Vísir - 16.09.1959, Blaðsíða 9

Vísir - 16.09.1959, Blaðsíða 9
Miðvikudaginn 16. september 1959 VfSIR Gerð grein fyrir álagningu skatta og útsvars. Grammófóna s annar ÓÖffU U eruá Ni5ur|öiSinunarnefnd svarar blaðaskrifum. Eftirfarandi barst Vísi í gær frá niðurjöfnunarnefnd: Árið 1959, þriðjudaginn 15. sept. kl. 10,30 árdegis, hélt nefnin fund á venjulegum stað. Allir nefndarmenn mættir nema E. Á. Fyrir var tekið: 2. Rætt um blaðaskrif vegna útsvarsálagningar yfirstand- andi ár. Samþykkt var með sam hljóða atkvæðum að óska birt- ingar í blöðum bæjarins á eft- irfarandi greinargerð: Vegna blaðaskrifa undanfar- ið um útsvarsálagningu hér í bænum á yfirstandandi ári, þykir niðurjöfnunarnefnd rétt að birta eftirfarandi skýringar: Samanburður á tekjuskatti og útsvari einstaklinga eins og gjöld þessi eru birt í skatt- og útsvarsskrá er villandi, sérstak- lega af þeim ástæðum: 1. Skattstigar og útvarsstigar eru ekki byggðir upp á sama hátt. Sama gildir um persónu- frádrátt til skatts og útsvars. Þannig er tekjuskattur allt frá 1% af kr. 3.500.00 og upp í 40% af skattskyldum tekjum y'fir kr. 155 þús., en tekjuútsvar af kr. 25 þús. eða þar yfir frá 19% cg upp í 30% af tekjum yfir kr. 100 þús. Persónufrádráttur til skatts er sá sami fyrir hvern ó- maga, en til útsvars fer hann stighækkandi eftir fjölda ómag- anna. Af þessu sést, að hlutfall- ið milli tekjuskatts og útsvars er mjög breytilegt eftir tekju- upphæð og persónufrádrætti. 2. Skv. 36. gr. skattalaganna hefur yfirskattanefnd heimild til að gefa eftir tekjuskatt, þegar sérstaklega stendur á fyrir skattgreiðandanum. Þessa heimild hefur skattstjóri ekkr. og er því tekjuskattur, sem birt- ur er í skattskrá, reiknaður án tillits til þessa frádráttar. Við ákvörðun útsvars hefur niður- jöfnunarnefnd hins vegar hlið- s jón af öllum aðstæðum gjald- andans. Er því í hinum birtu út- svörum tekið tillit til þess frá- dráttar, sem veittur kann að vera gjaldandanum frá almenn- um tekjuútsvarsstiga. 3. Skv. 35. gr. skattalaganna getur skattstjóri í ýmsum til- feilum áætlað skattgreiðendum tekjuviðbót eða strikað út gjaldaliði á framtölum þeirra. Er tekjuskatturinn síðan reikn- aður út skv. framtölunum þánn ig breyttum. Niðurjöfnunar- nefnd metur slíkar áætlanir og breytingar, tekur stundum ekki tillit til þeirra, stundum aðeins að nokkru leyti. Verður útsvar- ið þá reiknað af öðrum nettó- tekjum en tekjuskatturinn. Með hliðsjón af framanrituð- um reglum tók nefndin sérstak- lega til athugunar framtöl 6268 gjaldenda, og lækkaði útsvör þeirra eftir mati í hverju ein- stöku tilfelli. Eftir er að úr- skurða kærur, sem nefndinni höfðu borizt að kvöldi hins 11. þ. m. Framanrituð útsvör voru á- kveðin án nokkurs ágreinings innan nefndarinnar. Fundi slitið. Guttormur Erlendsson. Björn Kristmundsson. Haraldur Pétursson. Sigurbjörn Þorbjörnsson. ión Leifs forsetaefni hjá B. í. L. Á aðalfundi Tónskáldafélags íslands 11. þ. m. var Jón Leifs endurkjöi'inn forseti STEFs og Tónskáldafélagsins og forseta- efni félagsins í stjórn Banda- lags íslenzkra listamanna. Með- stjórnendur hans ei’u í stjórn STEFs þeir Skúli Halldórsson, Þórai'inn Jónsson, Snæbjörn Kaldalóns og Sigurður Reynir Péursson hrlm., en í stjói'n Tón- skáldafélagsins Siguringi E. Hjörleifsson og Skúli Hall- dórsson. Endui'skoðendur voru kjörnir Friðrik Bjarnason, Sig- urður Þórðarson og Þórai'inn Jónsson. Fulltrúar til aðal- fundar Bandalags íslenzkra listamanna voru kjörnir Jón Leifs, Helgi Pálsson, Siguringi E. Hjörleifsson, Skúli Hall- dórsson og Þórarinn Jónsson. Fundurinn sendi heillaóska- skeyti til dr. Hallgríms Helga- sonar vegna skipunar hans sem tónlistarfulltrúa Ríkisútvarps- ins og þakkarkveðjur til menntamálaráðhei'ra vegna framlags hans í þágu tónlistar- mála og annarra menningar- máía. Listamaiur hljóti embætti þjdð Sarisvarðar. Tiílaga Bandalags islenzkra listamanna. Nýtízku plötuspilarar — eða grammófónai-, eins og þeir voru kallaðir áður fyrr — eru ákaflega margbrotin og fíngerð rafeindatæki, sem geta endur- tekið mannsröddina, hljómlist og aðra hljóma með hér um bil fullkominni nákvæmni. En það hefur tekið 80 ái’a rann- sóknai'stöi’f að ná þessari full- komnun. Hér skulum við fylgj- ast með nákvæmni þessa merka tækis. hreyfðu til og komu titringi á næfurþunna plötu, en á henni var komið fyrir nál. Nálin skar örfínar rispur í málmþynnuna, sem vafið var um kefli. Þegar átti að endurtaka hljóminn, var keflinu snúið, og rispan í málm plötunni hreyfði nálina á sama hátt og áður, nálin kom titringi á plötuna og bjó til hljóðbylgj- ur á ný, sem voru eins og þær fyri’i. Til þess að taka niður hljóm Lengi hafði mönnum langað til að geta fangað mannsrödd- ina, til að geyma og endurtaka síðar meir. Á miðri 19. öld ui'ðu margir Evrópumenn til þess að glíma við þetta-, og nokkrum Þjóðvei'jum tókst raunverulega að ná rödd á málmþynnu, en árangui'inn var svo frumstæð- ur að áhugi manna dofnaði jafn hai'ðan. Þá skeði það í Bandaríkjun- um árið 1877 að uppfinninga- maður að nafni Thomas A. Edi- son kom skyndilega fram með hljóði'itara,sem hann fann upp er hann var að gera tilraunir með tæki til að festa niður merki frá í’itsímatæki. Og þótt þetta tæki væri frumstætt og gróft, endurgaf það mannsrödd og hljómlist, sem fest hafði ver- ið á málmþynnu. Þessir fyrstu grammófónar byggðust á því að hljóðbylgjur á þessa fyrstu grammófóna, *■ urðu listamennii'nir að hópastj í ki'ing um trekt, sem safnaðij saman hljómunum og flutti til nálarinnar, og urðu þeir að^ leika eða syngja beint inn íj ti'ektina. Miklu betur tókst til með mannsröddina heldur enj hljómlist, þessvegna var það að raddir söngvara eins og til dæm is Enrico Carusos voru teknar upp og geymdar til ókominna tíma. Árið 1885 fundu tveir am- erískir vísindamenn upp þá að- fei'ð að þeir settu lag af vaxi á málplötuna, en þá náðist beti'i tónn en annai's. Árið 1887 tók annar Ameríkumaður, Em- ile Berliner upp á því að búa til flata, kringlótta plötu, er hann notaði í stað keflisins. Flötu plöturnar tóku meira efni, og hægara var að geyma þær en keflin. Nýverið var Þingvallanefnd send áskorun vegna veitingar embættis Þjóðgarðsvarðar, svo sem hér segir: Stjórnai'fundur Bandalags ís- lenzkra listamanna með full- trúum alh’a sambandsfélaga, Ai'kitektafélags íslands, Félags íslenzkra leikara, Félags ísl. listdansara, Fél. ísl. myndlist- armanna, Félags ísl. tónlistar- manna, Rithöfundasambands íslands og Tónskáldafélags ís- lands samþykkti nýlega ein- róma eftirfarandi áskorun til Þing vallanef ndar: „Stjórn Bandalags íslenzkra listamanna skorar á Þingvalla- nefnd að veita embætti Þjóð- garðsvarðar listamanni eða fræðimanni, sem væri líklegur til að vei'nda hina fornu þing- helgi staðarins af listrænni eða sögulegri tilfinningu fyrir lands lagi og staðháttum." Þótt fyrstu tækin væru frum- stæð að smíð, ui'ðu þau mjög vinsæl meðal almennings. Flest ir sáu það strax að þarna var hægt að hlusta á‘ stórar og fræg ar hljómsveitir og listamenn í heimahúsum, þar sem þeir gátu hlustað, sem ekki höfðu tæki- fæi'i til að. fara sjálfir á hljóm- leikana. Eigendur grammófóna söfnuðu brátt að sér hljóm- plötusöfnum sem þeir gátu val- ið xir og leikið eftir hentisemi. Brátt kom að því að farið var að nota plötuspilarann til ann- ai's en skemmtunar. Uppfinn- ingamaðurinn, Edison, breytti honum þannig, að hann varð mjög heppilegur fyrir skrif- stofufólk, og.var það tæki nefnt „Diktafónn“. Enn í dag er sú vél ein hin nauðsynlegasta á möi'gum skrifstofum, og álitin ómissandi víða. Ýmsir skólar hafa sérstök námskeið í notk- un þessa tækis. Árið 1925 var fundin upp aðfei’ð til þess að taka niður hljóma með raf- magnstækni. Þetta voi'u mestu framfarirnar síðan plötuspilar- inn var fundinn upp. Nú var hægt að taka upp mikið víðtæk: ai'i hljóma, og hljómsveitir gátu. leikið eins og þær væru á hljóru . leikum. Söngvarar og ræðu«* menn þurftu nú ekk lengur ac|- beita röddinni á sérstakan hátfc^- L

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.