Vísir - 17.09.1959, Blaðsíða 7

Vísir - 17.09.1959, Blaðsíða 7
Fimmtudaginn 17. september 1959 risis Tfwpfwj rt p' — Hvað var það, Beatrice? Linda talaði lágt, en tókst ekki að leyna því að hún var forviða á heimsókninni. — Það er út af honum Errol, hvíslaði Beatrice. — Hann er ekki kominn heim, Linda. Eg vil ógjarna vekja hana mömmu og gera henni órótt, en mér finnst þetta skrítiö — finnst þér það ekki líka? Lindu datt fyrst í hug að andmæla þessum afskiptum systur- innar. — Mér finnst engin ástæða til að óróast út af þessu, Beatrice. Honum hefur dvalist hjá Vallons, og svo er hann lengur á heim- leiðinni þegar hann er gangandi. Klukkan er ekki mikið yfir tólf. Hann er ekki á leiðinni heim, sagði Beatrice hvasst. — Eg símaði til Vallons fyrir tíu mínútum, og Bassett sagði að Kenneth hefði farið að hátta undir eins og hann kom heim frá okkur. Errol og Monique óku eitthvað út um klukkan níu. Og hvorugt þeirra er komið heim ennþá, Linda. Linda þagði í nokkrar sekúndur. Svo opnaði hún dyrnar upp á gátt og benti Lindu að koma inn í herbergið. — Það er betra að tala saman hérna inni, sagði hún er hún hafði lokað dyrunum. — Ef Betty heyrir til okkar heldur hún að eitthvað sé að. — Það er eitthvað að, sagði Beatrice, og nú maldaði Linda ekki í móinn. legði þennan skilning í málið, en eftir nokkra bið sagði hún hreimlaust: — Við getum ekkert gert í þessu máli, þú sér það. — Nei. Það var auðheyrt að Beatrice var illa við að þurfa að fallast á þetta. Hún bætti þegar við: — Heldurðu að hann telji þá skyldu sína að giftast henni? Linda brosti lítið eitt. — Nú liggur við að mér finnist við vera farnar að hugsa full langt fram í tímann. — Monique er fljót í snúningunum sjálf, svaraði Beatrice. — Eg ætla nú að segja Errol skoðun mína á þessu í fullri ein- lægni. Kannske eg geti komið vitinu fyrir hann. — Eg held varla að það bæti úr skák, Beatrice, sagði Linda. Hver veit nema það geri illt verra. — Vitanlega fer eg gætilega aö öllu, sagði Beatrice. — en eitthvað verður maður að gera. Það er augljóst mál. Linda muldraði eitthvað sem hvorki var já eða nei, og eftir dálitla stund tókst henni að fá Beatrice til að fara inn til sín. Það var þýðingarlaust að halda áfram að tala um þetta, og Linda var sannfærð um að ekkert mundi ske fyrr en daginn eftir. Þegar Beatrice var farin skreiddist Linda upp í rúmið sitt og horfði á Ijósrákina sem tunglskinið markaði á gólfdúkinn, en hugur hennar var allur við þetta nýja viðfangsefni. Eitthvað varð að gera. Beatrice hafði rétt fyrir sér í því. En hvað? Hvað var hægt að gera til að vega upp á móti hinum sam- vizkulausa vilja Monique og vægðarleysi Kenneths. Hún hafði vonað að Kenneth mundi snúast hugur, en nú skildi hún að það var tálvon. Og milli þessara hjóna stóð Errol — það skildi hún fyrst nú — sem óþekkt stærð. Hún hafði elskað hann og viljað giftast honum, og samt hafði hún ekki getað sagt fyrir hvernig hann mundi haga sér undir ákveðnum kringumstæðum. Hún vissi ekki einu sinni hvort hann gæti staðist Monique þegar á reyndi. Hún átti ekki annars úrkostar en að bíða — biða. Þangað til sprengjan félli. Eitt var vist: úrslitin voru að nálgast. Og henni fannst nærri því léttir að því að vita það. Og svo sofnaði hún. Það lá við að hún vaknaöi nokkrum sinnum um nóttina, en Fimm stúlkur keppa í fimmtarþraut. Frægt er orðið leikrit Agöthu Christie, sem heitir músagild- an. Það hefur verið leikið 3 þúsund sinnum í Lundúnum. Og nú á að hafa eftirmiðdags- sýningu á því fyrir sérstakan flokk manna — það eru fang- arnir í Warmwood Scrubs. Það verður sýnt í fangelsinu og leikendur eru þeir sömu sem á leikhúsinu. En ekki þarf þó leiktjöldin með. Fangarnir hafa sjálfir gert fullkomin leiktjöld eftir ljósmyndum sem þeim hafa verið sendar. ★ Skáldið. unga hafði nýlega gefið út bók og var þá boðinn til miðdegisverðar hjá velunn- urum sínum. — Hann sagði þá hæversklega við frúna í húsinu: — Þér hafið líklega ekki enn haft tíma til að lesa kvæðin mín? — Jú, það hefi eg reyndar, sagði frúin glaðlega. — Og nú liggur bókin á náttborðinu mínu. En það vildi svo óheppilega til að ungur sonur hennar, sem enn var heiðarlegur, var þarna nærstaddúr og hann sagði í á- vítunarrómi: — Þetta er ekki satt, mamma. — Þú hefir látið bókina undir eina borðlöppina, svo ?ð borðið ruggi ekki. Eftir 3 greinar er Hafnarf jarðarstúlka fremst. Ævintýraför — •remewber. whem haeky eefusep TOCUEETHAT ICIhJS'S V/IFE FOR ! ATHOUSAMP WAEBIOES?* EXPLAIIMEP’ TAEZAIM. — Nei! Þetta virtist koma flatt upp á Beatrice. — Nei, það hefur mér ekki dottið í hug. Þau aka bæði vel. Roger ók vel líka, muldraði Linda ósjálfrátt, en Beatrice heyrði varla orðaskil og vissi ekki við hvað hún átti. — Hvað varstu að segja? — Nei, það var ekkert. Eg beið einu sinni eftir manni — sem varð fyrir slysi. — En eg held varla að því sé til að dreifa núna, Linda. — Nei. Það held eg í rauninni varla heldur. — Hvað heldurðu þá að sé að? — Eg vil helzt ekki segja.... — En önnur hvor okkar verður að segja það, sagði Beatrice. — Eg er hrædd um að hann sé farinn eitthvað út í buskann með hana. Linda svaraði ekki strax, og Beatrice bætti við, með áherzlu: — Heldur þú það ekki líka? — Nei, sagði Linda hægt. — Ekki held eg það. Eg held aö Monique hafi valdið bilun á hreyflinum eða eitthvað þvílíkt, svo að þau neyðist til að fá sér gistingu í einhverju afskekktu gisti- húsi. Þegar þau koma aftur i fyrramálið leggur Kenneth þann skilning í þetta, sem honum líkar bezt, og notar kannske tæki- færiðtil að losna við Monique. — Herðu, Linda, svei mér ef eg held ekki að þú hafir rétt fyrir þér, sagöi Beatrice og furðaði sig á að nokkur skyldi hafa skiliö betur en hún sjálf hvernig í öllu lægi. Linda gat ekki greint henni frá ástæðunni til þess að hún Fimmtarþrautarkeppni kvenna hófst í gær á Melavell- inum í Reykjavík og var þá keppt í kúluvarpi, hástökki og 200 m hlaupi. Eftir þessar 3 greinar standa stigin þannig: Stig. 1. Guðlaug Kristinsd. FH 2032 2. Rannveig Laxdal ÍR 1751 3. Mjöll Hólm ÍR 1148 4. Svala Hólm ÍR 817 5. Helena Óskarsdóttir ÍR 590 Einstök afrek Guðlaugar voru þessi: Kúluvarp 10,21 m, hástökk 1,36 m og 200 m 28,8 sek. Afrek Rannveigar í sömu röð: 7.36 m, 1.31 m og 28.7 sek. Árangur Guðlaugar í hástökk-l inu er sá bezti, sem náðzt hef- ur hér á landi á þessu sumri. Munaði mjög litlu, að hún stykki næstu hæð (1.41 m), sem hefði verið nýtt íslqndsmet (utanhúss). í 200 m hlupu þær Rannveig og Guðlaug á mun betri tíma en náðist á meistaramótinu og er þetta þó í fyrsta skipti sem Rannveig reynir sig á þeirri vegalengd. Samsvarar tími þeirra 13,5—13,6 á 100 m. í kvöld lýkur þrautinni með keppni í 80 m grindahlaupi og langstökki. Frh. af 8. síðu. stöðulaust í land, ákveðinn í að láta lögregluna hirða óskila- mennina. Þegar Júgóslavarnir sáu bát sinn horfinn þótti þeim ráð sitt óvænkast og gripu þá til þess ráðs að kynda neyðarbál. En á meðan það logaði fundu þeir lítinn árabát skorðaðan miili: kletta í eynni og réru á honum til lands. Kæliborð £. R. Burroughs TARZAIM - 3088 „Þið munið þegar Harry neitaði að lækna konu svert- ingjahöfðingjans fyrir 1000 herraenn.“; sagði Tarzan. — „Hann neitaði aðeins vegna þess að hann gat ekki lækn- að hana. Hann hafði þegar eyW upp öllum meðalabirgð- "BUT FEOíA THEN OKi HE mAP TO BLUFF. HE VVAS KIC POCTOZ^SO HOW GOULP HE PEC:PHEZ A - TECHWICAL FORMULA ANP MAktE A NEW SUPPLV ?* Óska eftir að taka á leigu eða kaupa kæliborð. Tilboð sendist afgreiðslu : blaðsins merkt: „Kælir“. HE EEFUSEP BECAUSE HE' COULPN'T CUK.E HEEl HE HAP ALBEAPV USEP UP THE . SAMPLE SEEUM. TO PROMOTE HIS EEPUTAT'ON—•" fe.l8.^.qso unum til þess að efla völd sín og álit.“-----, En upp frá því varð hann blekkja. Hann var ekki læknir, og þess vegna gat hann lesið úr hinni tæknilegu for- múlu og útbúið nýjar birgð- ir.“ — HATTA HATTA með uppbrettum börðum, nýkomnir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.