Vísir - 13.04.1960, Síða 11
Miðvikudaginn 13. apríl 1960
- : I"1" i " ..
VÍSIB
ir
Segavarnir gefast hér vel gegn mann-
skæðasta sjúkdómi þjóðarinnar.
Læknarnir viija færa út kvíarnar og þurfa
aukið húsrými við Landspítaiann.
Forstöðumaður lyflækninga-
deildar Landspítalans, Sigurður
Samúelsson prófessor og Theó-
dór Skúlason yfirlæknir, áttu
fund með blaðamönnum í gær
til að skýra frá svokölluðum
segavörnum, sem deildin hefur
haft með höndum í hálft fjórða
ár. Tilgangur meðferðarinnar
er að koma í veg fyrir blóðsega-
myndun, og hefur einkum ver-
ið beitt við sjúklinga, sem þeg-
ar hafa fengið æðastíflu til að
aftra því, að ný stífla myndist.
Fyrir nálega 15 árum var
fyrst hafin skipuleg læknismeð
ferð á stíflu i kransæðum hjart-
ans og útlimaæðum, sem verð-
ur af völdum blóðstorku eða
blóðkakkar, sem sezt í æðar
og nefnist blóðsegi eða segi.
Meðferðin er kölluð segavarnir
og standa Norðurlönd einna
fremst í þeim, einkum lyflækn-
ingadeild Ríkisspítalans í Osló,
sem próf. P. A. Owren veitir
forstöðu. Hans aðferð hefur
þótt gefast einna bezt, og leitaði
lyflækningadeild Landspítalans
til hans haustið 1955, og fór
Ólafur Geirsson læknir héðan
til að kynna sér rannsóknir og
meðferð á æðastíflu, og hefur
hann með höndum tæknilegu
hliðina á segavörnum hér. Og
nú á dögunum veitti Alþingi
100 þús. krónur í þessu skyni.
Lyf þau, sem notuð eru við
þetta, hafa þann eiginleika að
minnka storkunai-hæfi blóðsins,
en af því leiðir að minni hætta
er á, að blóðsegar myndist, eða
storka hlaðist utan á þá, sem
fyrir eru. Lyfið reyndist vel við
sjúklinga með æðakölkun. Lyf-
ið er gefið i töflum einu sinni á
sólarhring, stór skammtur í
fyrstu, en minnkar eftir blóð-
mælingum niður í viðhalds-
skammt. Meðan sjúklingur er
í sjúkrahúsi, er blóð hans tekið
úr æð í olnbogabót, fyrst
vikulega, síðar á 12—14 daga
fresti. Meðferðin stendur mis-
lengi, nokkrar vikur eða mán-
uði við bólgu eða stíflu í blá-
æðum, en árum saman við stíflu
í kransæðum hjartans og slag-
æðum útlima.
Bráðnauðsynlegt er að þeir,
sem meðferðina fá, taki lyfið
reglulega, eins og fyrir er lagt,
annars er hættara við æðastíflu.
Meðferðina geta fengið 1)
allir sjúklingar með nýja krans-
æðastíflu, og þeir, sem hafa
einkenni yfirvofandi stíflu. 2)
sjúklingar með blóðsega í lung-
um. 3) sjúklingar með æða-
bólgu og blóðsega í útlimaæð-
um. Hér í Landspítalanum hafa
400 manns notið meðferðarinn-
ar nærri eingöngu fólk, er þeg-
ar hefir fengið stíflu eða bólgu i
seðum. Þó þyrfti að byrja með-
ferð sem fyrst eftir að sjúk-
dómseinkenni gera vart við sig.
áður en stífla í kransæðum
hefur komið fram, Þá stækkar
líka hópurinn til mikils muna.
Árangurinn er fyllilega sam-
bærilegur því sem gerist á.
samskonar sjúkrahúsum erlend-
is, og dánartala sjúklinga lækk-
að til mikilla muna, en skv.
heilbrigðisskýrslum eru hjarta-
æðasjúkdómar algengasta
dauðaorsök þjóðarinnar, 1,6 af
þúsundi landsmanna — hefur
12—14 faldast siðan heilbrigðis-
skýrslur hófust 1905, þar næst
krabbameinið með 1,3 af þús-
undi.
Vegna ýmissa aðstæðna í
Landsspítalanum, sagði Sigurð-
ur pi'ófessor að lokum, höfum
við hingað til nærri eingöngu
getað sinnt þeim, sem þegar
hafa fengið kransæðastiflu, en
við höfum mikinn hug á að
færa út kvíarnar og taka til
meðferðar alla þá, sem einkenni
hafa um kransæðakölkun. Er
það eitt af mörgu, sem ýtir
mjög á, að aukið húsrými fá-
ist sem allra fyrst hér við Lands
spítalann, Ef marka má undan-
gengna reynslu í sjúkdómavörn
um, svo sem sullaveiki- og
berklavarnir, er full ástæða til
að ætla, að dánartala af völd-
um mannskæðasta sjúkdóms
þjóðarinnar lækki enn til mik-
illa muna, ef unnt verður að
efla segavarnir frá því sem nú
er.
Þess skal að lokum getið, að
segavarnir og meðferð á blóð-
sega hafa verið teknar upp í
Landakotsspítala og Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri.
Skákþing íslands
hefst á skírdag.
20 keppa í meistaraflokki.
Fyrsta uniferð á skákþingi
íslands hefst kl. 2 e. h. á skír-
dag £ Breiðfirðingabúð. Keppl
verður í landsliðsflokki og
meistaraflokki.
Að þessu sinni keppa 16 í
Banda hvikar hvergi.
Hastings Banda hefur enn
lýst yfir, að hann muni rjúfa
Mið-Afríkubandalagið — því að
Njassaland eigi ekki í því að
vera.
Hann endurnýjaði kröfur sín-
ar um, að sleppt væri úr haldi
140 mönnum, sem handteknir
voru um sama leyti og hann.
KveSst hann hvergi niun. hvika
frá þessari afstöðu.
landsliðsflokki og 20 í meistara-
flokki. Meðal keppenda í lands-
liðsflokki má nefna Guðmund
Pálmason, Gunnar Gunnarsson j
| og Freystein Þorbergsson. Af j
utanbæjarmönnum má nefna
i Pál G. Jónsson, Halldór Jóns-
! son. Þáttakendur í meistara-
■ flokki eru flestir úr Reykjavík,
j en einnig eiga þar fulltrúa Ak-
ureyringar, Akurnesingar, Hafn-
jfirðingar Selfyssingar, Vest-
1 mannaeyingar og Norðfirðing-
1 ar.
Keppt verður í báðum flokk-
um éftir Monradkerfi. íslands-
meistarinn Ingi R. Jóhannsson
i mun ekki verja meistaratitilinn
að þessu sinni. Aðalfundur Skák
sambandsins verður 22. rpríl
en mótinu Ifkro. þann- d?.g , • .
Nýr bræðingur —
Frh. at 1. síðu.
Öll Norðurlöndin nema ís-
land munu greiða tillögu
Kanada og Bandaríkjanna
atkvæði. Mikla undrun hef-
ur valcið fylgi Danmerkur
við hana.
Ástæðan er sú, að Bretar
gáfu Dönum fyrir tveimur dög-
um loforð bak við tjöldin um
sérsamning varðandi fiskveið-
ar þeirra á ytra sex mílna belt-
inu við Færeyjar — þ. e. Bret-
ar fallist á þrátt fyrir 10 ára
fiskveiðiréttindin, að fiska þar
aðeins 5—6 ár.
Féllust þá Danir á stuðning
við tillöguna án nokkurs opin-
bers fyrirvara,
en Færeyingarnir hér á ráð-
stefnunni mótmæla kröftug-
lega. Paturson gengur ber-
serksgang og hefur ritað liarð
ort mótmælabréf um þetta
framferði Dana. Fellur þá
Færeyja-fiskveiðasamningur
Daua og Breta frá 1959 úr
gildi.
Engin slík ívilnunarákvæði'
eru veitt Dönum við Græn-
land, enda telja þeir fisk
nægan þar næstu 10 ár, svo
að veiðar erlendra fiski-
manna skaði ekki.
Fast er sótzt eftir fylgi við (
bræðinginn og boðið upp á
gull og græna skóga til stuðn
ings við hann.
Hvorki Hare aðalfulltrúi
Breta né SirGerald varafulltrúi
voru viðstaddir er Guðmundur
í. Guðmundsson flutti ræðu sína
í dag. Eftjr ræðuna kom Hare
inn í salinn og afsakaði frávist
sína og bar við tilfæringu nafna
á ræðumannalistanum. Ég átti
tal við hann í kvöld og kvaðst
hann ekkert geta sagt um ræð-
una.
Rollestoh skrifstofustjóri
brezka fiskimálaráðuneytisins
sagði hana góða (all right). en
danskur sendinefndarmaður
sagði: Þar Jengu þeir á hann
(der fik de paa tilen).
Ræðan vakti mikla athygli.
Mestur hluti hennar var sím-
aður orðrétt héðan til brezku
blaðanna.
Sú spurning lieyrist nú æ
oftar hér, hvað Island muni
gera ef samkomulag næst um
bræðinginn, en íslenzka sendi
nefndin verst allra frétta og
erlendu fréttamennirnir hafa
engin svör fengið við spurn-
.íngumii.
Tjarnarbíó:
Hjúskaparmiðlarínn.
Tjarnarbíó sýnir í fyrsta sinn
á annan í páskum kvikmyndina
Hjúskaparmiðlarinn, heims-
kunna ameríska kvikmynd, sem
gerð er eftir samnefndu leikriti
Thornton Wilders (The Match-
maker). Með hlutverkin fara
Shirley Booth, Anthony Perk-
ins, Shirley MacLaine, Paul
Ford o. m. fl. Kvikmyndin hefst
'á því, að frú Levi (Shirley;
|Booth), veraldarvön ekkja, sen\
starfar sem hjúskaparmiðlari,
| tekur að sér að útvega auðugun*
kaupsýslumanni konuefni. eit'
ákveður þó að reyna að krækjcí
í hann sjálf. Spinnst út af þessií
margt spaugilegt sem ekkE
verður rakið.
ÍU
Auglýsing
um skoðun bifreiða í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur.
Samkvæmt umferðarlögum tilkynnist hér með, að aðal-
skoðun bifreiða fer fram 22. apríl til 11. ágúst n.k., a<S
báðum dögum meðtöldum, svo sem hér segir:
Föstud. 22. apríl R-1 til R- 150
Mánud. 25. — R-151 — R- 300 -í
Þriðjud. 26. — R-301 — R- 450 i
Miðvikud. 27. — R-451 — R- 600 \
Fimmtud. 28. — R-601 — F<- 750 4
Föstud. 29. — R-751 — R- 900
Mánud. 2. maí R-901 — R-1050 l
Þriðjud. 3. — R-1051 — R-1200 t
Miðvikud. 4. — R-1201 — R-1400
Fimmtud. 5. — R-1401 — R-1550 ]
Föstud. 6. — R-1551 — R-1650 , : 1
Mánud. 9. — R-1651 — R-1800 Í
Þriðjud. • 10. — R-1801 — R-1950 I
Miðvikud. 11. — R-1951 — R-2100 5
Fimmtud. 12. — R-2101 — R-2250 í
Föstud. 13. — R-2251 — R-2400
Mánud. 16. — R-2401 — R-2550 ,rt i.
Þriðjud. 17. — R-2551 — R-2700
Miðvikud. 1«. — R-2701 — R-2850 ‘X !
Fimmtud. 19. — R-2851 — R-3000
Föstud. 20. — R-3001 — R-3150
Mánud. 23. — R-3151 — R-3300 f
Þriðjud. 24. — R-3301 — R-3450 i
Miðvikud. 25. — R-3451 — R-3600 !
Föstud. 27. — R-3601 — R-3750 'rý
Mánud. 30. — R-3751 — R-3900
Þriðjud. 31. — R-3901 — R-4050 \
Miðvikud. 1. júní R-4051 — R-4200
Fimmtud. 2. — R-4201 — R-4350 ’Ítv'
Föstud. 3. — R-4351 — R-4500
Þriðjud. 7. — R-4501 — R-4650 ' f
Miðvikud. 8. — R-4651 — R-4800 ’' '
Fimmtud. 9. — R-4801 — R-4950 i T
Föstud. 10. — R-4951 _ R-5100
Mánud. 13. — R-5101 — R-5250 ►
Þriðju.d. 14. — R-5251 — R-5400
Miðvikud. 15. — R-5401 — R-5550 r
Fimmtud. 16. — R-5551 — R-5700 ; j
Mánud. 20. — R-5701 — R-5850 i T
Þriðjud. 21. — R-5851 — R-6000
Miðvikud. 22. — R-6001 — R-6150 •
Fimmtud. 23. — R-6151 — R-6300 1 i
Föstud. 24. — R-6301 — R-6450 \
Mánud. 27. — R-6451 — R-6600
Þriðjud. 28. — R-6601 — R-6750
Miðvikud. 29. — R-6751 — R-6900
Fimmtud. 30. — R-6901 — R-7050
Auglýsing um skoðunardaga bifreiða frá R-7051 lil
R-11300 verður birt síðar.
Skoðun á bifreiðum, sem eru í notkun hér í bænum,
en skrásettar annars staðar fer fram 2. til 13. maí.
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sínar til
bifreiðaeftirlitsins, Borgartúni 7, og verður skoðun fram-
kvæmd þar daglega, kl. 9—12 og kl. 13—16,30, nema föstu-
daga tií kl. 18,30.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram
fullgild ökuskírteini.
Sýna ber skilríki fyrir því, að bifreiðaskattur og vá-
iryggingariðgjöld ökumanna fyrir árið 1959 séu greidd, og
lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi. Hafi
iöld þessi ekki verið greidd, verður skoðun ekki fram-
:væmd og bfirðein stöðvuð, þar til gjöldin eru greidd.
Vanræki cinhver að koma biireið sinni til skoðimar n
éttum degi, verður hann látinn sæta sektum sar.ilívæir.t
uuferðarlögum og lögum um bifreiðaskatt og bifreiðin tekin
sir umferð, hvar sem til hennar næst.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli.
Löreglustjórinn í Reykjavík, 11. apríl 1960.
SIGURJÖN SIGURÐSSON.