Vísir - 30.01.1960, Page 4
1
ÍSfS
Laugardaginn 30. janúar 1960
VÍSKH
D A G B L A Ð
Ötgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Vistr kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3.
ftitstjórnarsferifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00.
Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00.
Sími: 11660 (fimm línur).
Vísir kostar kr. 25,00 í áskrift á mánuði,
kr. 2,00 eintakið í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Aíþingi komið saman aftur.
Alþingi kom saman aftur í
fyrradag, eftir þinghléið,
, sem gert var h. 8. des. s.l.
J Flestum mun enn í minni,
] hvernig stjórnarandstaðan
) hegðaði sér vikurnar, sem
þingið starfaði og æðið, sem
) greip hana út af frestuninni.
j Ef stjórnin átti að fá nokk-
! urn frið til þess að vinna að
! viðreisnartillögum sínum,
í . átti hún tæpast aðra leið til
þess en að fresta þinginu.
Ekki verður séð að hugarfar
stjórnarandstöðunnar hafi
:! breyzt mikið til batnaðar
meðan á þinghléinu stóð.
) Hún hefir látið blöð sín ham-
ast gegn ríkisstjórninni með
öllum hugsanlegum hætti og
gengið svo langt í óheiðar-
legum málflutningi, að
lengra verður ekki komizt.
Hún hefir lagt allt kapp á
að gera væntanlegar ráð-
stafanir stjórnarinnar tor-
tryggilegar og óvinsælar hjá
almenningi, rangfært um-
mæli ráðherra og efnahags-
sérfræðinga og blátt áfram
logið upp sögum um fyrir-
ætlanir, sem aldrei hafa til
! orða komið innan ríkisstjórn-
arinnar.
Ekki verður annað ráðið af
þessum skrifum en stjóm-
arandstaðan kæri sig kollótta
um hveraig til tekst með
lausn efnahagsmálanna ef
' hún aðeins getur með rógi
'! sínum og skemmdarstarfi
KIRKJA DG TRUMAL:
HRÆDDUR?
náð einhverjum atkvæðum
frá stjórnarflokkunum.
Það hlýtur því að hafa komið
mörgum undarlega fyrir
sjónir, að yfirskriftin á for-
ustugrein Tímans daginn,
sem þingið kom saman aftur,
skyldi vera kvörtun um það,
að „ríkisstjórnin vilji ékki
víðtækt samstarf um efna-
hagsmálin“.
Skyldi nokkrum, sem hefur les-
ið Tímann síðan núverandi
ríkisstjórn var mynduð,
þykja það líklegt, að Fram-
sókn hafi áhuga fyrir sam-
starfi við stjórnarflokkana
um þau mál?
Hvort muna menn enn eða
hvað hin frægu ummæli
Hermanns Jónassonar á
Hólmavíkurfundinum, þar
sem hann lýsti yfir því, að
loks hefði tekizt að útiloka
Sjálfstæðisflokkinn frá öll-
um áhrifimi, og gæfa lands
og þjóðar væri undir því
komin, að hann kæmist
aldrei aftur í valdaaðstöðu.
í þessum anda hefur Tíminn
verið ritaður æ síðan, og
þess vegna er varla hægt að
búast við því, að Sjálfstæðis-
menn vænti samstarfsvilja úr
þeirri átt um efnahagsmálin.
Afrek Framsóknar og
kommúnista í vinstri stjórn-
inni mæla ekki heldur bein-
línis með því, að þangað sé
ráða að leita til lausnar á
vandanum.
Þá langar í stjórn.
Hins vegar er ofur auðvélt að
lesa það milli línanna í fyrr-
J nefndri ritstjórnargrein
Tímans, hvað fyrir höfundi
hennar vakir. Þrátt fyrir allt
sem á hefir gengið, öll stór-
yrðin og fordómana um
stefnu núverandi ríkisstjórn-
ar, myndu Framsóknarmenn
gleypa við því, að fara í
1 stjórn með Sjálfstæðismönn-
’ um og Alþýðuflokknum, ef
* þeir ættu þess nokkurn kost.
Og það er nokkurn veginn
l" '
víst, að þeir mundu ekki
f hika við að éta ofan í sig
flest af því, sem Tíminn hef-
■ ir sagt síðustu mánuðina, ef
þeir fengju slíkt tilboð.
JWeð hliðsjón af því, að flest
sem Tíminn hefir verið lát-
I inn segja um efnahagsmálin
! og væntanlegar ráðstafanir í
því efni, siðan ríkisstjórnin
var mynduð, hlýtur að ganga
í berhögg. við raunverulegar.
skoðanir alls þorrá 1 Franv
r.
\
■ ki
sóknarmanna, er ekki und-
arlegt þótt þeir, sem þurfa
að skrifa þetta á hverjum
degi, séu farnir að þreytast.
Það hlýtur að vera erfitt að
skrifa þannig gegn betri vit-
und, þegar þar við bætist, að
áhrif skrifanna, ef nokkur
eru, verða þjóðfélaginu til
tjóns og þar af leiðandi þeim
sjálfum, sem þessa iðju
stunda.
Það er alrangt hjá Tímanum,
að ríkisstjórnin vilji ekki
samstarf um efnahagsmálin.
Hún myndi áreiðanlega
fagna því, ef Framsóknar-
menn hefðu þar eitthvað
fram að færa þjóðinni til
heilla.
En meðan Framsóknarflokkur-
inn stendur við hlið komm-
únista í stjórnarandstöðunni
og lætur aðalmálgagn sitt
. jafnveh yfirganga Þjóðvilj-
anns í ósæmilegum áróðri og
- ■ beinum f jandskap við.stefnu
Óttinn lamar. Þar sem hann
hefur búið um sig, ganga menn
ekki heilir til starfa. Hver ját-
ar á sig hugleysi? Sumir hræð-
ast þó lífið, já, sjálft lífið, fram-
tíðina, hið ókomna, óþekkta
sem koma skal, verkefnin, um-
hverfið, örlögin.
Þú ert ekki einn þeirra, sem
slíka byrði hafa að bera. Vel er
það. En ef þú þekkir geig, sem
í brjóstinu býr, óljósan ugg við
það, sem kann að mæta þér,
sjúkdóma, erfiðleika, raunir,
sem kynnu að bíða þín, kvíða
fyrir verkefnum morgundags-
ins, áhyggjur, vegna þess að þú
sérð ekki örugga úrlausn á
vandkvæðum þínum, ef þú
þekkir þetta og játar það fyrir
sjálfum þér, leggðu þá eyru
við orðum, sem Jesús sagði við
lærisveina sína: Hví eruð þér
hræddir, lítiltrúaðir?
Hvers vegna hr.æddir?. Þetta
er ekki einkenni hinnar styrku
trúar. Hvað er að?
Við eigum að geta lifað
frjálsu, hamingjusömu lífi, eng-
inn er hamingjusamur án frels-
is, enginn er frjáls undir byrði
kvíða og áhyggjusemi. í þolin-
mæði og trausti skal styrkur
yðar vera. Þó að syrti í álinn og
illa horfi, hverfa allar áhyggj-
ur, ef hægt er að treysta því
fullkomlega, að hjálp berist í
tæka tíð. En því miður verður
mörgum á sú örlagaríka skyssa,
að vantreysta þeim, sem treysta
ber, en treysta þeim, sem van-
treysta ber.
Menn gleyma Guði, af því
stafar öryggisleysið, gleyma
þeirri staðreynd, sem er grund-
völlur alls lífsins, þá er ekki
von að vel fari. Þegar ékki er
lengur reiknað með Guði, hafa
menn engan grundvöll til að
standa á og finna fótum sínum
enga festu.
Hver hefur skapað þig? Þetta
hefur löngum þótt ein hin fyrsta
og einfaldasta spurnirig um
trúna til að leggja fyrir börn,
og hefur þótt bera vott um
hneykslanlega fáfræði, ef eðli-
lega gefið barn, sem lært hafði
að tala, gat ekki svarað. En
hvernig fer þeim, sem ekki
svara þeirri spurningu jákvætt
í lífi sínu og lífsafstöðu? Er
hann ekki eins og barn, sem
veit ekki, hver hefur skapað
það?
Hver hefur skapað þig og
gefið þér lífið? Ekki ábyrgðar-
laus tilviljun eða blind náttúru-
lögmál, heldur lifandi Guð, al-
máttugur og eilífur. Ekki sa
Guð, að þú þurfir að vinna
hann til fylgis við þig, ávinna
þér hylli hans, heldur sá, sem
hefur ákveðnar fyrirætlanir
með þig frá upphafi, hefur sett
sjálfum sér og þér, moldar-
barni, sameiginleg markmið,
eilíft hjálpræði þitt.
Og í stað þess að treysta hon-
um og lifa örugg í því trausti
og byggja líf okkar í því, gleym
um við honum og vonum á það,
sem fullkomin ástæða er til að
vantreysta syndum spilltum
heimi og sjálfselskusýktu
manneðli, sjálfum okkur, eig-
in kröftum og skynsemi og
fyrirhyggju, öðrum mönnum
og þeirra úrræðum og velvilja,
tilviljunum og slembilukkri. —
Vitum við ekki þann einfalda
hlut, að enginn maður kemst af
án Guðs.
Guð einn er góður, og hann
er líka algjör í hinu góða, og
frá honum kemur allt, sem gott
er, og ekkert nema gott kemur
frá honum. Sá, sem setur von
sína til Drottins, mun ekki til
skammar verða.
Þetta ber ekki svo að skilja,
að trúin taki ábyrgð á því að
lífið verði auðvelt og sársauka-
laust og vonbrigðalaust. Lifið
með Guði er oft þyrnibraut um
táradal en framundan á það
fyrirheit um sigur. Og þú ert
ekki einn á göngunni, ekki yfir-
gefinn í storminum og öldurót-
inu, þú ert leiddur af máttugri
hendi og þú finnur traust og ör-
yggi frá þeirri hendi,-sem leið-
ir þig, fyrir yl þeirrar elsku,
sem umlyk’ur þig á leið þinni
og leggur lífið i sölurnar fyrir
þig til þess að þú megir bjarg-
ast.
Hann fótstig getur fundið
og bugað storma her.
Hann ffótstig getur fundið,
sem fær sé handa þér.
Þrek og góða von sækir þú
ekki í eigin barm, en þú hefur
lært að biðja og fengið að
reyna, að bæn þín er heyrð,
hvernig Guð hlustar eftir orð-
um þínum og svarar með því
að taka þig að sér og málefni
þitt, svo að öllu er vissulega
borgið. Og orð hans verða lif-
andi orð, sem taka þig fanginn
og fylla þig trausti og öruggri
von: Vertu ekki hrædd, litla
hjörð, því að Föður yðar hefur
þóknazt að gefa yður ríkið.
Hetgítóntefkar í
Hafnarfjaróarkirkju-
Þriðju helgitónleikar ; Hafn-
arfjarðarkirkju á þessum vetri
verða haldnir í kvöld, og verða
flutt tónverk eftir Hallgrínii
Helgason.
Samkór (45 manna) úr
Reykjavík syngur undir stjórn
dr. Hallgríms móttettu eftir
hann og gömul íslenzk sálma-
lög, sem hann hefur útsett. Þá
leikur dr. Hallgrímur kirkju-
sónötu á fiðlu með orgelundir-
leik Páls Kr. Pálssonar. Síðast
leikur Páll Kr. orgeltónverk.
Tónleikarnir hefjast með söng
kórs og kirkjugesta og lýkur
með sambæn, blessun og safn-
aðarsöng, eins og venja hefur
verið.
Tónleikarnir hefjast kl. 21
eg er öllum heimill ókeypis að-
gangur. '
Færeyjingar —
ríkisstjórnarinnar, er þess
varla að vænta að nokkur
trúi því, að samvinna við
, Framsókn um lausn efna-
hagsmálanna komi til greina.
Framsóknarmenn munu fá nóg
• tækifæri á þessu þingi til
þess að sýna að hugur hafi
fylgt máli hjá ritstjóra Tím-
ans, þegar hann var að
harma það, að samstarf
skyldi ekki hafa tekizt um
efnahagsmálin. En ekki virð-
ist túlkun Tímans í gær á
fj árlagafrumvarpinu . benda
til þess, að- samstarfsvrlja sé
þar að vænta.
Framh. af 1. síðu.
sjómönnum séu trvggð allt önn-
ur og hærri kjör en íslenzkum
sjómönnum. Getum vér alls
ekki fallizt á slíkt sem samn-
ingsgrundvöll, en ítrekum enn
einu sinni, að vér erum tilbún-
ir að semja um ráðningu fær-
eyskra sjómanna á íslenzk fiski
skip með sömu kjörum og ís-
lenzkir sjómenn eru skráðir á
skipin.
Ólíulindir hafa fundizt ná-
lægt Dakar í Senegal.-
Frumv. aó nýjum höf-
undaiöpm fyrrr
ríkisþíngi Dana.
Ný höfundalög eru á uppsigl-
ingu í Danmörku, því að
menntamálaráðuneytið hefur
lagt fram frv. í Ríkisþinginu..
samræmt við nýjustu samþ.
Bernarsambandsins og höfunda
lagafrv., sem verið hefur í
smíðum hjá norræna höfund-
arréttarráðinu xmi nú í nærri
40 ár.
Skv. þeim má höfundur ekki
framselja eignarrétt sinn end-
anlega og að öllu leyti, hann og
verkið sé verndað gegn list-
rænni og efnalegri mjsþyrm-
ingu og misnotkun, hann hafi
fullan rétt til að ráða yfir verk-
inu og kynna það almenningi
með hvaða hætti sem er, í upp-
haflegri eða breyttri mynd,
þýðingu, aðlögum eða útsend
ingu og hvaða tækn'aðferðum
gömlum eða nýjum. Einnig til
að láta hljóðrita verk sín á plöt-
ur og bönd. Samt er hljóðritun-
til kennslu leyfileg, ef plötur
eða bönd hafa ekki áður verið
UQa JeSuijp.xp Ri ppxapuejj
sölu. Segulbandshljóðritun í
heimahúsum aðeins leyfð gegn
föstu árlegu gjaldi. Flutningur
sé leyfilegur í útvarpi gegn
því gjaldi, sem er í samning-
um — nema höfundur leggi
greinilega bann við.Komi í ljós,
að höfundur hafi selt hagnýting
arleyfi of lágu verði, má hann
skv. nýju lögunum krefjast
skaðabóta og endurskoðunar
samnings, og virka lagafyrir-
mæli aftur fyrir sig.
Nýmæli er ákvæði til vernd-
ar túlkandi listamönnum, vegna
deilu milli sjónvarpsins og leik-
ara Kgl. leikhússins út af
greiðslum fyrir endurhagnýt-
ingu leiks í sjónvarpi. í frum-
varpinu er nú greinilega tekið
fram, að ekki megi hljóðrita
eða hagnýta í sjónvarpi eða út-
varpi túlkun listamanns, nema
fyrir liggi bæði leyfi hans og
höfundar. Þá er og haldið fast
við fyrri ævarandi listræna
vernd, Droit Moraí, þannig að
óleyfilegt er að misnóta eða
misþyrma því, enda þótt éigin-
légur verndartími ^séutrunninn.