Vísir - 22.04.1960, Blaðsíða 12
Ckkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
LátiS hann færa yður fréttir og annað
iestrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
l3H§JHrin /JM rnp Mfe
vlSIR
Munið, að þeir sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaða*-, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
áimi 1-16-60.
Föstudaginn 22. apríl 1960
Róbh átti 2713 ára
afmæli i gær.
Fyrír rúmum 4 öldum v@ru borgarbúar
um 30 þúsuiid.
Sagan segir, að árið 753 fyrir
Krists burð hafi hinn goðum
borni Rómúlus markað „hinni
eilífu Róm“ horgarstæði á liæð-
nnum við Tíberfljót.
Þótt „sérfræðingar“ ýmsir
vilji varpa rýrð á þessa æva-
gömlu sögu halda Rómverjar
nútímans fast við hana og fagna
árlega hinn 21. apríl nýju ári í
ævi borgarinnar. Árið 1960 er
því borgin talin 2.713 ára
gömul.
Allir borgarbúar, sem vetlingi
geta valdið, taka þátt í afmæl-
ishátíðahöldunum. Börnin fá
frí úr skólunum, farartæki eru
skreytt fánum, og miklar skrúð-
göngur farnar.
Það er margt sem á daga
borgarinnar hefur drifið. Hún
hefur oft þoláð gjöreyðingu en
verið endurreist jafnskjótt aft-
ur. Hún var eitt sinn allsráðandi
heimsveldi, seinna sigruð og
rænd. Eitt sinn fögnuðu borgar-
arnir þegar kristnir menn voru
hraktir fyrir ljónin og þau
tættu þá í sundur. Nú er borgin
aðsetur' páfans, hins andlega
yfirboðara milljóna kaþólskra
manna.
Á blómatíma borgarinnar
eru íbúar hennar taldir hafa
verið 1.5 millj. Síðan fór þeim
ört fækkandi svo að árið 1527
voru þeir aðeins um 30 þúsund.
Nú eru íbúarnir taldir um 2
millj. og fer stöðugt fjölgandi.
Austur-viðskiptm sérvernduð.
Gylfi ræðir um innflutningsmál.
i Frumvarp ríkisstjórnarinnar
tun innflutnings- og gjaldeyris-
niál var til 1. umræðu á mið-
vikudag. Viðskiptamálaráð-
herra Gylfi Þ. Gíslason fylgdi
ffumvarpinu úr hlaði með ýtar-
légri ræðu. Hann rakti á hlut-
láusan og greinargóðan hátt á-
fanga í sögu íslenzkra við-
skiptamála. Þá gerði hann sér-
staka grein fyrir grundvallar-
atriðum frumvarpsins og efni
þess í heild.
Það kom greinilega fram í
ræðu ráðherrans að ríkisstjórn-
in hefði gjarnan viljað gefa all-
an innflutninginn frjáslan. Sem
kunnugt er verður nokkur
Lundúnablöð skýra frá því,
að R. Ambrose Reeves, bisk-
up Ensku kikjunnar í Jó-
hannesarborg, sem hvarf
fyrir nokkru og kom fram
\ í Swasilandi, muni ávarpa
fjöldafund í Westminster,
London í næsta mánuði
hluti innflutnings háður leyfis-
veitingum en yfirleitt er það
formsatriði. Með þessu á að
koma í veg fyrir að vörur sams
konar og við óhjákvæmilega
verðum að kaupa frá járntjalds-
löndunum verði keyptar á
frjálsa markaðnum á Vestur-
löndum. Við erum skuldbund-
in til viðskiptanna við Austur-
Evrópu og getum auk þess ekki
í fljótu bragði fundið aðra
markaði fyrir vörur þær sem
við seljum þangað. — En ef við-
skiptin yrðu öll gefin frjáls
mundi það mjög sennilega leiða
til þess að varningurinn frá
A.-Evrópu yrði ekki keyptur og
þá væri ómögulegt að standa
við gerða samninga. Gæði og
gerð hinnar austrænu vöru eru
oft ekki að skapi okkar.
Það er því ekki annað að
j skilja á orðum ráðherrans en
verið sé að vernda með höftum
! verzlunina við járntjaldsríkin.
Nokkrir góðir Fáksmenn komu í heimsókn í gær, þegar verið
var að skemmta börnunum í miðbænum. Hér sést Sigurður
Ólafsson, söngvarinn góðkunni, til vinstri, en því miður kunn-
um við ekki að nafngreina félaga hans. (Ljósm. P.Ó.)
S.-Kóreustjórn fer frá.
Þjóðþingíð kemur saman í dag. E. t. v. eina lausnin,
að Rhee fari frá og kosið verði á ný.
Fyrírlestitr imt
víkingaferðir.
Prófessor Apostolos Das-
calakis, fyrrv. rektor Háskólans
í Aþenu, sem er staddur hér á
vegum Háskóla íslands og
Evrópuráðsins, flytur fyrirlest-
ur í hátíðasal Háskólans í
kvöld kl. 20.30 um „Heimildir
í grískum sögnum um víkinga-
ferðir í Grikklandi“.
Fyrirlesturipn verður fluttur
á ensku og er öllum heimill að-
gangur.
Námsstyrkur
i Finnlandi.
Finnsk stjórnarvöld liafa á-
kveðið að veita íslendingi styrk
að fjárhæð 350.000 finnsk mörk
til háskólanáms eðá rannsókn-
arstarfa í Finnlandi skólaárið
1960—61.
Styrkþegi skal dveljast eigi
skemur en átta mánuði í Finn-
I
jlandi, þar af minnst fjóra mán-
uði við nám eða vísindastörf
við háskóla, en kennsla í
finnskum háskólum hefst um
miðjan septembermánuð ár
hvert.
Umsóknir um styrkinn send-
ist menntamálaráðuneytinu fyr-
ir 20. maí nk. og fylgi staðfest
afrit prófskírteina, svo og með-
mæli, ef til eru. Umsóknareyðu-
blöð fást í ráðuneytinu og hjá
sendiráðum íslands erlendis.
Hér sjáum við vorgyðjuna í hásæti sínu við Lækjargötu, en
Jjinum megin mun Vetur konungur sitja. (Ljósm. St. N.)
Stjórn Suður-Kóreu hefur
beðist lausnar og kemur þingið
saman til fundar í dag til þess
að ræða ástand og horfur.
Brezk blöð í morgun fara ó-
vægilegum orðum um harð-
stjórn Syngman’s Rhee og
segja, að það eina, sem geti
orðið til bjargar sé, að hann
biðjist lausnar og efnt verði til
nýrra kosninga.
I Seoul og öðrum borgum
eru hersveitir gráar fyrir járn-
um og virtist svo, eftir fregn'
um í gærkvöídi að dæma, að
allsendis óvíst væri, að tekist
hefði að bæla niður byltingar-
tilraunina með öllu. Brynvarð-
ar bifreiðir eru við allar bygg-
ingar og öflugur hervörður við
samgöngumiðstöðvar, flugvelli
landsins og víðar, og hvarvetna
getur hermenn að líta.
Brezk blöð fagna því, að
Bandaríkjastjórn hefur tekið
ákveðnari afstöðu. Blöðin
minna á, að Syngman Rhee hafi
átt og eigi allt undir stuðningi
Bandaríkjanna, en hann haíi
notað þann stuðning til að koma
á litlu minni harðstjórn og of-
beldi en hann í uppahfi setti
sér að uppræta. í því sé harm-
leikurinn fólginn. Að eins eitt
geti þessi blindaði maður haft
sér til afsökunar, að hann hafi
tekið þá stefnu sem hann gerði
af ættjarðarást — en sú stefna
hafi reynst skökk svo sem nú
sé komið í ljós.
Á þriðja hundrað manns
munu hafa fallið og á annað
þúsund særst í byltingartil-
rauninni.
Námamenn
farast.
Sex námamenn biðu bana í
námaslysi 1 Vestur-Þýzkalandi
í síðustu viku.
Lokuðust þeir inni í kola-
námu skammt frá Aachen, án
þess að vitað sér um orsök
slyssins. en þegar til þeirra
náðist, voru þeir allir örendir.
Kristleifur Guðbjörnsson sig-
urvegari í Víðavangshlaupinu.
HiáiþéJffi dugði ekki.
Lög fif öryggís réttlndum blökkufólks
samþykkt í Bandarékjumim.
Fulltrúadeild Bandaríkja-
þings hefur samþykkt og af-
greitt sem lög frumvarpið um
borgaraleg réttindi (Civil
Riglits Bill) og sent forsetan-
um til undirritunar.
Næstum frá þingbyrjun í
janúar hefur verið haldið uppi
málþófi í þinginu til þess að
hindra framgang laganna og
voru þáð 18 þingmenn í öld-
ungadeildinni, allir frá Suður-
ríkjunum, sem aðallega héldu
því uppi.
í lögunum eru ákvæði tiJ
tryggingar því, að blökkufólk
geti notið kosningarréttar síns,
og ákvæði til hindrunar því, að-
unnt sé að ónýta í framkvæmd
úrskui’ði dómstóla varðandi
samaðild blakkra og hvítra að
skólum o. fl.
Hér er talið um gagnmerka
lagabót að ræða til aukins ör-
yggis réttindum blökkufólks.