Vísir - 14.09.1959, Blaðsíða 4
VISÍB
Mánudaginn 14. september 195®'
Kynþáttamynd
verðlaunuð.
Columbia Kvikmyndafélagið
hefur keypt réttindin til að
gera kvikmynd af Ieikriti því
eftir Lorraine Hansberry, sem
sýnt hefur verið á Broadway
um langa hríð við mikla að-
sókn og heitir „A Raisin in the
Sun“.
Leikritið fjallar um negra-
fjölskyldu eina í Chicago,
Þetta er fyrsta leikrit þessa
höfundar. Höfundurinn fékk
verðlaun leiklistargagnrýn-
endafélagsins í New York og er
það í fyrsta sinn, sem negra-
höfundur fær slík verðlaun.
Lorraine Hansberry mun
sjálfur skrifa kvikmyndahand-
ritið, en aðalhlutverkin verða
falin Sidney Poitier og Claudia
McNei. Þau léku bæði í leikrit-
inu.
Kvikmynd um
Karþagó.
Mikill fjöldi kvikmyndaleik-
Sra hópást nú til Rómborgar.
Tilgangui'inn er að leika í
kvikmynd, sem Carmine Gall-
one, sem kallaður liefur verið
Cecil B. de Mille Ítalíu, ætlar
að fara að gera um Karþagó.
Meðal þeirra, sem til Róm fara
eru Frakkarnir Danel Gelin og
Charles Vanel, hin enska Anne
Heywood, Spánverjinn José
Suarez og mikill fjöldi ítala.
Hér sjáið þið Ritu Hayworth eins og hún lítur út núna. Við
hlið hennar er maður hennar, kvikmyndastjórinn James Hill,
sá er gerði Marty. Myndin er tekin á kvikmyndahátíðinni í
Berlín.
Artene er aftur að byrja
að leika í Hollywood.
Hún lék síðast í Bretlandi 1956.
Þær sköllóttu eru mikið
á dagskrá.
Þær voru sitoðaðar fyrir að leggja
lag sitt við þýzka hermenn.
Hin fagra Arlene Dahl, sem
verið hefur fjarri öllum leik í
þrjú ár, er nú aftur komin til
HoIIywood og farin að leika.
Átján mánaða sonur Iiennar,
Lorenzo, var viðstaddur þegar
móðir hans steig aftur fram
fyrir kvikmyndatökuvélina.
Faðir Lorenzos er Fernando
Lamas, leikstjóri.
Arlene leikur nú á móti Pat
Boone og það er einmitt í hinni
margumtöluðu mynd „A
Journey to the Centre of the
Earth“ (Ferð í iður jarðar).
Þar er eins og kunnugt er Pét-
ur Rögnvaldsson (Ronson)
einnig meðal leikenda.
Arlene var dauðhrædd um
að Lorenzo mundi gera út af
við Geirþrúði önd, sem er líka
ein aðalstjarnan í myndinni.
Ein milljón á ári.
Dean Martin ræðir um sjálf-
an sig og Jerry Lewis.
Og svo sannarlega reyndi
Lorenzo að krækja í Geirþrúði
— hann er svo líkur honum
föður sínum, sagði móðir hans.
Hún sagði að Lorenzo væri
ekta Suður-Ameríkani. Það
fyrsta sem hann lærði að segja
var ekki mamma eða pabbi,
heldur „falleg“, og það segir
hann alltaf þegar hann sér
kvenmann, bætti hún við til
staðfestingar.
Arlene lék sðast 1956 og þá
í Bretlandi. í Hollywood hefur
hún ekki leikið í fimm ár.
Arlene er annars af norskum
ættum og það má heyra norsk-
an hreim af máli hennar. Hún
ólst upp í Minneapolis og ætt-
ingjar hennar þar tala enn
norsku nokkurn veginn. Það
tilheyrir í myndinni að hún
hafi norrænan hreim svo að
þetta er svo sem allt eins og
það á að vera.
„Það var mín hamingja að
hitta Jerry Lewis,“ sagði Dean
Martin um daginn. „En það
bezta, sem nokkurn tínia hefur
koinið fyrir mig, var þegar eg
skildi við hann.“
Þeir skildu fyrir tveim árum
og hefur mikið verið rætt um
þann skilnað,
Annars er það bitur reynsla,
að þegar tveir gamanleikarar
hætta samstarfi sínu, fara þeir
báðir í hundana.
Þetta fór þó öðru vísi í þetta
sinn. Jerry Lewis hefur tekist
að safna fé og er fjárhagslega
sjálfstæður. Hann framleiðir
gamanmyndir.
Dean Martin fór hinsvegar að
leika alvarleg hlutverk og
græðir óhemju fjár. Árstekjur
hans í fyrra eru áætlaðar um
milljón dollara.
í byrjun þessa árs var hann
að undirbúa fimmtu myndina
sina á 2 mánuðum.
Deon býr í Beverley Hills í
^íollywood. Þar á hann mikið
hús, sjö herbergja einbýlishús.
Hann á líka sjö börn.
„Þegar eg lék með Jerry,
notaði eg hverja tómstund til
að leika golf, því að mér hund-
leiddist lífið. Eg hafði ekki einu
sinni gaman af ökuferðinni í
kvikmyndaverið á morgana.
því að eg vissi að það var alltaf
sama sagan — það gerðist
aldrei neitt. Eg var orðinn svo
sljór, að eg nennti ekki einu
sinni að lesa textann í hlut-
verkunum mínum. Eg vissi allt-
af hvað koma mundi. Jerry
mundi segja: „Eg held að eg
fari yfir fsjoppuna“. Eg mundi
segja: „Ertu að fara yfir í
sjoppuna?"
Þegar við skildum vissi eg
ekki hvað eg átti að gera. Jæja,
svo setti MGM mig í hlutverk í
„10.000 svefnherbergi“. Svo
komu „The Young Lions“ og
Marlon Brando og Montgomery
Cliff — eg fór að leika. Og svo
rak hvað annað. Eg fæ núna
200.000 dollara fyrir hverja
Mikið er búið að skrifa um
Ginu og Ieiksystur hennar, sem
eiga að leika í júgóslavnesk-
ítölsku myndinni, sem gerð
verður innan skamms og lýsir
atburðum sem gerðust í styrj-
öldinni á meðan Þjóðverjar
hersátu Júgóslavíu.
Eins og kunnugt er leika þar
fimm stjörnur og verða allar
að láta raka af sér hárið (ef þær
þá gera það?)
Ein þessara stjarna er Vera
Miles og segist hún ekki munu
hika við að láta krúnuraka sig.
„Það verður
sjón að sjá .... “
„Eg hef verið að þukla á mér
höfuðkúpuna undanfarið og
orðið vör við allskonar hnúta
og dældir í höfuðbeininu. Það
verður sjón að sjá, þegar ekkert
verður til að skýla öllum þeim
ójöfnum.“
Myndin á að heita „The Five
Women“. Stúlkurnar lögðu lag
sitt við þýzku hermennina, sem
hersátu landið og landar þeirra
gerður sér lítið fyrir og rökuðu
af þeim hárið. Það gerist
snemma í myndinni svo að
stjörnurnar verða að vera með
hárkollu í 12 til 14 vikur á
meðan á myndatökunni stend-
ur.
„Eg ætla að vera með hár-
kollu þangað til hárið fer að
,vaxa svolítið. Vona þá bara að
enginn taki mig fyrir skóla-
strák,“ segir Vera.
Hún var fegurðar- *
drottning.
Vera Miles er annars engin
venjuleg kvikmyndastjarna.
Hún hefur verið þar lítið áber-
andi. „Það er ekki af því að eg
hafi ekki persónuleika,“ segir
hún. „Og eg vildi heldur að fólk
talaði um mig sem góða leik-
konu heldur en að það dáist
aðeins af fegurð minni. Þess
Stutt og faggott
hfónabattd.
Nýjasta stjarnan á kvik-
myndahimninum í Frakklandi
Pascale Petit, sem þegar er
þekkt hér, ætlar að fara að
skilja við mann sinn Jacque
Porterct.
Hjónabandið er þó ekki
gamalt. Iijúin giftu sig í hitt-
eðfyrra. Þau kynntust við
kvikmyndatöku þar sem Pas-
cale lék lítið hlutverk og Jac-
ques var aðstoðarmaður. Nú
hefur Jacques ekki geta fylgt
dísinni eftir á framabrautinni
og þarna sjáið þið afleiðing-
arnar.
KvIkanyWeE icttb
sjónvarpssýningu. Eg er með-
eigandi í Dino Lodge (veitinga-
hús á Sunset Strip) og í Hotel
Sand í Las Vegas. Það er eins
og að eiga olíubrunn.“
„Heldurðu að þú takir aldrei
saman við Jerry aftur?“ spyr
komumaður.
„Jú, alveg áreiðanlega.“
„Hvenær?“
„Þegar við förum til tungls-
ins.“
Warner Bros. ætlar að gera
kvikmynd um líf Roosevelts.
Að vísu snýst myndin einungis
um yngri ár forsetans.
Myndin byggist á leikritinu
„Sunrise at Campobello“ eftir
Dore Schary, sem sýnt var á
Broadway við góðar undir-
tektir.
Marlon Brando á að leika
Franklin D. Roosevelt.
'enn. Eg veit vel að feguroint.
1 ein endist ekki til lengdar og:
þess vegna má maður ekki stólal
á hana. Hve margar hafa ekki.
gert það — og gleymst.“
Vera var fegurðardrottningj
— Miss America — 1958. „ÞaS:
var þá, sem eg komst í kvik-
myndirnar,“ segir hún. „Falleg
andlit koma og fara og yfirleitt
er gert of mikið úr fegurð
kvenna. Eg þekki margt ófrítt
fólk og eg veit að þið getið sagt
það sama, en sumt af því fólki
er sérlega viðkunnanlegt og
margt af því finnst manni meira
að segja fallegt þegar maðun
fer að knnast því. T. d. Jimmy
Durante, hann er fallegur mað-
ur — undir yfirborðinu. Þesss
vegna er eg ekkert feimin við
að láta krúnuraka mig. Það en
leikurinn sem gildir, og eg ert
viss um að eftir honum verðurl
munað, þegar öll fögur andliti
eru löngu gleymd.“
Hvar eru fuglar?
Pola Negri
lifir enn.
Pola Negri, kvikmyndadísinf
fræga frá í gamla daga, hagaði.
sér á sínmn tíma alveg eins og
til var ætlast af frægri stjörnu.
Hún fann upp á að mála á sért
neglurnar á tánum, gekk umí
götur Hollywood með tígris-
dýrsunga í bandi og var uppá-
haldsviðhald hins fræga Rudolf
Valentinos. Pola Negri er nú 59
ára gömul, en ávallt jafn grönn
og vel vaxin. Síðustu vikurnarr
hefur hún haldið til á Plaza’
hótelinu í New York, og undir-
býr þar ferð sína til Evrópu, enl
þar ætlar hún að leika í fyrstn
kvikmynd sinni í 15 ár. Það er;
vestur-þýzk njósnaramynd,
sem á að heita „Heimsléyndar-
mál“. |
Pola Negri hefur skilið við
tvo eiginmenn (greifa og
prins), og dvelst lengst af í átta
herbergja húsi sínu í Bel Air,
1 Kaliforniu. Þar situr hún við
að semja æfisögu sína, sem hún
ætlar að kalla „Eins langt og eg
þori“, og segist þora það að
segja allt um kunningsskapj
þeirra Valentinos.
Orðln leið á
lifimi.
Hedy Lamarr og fyrrver-
andi eiginmaður hennar, How-
ard Lee, lentu í mikul rifrildi í
dómsalnum í Hollywood ný-
lega.
Hedy hafði stefnt Howard
fyrir að hafa ekki greitt henni
umsaminn lífeyri. Kvaðst hún
ekki fá neitt hlutverk lengur
(hún er fertug), vera leið og
yfirhöfuð langaði sig ekki til
að lifa lengur.
PASSAMYNDIR
teknar í dag,
tilbúnar á morgun.
Annast allar myndatökur !
innanhús og utan.
Pétur Thomsen
kgl. hirðljósmyndari.
Ingólfsstræti 4.
Sími 10297. I