Vísir - 14.11.1959, Blaðsíða 2
VlSII
Laugardaginn 14. nóvember 1951
i
f
Sœjaffréttif
Útvarpið í kvöld.
Kl. 14.00 Raddir frá Norður-
; löndum: Tormod Skagestad
? les frumort ljóð. — 14.20
Laugardagslögin. — 16.00
j. jEfréttir og veðurfregnir. —
] 17.00 Bridgeþáttur. (Eiríkur
j. Baldvinsson). — 17.20 Skák-
1 þáttur. (Guðmundur Arn-
laugsson). — 18.00 Tóm-
í stundaþáttur barna og ung-
linga. (Jón Pálsson).— 18.25
Veðurfregnir. — 18.30 Út-
; varpssaga barnanna: „Sískó
á flækingi“ eftir Estrid Ott;
| V. lestur. (Pétur Sumarliða-
* son kennari).— 18.55 Fræg-
ir söngvarar: Lotte Leh-
f mann syngur lög eftir Mo-
f zart, Schumann, Hugo Wolf,
-j Brahms og Richard Strauss.
I —■ 19.30 Tilkynningar. —
20.00 Fréttir. — 20.20 Leik-
j rit Leikfélags Reykjavíkur:
"j^. „Allir synir mínir“ eftir Ar-
j thur Miller. Þýðandi: Jón
f Óskar. — Leikstjpri: Gísli
} Halldórsson. Leikendur:.
Hrynjólfur Jóhannesson,
?! Helga Valtýsson, Jón Sig-
j! urbjörnsson, .Helga Bach-
raann, Guðmundur Pálsson,
j Átni Tryggvason, Guðrún
j St'ephensen, Steindór Hjör-
jj leifsson, Sigríður Hagalín og
) Ásgeir FriSsteinsson. —•
T 22.00 Fréttir og yeðurfregnir.
j — 22.10 Framhald leikrits-
) ins „Allir synir mínir“. —
1 23.00 Danslög. — 01.00
4 Dagskrárlok.
dÚTTVARPIÐ á motgun.
15.10 Hvað viljið þið vita:
IPónfræðslutími fyrir hlust-
endur. 15.15 Tónleikar í út-
j I varpssal: Lúðrasveit Rvíkur
] loikur, Herbert Hriberschek
'I stjórnar. 15.30 Kaffitíminn:
] — (16.00 Veðurfregnir).
a) Josef Felzmann og félag-
ar leika. b) Russ Conway
leikur létt lög á píanó. 16.15
Ábókamarkaðnum (Vilhj. Þ.
Gíslason útJvarpsstjóri).
!
KROSSGÁTA NR. 3900.
Skýringar:
Láiétt: 1 hreinsun, 7 drykkj-
h 8 samgöngu. .. 9 Hitlers-
_ienn, 10 kveðið, 11 trylli, 13
kplls, 14 vopn, 15 stefna, 16
férða mér, 17 hægir.
gLárétt: 1 straumur, 2 kasta
Ujpp, 3 nazisíalið, 4 á krossin-
um, 5 . .. himna, 6 reglan, 10
fornafn, 11 hrópaði, 12 yfir ár,
33 títt, 14 drykk, 15 hæð, 16
atg. skammstöfun.
i Lausn á krossgátu nr. 3899.
■jLárétt: 1 eldingu, 7 tár, 8
árs, 9 US, 10 f.lá, 11 óra, 13 trú,
34 Vó, 15 sóa, 16 göt, 17 alrangt.
Juóð'rétt: 1 etur, 2 lás, 3 dr.
& 5 grá, 6 us, 10 frú, 11
’órar, 12 sótt, 13 tól/ 14 rög, 15
SA, 16 gn.
17.30 Barnatími (Helga og
Hulda Valtýsdætur). 18.25
Veðurfregnir. 18.30 Hljóm-
plötusafnið (Gunnar Guð-
mundsson). 19.40 Frá tón-
leikum Sinfóniuhljómsveit-
ar íslands í Þjóðleikhúsinu
10. þ.m. Stjórnandi: Dr. Ró-
bert A. Ottóson. 21.00 „Vog-
un vinnur — vogun tapar“.
— Sveinn Ásgeirsson hag-
fræðingur stjórnar þættin-
um. 22.00 Fréttir og veður-
fregnir. 22.05 Danslög. —
23.30 Dagskrárlok.
H.f. Eimskipafélag íslands.
„Dettifoss fór frá ísafirði í
gærkvöldi til Norður- og
Austurlandshafna og þaðan
til Liverpool „Fjallfoss“ fór
frá New York fyrir 8 dögum
til Reykjavíkur „Goðafoss“
fór frá New York í fyrra-
dag til Reykjavíkur „Gull-
foss“ kom til Kaupmanna-
hafnar í fyrradag frá Ham-
boi’g. „Lagarfoss“ fer frá
Hull á morgun til Reykja-
vikur. „Reykjafoss“ er í
Hamborg. „Selfoss“ kom til
Reykjavíkur á miðvikudag
frá Hull. „Tröllafoss“ fór frá
Reykjavík kl. 22.00 gærkv.
til New York. „Tungufoss
fór frá Gautaborg á mið-
vikudag til Rvíkur.
Skipadeild S.Í.S.
M.s. „Hvassafell“ er á Borð-
eyri. Fer þaðan til Akureyr-
ar. M.s. „Arnarfell“ fór í
gær til Rostock áleiðis til
Norðurlandshafna. Ms. „ Jök-
ulfell“ er í New York. Fer
þaðan ysentanlega þann 16.
áleiðis til íslands. M.s. „Dís-
arfell“ er á Siglufirði. M.s.
„Litlafell“ er í olíuflutning-
um í Faxaflóa. M.s. „Helga-
fell“ er á Seyðisfirði. M.s.
„Hamrafell“ fór 7. þ.m. frá
Reykjavík áleiðis til Pal-
prmo og Batúm.
Skipaútgerð ríkisins.
Hekla er væntanleg til
Reykjavíkur í dag að vest-
an úr hringferð. Esja er á
Austfjörðum á suðurleið
Herðubreið er á Austfjöi’ð-
um á norðurleið. Skjaldbreið
fer frá Reykjavík kl. 14 í
dag vestur um la'nd til
Akureyrar. Þyrill er í Rvík.
Skaftfellingur fór frá Rvík
í gær til Vestmeyja.
Eimskjpafélag Reykjavíkur hf.
M.s. „Katla“ er í Reykjavík
M.s. „Askja“ fór í fyrra-
kvöld fram hjá Cape Race
á leið frá Rvík til Jama-
ica og Cuba.
LOFTLEIÐIR:
Saga er væntanleg frá
Kaupmannahöfn og Oslo kl.
19 í dag. Fer til New York
kl. 20.30 Leiguvélin er
væntanleg frá New York kl.
7.15 í fyrramálið, Fer til
Oslo, Gautaborgar, Kaup-
mannahafnar og Hamborgar
kl. 8.45.
Tónlistarkynning
verður í hátíðasal háskólans
á morgun, sunnudaginn 15.
nóv., kl. 5 síðd. Flutt verða af
hljómplötutækjum skólans
stúdentakvæðin Carmina
Burana við tónlist þýzka nú-
tímatónskálds Garls Orffs
fyrir hljómsveit, kóra og
einsöngvara. Dr. Jakob Bene
diktsson og Guðmundur
Matthíasson tónlistarkennari
skýra texta og tónverk. Öll-
um er heimilli ókeypis að-
gangur.
Messur á morgun.
Dómkirkjan: Messa kl. 11
f. h. Síra Jón Auðuns. Messa
kl. 5 síðd. Síra Óskar J. Þor-
láksson. Barnasamkoma í
Tjarnarbíói kl. 11 f. h. Síra
Óskar J. Þorláksson.
Fríkirkjan: Messa kl. 2.
Síra Þorsteinn Björnsson.
Háteigsprestakall: Messa í
hátíðasal Sjómannaskólans
kl. 2 e. h. Barnasamkoma á
sama stað kl. 10.30 árdegis.
Síra Jón Þorvarðsson.
Bústaðaprestakall: Messa
í Háagerðisskóla kl. 5,. Barna
samkoma kl. 10.30 árdegis á
sama stað. Síra Gunnar
Árnas'ón.
Neskirkja: Messað kl. 11.
Fólk er beðið að afsaka
breyttan messutíma, vegna
útvarpsins. Síra Jón Thor-
arensen.
Laugarneskirkja: Messa
kl. 10.15. Síra Garðar Svav-
arsson.
Hallgrímskirkja: Messa kl.
11. Áltarisganga. Síra Magn-
ús ‘ Runólfsson. Síðdegis-
messa kl. 17. Síra Lárus
Halídórsson.
Laugarnesprsetakall: —
Messa í Laugarneskirkju kl.
17. Síra Árelíus Níelsson.
Hafnarfjarðarkirkja: —
Messa kl. 14. Síra Garðar
Þorsteinsson.
Neytendasamtökin
og vörumerkingar.
Neytendsamtpkin og vörumerk
Neytendasamtökin hafa látið
sig vörumerkingar miklu skipta
þar sem þau hafa talið, að þeim
væri mjög ábótavant hér á
landi og það svo, að bryti í
bága við landslög, þ. e. lög nr.
86 frá 1933 um varnir gegn ó-
réttmætum verzlunarháttum.
Neytendasamtökin hafa nú
fengið sjónarmið sitt staðfest
með dómi þeim, er felldur var
af sjó- og verzlunardómi Reyk-
javíkur 13. okt. s.l. í máli, er
varðaði merkingu peysu. Það
reynist svo, að í lögum þessum
felst öflug vernd fyrir neyt-
endur gegn hvers konar merk-
ingu vara, er kunna að gefa
villandi hugmyndir um upp-
runa þeirra eða eiginleika.
Stjprn Neytendasamtakanna
er þess fullviss, að ýmsar
merkingar vara, sem nú eru
viðhafðar hér, eru ólöglegar
samkvæmt ofangreindum lög-
um. Þau viljá því beina því til
hlutaðeigandi, að þeir hyggi
að vörumerkingum sínum með
hliðsjón af nefndum lögum og
nýfelldum dómi samkvæmt
þeim. Neytendasamtökin álíta
lög þessi svo mikilvæg fyrir
neytendur, að þau telja það
tvímælalaust skyldu sína að
sjá til þess eftir megni, að þeim
verði framfylgt.
Þess vegna er það ætlun
stjórnar Neytendasamtakanna
-að kanna ítarlega að mánuði
liðnum, að hve miklu leyti megi
telja vörumerkingar á markaði
hérlendis vera í samræmi við
lög.
Frá stjórn Neytendasam-
takanna.
Frú Astrid Friid, Oslo,
6‘J lírff i day.
Frú Astrid Friid, Osló, er 65]
ára í dag, 14. nóvember.
Frú Friid var næstum fjögT
ur ár hér á landi á stríðsárun-
Frú Astrid Friid.
um eða frá marzmánuði 1942
fram í desember 1945, en mað-
ur hennar, Sigvard Andreas
Friid, var þá blaðafulltrúi við
norska sendiráðið hér, en sjálf
starfaði frúin einnig við sendi-
ráðið, meðan hún dvaldist hér.
Þegar styrjöldin var um garð
gengin réðust þau hjónin í
þjónustu Höires Pressekontor í
Osló, en nú hefur hún fengið
rétt til eftirlauna, svo að hún
hættir störfum í fréttastofunni
frá áramótum.
Áður fyrr starfaði frú Friid
meðal annars við matvælaráðu-
neytið norska, en einnig var
hún um skeið starfandi í
Berlingarskrifstofu Aftenpost-
ens. Þegar Þjóðverjar réðust
svo á Noreg 9. apríl 1940, var
hún í þeim hópi — ásamt manni
sínum — sem fylgdi Hákoni
konungi og stjórn hans, er hún
varð að láta undan síga fyrir
ofurefli nazista norður eftir
Noregi alla leið frá Osló til
Tromsö. Meðan á flóttanum
stóð vann hún við fréttaþjón-
ustu norsku stjórnarinnar og í
Tromsö var hún starfsmaður
í aðalstöð Noregsbanka, sem
hafði aðsetur sitt í Trömsö frá
7. maí til 7. júní 1940. Þann
dag sté hún um borð í brezka
herskipið Devonshire, sem flutti
Noregskonung og föruneyti
hans til Bretlands. Þegar til
Lundúna var komið, varð hún
ritari í utanríkisráðuneyti
norsku stjórnarinnar, en síðar
var hún ráðin að hinu opinbera
málgagni stjórnarinnar, „Norsk
Tidend“. Vorið 1942 varð hún
svo ritari í blaðadeildinni
norsku hér á landi.
Frú Astrid Friid eignaðist
niikinn fjölda vina hér á landi,
meðan hún dvaldist hér, og
munu vafalaust margir þeirra
senda henni og manni hennar
hlý-jar kveðjur í dag.
Vinur.
Síldarleit Norð-
manna -
Frh. af 1. síðu.
eru dýr og það er mikil fjár-
festing en hún borgar sig áreið-
anlega.
Að því er fiskifræðingar
segja, er útlit fyrir að næstu
tvö ár verði léleg síldarár við
Noreg, en hvað ísland snertir
gegnir öðru máli. Árin 1949 og
1950 voru sterkir árgangar af
sumargotssíld. Þegar síldin
nær 10 til ára aldri á styrk-
leikinn að vera hvað mestur.
Árið 1950 var einnig mikið af
síld við Noreg og mun að lík-
indum hluti af norska stofnin-
um sameinast hinum íslenzka
næstum tvö árin og eru því lík-
ur fyrir miklu magni af síld
við fsland sumurin 1960 til
1962.
Carmina Burane endurtekin
í háskólanum á morgun.
Carmina Burana endurtekin
í háskólanum á morgun.
ýmsir, sem gátu ekki kom-
ið því við að hlusta á tónverkið
Carmina Burana eftir þýzka
nútímatónskáldið Carl Orff, er
það var kynt í háskólanum í
síðastliðnum mánuði, hafa ósk-
að eftir því, að það yrði endur-
tekið. Það verðurbví flutt aftur
af hljómplötutækjum háskól-
ans í hátíðasalnum á morgun,
sunnudaginn 15. nóv. kl. 5 síð-
degis. Tónlistarkynningunni
lýkur um kl. 6.30.
Carl Orff er eitt helzta nú-
lifandi tónskáld Þjóðverja, en
lítið þekktur hér á landi. Car-
mina Burana eru latnesk, þýzk
og frönsk miðaldakvæði
flökkustúdenta um vorið vínið
og ástina. Við þau samdi Carl
Orff 1936 þessa tónsmíð fyrir
hljómsveit, kóra og einsöng-
vara. Þetta er eitt víðkunnasta
og vinsælasta tónverk síðustu
áratuga, enda í senn nýstár-
legt alþýðulegt og fjölbreyti-
legt, bæði fallegt, fjörugt og
þróttmikið. Það er hér flutt af
þýzkum listamönnum undir
tilsjón höfundar, en stjórnandi
er Wolfgang Sawallisch.
Dr. Jakob Benediktsson mun
skýra textana og Guðmundur
Matthíasson tónlistarkennari
skýra frá tónskáldinu og tón-
verkinu.
Aðgangur er ókeypis og öll-
um heimill.
Bróður okkar
GUÐNI G. SIGURÐSSON,
málari, er látinn.
Systkinin.