Vísir - 14.11.1959, Side 8
ÍCtkert blaS er ódýrara í áskrift en Vísir.
Latið hann íæra yður fréttir og annað
lestrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
Laugardaginn 14. nóvember 1959
Munið, aS freir sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
• 385 - - ••• •••
M 5"-% m ■ - -
n :
Arekstrum og slysum hefir
fækkað síðan kólnaði.
r *
Arekstrar eru samt orðnir
200 fieiri en í fyrra.
Svo virðist sem dregið hafi
bæði úr slysum og árekstrum
hér í bænum við breytta
veðráttu.
í haust eftir að dimma tók
á kvöldin og á meðan rigning-
arnar voru mestar og verstar
var óvenju mikið um árekstra
og umferðarslys í bænum.
Traust vakið
a ny,
segir Lloyd.
Selwyn Lloyd kom heim í
gær, að afloknum viðræðunum
í París.
Hann kvað fullt traust milli
Breta og Frakka hafa verið
endurreist, og hvatti til, að
menn forðuðust allt, sem gæti
orðið til að spilla þeim árangri
sem náðst hefur. Hann kvaðst
haCa hvatt til fundar æðstu
jnanna eíns fljótt og við yrði
komið, eftir heimsókn Krúsévs
til Parísar.
Eftir að kólna tók í veðri
virðist sem dregið hafi úr bif-
reiðaárekstrum og einkum þó
úr slysum. Hefur lítið verið um
umferðarslys það sem af er
þessari viku.
í gær nam árekstrarfjöldinn
frá áramótum 1581 eða nær
200 árekstrum fleira en á sama
tima í fyrra. — Alls urðu
árekstrarnir í fyrra um 1680
talsins.
Coiomboáætlunln fram<
lengd um 5 ár.
j Colombo-áætlunin verður
framlengd um 5 ár, er núver-
andi samstarftímabili lýkur
1961.
Ákvörðun um þetta hefur
verið tekin á ráðstefnu Colom-
borríkjánna í Djakarta. —
Hvatt var til þess á ráðstefn-
unni, að komið yrði' á fót sams-
konar sjálfstæðu samstarfi fyr-
ir Asíu og einnig fyrir Suður-
Ameríku-ríki.
Hindrað veröi að kjarn-
vopnaþjóðum fjölgi.
Eire ber fram tillögu um það
í stjórurmálanefnd s.þ.
Irsfca lýðveldið Jiefur form-
Sega Iagt fram tillögu í-stjórn-
análanefnd S.þj. þess efnis, að
Allsherjarþíngið beiti sér fyrir
l»v;í, að ekki faætist fleiri þjóðir
hóp þeirra, sem ráoa yfir
j arnorkuvopnum.
{. Auken . utanríkisráðherra
kvað a.m.k. 20 þjóðir geta far-
ið út á þessa braut og 12 þeg-
ar ráða yfir tækni til framleið-
slu kjarnorkuvopna í náinni
framtíð.
Kvað, hann mikla nauðsyn
til bera, að Sameinuðu þjóð-
irnar létu þetta til sín taka.
Svellið er að vísu ekki
sem bezt á tjörninni, því að
það er hrjúft og hryggjótt,
en börnin skemmta sér samt
vel.
Gott verk í
nafni Aslaugar.
Kvenfélags konur í Kópavogi
halda bazar í Digranesskólan-
um á morgun kl. 2 til styrktar
Líknarsjóði Áslaugar Maack.
Kvenfélagið stofnaði líknar-
sjóð Áslaugar Maack að henni
látinni fyrir 8 árum. Áslaug
var frumkvöðull að stofnun
Kvenfélags Kópavogs, er það
bæjarfélag var uppbyggingu.
Vestfirðingur að ætt fluttist Ás-
laug til Reyðarfjarðar,- þar sem
hún giftist Þorsteini Pálssyni,
kaupmanni. Áslaug tók mikinn
þátt í félagsstarfsemi þar. Hún
var þannig gerð að væri ein-
hver hjálparþurfi var hún með-
al hinna fyrstu til að veita að-
stoð.
Kvefélagskonur í Kópavogi
fengu stutt að n^óta samstarfs
við Áslaugu, en þær ræktu
minningu hennar, hinnar skjót-
ráðu og hjálpfúsu konu. Það er
ekki safnað í sjóði, heldur er
unnið og spunnið, saumað og
selt til hjálpar þeim sem þurfa.
Fyrsta hjálpin er bezta hjálpin,
það vissi Áslaug, og Kópavogs-
konur starfa í sama anda.
Sovézkt hafrannsóknarskip
hefur mælt 2625 faðma
dýpi á Miðjarðarhafi og er
það mesta dýpi, sem hefur
verið mælt þar til þessa.
Varðarkaffi t Valhöll í dag
kl. 3 s.d.
Fyrsta barnagæzla einka-
fyrirtækis hér á landi.
Tekur til starfa á Alafossi
in.k. mánudag.
Fréttamönmun og ýmsum
öðrum var í gær boðið upp að
Álafossi, þar sem komið hefur
verið á fót barnagæzlu tengdri
verksmiðjunni, og er það fyrsta
barnagæzla einstaklingsfyrir-
tækis hér á landi. Var barna-
gæzluheimilið' skoðað og- þar
næst teppagerðarvélar verk-
smiðjunnar, sem nú er að fá
nýjar vélar til framleiðslu
stórra gólfteppa.
Ásbjörn Sigurjónsson flutti
ávarp í húsi barnagæzlunnar,
en húsið var flutt að Álafossi
og innréttað sérstaklega og er
á vel afgirtri og rúmgóðri lóð,
og hefur þetta allt vel tekizt.
Innan húss og utan eru leik-
tæki, og í húsinu eldhús, borð-
stofa, svefnstofa o. fl. Gert er
ráð fyrir börnin fái sér lúr eftir
hádegísmat. Aðstaða er fyrir
börnin til að repna sér á sleð-
um og jafnvel skíðum. Mikil
áherzla er lögð á samstarf for-
eldra barnanna og barnagæzl-
unnar. Hún á að geta komið í
stað dagheimilis eða leikskóla
og gegnt hlutverki uppeldis-
þjónustu, ef hlutaðeigandi að-
ilar standa saman um sem bezt-
an árangur. Greiðslu fyrir dvöl
barna er mjög í hóf stilt. —
Barnagæzlan tekur til starfa
n. k. mánudagsmorgun. Hug-
myndina að þessari barnagæzlu
kvaðst Ásbjörn hafa féngið á
ferðalagi með íþróttamönnum
fyrir 2 árum, er þeir skoðuðu
Karl Liebknecht dieselvéla-
verksmiðjuna við Magdeburg,
en sú verksmiðjan hefur stóra
byggingu fyrir barnagæzlu. Hér
er fýrirkomulag að ýmsu ólíkt.,
Markið er, að börn staðarins
séu í góðum höndum, er þaw
eru við leik á daginn, og for-
eldrar þeirra að störfum. Eftit
fyrstu undirtektum að dæma
kvaðst Ásbjörn ætla, að húsið
yrði of lítið eftir eitt ár.
Gólfteppa- {
framleiðslan.
Hann kvað atvinnu mjög
vaxandi vegna gólfteppafram-
leiðslunnar, sem hafin var fyrir
2 árum. „Við þurfum margt
, Framh. á 4. síðu,
Vetrarveður
á Bretlandi.
Stormar, faiinfergí,
samgöngutruflanlr.
Vetrarveður er nú á Bret-
landi, stormur á Ermasundi
og Bristolsundi, þar sem 3 skip
urðu að biðja um aðstoð.
Engar samgöngur eru við
Guernsey í Ermasundi. Tveir
fiskimenn, sem voru að vitja
um net, drukfcnuðu. — Á landf
hefur orðið tjón af völdum ve?*
urs og samgöngur truflast. f
Westmorland stöðvaðíst bíla-
umferð vegna fannfergis. —
Á nýju bílabrautinni miklœ.
(sbr. fregn f Vísi í gær) trufl*
aðist umferð vegna veðurs.
Ennþá rafmagnsskortur nyrðra.
Fgárhöld shtkrri en buíisi vttr rfd.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í gær. —
Ástandið hefir lítið eitt batn-
að í rafmagnsmálunum á Ak-
ureyri, en er hvergi nærri gott
cnnþá og slæmar horfur á að úr
rætist til hlítar í dag.
Þegar á leið daginn í gær
jókst rafmagnið upp í 3500 kíló-
wött og var það þá skammtað
hiður í fimm kerfi á Akureyri,
þannig að hvert hverfi fékk
rafmagn í 2 klst. í einu. f dag
á að skipta rafmagninu; á 3
hverfi bæjarins.
Vatnsrennslið í Laxá er enn
mjög lítið niður við virkjunina
og vita menn ekki hverju það
sætir, því svo virðist sem fullt
rennsli falli úr Mývatni.
Fé smalað.
Um alla Þingeyjarsýslu hafa
bændur unrnð Kðustu ctogana
að því að emala fé sínu og víð-
asthvar tekið það í hús. Þ& '
munu Mývetningar ekki taka fér
sitt heim af Mývatnsöræfunip
því þar er haglendi gott og fénu
virðist líða vel. Tíu Mývetning-
ar fóru þangað austur á mið-
vikudaginn og hafa unnið að
fjárleit síðan. Hundar fundlí
talsvert af fé í fönn, en það
fannst allt Íifandi. Áftur á mótl
hefir nokkuð af fé Mývetninga
kafnað í fönn í heimahögum,
m. a. fundust 13 kindur frá
Gautlöndum dauðar í fönn, og
víðar hafa kindur kafnað þar
í sveit.
Köldukinnarbændur hafa náð
mestöllu fé sínu í hús og samá
er að segja um Bárðdælinga. |
Réykjadal er allmargs fjár
saknað og er verið að leita að
því.
Ófært er bílum úr Mývatns-
sveit, en í gr /r koni snjóbíll frá
Húsavík m Á póst og farþegá
og tók rjójM tH hakSK.__JjbSJ