Vísir


Vísir - 22.04.1960, Qupperneq 11

Vísir - 22.04.1960, Qupperneq 11
Föstudaginn 22. apríl 1960 VlSIB II Sigrún á Sunnuhvoli er sýnd í Stjörnubíói við ágæta aðsókn. Myndin hér að ofan er af sænsku leikkonunni Olgu Allelöv, sem leikur Ingiríði i Grenihlíð, vinstúlku Sigrúnar. „ ... að sitja kyrr á sama stað og samt að vera að ferðast". Stutt ferð tíl Glasgow. Flogið með penna yfir landakort. Fyrst öryggi, síðan öryggi, og enn öryggi. Það virðast vera einkunnar- orð Flugfélags íslands og starfs manna þess. „Það er ekki nægi- legt að sitja á skólabekk", sagðd Örn Johnson við blaðamenn s.I. viku, þegar hann var að sýna þeim kennslutæki félags- ins. „Það er reynslan, sem hef- ur mest að segja. Og þó er ekki nægilegt að hafa langt starf að baki, heldur þarf áframhald- andi lærdómur að koma til, stöðug þjálfun og kennsla. Það er svo á flestum sviðum, og al- veg sérstaklega á sviði flug- mála, þar sem tækndn er í stöð- ugrd framför og ný tæki bæt- ast við svo til á hverjum degi.“ Flugfélag íslands hefur á hverjum tíma lagt ríka áherzlu á að flugliðar erlendis, sem beztrar kennslu og þjálfunar eru aðnjótandi. . . og þess vegna fengu þeir eitt Link-tæki. Það er nefnilega það al-öx-ugg- asta að hafa slíkt tæki við höndina til að þjálfa fluglið- ana. Það sáu blaðamennirnir bezt, sem komu til að skoða skólann. Link-tækið er nokkurs konar flugvél, sem þó aldrei flýgur, en gerir samt allt, sem venjuleg ar flugvélar gera — nema fljúga. Flugmaðurinn sezt upp í tækið, og svo er hann lokaður þar inni. Þar situr hann í hægu sæti, og allt í kring um hann eru eintómdr fnælar, takkar skrúfur, pedalar, ljós í öllum litum, talstöðvar og hlustunar- tæki, handföng og margt, margt annað. Þarna situr svo flugmað- ui’inn alveg eins og í sinni eig- in flugvék og nú á hann bara að gjöra svo vel að leggja af stað . . . og fljúga. Við borðið fyrir framan .tækið s,itur kennarinn, og í kring um hann eru líka heill skari af mælitækjum og tökkum, én á sjálfu borðinu er landakort, sem sýnir einhvern flugvöll úti í heimi. Ofan á kortinu er tæki, sem hreyfist eftir kortinu eftir því hvernig flugmaðurinn flýgur, og teiknar um leið rautt strik á kortið. Þannig fylgist kennarinn nákvæml. með því hvort flugmaðurinn gerir rétt. Hann gefur flugmanninum upp vindáttt, vindhraða, skyggni, hæðarpunkta, hvernig hann á að fljúga að vellium og allt þvílíkt, sem ég kann ekki upp að telja, og síðan verður hann að gjöra svo vel að lenda hund- rað prósent rétt, alveg eins og hann sé með 80 farþega innan- borðs. Auðvitað vildum við sjá hvort nokkur mennskur mað- ur gæti gert þetta svo nokkur mynd væri á því, og þessvegna var Björn Guðmudsson flug- stjóri fenginn til að setjast upp í tækið, — og nú átti hann að lenda á Renfrew flugvelli við Glasgow. Björn lokaði að sér öllum lúgum og sá hvergi út. Ég sann- færið mig persónulega um að hann gat hvergi kíkt. Og svo fór flugvélin af stað. Link tæk- ið lagðist á hliðina, þegar Björn tók beygju til að ná réttri stefnu á völlinn, og svo rétti hann sig við, og við sáum nál- ina færast eftir kortinu — i rétta átt. Kennarinn gaf honum upp þær upplýsingar, sem hann þurfti að fá, og fær ávallt i að- flugi. Það var ekkert svindlað. Hann sagði aldrei „beygðu nú til hægri — eða vinstri".. Nei, það varð Björn að finna út sjálfur. Nálin færðist eftir kort- inu með þeim sama hraða, sem flugvélin hefði gert, og allt var eins eðlilegt og hægt var að hufisa sér. Björn vár alveg á „bíminu", og tók strikið beint !yfir völlinn. Svo beygði hann , til hægri yfh’ gyla' ,',sónann“, 1 tók , fjandi mikla beygju, og fnálgaðist nú lendingu. Hæðar- mælirinn færðist sifellt neðar og neðar. Áhorfendurnir fóru að verða spenntir hvort hon- um tækist nú að lenda eins og rnaður, eða hvort hann mundi „krassa“ vélinni utan í hæð, sem er rétt hjá vellinum. Mér var orðið innanbrjósts eins og ég væri farþegi hjá Birni og biði nú með öndina í hálsinum — eins og vant er — eftir því að vita hvort ég slyppi nú lifandi úr þessum lífsháska. Eg kreppti fætui'na undir stól- inn, og greip krampakenndu taki um stólbi’íkurnar. Ég ein- blindi á mælisfjandann, sem mundi sýna eftir örfáar sekund ur hvort ég væri dauður eða lifandi. Líklega hefi ég verið náíölur í framan, -og aumur var ég í jöxlum á eftiir. Samt hefi ég flogið með Bii'ni áður oftar en einu sinni, og aldrei orðið að meini. Það var alveg óþai'fi að vera með þennan aumingjaskap. Björn spilaði á sína takka al- veg eins og ég á ritvélina mína, og er þá mikið sagt. Hann var kominn i 500 feta hæð við end- ann á brautinni, og stéfndi al- veg þráðbeint á hana, þegar kennarinn slökkti á apparatinu og stóð upp. „Nú sér hann brautina sjálf- ur. Hann er lentur,“ mælti sá spaki maður mér til mikils létt- is, og stóð upp. Eg var hólpinn. Hinir virtust ekki hafa tek- ið þessu svona alvarlega. Þeir stóðu hinu megin við boi’ðið og ræddu í ákafa um ,, . ,dí sí ei, æ ell ess, radar reinsj...“ og svo framvegis. En mér var létt í skapi. Ég var kominn til Glasgow. Knrlsson. Arekstur við Kirkjuhvol. Síðastl. miðvikudag milli kl. 15—16 var ekið á rauðleita Volvo-bifreið sem stóð á bíla- stæðinu við Kirkjuhvol gegnt Dómkirkjunnii . . Rannsóknax’lögreglan veit að bíllinn sem olli, stóð við hægri hlið Volvo-bílsins. Þegar hon- um er ekið aftur á bak út af bílastæðinu og lagt fullmikið á stýri hans, svo að hann lendir utan í Vovo-bílnum, beyglar hann og rispar. Tveir menn sáust í bílnum, sem var brúnleit fólksbifreið. Þeir hafa enn ekki gefið sig fram við rannsóknarlögregl- una. Hún vill hér með skora á mennina að géfa sig fram hið fyrsta. Starfsfræðsla á Akranesi. Akranesi í morgun. Fyrsti starfsfræðsludagurinn fyrir unglinga á Akranesi var haldinn hér á annan í páskuin. Ólafur Gunnarsson, sálfræð- ingur kom hjngað með-fulltrúa ýmissa atvinnústétta, sem svör- uðu spurningúm unglinganna. Þátttaka var mikil og þótti a,llt takast : vel. Ólafur Haukur Árnason, skólastjóyi flutti á- varp við o'phúri ’ stárfsfræðslu- dagsins. Andar köldu að Giiou. Forsætisráðherrar Indlands og Kína héldu í gær áfram við- ræðum sínum um landamæra- deiluna. Að því er vitað er hafa þeir ekk kvatt til sérfræðinga, svo að viðræðurnar mega enn heita á undirbúningsstigi. í fyrradag lagði Chou sveig á minnisvarða Mahatma Gandhi og voru nær engir viðstaddir nema öryggis- verðir. — Fátt manna var á götum, sem urn var ekið, og engin blómskreyting. Engir hyltu Chou. — Var þetta allt svo gerólíkt sem vei'ða má frá því sem var, er Eisenhower kom og Krúsév. I Nepal hafa stúdentar o. fl. mótmælt kröfum Kínastjórnar um Mt. Everest og fyrirhugaðri komu Chou til Nepal. Víðavangshlaupið: Sfgurvegari Krfstleifur Guðbjörnsson. Víðavangshlaup Í.R., hið 45., fór fram í gær, sumardagina fyrsta. Keppendur voru skráð- ir 14. Keppendur voru 6 frá íþrótlafélagi Samvinnuskólairs, K:R, Keflavík, Akureyri og Sel* fossi. Hlaupið hófst kl. 2 í tjarnar* garðinum og lauk þar. Sigur* vegai'i varð Kristleifur Guð* björnsson K.R., og sigraði hann með yfii'burðum og virtist því sem næst óþreyttur er hann kom í mark nokkur hundruð metrum á undan næsta manni, sem var Hafsteinn Sveinsson, Selfossi. HATTAHREINSUN Handhreinsum herrahatt* og setjum á silkiborða. i •. Efnalaugin Björg Barmahlíð ð. Stúlka óskast til afgreiðslustarfa nú þegar. SÍLD & FISKUR Bergstaðastræti 37. KONI Höggdeyfar Þessir viðurkenndu stillanlegu höggdeyfai fást venjulega hjá okkur í margar gerðir bifreiða. Útvegum KONI högg- devfa I allar gerðir bifreiða. SMYRILL Húsi Sameinaða. — Sími 1-22-60. TÓMAR FLÖSKUR Framvegis kaupum vér tómar flöskur, merktar einkennisstöfum vorum Á.V.R. í glerið. Flöskurnar skulu vera hreinar og óskemmdar. Móttaka í Nýborg alla virka daga frá kl. 9—12 og 13—18, laugardaga frá kl. 9—12. Fyrir hverja flösku verða greiddar kr. 2,00. 20. apríl 1960. ÁFENGISYERZLUN RÍKISíNS Allt á sama stað Ei.gun{ TIMKEN-LEGUR í mikiu úrvali. fílkjáfsnssðR h.f. Laugávegi'. 118,- sími 22.2.40. i', ;S ■1?y. !

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.