Vísir - 09.02.1960, Side 8
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Visir.
Látið hann færa yður fréttir og annað
lestrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
VXSIR
Munið, að þeir sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá hlaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Þriðjudaginn 9. febrúar 1960
Krúsév heimtar aftur
afnáan hernáms V.-Berlfnar og
óbreytt landamæri Þýzka-
lands f austri.
Nikita Krúsév forsætisráð- j fleira, og kvað hann seinustu
lierra Sovétríkjanna flutti ræðu fregnir um ummæli leiðtoga
í gær i ítalska sendiráðinu í ausfan tjalds, aðallega Krúsévs,
Moskvu, en bar hafði Gronchi , , , , _ , ^ .
j- ,, . . , _ . . benda til nokkuð harðnandi af-
Itahuforseti boð inm Krusev til
stöðu, en Krúsév hefði ekki
rofið samkomulagið við Eisen-
hower frá síðastliðnu ári um
samkomulagsumleitanir til
friðsamlegrar lausnar heims-
vandamála.
Sumir óttast, að Krúsév
kunni að vera að byrja nýja
taugaherferð gegn lýðræðis-
þjóðunum.
Mannhæðardjiípt vatn í
Tryggvaskála í nótt.
Flæddi inn í gróðurhús í
Hveragerði.
heiðurs.
í ræðu þessari gerði Krúsév
að umtalsefni Berlínarvanda-
Jnálið og landamæri Þýzka-
Jands í austri.
Endurtók hann fyrri
kröfur um, að hernámi yrði
; aflétt í Vestur-Beidín, og
] krafðist þess, að sett yrðu
^ ákvæði í friðarsamninga, er
, gerðir yrðu um að núverandi
landamæri Þýzkalands í
! austri skyldu vera óbreytt.
Krúsév kvað svo að orði, að
Jivorki Tékkar né Pólverjar
myndu sætta sig við að landa-
jnærum landa þeirra yrði breytt
og nytu þeir fulls stuðnings
Sovétrikjanna, að því ef þetta
.varðaði. Krúsév ræddi þetta
állt nokkru frekara, — kvað
horfur hafa batnað um frið-
samlega lausn mála, og ótti
ínanna við styrjöld væri smá-
dvinandi. Bæri nú að gera átak
til þess að leiða til lykta mál,
sem óafgreidd væru síðan í
styrjaldarlok. — Hann kvað
Adenauer forsætisráðherra V.-
Þýzkalands mótfallinn sam-
komulagi um Þýzkaland, en
hann ætti engu þar um að
Jráða, heldur þeir, sem sigrað
hefðu land hans í styrjöldinni.
Álit Hertes.
Herter utanríkisráðherra
Bandaríkjanna var í gær spurð-
ur um álit hans á ályktun Var-
sjárbandalagsins, er birt var
eftir fundinn í Moskvu, og álit
hans nú með t.illiti til sam-
komulagsumleitana um bann
við kjarnorkuvopnatilraunum
og eftirlit með slíku banni, og
DeGaulle treystir fylgi sitt
í her og lögreglu.
Lögreglustjórar á fundi með Debre' og frönsk
lögregla send til Atsír.
De Serigny, ritstjóri blaðs
franska landnema, L’Algerie i
Algeirsborg, hefur verið sakað-
ur um þátttöku í samsæri til
að stofna öryggi franska ríkis-
ins í hættu.
Hann er í fangelsi og verður
hafður í haldi fyrst um sinn a.
m. k. — Debré ræddi yið fjöl-
••
marga lögreglustjóra í Frakk-
landi í gær og fjölda margir
lögreglumenn frá Frakklandi
hafa farið til Alsír undan-
gengna daga.
Það er á morgun, sem ráð-
herrarnir þrír, leggja skýrslu
sína um Alsírförina fyrir De
Gaulle. — Víðtækar ráðstafanir
eru nú gerðar til þess að
ábyrgðarstörf bæði í Frakk-
landi og Alsír verði í höndum
tryggra fylgismanna De Gaulle.
Miðar hann einkum að því, að
hann geti treyst bæði lögreglu
og her örugglega.
Þeir hafa aldrei þurft á
Færeyingum að halda.
Mikil atvinna í Hórnafirði.
Frá fréttaritara Vísis.
Selfossi í morgun.
f vatnavöxtum, sem urðu
austan fjalls um og eftir helg-
ina flæddi inn í hús bæði í
Hveragerði og á Selfossi.
Ölfusá komst í foráttuvöxt,
þann mesta sem hlaupið hefur
í ána frá því 1948, en þá kom
í hana 'mesti vöxtur, sem menn
muna og varð fólk að fara milli
húsa á bátum.
í allan gærdag hélt Ölfusá á-
fram að vaxa og nokkuð fram
eftir nóttu. Þá virðist vöxtur-
inn hafa náð hámarki og í morg
un var byrjað að sjatna í henni.
Þá stóð vatnsborðið í áþekkri
hæð og það var í gærkvöldi.
Samt var áin mjög ófrýnileg í
morgun og geysimikið flug í
henni. Flæddi hún þegar í gær
yfir bakka sína og yfir veginn
sem liggur meðfram henni í
Selfossþorpi, þannig að hann
varð ófær. Ekki er enn vitað
hvort áin hefur valdið spjöllum
á veginum en það er talið lík-
legt. í nótt komst áin alveg upp
að Tryggvaskála og flæddi þá
inn í kjallara þeirra húsa, sem
næst stóðu ánni.
í morgun var mannhæðar
vatnsborð í kjallara Tryggva-
skála, en kjallari er undir mest
öllu húsinu og þar eru m. a.
kynditæki, sem öll voru í kafi
samkvæmt upplýsingum frá
Kristínu Árnadóttur veitinga-
konu. Þar var einnig geymd
málning o. fl. og má búast við
meiri eða minni skemmdum á
því. Skammt frá Tryggvaskála
er hús sem hótelið hefur fyrir
hænsni og svín. Flætt hafði al-
veg upp að húsinu í nótt og var
búið að gera ráðstafanir til að
flytja úr því þegar flóðið stóð
sem hæst. Til þeirra ráðstafana
þurfti þó ekki að grípa, því áin
hætti þá að vaxa.
Inn í fleiri hús flæddi, m. a.
inn í kjallara á húsi Valdimars
Pálssonar gjaldkera. Þar var
öklavatn í morgun. Er húsið þó
vandlega byggt og með það
fyrir augum að vatn flæddi
Frh. á 6. síðu.
Frá fréttaritara Vísis.
Hornafirði í morgun.
Ógæftasamt liefir verið síð-
ustu vikurnar. Afli hefir verið
sæmilegur þegar gefið hefir á
sjó. Slæmt veður var hér um
helgina og komust bátar ekki
út í gær vegna brims.
Afli bátanna er yfirleitt mjög
jafn. Þeir eru búnir að fá 350
skippund, sem eru 175 lestir
Einar »g blámennirnir.
Væri samanfotirður við rúss-
neska verkamenn óhagsfæður?
Það er haft fyrir satt, að
Einar Olgeirsson ætli að tefla
fram blámönnum í baráttu
sinni við ríkisstjórnina. Að
minnsta kosti er það aðal-
efnið í ræðuin hans nú, þegar
hann þrumar yfir fylgis-
mönnum sínum, að ríkis-
stjórnin ætli Dagsbrúnar-
mönnum helmingi lægri
laun, en svertingjum eru
greidd í Bandaríkjunum.
Hingað til hefir Einar ekki
falið Bandaríkin til fyrir-
myndar og sízt meðferð á
svertingjum þar, en allt er
hey í harðindum, eins og þar
stendur. En Einar ætti líka
að geta þess, að húsnæði er
t. d. miklu dýrara vestra en
hér og verðlag yfirleitt, og á
því byggjast laun þar að
nokkru, en hve margir eru
þeir ekki, Dagsbrúnarmenn-
irnir, sem eiga sjálfir íbúðir
þær, sem þeir búa í?------
Annars ætti Einar að gefa
upplýsingar um, hvað sov-
ézkir verkamenn fá á tím-
ann og gera svo samanburð
á kjörum þeirra og verka-
manna hér á landi. Eða held-
ur Einar, að slíkur saraan-
burður sé honum og sovétvin-
um óhagstæður? Vill hann
ekki gefa svör við þessu?
miðað við slægðan fisk með
haus. Aflinn er allur frystur
nema keilan. Mikil atvinna er í
landi, og enginn hörgull er á
landverkafólki. Engu máli
skiptir fyrir útgerðina í Horna-
firði, hvort Færeyingar koma
eða ekki. Að aflanum vinnur
eingöngu fólk hér úr kauptún-
inu og það sem kemur úr nær-
sveitum og svo einstaka maður
ausan af fjörðum.
Jökulfellið tók hér nýlega
4000 kassa af fiski og í morgun
var Dísarfellið að koma með
kol. Eki eru nema nokkur ár
síðan flytja þurfti kol og annan
varning, sem hingað fór eða
hingað kom, með uppskipunar-
bátum utan af höfn eða jafnvel
af opnu hafi. Síðan innsiglingin
var dýpkuð og henni breytt, geta
skip eins og Dísarfellið lagzt hér
að bryggju. Enginn finnur bet-
ur þá breytingu sem varð á allri
aðstöðu en mennirnir, sem
þurftu að bera öll kolin í pok-
um upp úr uppskipunarbátun-
um.
Páfaríkið og Tyrklands-
stjórn hafa tekið upp stjórn-
málasamband.
Harold Macmillan hefur
verið boðið í 3ja daga heim-
sókn til Ítalíu * marz.
F'oráttuvöxtur hljóp í Ölfusá um helgina, íór ört vaxandi þar
til í-nótt að aftur tók að sjatna. Myndin er tekin af Ölfusárbrú
og sér upp með eystri bakka árinnar. Hún er þá að því komin
að flæða yfir bakka sína.
Myndin er tekirt a£ flóðinu í Ólafsvallahverfi, en það er mi
einangrað frá Öltum samgöngum, — nema á bátum.