Vísir - 19.08.1959, Blaðsíða 4

Vísir - 19.08.1959, Blaðsíða 4
4 VtSIB Miðvikudaginn 19. ágúst 1959: j J Sennilega tekst mönnum aldrei að tæma l>að umræðu- W efni, sem um veðrið snýst. í grein þeirri, sem hér er birt, V ræðir Björn L. Jónsson, veðurfræðingur og cand. med., um veðrið frá sjónarmiði, sem tiltölulega fáir ræða. Birtist f- grein þessi áður í tímariti veðurfræðinga, sem að sjálfsögðu Jr heitir „Veðrið“. (Millifyrirsagnir eru Vísis). Það er kunnara en frá þurfi eftir, að hver tunglkoma og að segja, að margt gigtveikt fólk ýelur líðan sína mjög háða veðri. Og svo kynlegt sem það kann að virðast, þá er það ekki veðrið í dag, heldur veðrið á morgun, sem spillir líðan sjúk- lingsins. Það eru veðrabrigðin, eða öllu heldur aðdragandi þeirra, sem á einhvern dular- fullan hátt verka á líkama þeirra, sem næmir eru fyrir þessum áhrifum. Þeir eru eins konar loftvog, en eins og kunn- ugt er, fellur loftvog, þegar ó- veður nálgast, og á sama hátt versnar gigtin, löngu áður en nokkur veðrabrigði sjást á lofti. í íslenzkum þjóðháttum segir svo á bls. 141: „Þá er algengt, að menn finna á sér, ef einhver veðrabrigði eru í vændum, helzt íhlaup, stormur eða rign- ing eða stórhríðar. Þá ískrar eða ólmast gigtin, einkum í gamla fólkinu, og lætur ekki undan, fyrr en veðrið er skollið á; en ef rigning er í vændum, getur það ekki hrært sig fyrir niáttleysi, fyrr en farið er að rigna.“ Veðrið, menn «g skepnur. Þá er og til fjöldi frásagna um veðurglöggar skepnur, t. d. forustusauði, sem ekki var hægt að koma af stað frá fjár- húsum að morgni dags eða lögðu allt í einu af stað heim- leiðis úr haganum, fundu á sér, að illviðri var í aðsigi, þó að veðurglögga bændur eða smala óraði ekki fyrir neinu. Veðurnæmt fólk og veður- glöggar skepnur eru víðar til en á fslandi. Margir munu þó ætla, að hér sé um að ræða hugar- burð, tilviljanir eða hreinar kerlingabækur, likt og t. d. hina rótgrónu trú margra þjóða á sambandið milli tunglbreyt- inga og veðurs. En hafi kvart- anir gigtarsjúklinga og munn- mælasögur um veðurglögg dýr við rök að styðjast, í hverju eru þá áhrif veðursins fólgin, áhrif, sem gera vart við sig, löngu áður en venjuleg skyn- færi greina nokkra veðurbreyt- ingu? Tunglið, flóð cg fjara. Fyrst minnzt er á tunglið, er ekki úr vegi að geta þess, að fannsóknir hafa ekki staðfest þá aldagömlu trú, að veður- breytingar standi í sambandi \’ið myndbreytingar tunglsins. Hinsvegar er auðvelt að gera sér í hugarlund, hvernig þessi trú hafi orðið til og haldizt við. Myndbreytingar tungls eru á- berandi fyrirbrigði og eðlilegt, að almenningur á öllum öldum hafi tengt þær jarðneskri við- burðarás, ekki sízt þar sem svo viil til, að tunglmánuðurinn er merkilegt tímabil í lífi manna og sumra dýra. Tunglið veldur flóði og fjöru á höfunum, og í seinni tíð vita menn, að svipað gerist í lofthjúpnum umhverfis jörðina. Og þegar bændur voru orðnir óþreyjufullir vegna lang varandi votviðra eða margra mánaða innistöðu og uppi- skroppa með hey, vonuðust þeir jafnvel kvartilaskiptin færðu þeim hinn langþráða þurrk eða hláku. Og hér var auðvelt að láta blekkjast. Einu sinni í viku eru tímamót í myndbreyting- um tungls: Nýtt — kvartila- skipti — fullt. Veðurbreytingar má því auðveldlega rekja til næstu tímamóta á undan eða eftir, þó að stundum skakki ef til vill 2—3 dögum. Kvartanir gigtarsjúklinga. Rækilegar rannsóknir hafa verið gerðar á verkunum hita, kulda, mismunandi rakastigs, næmir fyrir þessum áhrifum. Þeir sem eiga vanda til höfuð- verkjakasta, fá þau einna helzt með fallandi loftvog. Botnlanga köst eru tíðari þá en ella. Enn fremur hefur athugun leitt í ljós, að þegar loftvog er fall- andi, eru sjálfsmorð tíðari held- ur en þegar loftvog er stöðug eða stígandi. Og loftþrýstingur- inn virðist verka á sálina, ekki síður en á líkamann. í Tokyo í Japan hafa menn fundið, að menn verða gleymnari, þegar Þau verða geðill og uppstökk og áflogagjörn. Þetta gildir m. a. um kýr, hesta, svín og hunda. Sumir segja, að fiskar verði einnig vanstilltari, og kemur það fram á þann hátt, sem þeim er sjálfum fyrir verstu: Þeir verða gráðugri og bíta frekar á. í ýmsum ritum íslenzkum er greint frá því, hvernig ráða megi af breyttum háttum dýra, að veðurbreyting sé í aðsigi. í Austantórum segir Jón Pálsson þannig frá fjölda veðurnæmra loftvog fellur. Þetta uppgötvað land- og sjávardýra. Þeirra á ist við það að telja saman um lengri tíma, hve mörgum pökk- um og regnhlífum fólk gleymdi í strætisvögnum og bera það saman við breytingu loftvogar á hverjum tíma. Enn fremur hefur það sýnt sig, að slys verðá fleiri með fallandi loft- vog. Menn eru vanstilltari og skapstyggari, Það gæti því kom- ið sér vel að líta á loftvogina, meðal má nefna hvali, seli, fiska, krossfiska, krabba, kuð- unga, marflær, fjörumaðka, brunnklukkur, margar fugla- tegundir og húsdýr. Og oftast er það svo, að hreytingin á háttalagi dýranna verður fáein- um klukkustundum eða allt að einum til tveimur dægrum á undan veðurbreytingunni. Sú tilgáta, að lækkun loft- Björa L. Jónsson, veðurfræðingur, cand. med: Ertu veðurnæmur? mismunandi loftþynningar 4. líkama og lífsstörf manna og dýra. Þessar rannsóknir hafa sýnt, að efnasamsetning blóðs, starf hjarta og lungna, efna- skipti og önnur lífsstörf fara mjög eftir loftslagi og taka breytingum, ef menn flytja bú- ferlum í loftslag mjög ólíkt því, er þeir áður bjuggu við. Hins vegar mun minna vera um at- huganir á þeim breytingum á líðan og háttum manna og dýra, er getið var um í upphafi þessa máls. Þó munu það vera rann- sóknir í þessa átt, sem dr. Helgi Tómasson, yfirlæknir á Kleppi, hafði haft með höndum um margra ára skeið, er hann féll frá, en ekki er vitað, hve langt þær voru komnar eða að hve miklu leyti unnið er úr þeim. Reyndir læknar hérlendis hafa veitt því eftirtekt, að oft koma kvartanir frá mörgum gigtarsjúklingum svo að segja á sömu stundu. Þeir hafa verið verkjalitlir um tima, en versn- ar svo allt í einu, mörgum sam- tímis, þannig að varla getur verið um tilviljun að ræða.Væri ekki ófróðlegt að safna um þetta skýrslum frá sem flestum læknum, líkt og safnað er skýrslum um farsóttir. Hér hef- uhr þetta ekki verið gert. Reynsla erlendra lækna gengur mjög í sömu átt og hér. Fallandi Ioftvog og tíðni sjálfsmorða. Þeirri tilgátu hefur veríð varpað fram, að það sé lækkun loftþrýstings, sem þessu veld- ur. Eftir því er maðurinn — eða a. m. k. hinir næmu gigtarsjúk- lingar — eins konar loftveg, sem finnur á sér veðurbreyt- ingar mörgum klukkustundum fyrirfram. Og það eru ekki gigt arsjúklingar einir, sera eru áður en lagt er af stað til manna í erindagjörðum, sem veltur á, að vel sé tekið. Og í þessu sambandi er það ekki loftvogarstaðan, sem máli skipt ir, ekki það, hvort loftvogin stendur á góðviðri eða stormi, heldur hitt, hvort hún er stíg- andi eða fallandi. Gigtarkastið eða ólundin er ef til vill rokin út í veður og vind, þegar óveðr- ið er skollið á. Hvenær á helzt að renna? Erlendis hafa menn tekið eft- ir breytingum á háttum dýra í sambandi við fall loftvogar: þrýstings sé aðalorsök þessara breytinga á háttum og líðan dýra og manna, er engan veg- inn ósennileg. Ef bratt er farið upp. „Kafaraveiki“ er alþekkt fyr- irbrigði hjá köfurum. Við hverja 10 m, sem þeir fara undir yfirborð sjávar í venju- legum kafarabúningi, eykst þrýstingurinn utan á líkama þeirra sem svarar einni loft- þyngd. Einu óþægindin á leið- inni niður eru vegna þrýstings á hljóðhimnurnar. En sé kok- hlustin, þ. e. pípan, sem liggur úr nefkokinu aftur í miðeyra, áí stífluð, fær loftið í miðeyranu: svo að segja jafnóðum samaí þrýsting og að utan. Meðani kafarinn er í kafi, andar hannt' að sér lofti með hærri þrýst- ingi en á yfirborði jarðar. Gegn; um lungnablöðrurnar fer þetta loft inn í blóðið og þaðan að nokkru leyti inn í frumur lík- amans. Lofttegundirnar leysast betur upp í fitu en öðrum efn- um, og af því leiðir, að tauga- frumur líkamans, sem inni- halda mikið af fituefnum, taka til sín meira af lofti en flestar aðrar frumur. Meðan þrýsting- urinn er að aukast, verður kaf- arinn þó engra óþæginda var af þessum sökum. En þegar hann er dreginn upp, einkum ef það er gert hratt og um óvana er að ræða, kemur „kafaraveikin" til. sögunar. Hún lýsir sér aðallega með verkjum í liðamótum, oft gjörsamlega óþolhndi, j*tund-,- um lamast sjúklingurinn, hann.' getur fengið banvænt lost eða’ blóðrásin stöðvazt, vegna þesS að loftbólur myndast í æðunii eða hjarta. Ráðin gegn „kafaraveiki“. Öll þessi einkenni stafa afi' því, að þegar þrýstingurinn £: andrúmsloftinu minkar snögg- lega og þar með þrýstingur þess lofts, sem uppleyst er í blóðinu, þá eru frumur líkamans leng- ur að taka við sér, þrýstings- miðlunin frá þeim til blóðsinS gengur hægar. Þær þrútna því' og valda þrýstingi á taugaenda, og kemur þetta aðallega fram £ liðamótum og stundum í mænu. Og svo getur jafnvel farið, þótt sjaldgæft muni vera, að loft- bólur myndist í blóðinu, eins og| að ofan er getið. Til þess að verjast þessum ó- þægindum, eru ekki önnur ráð en að draga kafarann hægt upp sérstaklega ef hann hefur ver- ið lengi í kafi. Eða leggja hann í hylki eða klefa með yfirþrýst- ingi, sem smámsaman er lækk- aður, t. d. á fáeinum klukku- stundum. Nú er þrýstingslækkun sú, sem verður við það að lægð gengur yfir. hverfandi lítil mið að við þrýstingsbreytingar hjá, Frh. á bls. 9. Þetta er Möjerup kirkjan sem stendur á Stevns-kletti í Danmörku. Myndin er tekin úr lofti, og það fer ekki hjá þvx að menn velti því fyrir sér, hve lengi hún muni standa þarna, áður eit undirstaðan hrynur enn einu sinni, að nokkru eða öllu eyti, — og kirkjan með? j' i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.