Vísir - 23.04.1960, Qupperneq 1
BO. árg.
90. tbl,
Fhigvéi ferst
með 35 manns.
Belgísk flugvél fórst í gær
í Belgiska Kongó. Rakst hún
á fjallshlíð. Fórust allir, sem
í flugvélinni voru, 28 far-
þegar og 7 manna áhöfn eða
35 manns, m.a. nokkur
börn. Flestir sem fórust
munu hafa verið Belgir. —
Flugvélin. var DC4-gerð.
Bylting kæfð
Stjórn Venezuela tilkynnir
að byltingartilraunin, sem gerí
var um seinustu helgi hafi ver
ið bæld niður.
- Segir í tilkynningu hennar
að uppreistarmenn séu flúnii
til landamæra Columbia, þai
sem innrás var undirbúin.
Isl. tillaga lögð fram í Genf sem
viðbótartillaga við bræðinginn.
Atkvæði u m 10 ára söguleg réftindi
gildi ekki fjrir þjóðir yiii«næi‘andí
háðar fiskveiðum.
Eftir seinustu fregnum að
d‘æma frá Genf gærkvöldi eru
nokkrar líkur til, að bræðings-
tillaga Kanada og Bandaríkj-
anna nái löglegri samþykkt á
sjóréttarráðstefnunni, en þó
verður ekkert um það fullyrt.
Bætt er í hana greinum um
hvernig skera skuli úr deilum,
og að hún skuli ekki hafa áhrif
á milliríkjasamninga.
íslenzk viðbótartillaga
hefur verið lögð fram við
þriðju grein, sem fjallar um
söguleg réttindi í 10 ár,
skuli bætast, að ákvæði
þessarar greinar gildi ekki,
þegar þjóðir sem eru yfir-
gnæfandi háðar fiskveiðum
við strendur um fjárhag
sinn og efnahagsafkomu.
Sjö tillögur voru lagðar fram
í gær, en sumar aðeins orða-
breytingar. — Aðeins 8 af 18
þjóðunum eru nú fylgjandi til-
lögu þeirri sem áður hefur verið
Eru hótunarbréf skrifuð
hér og þar um bæinn?
Rlfvél heildverzliunar b
vörzlls lögregiurmar.
Grunur leikur á, að Magnús
Guðmundsson, lögregluþjónn-
inn, sem nú liggur undir ákœru
um að hafa skrifað lögreglu-
stjóra morðhótunarbréf, hafi
ritað a.m.k. eitt þeirra á litla
ferðaritvél í fyrirtœkinu Solido
á Vesturgötu 25.
Málið er í rannsókn og ritvél-
in í vörzlu lögreglunnar. Það,
sem einkum styður gruninn enn
þá, er að Magnús kom oft í
skrifstofur Solidos, var kunn-
ugur öðrum eiganda þess, — en
þeir eru úr sama byggðarlaginu,
Patreksfirði. Magnús bjó um
skeið í nágrenni við fyrirtækið
á Vesturgötunni.
Rannsóknardómarinn, Guð-
mundur Ingvi Sigurðsson, vildi
fátt um málið segja, er Vísir
innti hann frétta í gær. Kvað
hann rannsókn ekki vera lokið,
og fyrr vildi hann ekki tjá sig
um málið.
getið og Robles fulltrúi Mexikó
gerði grein fyrir, þ.e. um
að fresta landhelgismálinu, þar
til ný ráðstefna yrði haldin
(1965), en ríki sem hafa tekið
12 mílna fiskveiðilögsögu
mættu halda henni.
Fulltrúi Svíþjóðar tók einn
til máls á morgunfundi og end-
urtók að Svíþjóð væri mótfall-
in útfærslu landhelginnar, en
myndi greiða tillögu Bandaríkj-
anna og Kanada atkvæði í
samkomulags skyni.
Sjiíkrabifreið
í áreksfri.
Harður árekstur varð á milli
R 8896 og R 782. hvorttveggja
fólksbifreiðar, á mótum Grens-
ásvegar og Miklubrautar kl.
21.30 í gærkvöldi.
Sjúkrabíll var sendur ásamt
lögreglubíl á slysstað, en er
sjúkrabíllinn kom á Miklatorg
lenti hann í árekstri við R 1587.
Engin slys á mönnum urðu í
árekstrinum — en tvær fyrr-
nefndar bifreiðarnar voru
dregnar burt af slysstað.
^ Líkur eru fyrir, að Eisen-
hower Bandaríkjaforseti
komi víðar við en í Japan á
heimleið af fundi æðstu
manna, svo sem Suður-
Kóreu, Fílipseyjum og
Formósu.
Myndin er tekin af leik-
húsgestum Þjóðleikhússins
að kvöldi 20. apríl, en þá
var hátíðarsýningu á leikrit-
inu „í Skálholti" eftir Guð-
mund Kamban. Gestir létu
óspart í ljós hrifningu sína,
þökkuðu leikstjóra og leik-
urum lengi og innilega.
Páfuglinn og
bræðingurinn
Genf í gær.
Frá fréttaritara Vísis. —
Það gerðist hér í Þjóðhöll-
inni, er Júlíus Havsteen og
ýmsir fulltrúar voru á inn-
leið, en einn af 10 fögrum
páfuglum þjóðhallarinnar
var á vakki í göngum, að
Havsteen segir með hárri
raust á ensku:
„Ekki held eg, að hans til-
iaga yrði verri en bræðing-
urinn“.
Var nærstöddum fulltrú-
um mjög skemmt við orð
iýslumanns.
Gunnar.
Flóttinn
fer í vöxt.
Um 5000 Austurþjóðverjar
notuðu tækifærið, sem gafst í
dymbilvikunni til þess að flýja
vestur fyrir tjald — og er það
mesti vikuflótti frá A.-Þ. síðan
1953.
Og þetta gerðist þrátt fyrir,
að yfirvöldin í A.-Þ. hafi hert
sem mest þau mega á öllu eftir-
liti á landamærunum. Meðan
íbúar Vestur-Þýzkalands not-
uðu páskaleyfið sér til hvíldar
og upplyftingar komu 5000
hrjáðir Austur-Þjóðverjar,
karlar, konur og börn, nákvæm
lega talið 5.783 milli 11. og 17.
aprí]
Margir komu alveg farang-
urslausir og er það til skýring-
ar á því hve margir sluppu í
gegn.
Flóttamönnum fjölgaði og í
móttökustöðvum í V.-Þýzka-
landi í dymbilvikunni, en tölur
hafa ekki enn verið birtar.
Sá fyrsti
á réttinn.
Eftirfarandi yfirlýsing barst
Vísi í gær frá Landhelgisgæzl-
unni:
Að gefnu tilefni og til þess
að fyrirbyggja misskilning, þá
þykir rétt að taka fram, að
svæði það milli 8 og 12 sjómílna
markanna á Selvogsgrunni, þar
sem netatjón Grindvíkinga varð
1 s.l. viku, er ekki eingöngu ætl-
að íslenzkum togurum til veiða,
þótt þeir hafi heimild til tog-
veiða þar samkvæmt reglugerð
frá 29. ágúst 1958, heldur er
það frjálst veiðum allra ís-
lenzkra skipa og báta, og gildir
þar eðlilega sama venja um
veiðar og annarsstaðar, að sá
sem fyrst hefur sín veiðarfæri
í sjó, á réttinn.
RE 1 - Kútter Sæborg
Arinbjöm hersir og Freyr.
Tvcir itttfísi'ttr sýásottir tiK s.i.
Tveir íslenzkir togarar hlupu
af stokkunum skipasmiðastöð -
inni Seebeck í Bremerhavn s.I.
þriðjudag. Hlaut togarinn sem
ísfell h.f. á Flateyri á, nafnið
Sigurður, en hinn sem smíðað-
ur er fyrir Isbörninn h.f. var
skýrður Freyr.
Bæðí skipin eru um 1000
rúmlestir að stærð. Gert er ráð
fyrir að Freyr verði tilbúinn
til afhendingar seint í ágúst eða
september og Sigurður um það
bil mánuði síðar.
Freyr fær einkennisstafina
RE 1 og yr því þriðja skipið
sem ber þá. B.v. Arinbjörrx
hersir sem var eign Kveldúlfs
h.f. bar einnig númerið RE 1,
én fyrsta skipið var kutter Sæ-
borg. Eigandi hennar var Pétur
Bjarnason o. fl. *