Vísir - 15.10.1959, Blaðsíða 9
VlSIB
Fimmtudaginn 15. október 1959
Gamla aðferðin er hin eina
rétta vi5 skreiðarverkun.
Hún verður að verkast í sól og vindi.,
annars fær hún ekki rétta lykt.
Látlausar rigningar á Suð-
vesíurlandi hafa spillt fyrir
yerkun skreiðar í sumar.
Skreiðarframleiðendur á
Reykjanesskaga hafa orðið sér-
staklega hárt úti hvað þetta
snertir. Hafa þeir aldrei upplif-
að jafnslæmt tíðarfar til skreið-
arverkun og nú, síðan skreið-
arverkun hófst aftur eftir lok
síðari heimsstyrjaldar, sagði
Óskar Jónsson forstjóri Sam-
lags skreiðarframleiðenda, er
Vísir spurði hann tíðinda um
skreiðarverkun og útflutning í
ár.
Og þá vaknar sú spurning: Er
ekki hægt að þurrka skreið í
yfirbyggðum hjöllum, þar sem
sól nær ekki að skína og regn er
lokað úti, eða gengið ennþá
lengra á svið tækninnar að
þurrka skreið í lokuðum húsum
með hitablæstri o. s. frv.? Þetta
hefur tekizt með saltfiskinn okk
ar og hví skyldi það ekki takast
með skreiðina.
Nei, segir Óskar, það verð-
ur aldrei almennileg skreið.
Skreiðin er ein elzta útflutn-
ingsvara íslendinga. Öldum
saman hefur hún verið verkuð
á sama máta. Kaupendur og
neytendur óska eftir ákveðnum
vörugæðum, þeim sömu ár éftir
ár. Öll frávik frá þessum á-
kveðnu gæðum orsaka verðfall
og sölutregðu. Svona á varan
að vera og ekki öðruvísi. Fram-
takssamir menn hafa gert til-
raunir méð yfirbyggða hjalla og
mér hefur borizt skreið, sem
þurrkuð var í húsi, en þessi
skreið hafði ekki sama útlit,
ekki sama bragð og ekki sama
ilm og skreið sem sól, vindur
og regn hefur leikið um og verk
að. Nákvæmur kaupandi finnur
muninn. Ekki er alltaf hægt að
eftirlikja áhrifum náttúrunnar
og efnabreytingar þær, sem í
skreiðinni verða fyrir áhhif
lofts og sólar hefðu ekki enn
tekizt að eftirlíkja með tækni-
legum aðferðum.
— Hvernig eru svo horfur á
skreiðarsölu í ár eftir þetta
rigningasumar?
— Horfurnar eru ekki sem
verstar. Það er bagalegt, þar
sem verð á Ítalíuskreið er allt
að þriðjungi hærra en á Niger-
íuskreið. í fyrra flutti Skreiðar-
samlagið út 430 lestir af skreið
til ítalíu en magnið verður
minna í ár. Aðallega verður
flutt þangað skreið frá Norður-
og Vesturlandi, þar sem ágæt-
lega gekk að verka í sumar.
— Er eitthvað til í því að
Norðménn séu hræddir við sam-
keppni á Ítalíu?
— Það er ekkert til í því, en
við höldum okkar hlut á Ítalíu-
markaðinum. Eftirspurn eftir
íslenzkri skreið hefur farið vax-
andi undanfarin ár og verðið
hefur hækkað og nálgast það
verð sem Norðmenn fá fyrir
sína skreið.
— Hvað svo um Nigeríumark
aðinn?
— Við erum búnir að selja
þrjá fjórðu af okkar skreið þar
fyrir svipað verð og í fyrra.
Smáfiskurinn, 20 til 50 cm., er
seldur á hærra verði en í fyrra,
en stóri fiskurinn 70 sm. og þar
yfir er seldur á nokkru lægra
verði, en það er tiltölulega lítið
Hyrnumjólkin er vinsæl.
Seist alltaS upp fyrst.
Á þeim tíma, sem hyrnu-
mjólkin hefir verið á boðstól-
um, hefur greinilega komið í
Ijós, að hún líkar yfirleitt vel,
því hún selst alltaf upp fyrst,
áður en farið er að hreyfa við
flöskumjólk í búðunum.
Oddur Helgason, sölustjóri hjá
Mjólkursamsölunni, sagði svo
frá í morgun, að auðséð væri
að hyrnumjólkin væri þegar
orðin vinsæl. „Hún selst alltaf
alveg upp í mjólkurbúðunum,
og það áður nokkuð er farið að
hreyfa við flöskumjólkinni.
Fólk leggur jafnvel lykkju á
leið sína til að fá hyrnumjóllc,
eða bíður eftir henni, heldur en
að taka flöskumjólk.“
Nokkrar kvartanir hafa samt
komið fram frá neytendum.
Hvortveggja getur verið rétt,
Sagði Oddur. Það er að sjálf-
sögðu smekksatriði um útlit
umbúðanna, en við getum alveg
fallist á að þær séu Ijótar. Von-
andi verða þær fallegri næst,
þegar við pöntum þær. Annars
er liturinn, sem á þeim er, lög-
boðinn. Mjólkin skal auðkennd
með rauðum lit, og rjómi með
gulum. „Þó skal ég viðurkenna“
sagði Oddur, „að mynstrið get-
ur hæglega verið fallegra, enda
var það búið til í fljótheitum,
Það mun líka rétt vera, að
vegna tímahraks“.
fyrir hefur komið að hyrnur
leki. Það getur einstaka sinnum
átt sér stað végna þess að mjólk
urdropi slettist á hitapúðana,
sem loka hyrnunum. Mjólkin
kælir púðana og einangrar þá,
þannig að þeir loka ekki eins
vel á eftir.
„Gétur það verið. að innihald
standist ekki ávalt mál?“
„Það getur hafa komið fyrir,_
en. það eru aðeins byrjunarörð-
ugleikar. Þegar áfyllingarvélin
er stöðvuð af einhverjum or-
sökum — og síðan sett af stað
aftur, fyllir hún ekki nógu vel
fyrstu hyrnurnar. Þær þarf að
taka frá og henda, en við höf-
um ekki athugað þetta nógu
vel hingað til. það þarf von-
andi ekki að. koma fyrir héðan
af.“
„Þið eruð ákveðr.ir að halda
þessu áíram?“
„Já. Viðtökurnar benda ein-
dregið í þá átt. Við þurfum að
fá fleiri vélar til að fitusprengja
mjólkina, því þær hafa ekki
við. Fitusprengd mjólk líkar
auðsáanlega mjög vel, og við
höfum aðeins fengið góð orð
um hana."
af honum í ár. Markaðurinn í
Nigeríu hefur verið erfiður tvo
s.l. mánuði, sérstaklega í Aust-
ur Nigeríu en er nú að lagast.
Ástæðan er sú, að Norðmenn
sendu þangað óhemju mikið
magn í júlí og ágúst og orsakaði
það verðfall á markaðinum.
Þrátt fyrir það að Norðmenn
hafa lágmarksverð á skreiðinni
munu hafa átt sér stað undir-
boð sem verkuðu truflandi á
markaðinn. Það er nauðsynlegt
fyrir okkur að hafa jafnan út-
flutning á skreið. Við megum
ekki spilla fyrir okkur með því
að flytja of mikið magn í einu,
en í þess stað sjá svo um að allt
af sé til nokkurt magn af ís-
lenzkri skreið á markaðinum.
— Hvernig gengur svo af-
skipunin?
— Afskipun hófst í byrjun
september og hefur haldið á-
fram síðan. Tröllafoss er fjórða
skipið sem tekur skreiðarfarm
út. Skreiðinni er umskipað í Ev-
rópu. Þar taka erlend skip við
henni og flytja hana suður á
bóginn.
— Er skreiðarframleiðsla í
vexti?
— Það er mismunandi ár frá
ári. Skreiðarframleiðslan er
heldur meiri í áren í fyrra. Bú-
ið er að hengja upp um 40 þús.
lestir af blautfiski. Það verður
um 7000 lestir af skreið. Við
þetta bætist svo það sem hengt I
verður upp í haust. Skreiðar-
framleiðslan vex norðanlands,
austan og vestan. Bátunum
fjölgar á þessum stöðum og út-
gerð bátanna verður jafnari ár-
ið um kring. Það er síður en svo
kyrrstaða í þessari elztu fram-
leiðslugrein íslendinga. Skreið-
in vinnur alltaf á á erlendum
markaði og gefur góðar eftir-
Benson landbúnaðarráð-
herra liefur ferðast um
Sovétríkin að undanförnu
og verið vel tekið. f Ukrainu
var hann ákaft hyltur, er
hann flutti ræðu og hvatti
til friðsamlegrar samkeppni
Bandaríkjanna og Sovét-
ríkjanna.
Átta Túnisbúar
teknir af lífi.
Fregn frá Tunisborg hermir,
að 8 menn, sem nýlega voru
dæmdir til lífláts, hafi verið
teknir af lífi.
Þeir voru sekir fundnir um
samsæri til að ráða Bougiba
forseta af dögum. — Einn hinna
líflátnu var nánasti samstarfs-
maður höfuðandstæðings Bour-
giba, en sá maður er nú land-
lótta í Egyptalandi.
Kjölur Sagður að mesta
olíuskipi heims.
Fregnir frá Quiney í Massa-
shusetts, Bandaríkjunum, nú í
vikunni, hermir, að þar hafi
verið lagður kjölurinn að mesta
flutningskipi heims.
Það er rúmlega 106 þúsund
lesta olíuskip, sem smíðað er
fyrir griska skipakónginn,
Stavros Niarchos.
Dalai Lama
1) Dalai Lama er andlegur
og veraldlegur leiðtogi Tibeta.
Hann er tignaður af þjóðinni
sem hinn lifandi guð og guð-
legur konungur þjóðarinnar.
Þegnar hans trúa því að hann
sé endurholdgaður fyrri Dalai
Lama (sá er næst lifði á undan
honum). Þetta hefir á ver-
ið svo með Dalai Lama. — Sagt
er um Tibet, vegna legu þess,
r.ð það sé á þaki jarðar og eitt
afskekktasta og einangraðasta
land undir sól. íbúar þessa
lands eru um ein og hálf
milljón og lifa að mestu af
kvikfjárrækt. Tíbetar eru trú-
menn miklir og eru þar 100 þús.
munkar eða lamar. ... Kína
liggur að landinu í norðri og
austri. Árið 1950 hófu kín-
verskir kommúnistar innrás í
Tibet. Þjóðin er friðsöm og
befur fámennan her aðeins til
málamynda og varð því lítið úr
mótspyrnu. Árið 1951 voru þeir
neyddir til að semja frið og
var þeim lofáð að þeir skvldu fá
að stjórna innanríkismálum
sínum sjálfir.
2) Fyrir 2500 árum síðan var
Euddatrúin stofnuð á Indlandi.
Upphafsmaður hennar var Gaut
sma, sem kallaður var af fylg-
endum sínum Buddha, og þýðdr
„hinn alvitri“ eða „hiiin upp-
lýsti“. Buddhatrúin greinist nú
eins og kristnin í marga sér-
trúarflokka en Buddhatrú að-
hvllast nú 150 milljónir manna.
Tibetar er ein greihin af þess-
um trúarflokki. Grundvöllur
Buddhatrúar er náungakær-
leikur. Lamaréglan í Tíbet var
stofnuð fyrir 600 árum af
Tsong Ka Ba sem varð hinn
fyrsti Dálai Lama. Tíbetar trúa
því að þegar Dalai Lama deyr
taki sál hans sér bústað í
líkama barns, sem fæðist á
sömu stund og Dalái Lama gef-
ur upp öndina. Þegar þetta
barn er fundið er það vígt til
eftirmanns Lama og þannig
heldur þetta áfram....
Þegar hinn 13. Dalai Lama
hafði látist fór sá er tók við
embætti hans til bráðabirgða
að leita að barni sem sál hins
framliðna hefði tekið sér bústað
í. Hann gekk um fjöll og fyrn-
indi. Kom hann að vatni og í
því speglaðist mynd af Lama-
klaustri og bóndabýli af gerð
sem ekki var nærri Lhasa, höf-
uðborg Tíibet. Hann trúði þvx
að þessar tvær byggingar
myndu leiða hann til þess stað-«
ar sem barnið var að finna. .