Vísir - 01.02.1960, Qupperneq 7
Mánudaginn 1. febrúar 1960.
VÍSIR
Leikur á Dómkirkjuorgelið
í kvöld.
Kom fram í útvarpinu 7 ára.
Rætt viö Árna Arinbjarnarson, fiðlii-organleikara.
Arni Arinbjarnar organleik-
ari (og fiðluleikari) heldur
fyrstu sjálfstæðu tónleika sína
hér í kvöld, og hefur þó þegar
getið sér góðan orðstír, bæði
innan lands og utan. Hann leik-
ur á Dómkirkjuorgelið í kvöld
helgitónverk eftir crlend og ís-
lenzk tónskáld. Fréttamaður
Vísis skrapp sem snöggvast
heim til hans í gær í skyndivið-
tal.
Svo sem einkenni er margra
góðra listamanna, er Arni hlé-
drægur, og vildi hann sem
minnst úr þessu gera, þótti
ekki taka því að vera að segja
frá þessu í blöðum. Þó lét hann
til leiðast að svara nokkrum
spurningum.
— Hvenær byrjaði tónlistar-
áhuginn?
— Eg var 7 ára, þegar ég'
byrjaði að reyna á hormoniku,
og 9 ára gamall kom ég fyrst
fram. Það var þegar við Grett-
ir bróðir lékum saman á harm-
oniku í barnatíma útvarpsins.
(Hér á Árni við hálfbróður
sinn Gretti Björnsson, hinn
kunna harmonikuleikara, er nú
um nokkur ár hefur verið bú-
settur vestur á Kyrrahafsströnd
Ameríku, í Vancouver). Sama
ár byrjaði ég svo að læra á
fiðlu. Ekki hélt ég þó áfram ó-
slitnu fiðlunámi til lokaprófs.
Eg hætti um tíma, fannst ekki
hægt að sinna bæði því og gagn
fræðanámi svo nokkurt lag
væri í. Því yfirgaf ég Tónlist-
arskólann. En það leið ekki á
löngu unz hann seiddi mig til
sín aftur. Eg hélt áfram með
fiðluleikinn og lærði á píanó að
auki. Kennari minn á fiðlu var
þar Björn Ólafsson. Og ég
tók burtfararpróf í fiðluleik
1956.
— En hvenær kom áhug-
inn fyrir orgelinu?
— Það var sama árið og ég
lauk fiðlunáminu, að ég fór að
læra á orgel hjá Páli ísólfssyni.
Að loknu því skólaári bauðst
mér styrkur frá British Council
til tónlistaynáms í London, og
þar var ég næsta áf við nám í
fiðluleik hjá Max Rostal og hjá
Geraint Jones í orgelleik. Hinn
Arni Arinbjarnarson.
síðarnefndi er kornungur mað-
ur, en er talinn meðalsnjöllustu
orgelleikara þar í landi og báðir
voru þessir menn afburðakenn-
arar, en sömu sögu hef ég
reyndar að segja um mína á-
gætu kennara hér við Tónlist-
arskólann, og síðan ég kom frá
námi í London. hef ég verið við '•
orgelnám hjá dr. Páli.
— En svo voru utanfarir aft-
ur á s.l ári?
— Já, ég fór í hópferð nem-
enda og kennara Tónlistarskól-
ans hér til Prag', Tékkóslóvakíu ;
í boði tónlistarháskólans þar og |
lék þar á orgel og fiðlu á
tónleikum á ýmsum stöðum um ;
I
landið. Einnig fór ég í fyrra-'
sumar til Svíþjóðar. á kirkju-1
tónlistarmót (eða „koralvecka“. |
eins og það heitir á sænsku) í
[ Bástad, yndislegum smábæ við
Eyrarsund. Þar var mér einum
útlending boðið að koma fram
á tónleikum mótsins, og flutti
ég nokkur kirkjuverk eftir ís-
lenzk tónskáld. Eftir mótið fór
ég svo til Stokkhólms, þar sem
ég var beðinn að leika inn
á segulband fyrir IBBA, út-
varpsstöð, sem Hvítasunnu-
söfnuðirnir sænsku í’eka í
Tangier í Afríku.
— í hverri þessarra borga er
svo lærdómsríkast fyrir tónlist-
armanna að vera?
— Lengst hef ég dvalizt í
London og það er ekki hægt að
segja annað en tónlistarlif sé
mjög lifandi þar. Þar eru tón-
leikahallir góðar, og þangað
kemur hið bezta tónlistarfólk
hvaðanæva að, svo að segja má,
að þar mætist allt hið bezta úr
austri og vestri. Svo kemur
Tékkóslóvakía. Enda þótt dvöl-
in þar væri stutt, var ákaflega
mikið af henni að læra. Líklega
er tónlistarlíf óvíða heillegra
en þar, enda stendur það á
gömlum merg. Prag hefir um
margar aldir verið miðstöð tón-
listar og skólinn þar er einn sá
elzti sinnar tegundar í heimi.
— Hver eru eftirlætistón-
skáld og hljóðfæraleikarar?
-— Það er ekki svo auðvelt að
svara því, nemá hvað snertir
tónskáld fyrir orgel, þá er þar
einn, sem ber höfuð og herðar
yfir alla aðra, Johan Sebastian
Bach. Hann er ólýsanlegur og
verk hans slík auðlegð, að þau
eru eins og ótæmandi brunnur.
Um hljóðfæraleikara veit ég
ekki, hvað eg á að segja, einn
hefur þetta og annar hitt. Hvað
fiðluleikara t. d. snertir, þá
iettur manni máske fyrst í hug
David Oistrakh. Hann er mik-
ill snillingur. En svo eru aftur
aðrir með eiginleika, sem koma
ekki eins fram hjá honum.
— Hvað um nútímatónlist-
ina?
— Um hana er ég ekki dóm-
bær, því að eg þekki hana svo
sáralítið, en ég vonast til að
kynnast henni betur. Maður er
nú enn svo ungur, að það er
ekki hægt að ætlast til, að mað-
ur geti kveðið upp neina dóma
um listina og tónskáldin. En ég
vónast til að eiga mikið eftir að
læra í tórilist, það er aðalatrið-
ið.
— Er mikið um tónlistar-
hneigð í ættinni?
— Mamma var svo hneigð
fyrir tónlist á sínum ungu ár-
um, að hún réðist í það stór-
ræði, sem þá var, að fara til
Ameríku til tónlistarnáms. Þar
lærði hún bæði söng og píanó-
leik. Og það hefur verið okkur
börnum hennar mikils virði.
Enda hafa systkini mín yndi af
tónlist.
(Hér lýkur spjallinu við fiðlu-
og orgelleikarann Árna Arin-
bjarnarson, en þess skal að lok-
um getið, að foreldrar hans eru
Margrét Karlsdóttir (frá Bjargi
í Miðfirði) og Arinbjörn Árna-
son frá Neðri-Fitjum Víðidal.
— Hvað starfar þú svo auk
orgelnámsins?
— Eg kenni fiðluleik við
tónlistarskólana á Selfossi og
Keflavík, annanhvern dag á
hvorum stað. Eg hef alveg nóg
fyrir stafni, því að auk þess
þarf ég tíma til að æfa mig,
þennan daginn á orgilið, hinn á
fiðluna.
ALSÍR -
Framb. af 1. síðu.
ineð sé allsherjarverkfallinu
lokið.
Matstofur eru opnar o? sölu-
búðir, kennsla í skólum hafin,
og strætisvagnar í notkun.
Ymsir námu staðar 1 grennd
við stöðvar byltingarmanna á
leið til vinnu sinnar, en béldu
svo áfram.
Stöðvar byltingarmanna eru
algerlega umkringdar og eru
hersveitirnar, sem enn hafa
fengið liðsauka, að sctja upp
gaddavírsgirðingar kringum
þæi’, en götum sem liggja að
þeim lokað með bví að setja
þar lierflutningabifreiðar mjög
þétt.
Talið er, að um 4000 menn
séu enn í stöðvum byltingar-
manna. Leiðtogar þeirra halda
áfram, að hvetja fólk til þess
að hverfa ekki til vinnu, en að
J
'því er virðist er þeim tilmæl-a
um alls ekki sinnt.
Rafmagnsstraumurinn til
bygginga þeirra var rofinn i
gærkvöldi sem fyrr var sagt, ea
líkur eru fyrir, að einnig hafi
verið lokað fyrir vatnsæðar til
þeirra.
Skákþing Reykjavíkur:
Þriðju umferð
lokií.
Þriðja umferð Skákþiggs
Reykjavíkur var tefld í Breið^
firðingabúð í gœrkvöldi, og fóru
leikar sem hér segir:
í A-riðli meistarflokks vanri
Gylfi Magnússon Jónas Þor*
valdsson, Benóný vann EiS.
Jafnlefli gerður Eggert Gilfer1
og Bjarni Magnússon, en bið-
skák eiga Guðmundur Lárusson
og Daníel Sigurðsson. SigurðU
Jónsson sat hjá.
í b-riðli meistaraflokks vanni
Bragi Þorbergsson Halldór Jóns-
son og Björn Þorsteinsson vann
Ólaf Magnússon. Jafntefli varð
hjá Guðmundi Ársælssyni og
Grími Ársælssyni. Karl og Jórv
sátu hjá.
Eftir eru nú í A-liði Benóný
með 2 vinninga og Guðmundui'
Lárusson með IV2 og biðskák.
í B-riðli eru efstir Halldór og
Björn með 2 vinninga, og Bragi
með 1V2 af tveimur.
í 1. fl. B eru efstir: Gylfi
Gíslason með 2V2 v., Jón Hálf-
dánarson og Ólafur Ólafsson
með 2 v. og biðskák. í A-riðli
eru eftir Björn Höskuldsson og
Marius Gröndal með 2 v. hvör
og biðskák.
í 2. fl. eru 4 efst.u jafnír með
3 v. hver. beir Halldm- Ólafs-
son, Hafsteinn Sölva=cn Gisli
Albertsson og Björn Lárusson.
Fjórða umferð verður tefld
annað kvöld kl. 20.15 í Breið-
firðingabúð.
Arababandalagið liefir sam-
þykkt, að Arabaþjóðirnar
stofni sameiginlegt flugfé-
lag.
MUNIÐ IlTSOLUM.
Karttnwnn&iiór ntjfaw fjeróir
..hansa íratn í dag.
Bírostskór irá 5O kt\ itpp í 150
ÉTSALA
★
Bfit asala
Gólíteppa-búÉar, motíustserð og dreglar,
allt að 30 metrmn, se’jast með
tækifærisverði í dag og næstu daga
Komið og geríS hagkvæm kaup