Vísir - 09.02.1960, Síða 5
Þriðjudagínn 9. febrúar' 1960
VISIR
Samkomulag á Brussel-
stefnu um Kongo.
¥err horfir um samkomu-
iag á fuudiuuiTi um iíenya.
Þeir eru hér að æfa sig, hinir ungu fiðluleikarar Ingvar Jónas-
son og^Einar G. Sveinbjörnsson, undir tónleikana í Þjóðleikhús-
kjallaranum annað kvöld. Þar heldur Tónlistarfélagið nýja —
Musica nova — sína fyrstu tónleika, og gestir sitja hver við
sitt kaffiborð á meðan. Sjá frétt á öðrum stað í blaðinu.
Ungir tónlistarmenn stofna
félag - Musica nova.
Efna til tónleika með nýju sniði í
Þjóðleikhúskjallaranum annað kvöld
Sjö ungir tónlistarmenn hafa
stofnað vísi að nýju tónlistar-
félagi, til kynningar fyrst og
fremst á verkum ungra, ís-
lenzkra tónskálda og að skapa
vettvang fyrir yngri hljóðfæra-
leikara okkar. Félagið ber nafn-
ið ,,Musica nova“ og efnir til
fyrstu tónleika annað kvöld í
Þjóðleikhúskjallaranum.
Fréttamenn ræddu við þá fé-
laga í gær, en þeir eru Einar G.
Sveinbjörnsson, Fjölnir Stef-
ánsson, Gunnar Egilson, Ingvar
Jónasson, Magnús Bl. Jóhanns-
son og Jón Nordal. Áform
þeirra er að halda ferna tón-
leika á ári, tvenna með verkum
íslenzkra tónskálda og tvenna
með verkum eldri og nýrri er-
lendra tónskálda. Stofnaðir hafa
verið strokkvartett og blásara-
kvintett, sem æft hafa í vetur,
og mun hinn siðarnefndi leika
á fyrstu tónleikunum annað
kvöld, og er efnisskrá „blönd-
uð“, þ. e. eftir erlend tónskáld
gömul og ný. Efnisskrá er ann-
ars sem hér segir:
Kvintett op. 71 eftir Beet-
hoven og Trois Pieces Breves
eftir Ibert. Tréblásarakvintett
leikur, en í honum eru Peter
Ramm, flauta, Karel Lang, óbó,
Gunnar Egilson, klarinett,
Sigurður Markússon, fagott, og
Olav Klamand, horn. Þrjú lög
eftir Hugo Wolf (Kristinn
Hallson syngur með unidrleik
Gísla Magnússonar). Duo,
sonata eftir Prokofieff (Ingvar
Jónasson og Einar G. Svein-
björnsson leika á fiðlur).
Næstu tónleikar verða í marz,
og þá eingöngu flutt verk eftir
ung í slenzk tónskáld (Fjölni
Stefánsson, Leif Þórarinsson og
Magnús Bl. Jóhannsson) og
hinir þriðju væntanlega í apríl.
Auk stofnenda hins nýja fé-
lags hafa mörg ung tónskáld,
hljóðfærleikarar og söngvarar
lofað að leggja eitthvað af
mörkum. Því er ekki að efa, að
tónleikarnir verði bæði fjöl-
breyttir um efnisval og flytj-
endur. Vonandi verður þessari
viðleitni vel tekið og að fólk
sýriÝ áhuga á að fylgjast með
þroskaferli þeirra listamanna,
sem hér eiga hlut að máli.
Tónleikar þessir verða með
nýju sniði hér, hinir fyrstu í
Þjóðleikhúskjallaranum. Gestir
sitja við borð og geta pantað
veitingar, en þess samt óskað,
að þeirra sé ekki neytt á meðan
leikið er. Aðgangseyrir er ó-
trúlega lágur, aðeins 20 krónur,
og innifalin sérstaklega smekk-
leg tónleikaskrá. Miðar verða
seldir aðeins við innganginn.
Það væri harla ótrúlegt annað
en að sífjölgandi tónlistarunn-
endur í Reykjavík fylli kjall-
arann annað kvöld.
þj
borgar sig
a ð auglýsa
I víst
Tvær stórmikilvægar ráð-
stefnur sem nú standa, varða
framtíð tugmilljóna manna í
Afríku — í Brússel um Belgiska
Þegar August du Schryver,
ráðherra sá í Belgíustjórn, sem
fer með mál Belgiska Kongós,
lýsti yfir því, að stjórnin myndi
leggja fyrir þingið frumvarp
til laga um sjálfstæði Kongós
í samræmi við ákvarðanir
meiri hluta ráðstefnunnar, sem
; nú er haldin í Brússel, varð
lýðum ljóst, að draumur hinna
blökku íbúa landsins um
sjálfstæði var í rauninni að
rætast. Ráðherrann kvað
stjórnina reiðubúna til að
„sigra eða falla“ á þessu máli.
Síðar náðist samkomulag, svo
sem getið hefur verið í öðrum
fregnum um sjálfstæði 30. júní
og þing í tveimur deilum.
Erfiðleikar í upphafi.
í byrjun virtust ýmislegir
erfiðleikar ætla að koma til
sögunnar varðandi dagskrár-
atriði o. fl., og út af kröfu um,
að einum af helztu leiðtogum
þjóðernissinnaðra blökku-
manna yrði sleppt úr fangelsi
og að hann fengi sæti á ráð-
stefnunni. Hafðist það fram.
A<\
-
~>\v> } o © :
ýý-y "r,v,3o ýa viívia :
■ «'s-! ? : - - -
';Á }: '1|< j
4/>«,<CA í- ,>'■‘0'
J-rJaf xni&ÍKirfj « ý, ' /\í
< Si'ÍSVK )W &
,*C 5?.
Uppdrátturinn sýnir Belgiska
Kongo (1), Kenya (2), sem
væntanlega fær sjálfstæði
bráðlega, náðist samkomulag á
Kenyaráðstefnunni í London,
og Suður-Afríku (3), bar sem
valdhafarnir halda fast við
stefnuna um yfirráð hvítra
manna og kúga blökkumenn.
Kongo og um Kenya í London.
Þessi leiðtogi er Patrice
Lumumba, en hann hafði verið
dæmdur í misseris fangelsi í
Stanleyville. Var hann ’sakaður
um að hafa haldið æsingaræðu,
sem leiddi til uppþots, sem 20
menn biðu bana í. — Það var
Joseph Ubuyi, einn af fulltrú-
um blökkumanna, sem bar
fram kröfuna, og var hún studd
af Albert Spinoy, einum full-
trúa belgiska jafnaðarmanna-
flókksins á ráðstefnunni. Kasa-
vabu, sem sagt hefur verið frá
vúbu, sem sagt hefur verið frá
kröfuna. Vakti það mikla at-
hygli, þar sem litið hefur verið
á þá sam-keppinauta.
Myndin af Lumumba, sem
fylgir þessari frétt, var tekin af
honum, er hann hafði tekið
sæti á ráðstefnunni.
Horfur eru þær nú, að braut-
in sé rudd að algeru samkomu-
lagi um Belgiska Kongó, en
verr horfir um Kenya, og veld-
ur það erfiðleikum, að þar í
landi eru áhrif hvítra manna
mjög öflug. Uppi ei’u þrjár
stefnur, blökkumanna, sem
vilja fullt sjálfstæði, flokks
hvítra, sem vilja tryggja yfir-
ráð sín, og . annars flokks
hvítra manna, sem vilja fara
Lumumba.
milliveg, en fólk af indverskum
stofni, sem er allfjölmennt, vill
einnig tryggja réttindi sín.
McLeod nýlendumálaráðherra
hefur lagt sig fram til að finna
samkomulagsleið, en ekki tek*
ist það enn sem komið er. —•
Fulltrúar hvítra manna, Briggs
og Blondel, munu hverfa heim
aftur um helgina, nema þeir
breyti ákvörðun á seinustu
stundu.
Nauðungaruppboð
verður haldið að Síðumúla 20 hér í bænum, miðvikudag-
inn 10. februar n.k. kl. 13,30 eftir kröfu tollstjórans i Reykja-
vík, bæjargjaldkerans í Reykjavík o. fl. Seldar verða eftir-
taldar bifreiðar:
.R-262, R-364, R-1216, R-1947. R-1950, R-1961, R-2042,
R-2066, R-2586, R-2605, R-2610, R-2646, R-2940, R-3070.
R-3095, R-3116, R-3164, R-3553, R-3654, R-3704, R-3980,
R-4021, R-4557, R-4601, R-5420, R-5618, R-5774, R-5857,
R-5931, R-5947, R-6153, R-6306, R-6509, R-6674, R-6778,.
R-6901, R-7154, R-7933, R-8221, R-8240, R-8494, R-C.51'3,
R-8843, R-9001, R-9148, R-9507, R-9335, R-10135, R-10211,
R-10374, R-10488, R-10840, R-10953, G-1239, G-1793,
H-432, H-468.
Ennfremur loftpressa. j ;
Greiðsla fari fram við hamarshögg. \
Borgarfógctinn 1 Reykjavík.
Iðnskólinn í Reykjavík
Kvöldnámskeið fyrir bifvélavirkja og rafvirkja um
rafkerfi í bifreiðum verður haldið í rafmagnsdeild skólans
og hefst 22. þ.m. í
Innritun fer fram dagana 10. til 20. þ.m. í skrifstofu
skólans á venjulegum skrifstofutíma. . ,
Námskeiðsgjald, kr. 200,00 greiðist við innritun. ! J’
Skólastjóri. !
UTSALAN
heldur
áf ram
MU FER HVER AÐ VERÐA SIÐASTUR AÐ GERA GOÐ KAUP