Vísir - 07.01.1960, Page 1
c
I
V
50. árg.
Fimintudaginn 7. janúar 1960
4. tbl.
Ivær amerískar flug-
véfar farast og 44 menu
Onnur var farþegaflugvél, sem kann
að hafa sprungið í iofti.
Talið er, að áhöfn og farþeg-
ár flugvélar, sem fórst á Norð-
ur-Karolinuströndum, Banda
ríkjunum, s.l. þriðjudag, hafi
vitað að haetta mikil var á
ferðum, því að bjargbelti eru á
líkum, farþega, sejn fundizt
hafa.
Þykja líkur benda til, að far-
þegum hafi verið sagt að spenna
á sig beltin rétt áður en slys-
ið varð, en þá mun hún að vísu
hafa verið farin að nálgast sjó.
Flugvélin hefur ef til vill
sprungið í lofti, rétt fyrir nauð-
lendingu, en brot úr henni tvístr
uðust í allar áttir og eins var
Banaslys
á vegum
sorgarefni alþjóðar.
Eitt Lundúnablaðanna
birti x morgun — í sorgar-
ramma — forsíðufregn um
banaslysin á þjóðvegum
landsins um jólaleytið en
jóladagana biðu 147 menn
bana af völdum umferðar-
slysa á þjóðvegunum og er
það miklu hærri tala en áð-
ur eru dæmi til.
Blaðið segir sífjölgandi
banaslys sorgarefni fyrir al-
þjóð — og þjóðarsmán í
hvert efni sé komið.
í Frakklandi biðu 456
menn bana af völdum um-
ferðarslysa um jóla- og ný-
ársleyti.
langt bil milli líka, sem fund-
izt hafa, en
í flugvélinni voru 34 manns,
þar af 29 farþegar, og komst
enginn lífs af. Flugvélin var
frá National Airways, og
hafði verið látin koma i
stað annarrar, sem vana-
lega er í þessu flugi. Flug-
vélin var af DC-6B gerð.
Þar sem slysið varð er vot-
lent og leirur miklar, Meðal far-
þega var George MacDonald,
fyrrverandi flotaforingi og
stríðshetja, en hann var síðar
einn af forstjórum Panameri-
can World Airways.
Flug-
vélin var á leið frá Ildewild- \
flugvelli til Miami á Florida-
skaga.
Önnur Bandaríkja-
flugvél ferst.
Bandaríkjaflugvél, sem sakn
að hafði verið og leitað, fannst
austur af Benghazi, en hún
var á leið milli Tripoli og Ben
Ghazi. Var þetta herflugvél og
í hénni 10 menn. — Fannst hún
við sjó frammi, úr lofti. Ekk-
ert kvikt sást við flakið og er
talið, að allir, sem í henni voru,
hafi farizt.
Lögðu lík á íand
vestra.
Þýzkur togari leitaði hafnar
á Patreksfirði í fyrradag og
lagði þar lík á land, fór síðan
aftur á veiðar.
Skipið var statt á hafi úti, þeg-
ar 1. vélstjóri dó skyndilega.
Lík hans verður flutt út til
Þýzkalands til greftrunar.
Vetrarhjálpin:
Minna fé safnaðist nú en áiur
— og fleiri liáðu um aðsfoð.
Hin árlega fjársöfnun til
Vetrarhjálparinnar, sem skátar
©nnuðust nú fyrir jólin, gekk
mun lakar en árið áður. Inn
komu 120 þúsund krónur í
peningum, en 137 þúsund fyrir
jólin 1958, að því er Vísi var
tjáð í morgun.
Þetta er samt enn minna en
nefndar tölur gefa til kynna,
því áð nú leituðu um 700 manns
hjálpar, ■ en árið áður voru
hjálparbeiðnir tæplega 600. Og
enn kemur fleira til, stofnanir
eins og Bláa bandið, Vernd og
Mæðrastyrksnefnd fengu nú
hluta af söfnuninni.
Það kom á daginn, að fólk
hefir minni peninga handa á
milli nú en árið áður. Vetrar-
hjálpin hafði reyndar sama hátt
á og áður, að hringja í ýmis
fyrirtæki, sem voru boðin og
búin að rétta hjálparhönd seni
fyrr, gáfu bæði föt og aðrá
vörur, auk peninga.
Leit hætt að Rafnkeli.
Garðar Guðmundsson.
Björn Antoníusson.
Vilhjálmur Ásmundsson.
Magnús Berentsson.
Jón Björgvin Sveinsson.
Ólafur Guðmundsson.
Leit að v.b. Rafnkeli, sem fórst aðfaranótt s.l. mánudags, hefur
nú verið hætt, því öruggt er að skipið er ekki ofansjávar og að öll
áhöfnin hefur farist.
Skip og flugvélar leituðu allan daginn í gær, en hætt var við
frekari aðgerðir í gærkveldi. Ýmislegt brak hefur borist á fjörur og
verður fylgst með því hvað kann að reka úr bátnum.
Eins og áður er frá skýrt fórust þama sex manns, þar af fjórir
fjöiskyldufeður, er láta samtals eftir sig seytján börn. Mishermt var
í Vísi í gær að Vilhjálmur Ásmundsson hefði átt Jirjú hörn, þau munu
vera fjögur.
Gronchi frestar
Moskvuför.
Gronchi hefur frestað
Moskuferð sinni vegna in-
flúenzu. Gert er ráð fyrir,
að hann legði af stað þangað
í dag í opinbera heimsókn
og kom tilkynningin um
frestunina allóvænt. Sagt
var, að forsetinn vonaðist til
þess að geta gert aðrar ráð-
stafanir sem fyrst.
Blaðið Times í London
segir, að frestunin muni
vekja vonbrigði í Moskvu,
— en annars sé „Moskva
ekki góður staður í janúar
fyrir menn með inflúenzu/1
Getgátur eru uppi um, að
Gronchi kunni að vera al-
varlegar veikur, en upp hef-
ur verið látift.
Kassem forsætisráðherra
Iraks hefur Ieyft frjálsa
síarfsemi allra stjórnmála-
flokka.
Enn allt í óvissu nm
komu færeyinga.
230 koma með Gullfossi, ef samkomulag
næst, en enn fleiri bíða fars.
Allt er enn í óvissu með fær
eysku sjómennina, sem reynt er
að fá á íslenzku fiskiskipin. —
Fiskimannafélagið ' Færeyjum
hefur lagt bann við því, að fé-
lagsmenn ráðist á íslenzk fiski-
skip, fyrr en fullt samkomulag
hefur náðst við Landssamband
íslenzkra útgerðarmanna.
Það munu aðallega vera tvö
atriði, sem valda því, að sam-
komulag hefur ekki náðzt, þ. e.
varðandi yfirfærslur á kaupi
Færeyinga (að það verði yfir-
fært á gamla genginu, ef til
gengisfellingar kemur) og að
teksjur Færeyinga á íslandi
verði ekki útsvarsskyldar. Þetta
eru að sjálfsögðu atriði, sem
eru undir ákvörðunum á æðri
stöðum komið, þ. e. þæjarstjórn
um og ríkisstjórn.
Skeytasendingar fara stöðugt
milli LÍÚ og Fiskimannafélags-
ins, en engu hægt að spá hvern-
ig málin leysast, en að sjálf-
sögðu vona menn, að úr rætist.
Gullfoss á að koma til Fær-
eyja n.k. laugardag og taka þar
230 sjómenn eða eins marga og
skipið getur framast tekið — og
yfir 200 jmun hafa orðið að vísa
frá. Náist samkomulag verður
að sjálfsögðu að gera ráðstafan-
ir til þess að koma þeim til
landsins. ...
Vertíð er nú hafin og afleið-
Framh. & 2. síöu. .