Vísir - 06.04.1960, Qupperneq 12
^ Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann fœra yður fréttir og annað
leetrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
Munið, að þeir sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Miðvikudaginn 6. apríl 1960
Refur í sau&trgæru*
Lögregluþjónn verður upp-
vís að þjófnaðl.
Einn lögregluþjónn Keflavík-
nrkaupstaðar hefur nýlega orð-
fið uppvís að þjófnaði á lögreglu-
stöðinni bar. Hefur hann und-
anfarna mánuði, eða frá því um
6.1. jól, stolið um 12 þúsund
krónum úr hirzlum lögreglu-
stöðvarinnar.
, Svo er mál með vexti, að þeg-
ar dansleikir eru haldnir þar á
staðnum, eru lögregluþjónar
hafðir þar á verði, og er þeim
jafnframt falið að taka við
skemmtanaskatti, sem greiða á
vegna samkomunnar. Lögreglu-
þjónarnir setja þessa upphæð í
umslag og skrifa utan á það
upphæðina, seldan miðafjölda
ö fl., og geyma síðan í skrif-
borðsskúffu á lögreglustöðinni
Þjófur í Lands-
smiðjunni.
Brotizt var inn í fyrrinótt í
Skrifstofur Landssmiðjunnar við
Sölvhólsgötu.
Lítið mun þar hafa verið fé-
.rnætt og laust, en þó fann þjóf-
urinn fimm lengjur af sígarett-
um, sem hann hafði á brott með
sér, og vel mun hann hafa leitað,
því að skúffur voru stungnar
upp og smáspjöll gerð á hús-
munum.
þar til að skrifstofa bæjarfógeta
er opnuð næsta dag, eða eftir
helgina. Þá er þessum umslög-
um skilað, sem eru oft þrjú.
Lögregluþjónn þessi tók upp
já því, að hann stal þessum um-
slögum, einu eða fleirum í
hvert sinn, svo að þau komu
aldtei fram. Álitu þá hinir lög-
regluþjónarnir, að þeim hefði
jverið skilað til bæjarfógeta, en
gjaldkera hans var ekki kunn-
.ugt um að jafnaði hve margir
dansleikir hefðu verið haldnir
hverju sinni. Þó fór svo að lok-
um að gjaldkera fór að gruna
að ekki væri allt með felldu, þvá
að grunsamlegt var hve lítið
kom inn af skemmtanaskatti.
Við rannsókn málsins beindist
síðan ákveðinn grunur að þess-
um manni, og var hann úrskurð-
aður í gæzluvarðhald .
í Keflavík eru sjö lögreglu-
þjónar — að þessum meðtöld-
um — og eru þeir allir búnir
að starfa þar um árabil, nema
þessi maður, sem ér nýr í starfi.
Við rannsókn þessa máls hefur
komið í ljós, að hann mun vera
grunaður um hlutdeild í inn-
broti, er framið var á flugvell-
inum fyrir nokkru, en hann
starfaði þá þar við löggæzlu.
Rannsókn þessa máls er ekki
lokið, og neitar hann allri sök
í því.
Gamble Benedðct strokin
aftur með bíSstjóranum.
Hann er búinn að fá „mexikanskan“
skilnað frá konu sinni.
1. apríl var stolið málverk-
um í bænum St. Paul de
Vense, nærri Nice, fyrir
200.000 dollara. Voru þetta
20 málverk eftir þekkta mál-
ara, meðal annars myndin
hér að ofan eftir Picasso, en
hún heitir „Blómavasi“.
Pluggjöld hækka
innanlands.
Vegna mjög aukins tilkostn-
aðar hækka fargjöld Flugfélags
fslands á flugleiðum innanlands
um tíu af hundraði og farm-
gjöld um 5,2 af hundraði. í
báðum tilfellum er 3% sölu-
skattur innifalinn svo sjálf
fargjaldahækkunin nemur tæp-
um 7% og farmgjaldahækkun
2%.
Þessi hækkun gjalda gildir
frá og með 6. apríl 1960.
8279 lestir til
Akraness frá 1. jan.
2448 lestir meira en í fyrra.
Frá fréttaritara Vísis. —
Akranesi í gær.
Frá áramótum til 1. apríl
hafa Akranesbátar aflað 8279
lestir í 920 róðrum en á sama
tímabili í fyrra var aflinn 5831
lest í 650 róðrurn.
Afli einstakra báta er sem
hér segir:
M.b. Sigrún 677 kg.
— Sigurvon 584 —
— Sigurður 530 —
— Sv. Guðmundss. 522 —
— Sæfari 512 —
— Heimaskagi .... 509 —
—• Böðvar 499 —
—■ Ólafur Magnss. 488 —
— Höfrungur 485 —
— Skipaskagi r 457 —
Sæfaxi aftur
á lofti.
Katalínaflugvél Flugfélags
íslands Sæfaxi mun nú hefja
flug að nýju eftir að ársskoðun
flugvélarinnar hefir farið fram.
Áætlað var, að skoðun yrði lok-
ið um mánaðamót, en hún tók
nokkrum dögum lengri tíma.
Sæfaxi mun nú fljúga til sömu
staða og áður, Vestfjarða og
Siglufjarðar,
Snjókoma á
NV.-landi.
í morgun var norðaustan
hvassviðri og snjókoma með
1—3 stiga frosti á Norðvest-
urlandi, en suðaustanátt og
Ásbjörn 407 — . rigning og 7 stiga hiti suð-
Ásmundur 373 — austanlands.
Fram 344 — í Rvk. var norðaustan
Farsæll 336 — kaldi og 5 stiga hiti. Rigning.
Höfrungur I .... 328 — Urkoma í nót 3.4 mm.
Bjarni Jóhanness. 305 — Djúp lægðarmiðja skammt
Keilir 253 — suður af Grindavík.
Sigurfari 238 — Veðurhorfur í Rvk. og ná-
Reynir . 203 — grenni: Norðaustan og síðar
Svanur 139 — suðaustan strekkingur. Hiti
Ver ■ ■. 46 — 4—7 stig. Rigning með köfl-
Gissur Hvíti o. fl. 34 — um.
Bandarískar fregnir herma,'
að Gamble Benedict sé strokin
að heiman á nýjan leik.
Þessi auðuga. bandaríska
stúlka, var í heimsfréttunum |
nokkrar vikur á s.l. ári, eftir að .
hún strauk með bílstjóra af,
rúmenskum ættum til Evrópu. ■
Fóru þau með leynd á flutn-
ingaskipi, kornust til Parísar,
og var Gamble loks lokkuð
heim með brögðum, en bílstjór-
inn sat eftir með sárt ennið.
Hann er kvæntur maður sem
kunnugt er af fvrri fregnum.
Ekki hefur allt verið kyrrt
um málið síðan er Gamble kom
aftur heim til mömmu sinnar í
skrauthýsinu við Fifth Avenue,
en ekki hefur Gamble unað þar
betur en áður, þar sem hún er
horfin á nýjan leik. Er nú talið,
að hún og unnustinn, Perambu,
hafi náð saman og ætli að láta
gefa sig saman á nýjan leik.
Gamble Benedict.
Hann er sem sé sagður vera
búinn að fá skilnað frá konu
sinni, en að vísu í Mesíco, og
er ekki víst að allir erfiðleikar
séu að baki fyrir elskendunum,
þótt þau láti nú gefa sig sam-
an, því að upp kann að koma
deila um „hvort mexicanskur
hjónaskilnaður“ sé löglegur.
Áætlunarbílar komast
ekki leiðar sinnar.
Frá fréttaritará Vísis.
Akureyri í morgun.
Lögreglan hér stöðvaði öðru
sinni í morgun þyngri bíla og
lét vigta þá, og reyndust nokkr-
ir of þungir til að aka eftir veg-
um, sem hættast er við
skemmdum meðan frost er að
fara úr jörðu
Tveir Norðurleiðabílar komu
norður 30 marz, en komust
ekki lengra en til Sauðár-
króks, en þangað hafði hann
farið til að koma farþegunum
af sér í flóabátinn Drang, svo
að þeir kæmust leiðar sinnar.
Einnig eru bílar tepptir í
Reykjaviík, sem hafa ekki leyfi
til að aka hingað vegna þung-
ans.
Hnuplað úr íbúðarhúsum.
Allmikið hefur borið á smá-
hnupli hér að undanförnu. Hef-
ur einkum verið farið inn í for-
stofur og ganga íbúarhúsa og
stolið . helzt úr yfh'höfnum,
mest 500 krónum, svo vitað sé
um Lögreglan hefur náð í einn
ungling, sem reyndist sekur um
slíkan verknað Málið er annars
í rannsókn
Landlega við Faxaflóa
og Breiðafjörð í dag.
Netafiskurinn óvenju smár.
Síðustu dagana hefur verið liér belgískt eftirlitsskip, Brouwer,
sem fylgist með belgísku togurum hér við land. Myndin er tekin
í gær, þar sem skipið var í „herskipalægi“ kafnarinnar.
(Ljósm. G. J. T.)
í dag eru bátar almennt ekki
á sjó, einstaka bátur hefur þó
farið að vitja neta sinna, þrátt
fyrir leiðinda veður.
í gær hvessti af norðaustri í
Faxaflóa og Breiðafirði. Bátar
frá Reykjavík og Akranesi
voru .úti, sömuleiðis Hafnar-
fjarðarbátar, en Keflavíkingar
gátu ekki róið. í dag eru flestir
bátar í höfn og er þetta annar
landlegudagurinn hjá Olafsvík-
urbátum og öðrum bátum við
Breiðafjörð,
Afli hefur yfiiieitt ekki ver-
ið mikill undanfarna daga þótt
einstaka bátar hafi fengið góða
róðra. Það vekur talsverða
furðu hve fiskurinn er smár í
Faxaflóa og virðist hér um all-
sterka göngu af þorski af miðl-
ungsstærð. Þykir sjómönnum
það benda til að áframhald
verði á afla og ekki ósennilegt
að dragist vel á færi þegar
kemur lengra fram á vor.
Morösamsæri
í Jordaníu.
Komist hefur upp uin sam-
særi f Jordaniu. Atti að myrða
forsæíisráðherrann fyrir rúmri
viku, er hann gengi til bæna-
gjörðar.
Tólf menn hafa verið hand-
teknir. Fjórir þeirra eru fyrr-
verandi liðsforingjar, en einn
er kaupsýslumaður.