Vísir - 19.08.1959, Blaðsíða 6

Vísir - 19.08.1959, Blaðsíða 6
B TÍSIK Miðvikudaginn 19. ágúst 1959 wism D A G B L A Ð Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skriistofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18.00 Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: (11660 (fimm línur) Visir kostar kr. 25.00 í áskrift á mánuði, kr. 2.00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. AIEt getur komið að gagni. Menn rekur minni til þess, að fyrir skemmstu ritaði Einar Olgeirsson, nýkominn frá Moskvu, grein undir nafni í Þjóðviljann, þar sem hann fór bónarveg að Alþýðu- flokknum, bað hann nú blessaðan að vera góðan við sig og sína menn og gera bandalag við sig. Kosning- arnar voru þá fyrir nokkru um garð gengnar, Einar bú- inn að vera ytra til að gefa skýringu á hrakförum kommúnista og kominn heim aftur með þá línu, sem ætl- unin var að notast við fyrst í stað — samfylkingu verka- lýðsflokkanna. Margir urðu undrandi við lest- ur greinar þessarar. Hún var að sjálfsögðu túlkuð óræk sönnun þess, að kommún- istar gerðu sér grein fyrir, að síðasta flík þeirra, Al- þýðubandalagsdulan, væri orðin slitin og gagnsæ — kominn væri tími til að taka Hannibal og önnur hræ úr lestinni og varpa þeim fyrir borð. Út frá þeirri for- ' sendu eru viðbrögð komm- únista skiljanleg, en þau eru lítt skiljanleg, þegar menn rifja upp fyrir sér allar þær svívirðingar og ærumeiðing- ar, sem kommúnistablöðin hafa ausið yfir einstaklinga innan Aiþýðuflokksins og flokkinn í heild um mörg undanfarin ár. Það var eitt helzta efni Þjóð- viljans fyrir kosningarnar í júní-mánuði, að aðstand- endur Alþýðuprentsmiðj- unnar og Alþýðublaðsins væru stórþjófar, milljóna- þjófar, og var mikilli prent- svertu og miklum pappír varið til þess að sannfæra lesendur um það. Að vísu slumaði eitthvað í kommún- VEGIB OG VEGLEYSUft EFTIR Víöförla istum, þegar þeim var bent á, að þeir hefðu innlimað einn. af þessum ágætu for-1 ingjum Alþýðuflokksins á sínum tíma, Hannibal Valdi- marsson, manninn, sem. var aðalfjárráðandi blaðs og prentsmiðju um skeið, en samt gáfust þeir ekki alveg upp, héldu skothríðinni á- fram, þótt skeytin væru ekki alveg eins hvöss. Þegar á þetta var litið, var bersýnilegt, að kommúnist- • ar höfðu gert upp við sig, að það er sama hvaðan gott kemur, ef það einungis fæst og í nægilega ríkum mæli. Þeir gáfu óbeint til kynna, að þeir væru reiðbúnir til að gleypa öll stóru orðin, og í rauninni gerðu þeir meira. Þeir fóru þegar að gleypa, þegar þeir fóru allt í einu að tala um Alþýðuflokkinn sem verkalýðsflokk. Það hefir nefnilega ekki hent kpmmúnista áratugum sam- an, þegar þeim hefir verið sjálfrátt. Það var því ljóst, að þeir voru meira en lítið miður sín, er þeir tefldu Einari fram. Menn munu fylgjast með því af áhuga, sem næst gerist á þessu sviði, því að engum kemur til hugar, að komm- únistar sé uppgefnir á að leita sér liðveizlu, þótt „verkalýðsflokkurinn“, sem fyrst var leitað til, hafi ekki léð máls á neinni samfylk- ingu, eins og kommúnistar fóru fram á. Það er komm- únistum nauðsyn að koma í veg fyrir frekari flótta úr röðum flokksins, en það get- ur reynzt býsna erfitt, úr því að þeir hafa sýnt spilin, hversu marga hunda þeir hafa á hendinni. Leyniþráiurinn. Þeir, sem kunnugir teljast, inn- an herbúða kommúnista og Framsóknar, gera ráð fyrir, að náið samband muni verða milli þeirra í kosningunum í október. Það kom fram á síðasta degi þingsins, þegar kosið var í ýmsar nefndir og ráð, að það hangir leyni- þráður milli þessara tveggja flokka, enda þótt þeir beri hvor öðrum á brýn allar vammir og skammir á milli — eins og elskenda er oft siður. Það er ekkert leyndarmál, að það er heitasta þrá margra manna í báðum flokkum. að sámvinna megi takast aftur, og margt er ólíklegra en að hún verði að einhverju leyti undirbúin og framkvæmd í þeirri kosningabaráttu, sem nú er að hefjast. Það var líka yfirlýstur vilji Hermanns Jónassonar á sínum tíma að skilja sauðina frá höfrunum, fá „góðu kommúnistana“ yf- ir í Framsóknarflokkinn — sem hefir raunar verið hálf- gert kommúnistabæli um langt skeið — og það er ekki úr vegi fyrir hann, að gera einmitt tilraun til þess nú að koma þessu í fram- kvæmd. Báðir flokkar óska eftir liðveizlu af augljósri nauðsyn, og það er ekki ó- Reiður ferðalangur skrifar mér og segir: „Eg kom að Gull- fossi nú um daginn með hóp af fólki innan af örævum. Það var búið að panta mat fyrir hópinn á Selfdssi, en þar sem við gátum ekki mætt á tilsett- um tíma vildi eg láta veitinga- húsið þar vita af töfinni. Við spurðum húsráðanda hvort síminn væri ekki opinn og kvað hann já við, en sagði um leið með einkennilegu brosi, að það gæti nú oltið á ýmsu hvort við næðum sambandi, því stöðin við Geysi væri stundum treg til að svara. Kl. 16.45 var byrjað að hringja á Geysi, en símatími þar á sunnudögum er frá kl. 2—-6. Eftir að hafa hringt næstum stanzlaust í hálftíma gáfumst við upp og héldum af stað sem skjótast. Það var auðheyrt á heimafólki þarna að því kom þetta ekki á óvart og forstöðukona, sem er búin að vera þarna með veit- ingar í 11 sumur, sagðist vera búin að margkvarta við yfir- stjórn Landssímans í Reykja- vík og fara þess á leit að vera sett í beint samband við stöð- ina á Torfastöðum en árangurs- laust. Hún sagði margt fleira um þetta mál, sem við munum koma á framfæri við rétta að- ila, en blessaður settu þetta í dálkinn þinn.“ Það geri eg með ánægju því eg hefi einnig reynslu af því hve erfitt er að ná í Gullfoss og meira að segja orðið fyrir því, að svikizt var um að koma á framfæri skilaboðum þangað, sem stöðin við Geysi hafði lofað að gera. Útlendur flökkulýður er að verða til stórvandræða hér nú í sumar, sérstaklega hér sunn- an- og vestanlands, og það kvarta allir undan þessum sníkjulýð. Sva virðist, sem Þjóðverjar séu í miklum meiri- hluta og þeir fá einnig versta orðið. Þetta fólk lætur sem það sé fátækt og ferðist hingað meira af vilja en getu og auð- vitað af ást á íslandi. Þetta er í flestum tilfellum helber upp- spuni. Flottræfilsháttur okkar er hér að koma okkur í koll. Sá orðrómur hefir borizt út um nálæg lönd, að hér þurfi ekk- ert annað en setja upp aum- ingjasvip og barma sér og þá fáist margt fyrir lítið. íþrótta- hópar, skólafólk, bændahópar og Guð má vita hvað hefir riðið hér húsum undanfarin ár og allir hafa keppzt við að láta það eyða sem minnstum pen- ingum. Eg skrifaði um þennan ófögnuð fyrir tveim árum. JÞá skelltu allir við því skollaeyr- unom, en nú er árangurinn að koma í ljós. Eg skil ekki hvers vegna við vorum að útrýma okkar þjóðlega íslenzka flökku- lýð, en fara svo að ala upp og og venja á okkur útlendan ó- sennilegt, að þeir rugli þess vegna reitum sínum að ein- hverju leyti. fögnuð. Eg mun skrifa meira um þetta síðar. i Þrengslaveginum miðar vel áfram og það fer að hilla undir að við getum farið að nota hann. Mér finnst að hér eftir þurfi að hafa sama hátt á lagn- ingu nýrra meiriháttar vegá, að drífa þá af á sem styztum tíma. Það er annað, sem mér líkgr vel við þennan veg, og það er hve vel er gengið frá köntum á honum. Kantar á samanýttum vegum hafa fram að þessu verið herfilegir. Mér er t. d. minnisstæður vegurinn 'yfir Fróðárheiði. En þessi veg- ur er til fyrirmyndar. Það er annar nýr vegur, sem mér fyndist að nú ætti að drífa af, en það er Skógarstrandarvegur um Hnappadal og Heydal. Til hans þarf að veita hárri upp- hæð svo hann komist í sam- band sem fyrst. Eg vil einnig geta þess, að lagning þess vegar, Dalamegin, er til fyrirmyndar. MINNISBLAÐ FERÐAMANNA. S. Á K. skrifar mér frá Ak- ureyri um Hótel Varðborg. „Þar sem þér hafið því miður ekki heimsótt hótelið nú í sum- ar, hlýtur orðrómurinn um það að vera frá fyrri tíð og kannske eitthvað frá síðast- liðnum vetri, er Hótel KEA var lokað og mæddi því mikið á hinu. Síðasthðið voru fóru fram gagngerar endurbætur á öllum aðbúnaði gesta, öll herbergi og gangar teppalagt og settir ný- ir svefnsófar með gúmmídýn- um og Gefjunar-áklæði í öll herbergi. Einnig hefir góð- kunnur hótelstjóri, Jón Þor- steinsson, tekið við rekstri þess.“ ! Eg þekki Jón Þorsteinsson að , öllu góðu og vonandi er, að hon_ um takist að koma í veg fyrir j að gestir, sem búið er að vara i við að hafa áfengi um hönd í hótelinu, jafnvel í herbergjum sínum, finni ,,lík“ í skápum og undir rúmum er þangað kemur. | Það er ekki ólíklegt að eg verði aftur á ferð á föstudag- inn. Víðförli. Fastaráðið kemur saman. Talið er nú. að fram sé kom- ið svar við kvörtunum Belga nýverið, vegna farar Eisenhow- ers forseta tií V.-Þýzkalands fyrir fund hans með Krústsjoff. Eins og kunnugt er, töldu Bélgar, að ekkert eitt ríki At- lantshafsbandalagsins hefði rétt til þess að eiga einkavið- ræður við forsetann fyrir fund( hans við hinn rússneska ráða-' mann. Til þess að halda einingu bandalagsins hefur nú verið á- I kveðið að haldinn verði fundur fastaráðs Atlantshafsbandalags- ! ins 3. september n.k. Krústsjoff er sem kunnugt er væntanlegur i til Bandaríkjanna 15. sept. „Síldarkarl“ skrifar: „Undanfarið hafa verið talsverð brögð að því að bátar hafa orðið ! að bíða löndunar á Austfjarða- ■ höfnum. Bræðslurnar eru af- j kastalitlar og þróarpláss lítið ' miðað við veiði siðustu ára. Á Austfjarðahafnir hefur nú i ár borizt tæpur fjórðungur bræðslu- síldarinnar til þessa. Af þessum ástæðum eru uppi í’addir um það að byggja þurfi stærri verksmiðj ur á Austfjörðum. Á meðan standa verksmiðjurnar fyrir norðan aðgerðarlausar. Hvernig á að fara að. Verksmiðjur er dýrt að byggja, fjárfestingin mikil miðað við eftirtekjur. Sú er í’eynzla Noi’ð- manna og hið sama er að segja hér. Til þess að leysa þennan vanda væri athugandi að nota fljótandi þi’ær, flytja sildina til bi’æðslnanna, en ekki bræðsl- urnar á eftir síldinni hringinn í kringum landið. Það er líka dýi’t frá þjóðhagslegu sjónarmiði að tefja bátana frá veiðum lengur en nauðsynlegt er. Strax að sæmilegum veiðidegi loknum er helmingur bátaflotans tepptur, vegna löndunarstöðvunar. Sé snörp veiði þx’já til fjóra daga í í’öð, er ekki nema lítill hluti af öllum nótunum 230 að tölu í sjó. Sumar eru í bátum, sem biða löndunar, aðrar eru i langsigl- ingu á leið í land, aðrar eru i bátum, sem eru á leið á miðin 10 kannske 12 tíma eða meir og á meðan á sildin frí. Það virðist liggja í augum uppi að skynsamlegi’a hljóti að vei’a að nota þann verksmiðju- kost sem fyrir er i stað þess að byggja nýjar, og hvort sem nýj- ar verða byggðar eða ekki verð- ur áð vei’a bi’eyting á flutningi bi’æðslusíldai’innar. Ganilir kláfar. Við verðum að nota stór skip, það mega vera gamlir kláfar, nokkurs konar fljótandi þær, sem geta fylgt flotanum eftir. Slik flotþró hefði getað tekið síld af bátunum, sem urðu að biða marga daga á Seyðisfirði eftir lömlun og flutt hana til Siglufjai’ðar eða annarra staða, þar sem verksmiðjur stóðu til- búnar til að bræða síldina. Auð- velt væri að landa úr mörgum bátum í svona skip i einu og flýta þannig fyrir allri fyrir- greiðslu. Slikt skip myndi ekki kosta nema örlítið brot af verk- srniðjuverði og kæmi að gagni hvar svo sem síldin'veiddist, 100 milur norður í hafi eða langt fyr- ir austan land. Að visu er í fæst- um tilfellum hægt að landa í svona skip í í’úmsjó, ■ nema þá síldinni væri dælt um borð, en það er skoðun min og margra, sem ég hef rætt við, að slikt skip myndi stórauka veiðimöguleika, auka á hagræði og spára tíma og peninga, svo ekki sé minnzt á byggingu enn fleiri verksmiðja meðan þær, sem fyrir eru, standa ónotaðar. — Síldarkarl. Þrælkun fyrir að horfa á sjónvarp. Það er ekki aðeins glæpur að hlusta á vestrænt útvarp í lönd- um kommúnista, hcldur og að skoða sjónvarp að vestan. Þessu var slegið föstu í rétti einum í Erfurt íAustur-Þýzka- landi á þriðjudaginn. Dómari nokkur dæmdi tvo menn í nokk urra mánaða þrælkunarvinnu fyrir að hoifa á sjónvarp frá V.-Þýzkalandi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.