Vísir - 06.04.1960, Blaðsíða 10

Vísir - 06.04.1960, Blaðsíða 10
10 VÍSIB Miðvikudaginn 6. .apríl [ MILLI TVEGGJA ★ ÁBTARSAGA ELDA 23. Hún starði á sterklegar og fallegar hendumar á stýrinu og sagði eftir nokkra stund. — Frú Sanders mundi þykja allt urn of í þvi tilliti, nema algert afskiptaleysi. — Það er vafalaust rétt. Hann þagði um stund, en sagði svo þurrlega: — Og Morton Sanders er ekki algerlega afskiptalaus. skilst mér. — Ne-ei. Hún horfði hikandi á fræga skurðlækninn og fór að velta fyrir sér hvers vegna hann ræddi einkamál hennar við hana. — Er nokkur ástæða til að hann væri það? — Nei, svaraði Lanyon, — ekki ef yður finnst það svara kostn- aði að stofna yður í hættu vegna fallegu augnanna í honum. — Hættu? Hann nam staðar viö rautt ljós, leit við og brosti, ekki óvin- gjarnlega, til Madeline.. — Góða, eg hef ekki hugsað mér að fara að lesa yður lífs- reglurnar, því fáum líkar að fá heilræði og enn færri nota sér þau. En eg þekki dálítið frú Sanders og son hennar. Frú Sanders þjáist, eins og þér vitjið bezt sjálf, af sjúklegri afbrýði, sem stappar nærri geðbilun. Það væri nógu bölvað að hún ætti leiðin- legt lítilmenni fyrir son, sem ekki bakaði henni áhyggjur, því að hún mundi vaka jafn vandlega yfir honum. En Morton er vitan- lega glæsilegur, heillandi náungi, sem veit fótum sínum vel forráð. — Eg skil þetta ekki fyllilega. Ef hann kann fótum sínum forráð hvað er þá athugavert? — Það er ekki Morton Sanders sem eg hef áhyggjur af, sagoi Lanyon. — Farið þér út hérna? Eg þarf að aka dálítið lengra. — Já, einmitt það — þakkað yður innilega fyrir. Hún bjóst til að fara út, en það var líkast að eitthvað þvingaði hana til að vera kyrra, svo að hún hikaði og sagði: — Þetta er einskonar aðvörun, sem þér eruð að gefa mér, læknir? — Það kemur mér ekkert við, sagði hann og brosti. — En eg vil benda yöur á, að hver stúlka sem Morton Sanders lítur hýru auga verður samstundis fyrir ofsafengnu hatri frú Sanders. Og þó að eg þykist viss um að hann bjargi sjálfum sér, þykir n»ér tvisýnt að hann geti séð stúlkunni borgið. — Mér finnst hæpið að segja það, svaraði Madeline og 'fór-út úr bílnum. — Kannske. En eg tel það mjög varhugavert, svaraði hann gegnum bílgluggann. — Eg mundi telja stóran uppskurð talsvert J hættuminni. Vitanlega að því tilskildu, að eg gerði hann sjálfur. Svo veifaði hann hendinni brosandi og ók áfram. í Dominion eins og flestum sjúkrahúsum voru hjúkrunarkon- ■urnar vanar að hittast í herbergjunum hver hjá annari og rabba um það sem gerst hafði þann daginn. En Madeline kaus fremur að trúa ekki öðrum fyrir einkamálum sínum en Ruth og Eileen. Þess vegna voru það aðeins þær tvær, sem hún sagði frá því, að Morton hefði stungið upp á við hana að koma með sér til frænda hans. — Eg mundi hugsa mig um tvisvar, sagði Ruth. Ef mér litist ekki mjög vel á hann, vitanlega. Eg mundi ekki baka mér afbrýði og óvild frú Sanders að óþörfu. — Æ Madeline beit á vörina. — Aiveg þetta sama sagði dr. Lanyon í dag. — Dr. Layon? Eileen hallaði sér fram, logandi af forvitm. Ætlarðu að segja mér að þú hafir spurt hann ráða? Ferðu til hans með öll þín vandamál? — Nei vitanlega ekki. Madeline hló. — Hann ók fram hjá mér þegar eg var að bíða eftir sporvagninum og bauð mér að sitja í hjá sér niður í borg'ina. Eg þakkaði honum vitanlega fyrir að hann hafði hjálpað mér í fyrsta skiptið, og það varð til þess að við fórum að tala um frú Sanders. Hann álítur að hún sé hættu- leg alveg eins og Ruth gerir. Eileen virtist leggja mikið upp úr þessum upplýsingum. Hún þagði hugsandi um stund, yppti svo öxlum og sagði: — Hugsið ykkur alit það gaman, sem maður færi á mis við ef maður ætti að taka tillit til afbrýðissamra mæðra. Frú Sanders væri trúandi til að segja eitthvað ljótt við Flóru og finna sér einhverja smámuni til að setja út á. En það verður varla alvar- legt, því að þú ert dugleg hjúkrunarkona. Eg mundi hætta á þetta í þínum sporum. — Þegar þú segir þetta svona finnst mér það freistandi, sagði Ruth hlæjandi. Langar þig mikið til að fara, Madeline? — Vitanlega. Það væri ævintýri, sem maður á sjaldan kost á. Að vera um helgi í sumarbústað við eitthvert vatnið þarna uppi í fjöllum. — Eg skil, sagði Ruth þurrlega, og Madeline roðnaði; hún vissi að Ruth hafði getið sér til að vatr.ið og fjöllin væri ekki það, sem hefði mest aðdráttarafliö. — Jæja. sagði hún og hló eins kæruleysilega og hún gat, — kannske verður ekkert úr þessu. Það er ekki víst að hann minnist neitt frekar á það. En það var líkast og verið væri að sanna, að henni skjátlast, því að nú drap einhver stúlkan á dyr og sagði að það væri sími til hennar. Það var Morton, eins og hún bjóst við, og hann fór undireins að tala um ferðalagið. — Við verðum að ákveða nánar með ferðina, Madeline. Eg hef talað við hann Donald frænda minn, og Judy konu hans, og þati langar mikið að þú komir. Þú verður að láta mig vita hvenær þú getur fengið þig lausa í tvo daga. — En, — hún var dálítið efandi ennþá og þorði ekki að svara játandi undir eins — það er þetta með hana móður þína, Morton. Úr því að hún er svona mótfallin þessu finnst mér eg ekki.... — Það er allt í lagi, svaraði Morton. — Eg hef talað við hana og hún hefur ekkert við það að athuga. — Ertu viss um það? Ef það er svo, skal ekki standa á mér. En eg vildi ekki gera það ef hún reiddist því. — Hún hefur skipt um skoðun, sagði Morton. — Hún er oft svona þegar hún er hrædd um mig. En áður en eg fór frá henni í dag var hún orðin sammála mér um að þú hefðir átt leiðinlega æfi um borð í skipinu, og að það væri skyida okkar að sjá um að þú fengir einhverja uppléttingu i sárabætur. — Ó, hvað þetta er gaman, Morton! Og eg hef kringumstæður til að koma núna um helgina, ef það hentar frænda þínum. Eg er laus frá því síðdegis á föstudag og til mánudagsmorguns. — Næsta föstudag. Hinn daginn? — Já. — Þá breyti eg áætluninni minni dálítið. Eg hafði hugsað mér að fara upp eftir annað kvöld. En eg bíð þangað til daginn eftir og ek þér uppeftir sjálfur. Þá losnar þú við langa járnbrautar - ferð. Venjulega er mikill gestagangur hjá Donald á sunnu- dögum, svo að þú færð vafalaust að sitja í hjá einhverjum niður eftir á sunnudagskvöldið. En ef ekki þá skal eg aka þér til baka sjálíur. — Og hætta sumarleyfum þínum? Nei, þess þarftu ekki, sagði Madeline. En henni var unun að finna hve hugulsamur hann var. KVulDVÖKUNNI HeiæiiiisH R. Burroughs TAKZAPy 3233 i MK POSITIVE THAT Aul IS INNOCEWT," SAIP BEN ABEN,"Sii'AF’Lv' BECAUSE HE WODLP WO'rf'AK£ PEFY HIS SHEIIC--" VEKHAPSd TAEZAN Wf WUEEPQUIETL "ANI7 l'LL ACCEF’T THAl THEOEY-- FOZ NOW. 4 Eg er sannfærður um að Ali er saklaus, sagði Ben Aben, einfaldlega vegna þess að hann myndi ekki AFTEK ALL, iT WAS POSSIBlE FOR FAK. CELLV'S KlFLE TO JAfA— IT COUL(7 HAVE SEEN AN ACCIFENT. 'f i2-i7 þora að brjóta gegn boði herra síns Þrátt fyrir allt gat það vel komið fyrir að rifill Kellys hefði bilað, án þess að hann héfði vitað, og slysið orðið af þeim sökuin. Ef til vill, sagði Tarzan ró- lega og eg ætla að halda mér við þá skoðun héðan í frá. Tom og Harry töluðu um það hvor ætti latari konu. | „Komdu heim með mér,“ sagði Tom. „Og eg skal sanna þér að hún er latari.“ I Þeir komu heim til Toms, þar sat kona hans uppi í rúmi með ótal kodda við bakið og var að skræla kartöflur. „Þetta er ekkert,“ sagði Harry. „Komdu heim með mér.“ I Þegar þeir komu heim til Harrys, sáu þeir konu hans, hún sat við logandi eld og var að gráta. „Hvað er að þér?“ sagði Harry, I „Þessi bannsettur eldur er alveg að steikja mig,“ sagði konan. ★ Skota var einn dag boðið út að sigla, en þá var hvasst. í „Nei, þakka þér fyrir,“ sagði | hann. „Eg er nýbúinn að borða góðan miðdegisverð og eg vil ekki hætta á neitt.“ ★ „Slær maðuirnn þinn þér gullhamra, frú Macdonald?“ ! „Já, stundum gerir hann það: Hann segir: „Þú ert dálagleg!14 ★ Skoti, sem hét McShan, átti lítið gistihús í Arkansas, en þar er mikið af eldflugum. Þær eru stórar og lýsa vel. McShan lang- aði til að hafa lýsandi skilti á gistihúsi sínu, en kostnaðurinn kom ætíð í veg fyrir það, þang- að til hann fékk góða hugmynd. | Hann málaði fyrir ofan dyrn- ar hjá sér, með sírópi, orðið „Hótel Shan“ og kvöldin sett- ust eldflugurnar þarna að í stór- hópum. — Þarna er skozk hug- kvæmdasemi! ★ „Getui’ðu ekki lesið auglýs- inguna?“ æpti skógarvörður- inn. „Enginn má fiska á þessu landi!“ „En — en — eg er ekki að fiska á landi,“ svaraði Geordie litli. „Eg er að fiska í vatninu.“ ★ „Það er ekki aðeins það, að hann sé að dansa við stúlkuna mína, heldur átti eg líka pen- inginn, sem hann lét í spilavél- ina.“ ★ Umferðarlögreglan í París- arborg hefir reiknað út, að hver bíleigandi aki aðeins 19 mínút- ur af hverri klukkustund, sem hann er í vagni sínum. Hinn hluti klukkustundarinnar fer í það að stanza við umferðarljós og að leita sér að stað til þess að geyma bílinn á. ★ Einn af olíuhöfðingjum ætl- aði að ferðast heim frá Eng- landi til ævintýrahallarinnar í Austuiiöndum og hafði hóp af fólki með sér. Honum fannst nokkuð þröngt í flugvélinin og hvað gerði hann þá? Hann keypti 15 farmiða handa níu manns, svo að það gæti breitt vel úr sér. Þessu var farþegahópurinn feginn, því að þá, gat hann tek- ið með nægilegt af flutningi,. sem var á við sex manns að þunga.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.