Vísir - 23.04.1960, Blaðsíða 4

Vísir - 23.04.1960, Blaðsíða 4
4 ytsiB Laugardaginn 23. apríl 1960 WÍSI3R. D A G B L A Ð Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vlilr kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Rititjórríarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sírni: 11660 (fimm línur). Vísir kostar kr. 30,00 í áskrift á mánuði. Kr. 3,00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. Ofsóknum haldið áfram. KIRKJA DG TRUMAL: Suntri íufjnuð. Þjóðviljinn heldur áfram árás- unum á lögreglustjórann. Þessi embættismaður hefir, svo sem kunnugt er, verið of- sóttur af kommúnistum alla tíð frá því að hann tók við starfi sínu. Ekki er þó vitað að hann hafi annað til saka unnið en að vera ekki komm- únisti. Síðan 30. marz 1949 hafa öll skrif Þjóðviljans um' lögreglustjórann borið ótví- ræðan vott um hatur þeirra, ^sem þau sömdu. Ástæðan er ' .sú, að þegar kommúnistar ‘gerðu byltingartilraun sína fyrrnefndan dag, með grjót- kastinu á Alþingishúsið og •r þingmenn, kom lögreglan, undir stjórn Sigurjóns Sig- urðssonar, í veg fyrir að sú * tilraun tækist. Þetta getur landráðalýðurinn við Þjóð- viljann auðvitað aldrei fyrir- gefið og þess vegna er hald- 1 ið uppi látlausum ofsóknum á hendur þessum embættis- • manni, til þess að reyna að sverta hann í augum almenn- ings og veikja þannig trú fólks á lögreglunni og virð- J ingu þess fyrir lögum og rétti. Þetta er ekkert einsdæmi hér á íslandi. Þetta eru vinnuað- ferðir kommúnista í öllum löndum. Með því að vekja tortryggni gagnvart þeim, sem eiga að halda uppi lögum og rétti í þjóðfélaginu, mið- ar í áttina að því upplausnar- ástandi, sem kommúnistar eru að reyna að skapa. Hugleiðingar Þjóðviljans um stöðuveitingar eftir stjórn- málaskoðunum eru harla broslegar. Segir blaðið að embættum á fslandi hafi lengstum verið „úthlutað“ eftir flokksssjónarmiðum, og stundum velji ráðherrar jafn- vel ekki þá flokksbræður sína, sem hæfastir séu í starfið, heldur séu ýmiskonar „annai'leg sjórnamið" látin ráða. Þetta á að sanna að núverandi lögreglustjóri sé óhæfur til að gegna starfi sínu. Þegar lögregluþjónn hótar að myrða yfirboðara sinn er það að dómi blaðsins „sjúkdóms- einkenni“ á lögreglustjóra og sönnun þess, að hann hafi verið valinn í embættið vegna flokkshollustu, en sé óhæfur til að gegna því. Þetta er undarleg rökfræði og ótrúlegt að aðrir en komm únistar og sálufélagar þeirra myndu beita henni. Engum mun hafa verið kunn- ugra um hugarfar fyrrnefnds lögregluþjóns en einmitt rit- stjórum Þjóðviljans. Hann mun lengi hafa verið vinur og náinn samstarfsmaður þeirra. Páskahátíðin er liðin, hin mikla sigurhátíð, enn hafa kristnir menn fagnað yfir upp- risu Dróttins, hlýtt á boðskap- inn: Engilshönd hefur snert eina gröf, og hún stendur opin og tóm. Syrgjendur hafa hlotið nýja huggun við boðskapinn um eilíft líf. Og von upprisunn- ar í ótal mannshjörtum hefur fengið nýja næringu og styrk við frásögn ritningarinnar af atburðum hinna fyrstu kristnu páska. Hvarvetna þar sem til hefur spurzt víðsvegar um landið hef- j ur kirkjusókn verið mjög mikil í dymbilv. og á páskum. Kirkj- urnar hafa verið þétt setnar og viða of litlar fyrir söfnuðina. Sýnir þetta ljóslega, að þrátt fyrir þann áróður, sem rekinn hefur verið leynt og ljóst lang- tímum saman gegn kristinni trú með þjóð vorri, í tíma og ótíma, með þeim ásetningi að grafa undan áhrifum trúarinn- ar, svo að fólkið verði varnar- laust fyrir öðrum og óheilla- vænlegum lífsskoðunum, þá á kristin trú enn, sem betur fer, hug og hjarta alls almennings í landi voru. Og þegar komið er að kjarna trúarinnar, hlust- ar þjóðin með opnu hjarta og þráir að heyra orð lífsins. Það er ekki aðeins hin mikla kirkjusókn á páskum, heldur einnig margt annað, sem bend- ir tdl þess, að þjóð vor sé tengd sterkum böndum við kirkjuna. Upp af því getur vaxið voldug trúarvakning í landinu, er gefi fólkinu siðferðis þrek til að mæta verkefnum framtíðarinn- ar og sigrast á erfiðleikum þeim, sem lífið færir hverri kynslóð. Við höfum að undan- förnu verið minntir rækilega á það, íslendingar, að tæknin og framfarirnar leysa ekki allan vanda. Mestu máli skiptir mað- urinn sjálfur, hvernig hann er, að í honum búi ekki svik, að trúarlegt og siðferðisiegt upp- Kom, lífsins eng.ill nýr og náð- arfagur, í nafni Drottins, fyrsti sumar- dagur. (M. J.). Eftir skammdegi hins langa, íslenzka vetrar fer ný tilfinn- ing um land og þjóð við þessi misseraskipti, gleði yfir lang- degi voi'sins. Sumardagurinn fyrsti. er dag- ur fyrirheits. Uppfylling þess er í vændum, áður langt líður: Sólroðin vornóttin, ilmur úr grasi, kliður í lofti, vorgróin jörð. Það er svo margt, sem gleður auga Islendings á vori, brumið, sem þrútnar á litilli trjágrein, leysir viðjar og breið- ir út smágerð, safarík blöð, þyrst eftir geislum sólar, gras- ið, sem grær á túni, fyrstu vor- blómin, fífillinn eða sóley, sem opnar krónu og fagnar líf- inu, litskrúð himins vdð sólris og sólarfall. Og eyrun gleðja raddir vorsins, söngur lóunnar og annarra vorfugla fullur af fagnandi gleði og lofgjörð til skaparans. Allt eru þetta Guðs góðu gjafir, eins og önn sumars- ins og erfiði með uppskeru og afla, er veita fæðu og klæði, og allar þarf-ir og eiga sdnn mikla þátt í að skapa lífshamingju ungra og gamalla. Öll þjóðin er samtaka um að fagna sumri. Öll þjóðin ætti að vera einhuga um að biðja bless- unar Guðs yfir nýbyrjað sum- ar. Og mætti einnig öll þjóðin vera einhuga í þakklæti til Guðs yfir gjöfum góðs sumars á sínum tíma. Þetta fagra sumarvers ættu alldr að kunna. Það orti Björn Halldórsson, prófastur, Garði. Sé oss öllum sumargjöf Jesú kraftur, frelsi, friður, fögrum geislum stafi niður lífsins sól á lönd og höf. Eins og sólin sjónum manna sumar ennþá færir nýtt, Jesú náðarsólin sanna sálum vorum skíni blítt. Guð sumar. gefi gott og gleðilegt Ferming á morgun. Ferming í Dómkirkjunni kl. sunnud. 24. aprtl. (Séra Jón Auðuns). 2, Hugarfarið htð sama. Það er einkennandi fyrir hug- arfar þeirra sem Þjóðviljan- um stjórna, að á sumardag- inn fyrsta, — þegar önnur blöð kusu að láta forustu- greinar sínar fjalla um árs- tíðaskiptin, fögnuðu sumri og óskuðu lesendum sínum góðs og gleðilegs sumars' — hélt Þjóðviijinn áfram níði sínu og ofsóknum á hendur einum af embættismönnum höfuðstaðarins. Ýmsum hefir eflaust komið það á. óvart, ■r . nafnvel lesendum Þjóðvilj- ans, að ritstjórarnir skyldu ekki hafa svo mikla sómatil- finningu, að fella þessi ó- þverraskrif niður á sumar- daginn fyrsta. Hahn er þó hátíðisdagur okkar íslend- inga, þótt Rússar haldi ekki upp á hann! Og sú venja hef- ir skapast um aldirnar, að ^ við hugsuðum þá með heldur T hlýrra móti hver til annars. ÞJóðviljanum láist að.geta þess í hugleiöingum sínum um £ .pólitískar æmbættaveitingai'. hvaða flokkar hér á íslandi séu einkum kunnir að slíkri hlutdrægni. Allir vita, að flokkar þeir, sem nú eru í stjórnarandstöðu, það er Framsóknarmenn og komm- únistar, hafa haft forgöngu um að láta slík sjónarmið í-áða. Þegar þessir flokkar eru í valdaaðstöðu veita ráð- herrar þeirra aldrei embætti ótilneyddir öðrum en flokks- mönnum sínum.Og þess hefir hingað til ekki orðið vart, að þá væri fyrst og fremst verið að hugsa um hæfni manna í stöðuna. Þegar Brynjólfur Bjarnason var ráðherra, losn- aði ekki svo ómerkileg staða, sem hann hafði vald yfir, að hann veitti hana ekki komm- únista. Þeirra stöðuveitinga sér enn merki í þjóðfélaginu, sumra hverra til lítils sóma fyrir ráðherrann sem veitti. Kommúnistar geta ekki af- sakað sín eigin afglöp £ þessu éfni með því að ráðast á aðra, sem ekki eru. sekir um mis- notkun valdsins. . ; ; Stúlkur: Bi-yndís Stefánsdóttir, Framnes- vegi 7. Geirlaug Herdís Magnúsdóttir, Garðastræti 37. Guði’ún Bjarnadóttir, Háuhl. 14. Guðrún Edda Gunnarsdóttir, | Túngötu 30. Guðrún Sigursteinsdóttir, Braga- | götu 16. Helga Guðrún Ingólfsdóttir, | Víðimel 30. Elísabet Ingólfsdóttir, Víðim. 30. Hulda Gústafsdóttir, Njarðarg. 7 Inga Pála Björnsdóttir, Grafar- ' holti, Keldur. Jónína Þóra Helgadóttir, Berg- i staðarstr. 33. Kolbrún Anna Karlsdóttir, I Skólavst. 24 A. Kristjana Margrét Kristjánsdótt- ir, Hólmgarður 36. eldi hans sé svo vandað, að ekki Margrét Ágústsdóttir, Ásgarði leynist þar sá brestur, að mað- urinn bregðist, þegar á reynir.' í páskavikunni, sem nú er að verða lið.in, höfurh við kvatt vetur og fagnað nýju sumri. Veturinn, sem leið, hefur verið með eindæmum hagstæð- 1 ur til lands og sjávar, mildur og góðviðrasamur, svo að menn muna varla dæmi slíks, pg gjöf- ull hefur hann verið. Slíkt er þjóðinni mikill fengur, og get- ur haft veruleg áhrif á hennar hag. Skylt er að minnast þeirr- ar gjafar skaparans með þakk- látum huga, eins og Valdimar Briem kennir í vorsálmi sínuiru er. hann minnist liðins vetrar og segir: Ó, lof sé þeim, er hann oss gaf. Guðs föðurfaðmur blíð- ur — oss fann hér yzt við norð- urhaf. Og sumri höfum vér fagnað með hátíð og fánum á okkar sérstæða tyllidegi, sumardegin- um fyrsta, með skrúðgöngum og söng vorkvæða og sálma í barnslegri gleði, og helgað dag- inn bernsku þjóðarinnar. Kom heitur til míns hjarta, blærinn blíði. Kom. blessaður i dásemd þinn- ar prýði. 149. Ösk Sólveig Jóhannsdóttir, Ás- garði 21. Sigriður Guðrún Ólafsdóttir, Rauðalæk 39. Sólveig Anna Birgisdóttir, Leifs- götu 11. Steinunn Hansdóttir, Bragag. 16. Unnur S. Malmqu: Kristinsdótt- ir, Skúlagötu. 68. Piltar: Björn Heimir Sigurðsson, Selja- vegi 33. Brynjólfur Bjarnason, Miklu- braut 38. Eggert Árni Magnússon, Smára- götu 14. Geir Geirsson, Bergþórugötu 59. Guðmundur Eiríksson, Garða- stræti 39. Guðmundur Pétursson, Suður- landsbraut 111. Guðni Bergþór Pálsson, Haga- mel 35. Halldór Þórður Snæland, Tún- götu 38. Hannes Björn Friðsteinsson, Bræðrabst. 21. Hans Kristján Guðmundsson, Garðastræti 4. Hávarður Emilsson, Bræðrabst. 55. Tryggvi Hermannsson, Bræðra- borgarst. 55. Helgi Kristmundsson, Vestur- götu 51 A. Nikulás Ámi Halldórsson, Grens- ásvegi 47. Pétur Guðjónsson, Grettisg. 98. Ragnar Ólafur Axelsson, Ás- vallagötu 9. Sigurður Georgsson, Baldurs- götu 15. Svavar Hansson, Bragagötu 16. Sveinn Sævar Helgason, Grettis- götu 57. Þormóður Sveinsson, Ásgarði 7. Örn Guðmundsson, Bakkag. 12. Vigfús Ármannsson, Silfurtúni 6, Garðahr. Bústaðaprestakall. Feímingar- messa í Fríkirkjunni kl. 10.30 árdegis. (Séra Gunnar Árnason). Stúlkur: Álfheiður Steinþórdóttir, Álf- hólsvegi 54. Birna Svala Pálsdóttir, Hlég. 19. Erla Hafdís Sigurðardóttir, Rétt- arholtsvegi 57. Esther Sigurðardóttir, Álfhóls- vegi 48. Guðríður Þorgteinsdóttir, Akur- gerði 39. Guðrún Bjarnadóttir, Langeyrar- vegi 16, Hafnarf. Harpa Harðardóttir, Víghólast. 5. Hildur Högnadóttir, Kópavogs- braut 57. Margrét A. Jóhannsdóttir, Víg- hólastíg 16. Ólafia Ragnarsdóttir, Álhólsvegi 39 C. Ragnheiður Ármannsdóttir, Ný- býlavegi 32 A. Ragnheiður Sigurrós Ragnars- dóttir, Réttarholtsv. 37. Rannveig Þorvaldsdóttir, Álfhóls vegi 59 B. Ruth Halla Sigurgeirsdóttir, Rauðagerði 6. Sigrún Ólafsdóttir,. Bjarnhóla- stíg 6. Sigurbjörg Gróa Magnúsdóttir, Skjólbraut 13. Soffia Snorradóttir, Digi'anesv. 4. Stella Andersen, Hólmgarði 26. Þóra Sigríður Guðmundsdóttir, Suðurbraut 7. Piltar: Árni Björn Haraldsson, Álfhóls- vegi 24 A. Baldur Snorri Halldórsson, Digranesvegi 14. Bjarni Pétursson, Uröarbraut 5. Bjöm Brynjólfsson • ffiégerði 25. ; FnunhirifcC, spfcr." ;.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.