- mannadagsins. Akureyrartogararnir hafa veitt ágætlega, þrír á Nýfundna landsmiðum, en Svalbakur á heimamiðum. — Nú eru Akur- eyrarbátar sem óðast að búa sig undir síldveiðar. Kommúnistar ofsækja kaþólska. Jóliannes páfi flutti ávarp um Hvítasunnuna. Harmaði hann mjög, að of- sóknir væru aftur að aukast £ Kína og Ungverjalandi gegn kaþólskum mönnum. í Ung- verjalandi bitnuðu ofsóknirnar mjög gegn kaþólskum klerk- um. Fjórir svertingjar voru drepnir og 25 særðir í bar- daga milli tveggja ættbálka um 65 km. frá Durban í S.- Afríku nýlega. „Kjördæmablaðið" uppvíst að fölsunum. Eins og ýmsum er kunnugt, hefur Framsóknarflokkur- inn gripið til þess ráðs að gefa út svokallað Kjördæmablað ti! þess að vinna ranglætinu fylgi við bessar kosningar. Kom blaðið meðal annars út rétt í þann mund, er prent- araverkfallið var hafið, og er það skemmst af efninu að segja, að tveir menn hafa begar neyðst til að gefa út yfir- lýsingu um, að fölsuð sé ummæli, sem eftir þeim eru höfð. Eru þessir menn próf. Sigurður Nordal og Kristinn Jónsson, Borgarholti í Holtum. Eru ummæli þau, sem höfð voru eftir próf. Nordal, tekin úr 32ja ára gamalli grein eftir liann, og lýkur hann yfirlýsingu sinni um fölsunina með þeim orðum, að liarm muni styðja fyrirhugaða breytingu á kjördæmaskipuninni „meðal annars vegna þess, að eg hygg hún muni verða til verulegs ávinnings fyrir strjálbýlið“, eins og liann scgir. „Á mjóum þvengjum læra hundarnir að stela,“ var sagt forðum, og það virðist eiga vei við „heimspekinga“ líka. Ætti Gunnar Dal að hafa hljótt um sig í björgunarstarfi sínu fyrir Framsókn eftir þessa rækilegu afhjúpun á fölsun- um hans.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.