Vísir - 15.10.1959, Side 7
•Fimmtudaginn 15. október 1959
:VtSIB
KOMMÚNISTAR ERU SKELFDIR.
Peir sjá fram á fylgishrun, sem
ekki er unnf að sföðva.
Kommúnistar eru hræddir við kosningarnar. Þeir búast við
úframhaldandi fylgistapi. Kosningarnar í sumar leiddu ótvírætt
í Ijós, að þeim fer fjölgandi, sem átta sig á því, að kommún-
isminn er meinsemd í þjóðfélaginu.
Blöð kommúnista eru að
vísu að reyna að stappa stál-
inu í þá, sem enn fylgja
þeim og láta mannalega yfir
því, að flokkurinn muni auka
fylgi sitt. Ljóst er samt af
þessum skrifum, að höfundar
'þeirra trúa þessu ekki sjálfir,
enda vita þeir að fylgið fer
þverrandi.
Það væri líka furðulegt, ef
kommúnistar bættu við sig
kjósendum. Flokkurinn hefur
ekki um óralangan tíma borið
fram eitt einasta mál, sem til
þjóðþrifa horfir. Allar tillögur
og frumvörp, sem kommúnistar
bera fram á Alþingi eru sýnd-
arplögg, sem ekki er hægt að
samþykkja, enda aðeins borin
fram til þess að reyna að skapa
glundroða.
Hinn eilífi söngur Þjóð-
viljans um „auðvald og arð-
rán“ er löngu orðin útspiluð
plata. Hvergi 1 heiminum
eru kjör manna jafnari en
liér á Islandi. Hér eru engir
öreigar í beirri merkingu,
sem lögð er í hliðstæð orð á
öðrum tungum. Allir sem
liér vilja vinna, geta haft
atvinnu. Hér er hví enginn
grundvöllur fvrir kommún-
isma og bess vegna hlýtur
liann að hverfa úr sögunni
að mestu, eins og í öðrum
menningarlöndum.
í Þjóðviljanum á þriðjudag-
inn var löng árásargrein á
Sjálfstæðisflokkinn fyrir stefnu
hans í skattamálum, því vitan-
lega þykjast kommúnistar vita
betur í því máli eins og öðrurn.
Það er að dómi kommúnista
ósvífin árás á hagsmuni „al-
þýðunnar“, að:
Endurskoðun fari fram á lög-
um um skatta, tolla og útsvör,
með það fyrir augum, að
tryggja jafnrétti skattþegna og
að skattar á eyðslu komi í stað
tekjuskatts og útsvara, eftir því
sem fært er.
Að sérstök áherzla verði
lögð á að hlúa að allri sparn-
aðarviðleitni og örvuð myndun
innlends fjármags.
Að við endurskoðun skatta-
kerfisins verði haft hugfast, að
atvinnurekendum verði gert
mögulegt að mynda eigið fjár-
magn til endurnýjunar og
aukningar atvinnutækjum.
Auðséð er að höfundur þess-
arar Þjóðviljagreinar telur sig
ekki eiga nógu sterk orð til
þess að lýsa þeirri ósvífni, sem
ráðast fyrst að og reyna að
veikja sem mest, því að þeg-
ar þær bresta er þjóðskipu-
lagið hrunið.
Það sem kcmmúnistinn, sem
skrifar fyrrnefnda grein, býður
upp á í staðinn, er þjóðnýting
allra stórra atvinnu- og inn-
flutningsfyrirtækja og bank-
anna, m. ö. o. sá gamli fagn-
aðarboðskapur sósialismans, að
eng'inn einstaklingur megi eiga I
neitt, heldur skuli allt vera
eign ríkisins og þar á meðal
fólkið sjálft.
En vilja þá hagfræðingar
Þióðviljans svara þessum
spurningum:
Hvernig stendur á því, að
þar sem kommúnistar hafa
náð völdum og komið á sínu
efnahagskerfi, ei”.; lífskjör
almennings miklu verri en í
vestrænum löndum, sem búa
við það sem þeir kalla auð- 1
valdsskipulag?
Það er tileangsiaust fyrir
Þjóðviljamenn að neita þessari
staðreynd, hún er alkunn um
allan heim. Hver sem ferðast
með opin augu um þessi lönd,
getur séð þetta sjálfur, og
íjöidi fólks um heim allan hef-
ur snúið baki við kommúnism-
anum þegar það hefur séð þetta
sjáift.
Hvernig stendur t.d. á því, að
í Tékkóslóvakíu skuli nú ríkja
fátækt og jafnvel örbirgð mið-
að við þau kjör, sem þjóðin
bjó við áður en kommúnistar
komust þar til valda?
Hvernig stendur á því, að
nauðsynlegt er talið að af-
nema málfrelsi og prent-
frelsi í ríkjum kommúnista?
Hvers vegna má ekki gagn-
rýna gerðir ríkisvaldsins
'þar, eins og kommúnistar
telja sjálfsagt og eðlilegt að
þeim sé leyft meðan þeir
eru í minnihluta?
Meiri hluti Islendinga er svo
upplýst fólk, að það hlýtur að
sjá að eitthvað sr bogið við
kenningar kommúnista, og til
allrar hamingju fyrir alda og
óborna hafa þeir nú lifað hér
sitt fegursta og fylgið hrynur
af þeim með hverju árinu sem
líður. .
Málverkasýning Jóns B.
Jónassonar á Freyjugötu.
felist í því, að vilja örva mynd-
un innlends fjármagns og gera
atvinnurekendum kleift að
endurnýja atvinnutækin.
I því þjóðskipulagi sem
við Islendingar búum við
eru hetta hvorttveggja svo
sjálfsagðir hlutir, að enginn ^
ágreiningur ætti að vera um
þá milli þeirra, sem elckij
vilja hetta þjóðskipulag
feigt. Hinsvegar er hetta
tvennt, þær máttarstoðir, er
kommúnistar allra landa
Jón B. Jónsson sýnir þessa
dagana 20 olíumálverk í Sýn-
ingarsal Asmundar Sveinsson-
ar við Freyjugötu.
Það eru tvö ár síðan Jón
sýndi síðast. — Það fyrsta sem
vekur athygli manns þegar iit-
azt er um á sýningunni, er hve
mikið myndir Jóns hafa breytzt,
og ekki síður hvað miklum
framíorum listamaðurinn hefir
náð á tveim árum.
Þessar nýju myndir eru
flestar geometriskar og ein-
faldar í byggingu, stundum
næstum symmetriskar. Lista-
maðurinn leitast við að ná á-
hrifum og gæða myndflötinn
lífi í hreinum, hringlaga og fer-
hyrndum formum, hann notar
hástemmda (sterka) liti, sem
auka mjög á spennuna í form-
inu.
Myndirnar eru misjafnar að
gæðum, nokkrar þeirra virð-
ast vera tilraunaflokkar, þar
sem sarna hugmynd er notuð
á mismunandi hátt í tveimur,
þremur myndum. Þar sem bez
hefir tekizt get eg ekki betu:
séð, en árangurinn sé mjög at-
hyglisverður, til dæmis mync
nr.4 og mynd nr. 7.
Myndirnar eru mjög vand-
virknislega unnar og snyrti-
lega frá þeim gengið, endí
krefst stíllinn góðs hand-
bragðs.
Felix.
Nýr ambassador
Rússa í Peking.
Chervenkov, fyrrv. formaður
Kommúnistaflokks Ukrainu,
hefur verið skipaður ambassa-
dor Sovétríkjanna í Peking.
Hvaða starf Yudin, sem gegnt
hefur starfinu, fær, er ekki
kunnugt. — Þessi skipti á am-
bassadorum vekja að sjálfsögðu
mikla athygli, þar sem þau
gerast svo skömmu eftir heim-
sókn Krúsévs til Peking sem
reynd ber vitni.
Verr farið en heima setið —
Framh. af 1. síðu.
go suia —- (§uiq; jo jjos pssn
,,við vitum, að þið eruð með
ckkur piltar, látið ekki togara-
eigendur óta ykkur áfram —
sem — sagt þetta vanalega.“
Skuggalegur
tilgangur.
Þá gat Sir Farndale þess, að
ísland hefði gengist fyrir
heimsóknum valdra frétta-
manna frá erlendum blöðum
og fréttastofnunum. — Einn
spyrjenda spurði Sir Farndale
um orsök þessí að hann væri
að ympra á þessu þarna (það
kom í Ijós, að spyrjandinn var
einn hinna erlendu blaða-
V
manna, sem boðið hafði verið
til íslands). „Eruð þér að gefa
í skyn, að þetta boð hafi verið
gert í skuggaiegum tilgangi
(sinister)?“
„Forseti Sambands brezkra
tcgaraeigenda hafði auðsýni-
lega ætlað sér að gefa einmitt
þetta í skyn,“ segir orðrétt í
ritstjórnargreininni, ,,en hann
hafði klifrað niður virðulega af
þeim stalli, sem hann hafði
tyllt sér á, með því að segja,
nð hann hefði lesið allar grein-
a.r fréttamannanna og þær
hefðu verið sanngjarnlega rit-
aðar í garð beggja aðila.
En hvers vevna komuð þér
þá með bessa yfirlýsingu,
herra? er spurt orðrétt í rlt-
stjórnargreininni, og segir þar
ennfremur á þessa leið:
Lesendum mun þegar hafa
skilist, að oss finnst ekki mik-
ið til um þennan fund með
fréttamönnum. Staðurinn og
ótakmarkaðar, ókeypis veit-
ingar á eftir, finnst oss sviþa
meira til viðskiptafyrirtæki,
sem þarf að koma einhverju
út, heldur en voldugrar þjóð-
arstofnunar, sem þarf að gera
grein fyrir málstað sínum, —
en vissulega er Samband
brezkra togaraeigenda slik
stofnun! (upphrópunarmerki).
í greinarlok er farið viður-
kenningarorðum um þá Sir
Farndale og Tom Boyd, en
sagt um hinn fyrrnefnda, að
hér hafi hann farið óhyggilega
að, og um hinn síðarnefnda,
„reyndur og dugandi sjómað-
ur, hygginn og atorkusamur
kaupsýslumaður, er beri hag
togaraútgerðarinnar mjög fyr-
ir brjósti“ — og einmitt vegna
hins síðasttalda — og það sé
ekki sagt til að þrefa eða gagn-
rýna — sé hann ekki rétti mað-
urinn til að skýra mál fyrir
blöðunum, þegar um alvarleg,
víðtæk stjórnmálaleg deiluefni
sé að ræða.
„BlóSbrullaupið" í Þjóðleik-
hiísims stór Eistviðburður.
„Blóðbrullaup“ eftir Federi-
co Garcia Lorca var frumsýnt í
Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi.
Flestir reyndust vandanum
vaxnir, og var sjónleikurinn
máske mesti listviðburður á
sviði hússins frá því það tók til
starfa.
Er þe?6s nú að vænta, að Reyk
víkingar og aðrir íslendingar
kunni gott að meta, láti ekki á
sér standa að fylla húsið, því að
hver veit hvenær við fáum næst
að sjá og heyra annan eins
leikskáldskap og felst í þessum
mikla harmleik?
Hannes Sigfússon skáld þýddi
leikritið með ágætum, og Gísli
Halldórsson vex ekki lítið af
þessari sýningu. Lárus Ingólfs-
son gerði leiktjöld. Af leikend-
um skulu fyrst og fremst nefnd
Arndís Björnsdóttir, Lárus Ing-
ólfsson, Guðrún Ásmundsdóttir,
Helga Valtýsdóttir, Helgi Skúla
son, Valur Gústafsson, Herdís
Þorvaldsdóttir, Baldvin Hall-
dórsson, Anna Guðmundsdóttir
og Edda Kvaran.
Leikendum og leikstjóra var
margfaldlega þakkað að mak-
legleikum.
FERMINGARKÁPUR
í fallegu úrvali. Hagstætt verð.
Kápusalan Laugaveg 11
efstu hæð. — Sími lo982.
LÖG og RÉTTUR
Lögfræðileg handbók eftir Ólaf Jóhannesson, prófessor.
Komin er út önnur útgáfa rits þessa, og er tekið tillit til
lagasetningar, eins og hún var í ágústmánuði s.l.
í bókinni er fjallað um efni, sem varða hvern mann.
Þar eiga menn kost á svari við rriörgum þeim spurningum,
sem daglega ber á góma.
Aftast í bókinni eru formálar ýmissa þýðingarmikilla og
algengra skjala. Eykur það mjög notagildi bókarinnar.
Lög og réttur er 432 bls. þéttprentaðar. Útsöluverð
kr. 165.00 í gcðu bandi.
Bókaútgáfa Mcnningarsjóðs.