Vísir - 14.09.1959, Síða 12

Vísir - 14.09.1959, Síða 12
I Ekkert blað er édýrara í áskrift en Vísir. j Látið hann færa yðúr fréttir og annað * lestrarefni heim — án fyrirhafnar af yðar hálfu. . Sími 1-16-60. Munið, að þeir sem gerast áskrifendur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, lá blaðið ókeypis til mánaðamóta. Simi 1-16-60. Mánudaginn 14. september 1959 Mjólk í nýjum umbúðum. Sala í pappastrýtum hefst á mi&vikudag — flöskurnar hverfa. Þessi mynd var tekin af Óðni, hinu nýja varð ;kipi íslendinga, er því var hleypt af stokkun- um í skipasmíðastöðinni í Álaborg í Danmörk a í fyrri viku. Skipið verður afhent Landhelgis- gæzslunni í febrúar næsta ár. Eins og fyrr hefur vcrið getið er Óðinn 800 lesta skip og verður stærsta varðskip landsins. Kjöl arinn var lagður 23. marz s.l. Öllu starfsfólki lyfjabúða sagt upp. IMauðsynlegt að breyta starfsháttum. Það virðist fyrirsjáanlegt, að lyfjabúðirnar verði að gera breytingu á starfsemi sinni á ■næstunni. Stafar þetta af því, að lækk- nð hefur verið svokölluð vinnu- gjaldskrá, sem segir fyrir um það, hversu mikið skuli greitt fyrir blöndun lyfja í lyfjabúð- um. Hefur vinnuskrá þessi ver- Slys... Framh. af 1. síðu hliði vallarins, og var þegar kallað á lögreglu þaðan og sjúkrabifreið. Hún flutti Guð- mund í sjúkrahús, en hann var skrámaður í andliti og á hönd- um, en auk þess hafði hann fengið taugaáfall. Lögreglan fann engan áfeng- isþef af ökumanni jeppans, en hann var samt færður til blóð- rannsóknar, er leiddi í ljós, að hann hafði ekki bragðað áfengi. íslenzka lögreglan á Keflavík- urvelli tók jeppann í sína vörzlu. Upplýsingar þessar eru sam- kvæmt tilkynningu varnarliðs- ins. ið lækkuð um helming, að því er snertir sum lyf, en fyrir önnur mega lyfjabúðir alls ekk- ert gjald taka! Það leiðir af sjálfu sér, að lyfjabúðirnar verða ekki rekn- ar með sama fyrirkomulagi og áður eftir að slíkar breytingar I hafa verið gerðar, og þess vegna ! var efnt til fundar í Apótekara- jfélagi íslands í gær til þess að I ræða þessi mál. Hefur staðið | til um skeið af hálfu hins opin- bera að gera ofangreinda breyt- ingu, og var hún látin ganga í gildi um sl. mánaðamót. Fundurinn í gœr sam- þykkti, að sagt skyldi upp öllu starfsfólki lyfjabúðanna með sem allra stytztum fyr- irvara, en flest mun hafa 3ja mánaða uppsagnarfrest, ör- fáir 6 mánaða. Lyfjabúðirnar munu standa algerlega berskjaldaðar í þessu máli, því að lyfsölustjóri hef- ur ' einræðisvald í þessu efni (og hyggst beita því með full- tingi Vilmundar landlæknis. Lyfsölustjóri hefur ekki sér- (menntun á 'Sviði lyfjafræði, því að hann er Kristinn Stefánsson ; læknir. Staðfesting frá utanríkisráðuneytinu. Þriðjudaginn 8. september s. 1. áður en Thor Thors ambassa dor fór héðan af landi til Was- hington var hónum falið að ganga á fund ríkisstjórnar ^Bandaríkjnna, og, í framhaldi af fyrri orðsendingum ríkis- jstjórnar fslands, að gera henni grein fyrir hve alvarlegum ^augum ríkisstjórnin liti á at- ^burði þá í einstökum atriðum ^og í heild, sem gerzt hafa und- ^anfarið í sambúð íslendinga og varnarliðsmanna. Var sendi- herranum ja'fnfram falið að bera fram kröfu um, að ráð- stafanir yrðu gerðar hið bráð- asta til þess að koma í veg fyr- ir að slíkir atburðir endur- tækju sig. Seint í gærkvöldi barst til- kynning frá sendiherranum um að hann hefði í gærdag gengið á fund rikisstjórnar Bandaríkj- anna. Má gera ráð fyrir, að við- ræðum milli ríkisstjórna ís- lands og Bandarikjanna um þessi mál ljúki næstu daga og aðárangur þeirra geti legið fyr- ir mjög fljótlega. Utanríkismálaráðuneytið, » * Reykjavík, 12. sept. 1959. Nú líður senn að því, að reyk- vískar húsmæður geta keypt mjólkina í pappaumbúðum, eins og mikið hefur verið ritað og j rœtt um undanfarin ár. Mjólkursamsalan hefur nú tilkynnt, að sala mjólkur í pappahulstrum hefjist núna á j miðvikudaginn kemur. Mun þá verða opnuð ný mjólkurbúð í ! sama húsi og „Lídó“ er til húsa. Þessi nýja mjólkurbúð mun j verða með öðru sniði en al- mennt hefur verið, og verður hún með sjálfsölufyrirkomu- lagi. Það er nokkuð langt síðan að tillögur voru gerðar um það að selja nýmjólk í slíkum pappaumbúðum, og hefur und- irbúningur þess staðið yfir all- lengi. Nú er svo komið, að all- ar vélar hafa verið keyptar og settar upp, og eru tilbúnar til notkunar. Sennilegt er, að nokkrar tilraunir verði gerðar í þessari nýju kjörbúð um hag- kvæmasta fyrirkomulagið á dreyfingu mjólkurinnar, en síð- an verði öðrum útsölustöðum breytt samkvæmt fenginni reynslu þar. Með þessu fyrirkomulagi losna viðskiptavinir við að koma með tómu ílátin til baka í hvert sinn, en geta gengið inn í verzl- unina og keypt allar mjólkur- afurðir í snyrtilegum umbúð- um, og mun mjólkin verða geymd í kæli, þannig, að ekki skiptir máli þótt hún sé eins til tveggja daga gömul. Dag- setningu á umbúðunum verður sennilega hætt. Góðmjólk, sem kæld er ofan í 2—4°C, stenzt alla gerlaprófun og er góð sölu- vara í nokkra daga. Getur slík mjólk verið gæðameiri en ný- mjólk, sem geymd hefur verið í stofuhita í fáeinar stundir. Þá ber einnig að geta þess, að pappaumbúðir koma í veg fyrir skemmdir á mjólk vegna sól- ar, sem reykvískir neytendur kannast vel við. j Reynsla hefur fengizt á pappaumbúðum erlendis, og j samkvæmt henni virðist óhætt að álykta, að þessari nýbreýtni verði tekið vel hér á landi. Um- búðirnar eru þrístrendar að lögun, með þrem jafnstórum hliðum, og skiptir engu hver hliðin snýr niður. Þetta auð- veldar mjög allan flutning og geymslu mjólkurinnar, því þess- ar umbúðir taka mikið minna 1 pláss en flöskurnar. Má stafla I þeim þannig í kassa, að ekkert rúm fari til spillis. Þess utan verður komizt hjá allri smöl- un og hirðingu notaðra íláta, ‘ sem neytendur henda jafnóð- 1 um og tæmast. Væntanlega mun hægt að skýra nánar frá þessu nýja- 1 fyrirkomulagi í blaðinu á morgun. Meistarar 6 r r ar i roo. Akureyri í morgun. Knattspyrnumót Norður- lands liófst hér á föstudag og lauk í gær með sigri Knatt- ' spyrnufélags Akureyrar sjötta árið í röð. Alls tóku þátt í mótinu 4 ^félög; Knattspyrnufél. Akur- eyraf, þ-A' á Ak- ^ ureyri, Knattspyrnufélag Siglu- fjarðar og kapplið úr Héraðs- sambandi Þingeyinga. Úrslit (urðu þau, að K. A. bar sígur I úr býtum, fékk 6 stig og vann . alla keppinauta sína, skoraði ^ 24 mörk gegn 6. Þór hlaut 4 stig, Þingeyingar 2, en Siglfirð- j ingar ekkert. Fyrrv. Norður- ^ landsmeistarar voru K. A., því að þeir hafa unnið mótið 6 ár í röð. Nýju mjólkur- umbúðirn- ar verða þannig i lagincu

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.