Vísir - 19.08.1959, Blaðsíða 12

Vísir - 19.08.1959, Blaðsíða 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur Látið hann færa yður fréttir og annað lestrarefni heim — án fyrírhafnar af wveviD Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. yðar hálfu. Sími 1-16-GO. Wm niDEPdrao^^ Sími 1-16-60. : Miðvikudaginn 19. ágúst 1959 Slökkviliðið fær nýjan stigabíl. 25 metra stigi af fullkomnustu gerð. Svo sem skýrt var frá fyrir nokkru hefir bæjarráð ákveð- ið að keyptur skuli nýr stiga- bíll handa Slökkviliði Reykja víkur. Undanfarið ár hefur verið unnið að því að afla tilboða hvaðanæfa í slíkan bíl, og bár- ust tilboð víða að. Eftir gagn- gerða athugun, bæði á gæðum ~og verði, ákvað brunamála- . nefnd að taka tilboði frá Klöckner-Humbolt-Deutz- verksmiðjunum í Vestur-Þýzka- landi. Verksmiðjur þessar hafa framleitt slíka stiga fyrir slökkvilið allt frá árinu 1867. Stigabifreið sú, sem slökkvilið- ið á nú, og var keypt til lands- ins 1932 er frá sama fyrirtæki, og hefur hann reynzt vel í alla staði, en er nú orðinn of lítill og seinvirkur, enda er bifreiðin ekki samræmanleg nútíma kröf um um slík verkfæri. Stiginn, sem nú verður kejTptur, er 25 metra hár, á und . ir flestum kringumstæðum að mú upp á 9. eða 10. hæð á hús- 'Tim og tekur um 20 sekúntur að reisa hann og draga út í fulla hæð. Bifreiðin, sem stiginn verður byggður á verður með . benzínhreyfli (Ford G 600). Hægt verður að nota stigann í ýmsum tilgangi. M. a. má setja vatnsstút á enda hans og Rafveitumenn á Vestfjörðum. Frá fréttaritara Vísis. ísafirði í gær. Samband íslenzkra rafveitna hélt aðalfund að Eyrum í Pat- reksfirði 14—16. þessa mánað- ar. Mörg mál voru rædd og á- kveðið var að halda framhalds- fund síðar á starfsárinu. Að fundarlokum skoðuðu fulltrúar Mjólkárvirkjun, Látrabjarg, 'itauðasand og fleiri byggðir í nágrenni Patreksfjarðar. nota hann þannig sem „vatns- turn“. Þá má og setja á stigann nokkurs konar lyftu, sem renna má upp og niður eftir stiganum til að koma slösuðu fólki niður á jörðu. Þá má og nota hann sem krana til að lyfta allt að þrem tonnum. Símakerfi verð- ur í stiganum, svo tala megi við „stigamanninn“ frá jörðu. Öllum hreyfingum stigans er stjórnað með stjórntækjum við jörðu, og eru drifnar af aflvél bílsins. Allur útbúnaður er sjálfvirkur, sem mest má verða, og öryggisútbúnaður hinn full- komnasti, sem nú þekkist. Stórt gos í Hveragerði. Árangur hefur loks feng- izt af borunum í Hveragerði. I gær hófst niikið gos í bor- liolu, sem unnið hefur verið við undanfarr.a 5 mánuði. Er áætlað að vatnsmagnið muni nægja til að hita upp hálft þorpið, cg verður það þegar í stað tengt við gömlu hilaveituna. Frekari áætlanir >.;m hita- veituframkvæmdir. á staðn- um eru ; athugun, og hefur allt viðhorf breyst mikið við þennan fund. □ Rússneskir vísindamenn á Suðurskautslandinu segja að „kuldapóll“ jarðar sé á suðurheimskautinu en ekki í Síberíu austnverðri. Ljótt slys ■ Borgarfirði. Bíllinn splundraðist við áreksturinn. í fyrrinótt varð alvarlegt bif- reiðarslys ofarlega í Norðurár- dal í Borgarfirði. Tveir menn voru þar á ferð suður veginn í Buick bifreið blæjubíl frá 1957, R-8941. í bif reiðinni voru tveir karlmenn Ingibergur Sigurgeirsson, Suð urlandsbraut 4, sem ók bifreið inni, og Óskar Óskarsson, til heimilis sama stað. Bifreiðin rakst á brúarstólpa við Litluá, og hefur sennilega verið á mik- illi ferð. Hentist bifreiðin sið- an á hliðina ofan í árfarveginn, sem þó var þurr. Féll Óskar þegar í ómegin, en Ingibergur komst við illan leik, rifbeins- brotinn og mikið meiddur, heim að Hvammi, og fékk þar aðstoð. Þegar komið var á slysstaðinn, var Óskar þar ennþá meðvit- undarlaus, og var hann fluttur þannig í flugvél í bæinn. Ingi- bergur liggur á sjúkrahúsinu á Akranesi, en þar var gert að sárum þeirra beggja til bráða- birgða. Maður, sem kom á staðinn, skömmu eftir að þetta skeði, og sá bifreiðina, hefur tjáð Vísi að J hún hafi verið ótrúlega illa far- • in. Vélarhlífin hafði kastazt eina 10 metra í burtu við á- reksturinn, en boltar, skrúfur og rær lágu eins og hráviður allt í kring um bílinn, en bíllinn og jarðvegur litaður blóði. Óskar var ennþá rænulítill í morgun, en hafði þó fengið nokkra meðvitund, og var álit- ið að líðan hans væri eitthvað betri, ef um nokkra breytingu væri að ræða. Isbdingar - Daiir 1:1 Fyrsti bndsfeikurinn við Dani, sem Islend- ingar hafa ekki tapað. íslendingar og Danir gerðu undanskildu því er Sveinn skor- jafntefli í landsleiknum í Kaup aði í fyrri hálfleik. mannahöfn í gær 1:1. Þessi úrslit munu flestum Danirnir skoruðu sitt mark ekki fyrr en á 34. mínútu seinni hafa komið á óvart, en þó sér- ;4iálfleiks eða þegar aðeins voru staklega Dönum, sem töldu sér [ eftir 11 mínútur til leiksloka. sigurinn vísan og ekki sízt, þar Það má því segja að það hafi sem þeir kepptu á heimavelli. Þetta er sjöundi landsleikur Is- lendinga við Dani í knatt- spvx-nu og sá fyrsti sem þeir ekki tapa. í hinum sex hafa Danir yfirleitt unnið yfirburða- sigur, og þess vegna hafa þessi úrslit orðið þeim mikil von- brigði. íslendingar skoi'uðu sitt mark í fyrri hálfleik og það var Sveinn Teitsson, sem gerði það þegar 29 mínútur voi’u af leik. Sendi hann knöttinn rétt við hægri markstöng, óverjandi skoti í mai'kið. Þrátt fyrir að íslendingarnir yrðu fyrri til að skora, var sókn in þó harðai’i af hálfu Dana og mæddi mjög á íslenzku vörn- inni, ekki sízt Helga markverði, sem stóð sig sem hetja og var talinn einhver bezti maður ís- lenzka liðsins á vellinum. ís- lenzka sóknarliðið gei'ði nokk- ur hættuleg upphlaup að marki Dananna, en mistóksust öll að Nýju bortækin reynast vel. Þegar fenginn göður árangur. Missa 100,000 kolanáma- menn atvinnuna? Aívarlegar horfur í V.-Þýskalandi. Kolakreppan í Vestur-Evr- úpu hefur ekki enn verið kveð- in niður, og eru menn áliyggju- fullir í V.-Þýzkalandi af þeim 'sökum. í vor var tekið fyrir innflutn- ing á kolum til landsins, til þess að ekki þyrfti að draga úr framleiðslunni í Ruhr, en þetta hefur ekki nægt til þess að koma kolaframleiðslunni á heil brigðan grundvöll — kolin halda áfram að safnast fyrir, því að ekki er hægt að selja allt, sem úr jörðu er unnið. Ekki hefur heldur komið að verulegu gagni,’ þótt námaeigendur fengju skattaívilnanir. Innan skamms verður efnt til fundar námamanna, til þess að reyna að finna einhver úr- ræði til að bæta hag námanna, því að hætta er á því, að þær verði að segja upp hvorki meira né minna en 100.000 manns, ef ekki verður hægt að koma frmleiðslunni í verð. Nú er komin nokkur reynsla á nýju tcekin, sem Jarðboranir Ríkisins keyptu fyrir skemmstu til að auka afköst stóra borsins. Hefur undanfarið verið unn- ið að því að dýpka borholuna í Undralandstúni, og er því verki lokið. í 1100 metra dýpt urðu verkfræðingar varir við að einhver árangur var feng- inn, en haldið var samt áfram niður í 1306 metra. Þar fékkst töluvert af heitu vatni, og gef- ur holan nú sem svarar um 8 lítrum á sekúndu af rúmlega 100 stiga heitu vatni. Vatns- hitinn er mældur ofan í holu- botni, og er vatnið þar að sjálf- sögðu undir töluvei'ðum þrýst- ingi. Þess vegna er það, að hit- inn getur farið töluvert yfir 100 stig, Hluti vatnsins breyt- 4 SJm að gera að hafa nógu hátf. Bandaríkjamenn hafa til- kynnt nýtt framlag í útvarps- hernaðinum gegn kommúnist- um. Hefur verið tilkynnt, að veitt- ar verði 100 milljónir dollara til að reisa útvarpsstöð við Mon-, rovíu í Líberíu. Það verður sterkasta endurvarpsstöð í heimi, og á m. a. að útvarpa til svertingjaþjóða. ist svo í gufu, þegar það kemst upp á yfirborð. Borinn hefur nú verið fluttur að mestu að gamalli holu, sem boruð var áður við hoi'n Nóa túns og Hátúns. Hún er 725 metrar á dýpt, og er meiningin að dýpka hana töluvert enn. Hafa verkfi’æðingar nokkra von um vænlegan árangur þar. Nýju tækin hafa reynzt prýði- lega í alla staði. Að vísu hefur ekki enn vei’ið reynt að bora 'verið á síðustu stundu, sem þeir fengu hlut sinn réttan. Það var Henning Enoksen, sem skoraði af þeirra hálfu. Á föstudaginn kemur keppa íslendingar síðasta leik sinn í Ólympíuforkeppninni, en það er við Noi’ðmenn í Osló. Úrslitaleikur í 2. deiict á föstudag. Frá fréttaritara Vísis. 1 Akureyri í morgun. Knattspyrnulið frá Akureyri er nú á förum til Suðurlandsins og mun keppa þrjá leiki syðra. Fyrsti leikurinn verður úr- slitaleikur við Vestmannaey- inga í 2. deild. Fer hann fram á Melavellinum í Reykjavík á föstudagkvöldið. Á laugardaginn keppa Akur- eyringar bæjai’keppni í knatt- spyrnu við Keflvíkinga, en við Hafnfirðinga á sunnudaginn. Bautasteinn Kili. a Ferðafélag íslands hefur reizt bautasteinn á Kili til minn ingar um fyrrverandi forseta þess, Geir G. Zoega vegamála- stjóra. Þessi bautasteinn er á Kili, þar sem hann ber hæst, eða í 680 metra yfir sjó. Hugmyndin er að afhjúpa þenna bautastein um næstu helgi og efna til sér- stakrar ferðar þangað í því skyni. Ferðafélagið efnir einnig til tveggja annarra ferða um helg- ina í Þórsmörk og Landmanna- ’ laugar. á ská, því að ástæða hefur ekki j_ vei'ið til þess, en ekkert mun því til fyrirstöðu, að það verði 1 gert, ef ástæða þykir til. Vamariiðsforíngjar staðnir að veiðiþjófnaði. Höfðu áður sloppið í þyrlu. Fyrir um að bil viku voru staðnir að veiðiþjófnaði í Botnsá í Hvalfirði og hand- teknir þrír foringjar úr varnar- liðinu. Var þetta ekki í fyrsta skipti, sem menn þessir höfðu verið þar að veiðiþjófnaði, því að á miðvikudaginn hafði bóndinn á Stóra-Botni séð til þeirra, þar sem þeir voru að iðju sinni. Sendi hann eftir lögregluþjóni, sem hefir setur sitt í hvalstöð- ina, en þegar þeir komu á vett- vang, sáu foringjarnir til hans og bónda, höfðu samband við þyrilvængju, sem var til taks, 1 ef svona færi, og foi’ðaði hún þeim í tæka tíð. Bandaríkjamenn voru þó ekki af baki dottnir, því að þeir komu aftur daginn eftir — þótt ekki væri eftir þeim tekið við komuna — og þá var hægt að koma þeim á óvart, svo að þeir voru handteknir. Þyrlan kom ekki að gagni þann daginn. Þess er að vænta, að íslenzk yfirvöld gangi röggsamlega fram í þessu máli, og foringj- amir verði látnir sæta fyllstu ábyrgð. Annars fer vai'la hjá

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.