Vísir - 22.04.1960, Blaðsíða 6

Vísir - 22.04.1960, Blaðsíða 6
vfsiB Föstudagirm 22. apríl 1960 WXSXR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjóriíarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: 11660 (fimm línur). Vísir kostar kr. 30,00 í áskrift á mánuði. Kr. 3,00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. Byrði hins hvíta ntaitns. !í Undanfai'nar vikur hafa váleg- ar fregnir borizt frá Suður-] Afríku. Þeldökkir menn hafa ] fallið svo tugum skiptir íyrir kúlum lögreglumanna Verwoerdstjórnarinnar, ; hundruð manna iiggja í sár- i um, og enn fleiri hundruð ! hafa verið hneppt í fangelsi. Stjórnarvöld þar syðra segja, að árekstrar þessir stafi af þvi, að þeldökkir menn neiti að hlýða ,,lögum“ ! landsins, það er lögum hvítra manna, sem meðal annars gera blökkumönnum það að ! skyldu að bera á sér vega- bréf, sem í raun réttri eru viðurkenning á átthaga- fjötrum og ófrelsistákn, líkt og er Gyðingum í Þýzkalandi á Hitlerstímanum var fyrir- skipað að bera gul auðkenni. Með þessari skýringu Ver- woerds og manna hans er sagan vitanlega ekki nema i hálf sögð. Á öllum sviðum 1 eru blökkumenn lægra settir en hvítir menn. Þeim er fyr- j irmunað að hafa áhxúf á stjórn landsins, þeir skulu búa í séi'stökum hverfum, 1 þeir sækja séi'slcóla, að svo jniklu leyti sem þeir eiga kost á uppfræðslu, og þeir mega ekki einu sinni sækja sömu kirkju og hvítir menn. ;* Hugsanlega mega þeir hafa sama guð og yfirdrottnarar þeii'ra, en alla vega mega þeir ekki tilbiðja hann undir sama þaki. Um allan hinn siðmenntaða heim fyllast menn hryllingi yfir atferli Suður-Afríku- stjói’nar. Eitt sinn héldu menn, að þeir Malan og Strijdom, fyriri'ennarar Ver- woerds í embætti, væru ímynd siðlausrar kúgunar, en lengi getur vont versnað. Skáldið Kipling minnist á „byi'ði hins hvíta manns“. Sennilega hefur hann með því átt við menningarhlut- verk hins hvíta manns, þegar allt er með felldu, þá við- leitni hans að létta kjör hins snauða múgs í nýlendum J Breta fyrr á tímum. Vissu- lega hafa samskipti hvítra manna og svartra sjaldnast verið með þeim hætti, sem nú er í Suður-Afríku. En byröi hinna hvítu manna Suður-Afríku með afkom- endur Búanna í farai’broddi, vei'ður þeim óbærileg á fleiri en einn hátt, áður en lýkur, ef ekki verður tekin upp önnur og mannúðlegi'i stefna. Nýstárleg húsgagnasýning. Kúsga^naarkitektar sýna nýjustu framietðslu. Félag húsgagnaarkitekta hef- ur nýlega opnað fyrstu sýningu sína á íslenzkum húsgögn- um, og er hún íil húsa í nýbygg ingu Almennra trygginga hjf. við Pósthússtræti 9. Á sýningunni ei’u eingöngu húsgögn, sem nokkrir félags- menn hafa teiknað, og fram- leidd eru af nokkrum húsganga smíðameisturum og bólstrur- um. Er vel vandað til sýn.ingai’- innar, en hvei’jum arkitekt er afmarkað svæði, svo að mönn- um gefist kostur á að sjá nokkra heildarmynd af verk- um hvers fyrir sig. Smíðisgi'ip- ir þeir, sem þarna eru hafa ekki verið framleiddir áðui', og er því þarna eingöngu um nýj- ar gerðir nútíma liúsgagna að ræða. í samband.í við sýninguna er sýning á nokkrum olíumálverk- um eftir Jón Stefánsson, sem aldi'ei hafa verið sýnd opinber- lega hér á landi áður, og eru sumar þeirra til sölu. Þeir húsgagnaarkitektar, sem þarna sýna gripi sína, eru Hall- dór Hjálmarsson, Hjalti Geir Kristjánsson, Kjartan Á. Kjart- ansson, Árni Jónsson, Helgi i Hallgrímsson. Sveinn Kjarval, Gunnar Theodórsson og Páll Guðmundsson. Sýningin er opin daglega kl. 2—10 e. h. og lýkur sunnudag- inn 24. þ. m. Þess skal getið, að hver aðgöngumiði er jafnframt happdrættismiði og eru vinn- ingarnir þrír, húsgögn að verð- mæti um 9 þúsund krónur. „Það er von okkar,“ segir í sýningarskrá, ,,að sýning þessi megi bera þann ávöxt, að hér eftir, verði haldnar slíkar sýn- ingar með ákveðnu millibili, þar sem húsgagnaarkitektar og meðlimir meistarafélaga hús- gangasmiða og húsgangabólstr- ara taka höndum saman. Er- lendis hefur slíkt samstarf ver- ið húsgagnaiðnaðinum mikil lyftistöng, og vonum við að hér Ketjkfaivíliurinótið ; Valur vann Víking - 5:0. Þáttur kirkjunnar. Það hefur og vakið menn um allan heim til umhugsunar um þessi mál, með hverjum hætti kristin kirkja í Suður- Afríku hefir brugðizt við nauð blökkumanna og kröm. Kalvínskirkja Suður-Afríku hefur gersamlega brugðizt hlutverki sínu og sannað, að hún er ómannúðlega, grimm og heimsk. Framferði henn- ar í þessum málum á ekkert skylt við kenningar meistar- ans mikla frá Nazaret. Á hinn bóginn notar ríkisstjórn Suður-Afríku kirkjuna til þess að herða enn tökin á hinum þögla grúa þeldökkra manna. Það er vissulega kaldhæðni ör- laganna, að hér uppi á ís- landi, þar sem menn einu sinni höfðu íyllstu samúð , með Búunum, er þeir áttu í styrjöld við Breta um alda- mótin síðustu, skuli nú vart finnast íslenzkur maður með fullu viti, sem treystir sér til þess að mæla stjórn Suður- Afríku, Búastjórninni, bót. Stundum verður mönnum á að spyrja, hvort stjórnarmenn ; Suður-Afríku séu með réttu 1 ráði. Hafa þeir ekki fyrir 1 löngu séð hið örlagaþrungna „mene tekel“ á veggnum? Halda þeir, að þeir geti til eilífðarnóns kúgað og kvalið yfirgnæfandi meirihluta þel- dökkra meðbræðra sinna? I Suður-Afríku munu nú vera um 11 milljónir blökku- manna og um 3 milljónir hvítra manna, aðallega af- komendur Búanna, svo og menn af brezkum stofni. Nú er það engan veginn svo, að hvítir menn séu þarna að- skotadýr eða nýlega inn- fluttir menn, sem séu að hrekja blökkumenn á brott. Hvítir menn voru fyrr komn- ir til Höfðanýlendu en blökkumenn. Þeir hafa átt þar bólfestu í^neira en þrjár aldir. Og um Suður-Afríku má segja, að hvítum mönnum sé meiri nauðsyn á blökku- mönnum í landinu, en þeim þeldökku á hvítum mönnum. Allt mælir með því, að þarna verði kynstofnarnir því að búa saman, ekki aðeins i ein- hvers konar samlyndi, heldur sem jafnréttháir aðilar. Og þetta á ekki aðeins við um Suður-Afríku, heldur og um Afríku alla og raunar heim- inn allan. Allir menn verða að virða rétt hver annars, að> Fyrsti leikur sumarsins í knattspyrnu fór fram í gær á Melavellinum og léku Valur og Vdkingur. Furðu margir lögðu leið sína á völlinn til að sjá þennan fyrsta leik ársins, þrátt fyrir óhagstætt veður, kulda og strekkingsvind. Og hefur þr ef- laust ráðið hinn óvænti sigur Víkings yfir KR í æfingaleik fyrir nokkrum dögum. En ekki virðast Víking'ar vera á leiðinni með neitt stórlið, eftir leiknum að dæma. Og engar stjörnur á borð við beztu menn Víkings áð- ur fyrr, sem margir hafa . þó vafalaust búizt við eftir frétt- irnar f sigrinum yfir KR í æf- ingaleiknum. Víkingsliðið er að vísu skipað mjög ungum pilt- um með nær því enga keppnis- reynslu né leikhörku á borð við : önnur félög. Og vafalaust geta þeir orðið miklu betri en þeir I sýndu í þessum leik, en það tekur táma. Og vonandi kemur sá tími, að þeir og fleiri lyfta Víking upp, þangað sem þeirra sæti er í íslenzkri knattspykrnu. I Valsmenn tefldu fram nær því sama liði og í fyrra. Þeir léku af miklum krafti og dugn- aði og höfðu mikla yfirburði í leiknum út hann allan. Og var svo til stanslaus sókn af þeirra hálfu allan leikinn. Og hefðu öðrum kosti er voðinn vís. Um alla Aríku rísa nú upp ný og sjálfstæð ríki, sem vit- anlega heimta sinn rétt. Það er ekki seinna vænna fyrir hvita menn að viðurkenna þá staðreynd og semja við hinn mikla meirihluta, blökku- mennina. En stjórnarfyrir- komulag Verwoerds hlýtur að hrynja til grunna, og fall þess verður mikið. mörkin getað orðið mikið fleiri, t. d. áttu þeir þrjú stangarskot. Stutta spilið er þeirra veika hlið, en þó eru í liðinu menn, sem vilja spila stutt, en meirihluta liðsins er tamara að spila með. háum og löngum spyrnum. Og má segja að þar liggi aðalveila þeirra í dag. Bezt léku af hálfu Vals þeir Ægir og Bergsteinn. Mörkin gerðu þeir Gunnlaugur á 6. mín., fyrri hálfleiks með fallegu skoti | upp á hornið. Fyrri hálfleik lauk með þessu eina marki í seinni hálfleik skorar Ægir annað markið á 57. mín. Gunn- laugur skorar þriðja á 64. mín. og fjórða gerir Bergsteinn mjög fallega með skalla beint úr hornspyrnu. Gunnlaugur gerir svo fimmta markið á seinustu mínútu leiksins og sitt þriðja (Hot-Trick). j Völlurinn var ekki sem bezt-, ur, laus fyrir og erfitt að leika á honum. Áhorfendur voru um 1 þúsund. Dómari Baldur Þórð- arson og dæmdi ágætlega. J. B. „Borgari" hefur óskað birting- ar á eftirfarandi smápistli í þess- um dálki: Fréttaflutningui' frá Genf. „Þessar linur eru skrifaðar, þegar ræðuflutningi er að verða lokið í aðalnefndinni á sjóréttar- ráðstefnunni í Genf, og skammt að bíða úrslita um atkvæða- greiðslur þar. Mig langar að það komi fram frá einhverjum blaða lesanda, að greinargóðar fréttir hafa borizt frá því, sem gerzt hefur á sjóréttarráðstefnunni, og jafnharðan. Ríkisstjórnin, ríkis- útvarpið og siðast en sannar- lega ekki sízt blöðin hafa verið vel á verði — sem vera bar — og það er ánægjulegt, að ekki er hér yfir neinu að kvarta, en eins og kunnugt er, hefur rikisstjórn- in oft áður ekki gætt þess, að íslendingar fái fréttir um það sem erlendis gerist, og Island varðar. Vona ég — og áreiðan- lega fleiri — að stjórnarvöldin verði ávallt eins vel á verði og nú i þessum efnum. Baktjaldamakkið á sjói'éttarráðstefnuimi. Það hefur komið greinilega fram í fi'éttum hve mikið bak- tjaldamakk á sér stað i Genf, og einkum að fulltrúar stórveld- anna Bretlands og Bandaríkj- anna hafi þar úti öll spjót til að koma fram bræðingstillögu sinni. Þegar maður les fréttirnar finnst manni eins og það liggi í loftinu, að þau noti sina sterku aðstöðu til að fá minni máttar þjóðir til fylgis við hana. Fróð- legt væri að vita hverju lofað er fyrir stuðninginn, og ljóst er, eins og sagt var í einu skeytinu til Vísis, að lofað er gulli og grænum skógum. Um það leyti og það var símað höfðu Bretar og Bandaríkjamenn ,,húkkað“ í fulltrúa Ghana, sem þrátt fyrir að vera aðili að 18-þjóða tillög- unni, verður allt í einu tilleiðan- legur, að því er virðist til stuðn- ings við bræðinginn. Eining verðiir að haldast. Og nú bíða menn úrslita — úr- slita atkvæðagreiðslu í nefnd og svo lokaúrslita á ráðstefnunni sjálfri. Enginn veit hvað ofan á verður — og kannske ekki neitt kannske fást engin úrslit. En fyrir okkur Islendinga er og verður mikilvægast, hvernig sem fer, að þjóðareining haldist í þessu stórmáli. Og bsri nú full- trúar þjóðarinna’', í Genf og á Alþingi, gæfu ti! að gera það, sem réttast er, og affarasælast landi og þjóð i nútíð og framtíð. — Borgari." Islenzkar barnabækur á sýningu í Noregi. Fyrir nokkru var opnuð í Osló sýning norrænna barna- og unglingabóka. Er hér um að ræða ferðasýn- ingu, sem send verður víðsveg- ar um Noreg, en áður hafði verið efni til hliðstæðra sýn- inga í Svíþjóð og Danmörku. Er það Norræna menningar- málanefndin. sem gengizt hefur fyrir þessari sýningastarfsemi. Á sýninguna í Osló voru fyr- ir atbeina menntamálaráðu- neytisins sendar um 25 íslenzk- ar barna- og unglingabækur, og var um val þeirra haft sam- ráð m. a. við fræðslumálaskrif- j stofuna og Ríkisútgáfu náms- j bóka. Geta má þess, að á bóka- skrá sýningarinnar hefur sem kápumynd verið valin teikning úr íslenzku bókinni „Katla ger- ir uppreisn“ eftir Ragnheiði Jónsdóttur, en sú bók er mynd- skreytt af Sigrúnu Guðjóns- ur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.