Vísir - 18.09.1959, Page 6
TlSIR
Föstudaginn 18. september 1959
WÍBIWL
D A G B L A Ð
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Fálsson.
Skrifstoí'ur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3.
Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00 18,00.
Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00.
Sími: 11660 (fimm línur).
Vísir kostar kr. 25.00 í áskrift á mánuði,
kr. 2.00 eintakið í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Strið eða friður.
Ekkert er meira rætt í heimin-
um um þessar mundir en
heimsókn Krúsévs, forsætis-
ráðherra Sovétríkjanna, til
Bandaríkjanna, og er það
mjög að vonum. Þessi heim-
sókn aðalleiðtoga heims-
kommúnismans til Banda-
ríkjanna hefði verið óhugs-
andi í fyrra, að maður tali
ekki um hitteðfyrra. Skoð-
anakannanir, sem fram hafa
■farið í Bandaríkjunum, virð-
ast leiða í Ijós, að yfirgnæf-
andi meirihluti Bandaríkja-
þjóðarinnar hafi verið því
fylgjandi, að Eisenhower
forseti byði Krúsév heim, og
hefði slíkt þótt tíðindi til
næsta bæjar fyrir örfáum
árum.
Nú dettur engum í hug, að hin
pólitísku veðrabrigði, sem
orðið hafa í Bandaríkjunum
á hinum síðustu misserum,
tákni að kommúnisminn sé
nú vinsælla fyrirbæri vestur
þar en verið hefir, og frá-
leitt er að ætla, að Banda-
ríkjamenn hafi hug á að
leiða yfir sig hlutskipti Ung-
verja, svo að einhver þjóð
sé nefnd, sem ekki fær sjálf
að ráða málum sínum. Þá
má ætla,, að nokkur bið verði
á því, að Eisenhower gangi
í kommúnistaflokkinn, og
fátt bendir til, að hamarinn
og sigðin verði sett í þjóð-
fána Bandaríkjanna.
En hvað er það þá, sem veldur
því, að vesturför Krúsévs
þyki eðlileg, eða allt að því
sjálfsögð? Svarið hlýtur að
vera nærtækt. Almenningur
í Bandaríkjunum, eins og
raunar fólk um heim allan,
hefir gert sér Ijóst, að það,
sem er ofar öllum málum í
heiminum, er friðurinn. Það
þarf hvorki stjórnmála- né
vísindamann til þess að upp-
lýsa okkur um, að þriðja
heimsstyrjöldin yrði ekki ó-
friður í venjulegum skilningi
þar sem annar aðilinn myndi
um síðir bera sigur af hólmi
og þröngva hinum til upp-
gjafar, heldur yrði sú styrj-
öld alger tortíming. í kjarn-
orkuvopna- eða vetnisvopna-
styrjöld, myndi enginn sigra,
allir tapa, mást út. Það er í
ljósi þessara sanninda, sem
menn verða að hugleiða við-
ræðufundi þeirra Eisen-
howers og Krúsévs.
Raunar er fyrirsögn þessara
hugleiðinga röng. Spurn-
ingin er ekki um stríð eða
frið, heldur um frið eða tor-
tímingu. Og þessi spurning
hlýtur að verða æ áleitnari,
eftir því sem tíminn líður.
Flestum finnst okkur það
ærið nóg, að Bandaríkja-
menn, Rússar og Bretar
skuli eiga tortímingar-
sprengjur í fórum sínum.
Það getur ekki með neinu
móti aukið á horfurnar um
friðsamlega þróun í mann-
heimi, ef Frakkar taka nú
til við að sprengja kjarn-
orkusprengjur í Sahara-
eyðimörkinni, og hóta því að
koma sér upp myndarlegum
birgðum af slikum vopnum.
Og flestir myndu láta sér
fátt um finnast, þótt de
Gaulle Frakklandsforseta
yrði ekki að þeirri ósk sinni
að auka á „gloire“ Frakka
og „prestige“, sem hér mætti
ef til vill þýða með „frægð
og áliti‘ með því að geta líka
hótað mannheimi tortím-
ingu.
Þegar þess er svo gott, að hugs-
anlega þyrfti ekki annað til
að hleypa tortimingarstyrj -
öld af stað en að einhver
maður í ábyrgðarstöðu hjá
kjarnorkuveldunum brjálað-
ist skyndilega, til dæmis af
ofurþunga ábyrgðarinnar, þá
sjá allir heilvita menn að
ekki er seinna vænna að
komast að einhverju því
samkomulagi, sem dugar til
þess að tryggja það, að
mannkynið, verði ekki af-
máð.
6 faí'MM tfe-Mihiiwr
Pílagrímsför í Þórsmörk
um helgina.
Hreínsa verður óþverrann því hinir sfðlausu
hafa saurgað iundinn.
Sumir hinna fegurstu staða í
Þórsmörk líta út eins og ösku-
haugar að loknu sumri. Enda
þótt fullyrða megi að þorri
manna sé farinn að ganga um
fegurstu bletti landsins eins og
siðuðum mönniun sæmir slæð-
ast með einstaklingar og jafn-
vel ferðahópar, sem teljast
mega ruslaralýður ef dæma á
eftir umgengni þeirra í Þórs-
mörk og öðrum fögrum stöðum,
þar sem flaska, blikkdós, bréfa-
rusl, og rifnar flíkur verka á
siðaðan mann eins og guðlast
í kirkju.
Þúsundir manna leita á sumri
hverju í Þórsmörk til þess að
dýrka fegurð og styrk íslenzkr-
: ar náttúru. Á engan stað leita
’ jafnmargir og í Þórsmörk, að
Þingvöllum einum undanskild-
um. Er því ekki að furða að
mönnum sárni að sjá sorpmenn-
inguna flutta á þennan af-
skekkta fagra stað.
| Á morgun verður gerð ferð í
Þórsmörk til að þrífa staðinn,
hreinsa ruslið sem liggur í
1 grænum lautum og hangir jafn- ! hingað nýjar og oftast sendar
Fréttakvikmyndh-nar.
1 þessum dálki var nú í vik-
unni minnzt á fréttakvikmynd-
irnar, m. a. drepið á þær, sem
Stjörnubíó sýndi um nokkurt
skeið. Það voru fréttamyndir, er
Kaupmannahafnarblaðið Politik-
en lét gera. Hjalti Lýðsson forstj.
hefur skýrt Bergmáli svo frá,
að blaðið hafi hætt framleiðslu
þeirra, vegna þess að hún varð of
kostnaðarsöm, en ef framleiðsla
þeirra hefði haldið áfram hefði
Stjörnubíó sýnt þær áfram vegna
vinsælda þeirra, og hagstæðra
samninga. Kvikmyndirnar komu
Vonir msnnkynsms.
Enginn vafi er á því, að mann-
kynið bindur miklar vonir
við fundi þeirra Eisenhow-
ers og Krúsévs. Og það er
heldur, enginn vafi á því, að
allt heilbrigt fólk, hvar sem
er á jarðarkringlunni, þráir
frið framar öllu. Pólitískt á-
lit eða álitshnekkir er hér
sem hjóm eitt í samanburði
við það, sem í húfi er. Það
skiptir líka minnstu máli, þó
að ,.Pravda“ og „Izvestia"
segi, að íaghaðaf’ætin í
Washington við komu Krú-
sév hafi minnt á öldur hafs-
ins, og ekki skipta heldur
máli umsagnir þeirra blaða,
sem segja, að þögn og for-
vitni hafi einkennt mann-
fjöldann, sem beið Krúsévs
í höfuðstað Bandaríkjanna.
Hitt skiptir meginmáli, að
mannkynið verði losað við
hinn nagandi ótta við styrj-
öld, — styrjöld, sem énginn
getur unnið, — styrjöld,, sem
mannkynið hlýtur að tapa.
Bibiíusögur fyrlr
framhaidsskóla.
Nýlega hefur Ríkisútgáfa
námsbóka gefið út Biblíusögur
fyrir framhaldsskóla eftir Ást-
ráð Sigursteindórsson, skóla-
stjóra. Biblíusögur þessar vöru
fyrst gefnar út árið 1951 af
Bókagerðinni Lilju og aftur
1955. Voru þær þegar mikið
notaðar við kristinfræðikennslu
víða um land.
I þessum biblíusögum er fylgt
hinu venjulega biblíusöguformi
með það fyrir augum, að nem-
endur fái heildaryfirlit yfir
sögur Biblíunnar og geti gert
sér grein fyrir samhengi þeirra.
Gengið er út frá því, að nemend
ur læri í barnaskólum einstak-
ar sögur án sérstaks tillits til
sögulegs eða trúarlegs samheng
is þeirra innbyrðis. í framhalds
skólunum skulu nú fleiri sögur
lærðar til viðbótar, aðrar rifj-
aðar upp aftur og tengdar í
sögulegt samhengi.
Sögurnar eru teknar þannig,
að orðalag Biblíunnar er látið
halda sér sem mest án veru-
legra skýringa annarra en nokk
urra upplýsinga um sögulegar
staðreyndir, sem ekki verður
komizt hjá að hafa í huga. Frek
ari skýringar geta verið á valdi
hvers kennara, eftir því sem
hann- telur ástæðu til.
Þessi nýja útgáfa, sem er 144
bls. í Skírnisbroti, er að mestu
óbreytt frá fyrri útgáfum. —
Um 30 myndir eru í bókinni og
jeru margar þeirra nýjar. Eru
þær flestar af stöðum í löndum
I Biblíunnar eða lifnaðarháttum
fólksins þar. Einnig eru í bók-
inni 2 uppdrættir. Káputeikn-
gerði Halldór Pétursson
listmálari. Prentun annaðist
Isafoldarprentsmiðja h.f.
Kommúnisminn er hvorki betri
né verri eftir heimsókn Krú-
sévs til Bandaríkjanna.
Þjóðir vesturlanda munu á-
reiðanlega halda vöku sinni
og efla stjórn fólksins sjálfs,
lýðræðisfyrirkomulagið, eft-
ir sem áður. En hitt skulum
við vona, að koma Krúsévs
til Bandaríkjanna verði spor
í þá átt að bannfæra í eitt
skipti fyrir öll hugmyndina
um styrjöld. Þar með væri
hafin sigurganga mannkyns-
ins í friðarátt.
! vel í trjánum. Villimennskan
er það mikil að fylliraftar hafa
klifið tré til að tylla á þau brotn
um flöskum.
Skógræktin heitir á sjálfboða
liða í Þórsmerkurferð á morg-
un til að hreinsa staðinn. Geta
þeir gefið sig fram hjá Skóg-
rækt ríkisins að Grettisgötu 8.
Farið verður kl. 2 á morgun og
komið til baka á sunnudags-
kvöld. Skarphéðinn Eyþórsson
leggur til ókeypis langferðabíl
og trukk. Menn þurfa að nesta
sig, en skógræktin veitir kaffi
á heimleiðinni.
Nýr árekstur —
Frh. af bls. 15
embættið, hvað frekara yrði
gert í því.
Það, sem gerðist var þetta:
Leigubifreiðinni G-938 var í
gær kl. rúmlega 1 ekið um
gatnamót svokallaðs Internat-
ional Highway og Vesturbraut-
ar, þar sem herlögreglumenn
stöðvuðu bifreiðina, en henni
( ekur íslenzkur lögfræðistúdent
, í sumarleyfi sínu. Þarna er 35
! km. hámarkshraði — en varn-
j arliðsmenn töldu stúdentinn
hafa ekið með 80 km. hraða.
Neitaði kröfu
varnarliðsmanna.
Biístjórinn neitaði að verða
við kröfu varnarliðsmanna, að
nema staðar og fara út af veg-
inum, og ók að útibúi fólks-
bílastöðvar, en hún er bæki-
stöð hans. Hermennirnir fóru
til aðalstöðva sinna og gáfu
skýrslu, og er bílstjórinn ætlaði
í aðra ökúferð, heftu banda-
rískir herlögreglbílar ferð hans,
alls 5 — röðuðu sér fyrir hann
og heftu þannig ferðir hans.
Islenzk lögregla
á veftvang.
íslenzk lögregla kom á vett-
vang. Foringi varnarliðsmanna
taldi sannað, að bílstjórinn
hefði ekið yfir löglegan hraða
og bæri'að hegna honum. Varð
nokkurt karp um þetta, unz
fulltrúi lögreglustjóraembættis-
ins kom á vettvang
og reyndi að koma varnar-
liðsmönnum í skilning um,
að fara bæri með mr.Iið sam-
kvæmt íslenzkum lögum, þ.
e. Ieggja fram kæru og færi
svo rannsókn fram, áður en
dómur væri unn kveðinn.
flugleiðis.
Hjalti kvað Stjörnubíó haía
þreifað fyrir sér um fréttakvik-
myndir, m. a. fengið þýzkar sem
sýnishorn, en þær voru bæði of
dýrar og auk þess árs gamlar, en
hann kvaðst alveg sammála þvi
að fréttakvikmyndir þyrftu að
vera nýjar af nálinni eða svo til
Hann kvaðst hafa fullan hug á
að fá fréttakvikmyndir til sýn
ingar, ef hægt væri að fá þæi
nýjar og með hagfelldum samn
ingum, en tilraunir í þá átt til
þessa sýndu, að það myndi mikl-
um erfiðleikum bundið.
HATTAHREINSUN
Handhreinsum herrahatta
og setjum á silkiborða.
Efnalaugin Björg
Sólvallagötu 74.
Barmahlíð 6.
Jrnm
Trámkdlldoar
Jjdugaveg $5
Skólaskór
barna,
brúnir og svartir.
VERZL
Johan Rönning h.f.
Raflagnir og viðgerðir á
öllum heimilistækjum. —
Fljót og vönduð vinna.
Sími 14320.
Johan Rönning h.f.
Réttarrannsókn
J hófst kl. 3. Tveir herlög-
reglumenn báru að þeir hefðu
mælt hraðann á tilteknum
ivegaikafla eða 673.6 metrum.
Annar telur hann hafa ekið á
35 km. hraða, hinn á 50 km.
hraða, og hinn síðarnefndi, að
hann hefði ekið á þessum hraða
fyrir mælinguna. Bílstjórinn
telur sig sem fyrr var getið
hafa ekið á löglegum hraða, en
hámarkshraði er 35 km., var
45 km. til 20. ágúst, er ný reglu-
gerð gekk í gildi.
Hvað sem rétt er um öku-
hraðann er ljóst, að herlög-
reglumennirnir hafa krafist
þess af bílstjóranum, sem
honum aðeins bar skvlda til
að verða við gagnvart ís—
lenzkum lögreglumönnum.