Vísir - 04.05.1960, Blaðsíða 1

Vísir - 04.05.1960, Blaðsíða 1
50. árg. Miðvikudaginn 4. maí 1960 98. ibl. 12 síður Sjósiys við Oræniands- strendur. Óttast um danskt skip með 18 manns um borð. 12 síður ' Það er alvarlega farið að ótt- ast um danska flutningaskipið Hanne S, sem var á leið frá Grænlandi til Kaupmannahafn- ar með 18 manns um borð. j Hanne S, sem er 500 brúttó- tönn að stærð, lagði af stað frá Ivigtut þann 27. apríl með full- fermi af kníóliti, og var ferðinni heitið til Kaupmannahafnar. Á skipinu er 15 manna áhöfn og* þrír farþegar voru með því, þar af tvær konur. Síðast heyrðist til skipsins á laugardag s.l., er það hfði, samband við Prins Christiansund, og var þá 60' sjómílur suðvestur af Kap Far-l vel, eða á svipuðum lóðum og álitið er að Hans Hedtoft hafi; farist 1959. Þar var þá mikill stormur, sem síðan hefur vex-sn að töluvert og hefur þar geysað aftakaveður undanfarið með 11 vindstigum. Menn hafa verið að gera sér vonir um að loftskeytatæki skipsins hafi bilað, eða loftnet hafi slitnað niður í óveðrinu, en vonir eru óðum að dvína. Skip og flugvélar hafa gert mikla leit á þessum slóðum, og eru það skipin Thetis frá íseft- irlitinu og björgunarskipið Sigyn ásamt flugvélum, og er þ. á m. einn Catalínabátur, sem staddur var hér á landi. Fundizt liefur nokkurt brak í sjónum, og fannst m. a. hluti úr brotnum björg- unarbát og við nánari rann- sókn fundust kríolitmolar í samskeytum milli planka. Eigendur Hanne S er útgerð- arfyrirtækið A. E. Sörensen í Svendborg, en er leigt út til Konunglegu Grænlandsverzl- unarinnar. Það var byggt árið 1952 og hefur verið í Græn- landsferðum í mörg ár. Engin mótstaða í Hull - lögregluvörður á bryggju. Ráðstefna í London m. a. rætt um fisklandanir og landhelgina. Aukinn lögregluvörður var til staðar er löndun hófst úr Bjarna riddara í Hull í gær, en það mun hafa verið óþarft því engir höfðu í frammi óspektir og gekk löndun fyrir sig með eðli- legum hætti. Hafa því landanir úr fjórum íslenzkum togurum í Grimsby og Hull farið fram árekstra- laust í gær og fyrradag þrátt fyrir gífuryrði einstakra manna og hótanir um stöðvun á lönd- un úr íslenzkum skipum.- í dag hefst ráðstefna for- ystumanna togaraútgerðarinnar og fiskiðnaðarins í Lundúnum. Fregnir hafa enn ekki borizt af ráðstefnunni, en þar gera þessir tveir aðilar heyrin kunna af- stöðu sína til löndunar á fiski úr íslenzkum skipum í brezk- um höfnum og þar mun einnig verða mörkuð stefna togaraút- gerðarinnar varðandi veiðar við ísland. Talsmenn útgerðarinnar hafa eins og kunnugt er lagt bann við að brezkir togarar fari inn fyrir 12 mílna mörkin að svo stöddu. íslenzku togararnir voru með mikinn afla, en talsverður hluti úr aflanum var talin ónýtur og kom það til af því að skipin höfðu verið lengur að veiðum vegna þess að sölukvótinn fyrir síðasta mánuð hafði verið fylltur og ekki hægt að landa fyrr en 2. maí. Þorkell máni seldi 186.8 1. fyrir 14.392 sterlingspund. — Bjarni Ólafsson 183,4 1. fyrir 11.803 stpd. Þorsteinn Þorska- bítur 80 1. fyrir 7.050 stpd. og Bjarni riddari 197 1. fyrir 8.882 stpd. í dag eiga að selja Hallveig Fróðadóttir og Norðlendingur en Karlsefni og Narfi á morg- un. Hf jólkin hækkar. Nýtt verð á mjólk og mjólk- urvörum tekur gildi frá og með deginum í dag. Mjólkurlítrinn í flöskum hækkar úr kr. 3.15 í 3.40, í , hyrnum úr 3.55 í 3.80, í lausu máli úr 2.95 í 3.20. Rjómalítri í flöskum hækkar úr 37.70 í 39.45, hálflítri í hyrnum úr 1850 í 19.35, peli úr 9.35 í 9.78 og desilítri úr 4.00 í 4.17. Sykurkílóið hækkar úr 8.60 í 9 krónur. Gæðasmjörkílóið úr 47.65 í 52.20. Mjólkurostur (45%) úr 45.70 í 48 kr. kílóið. Við komuna til London var De Gav.Ile vel fagnað sem annarsstaðar í 17 daga ferðinni, sem lauk í morgun með heimkomu hans til Parísa'r. Tókum hluta lífskjaranna að láni. Úr ræðu Bsrgis Kjarans alþingismanns. í umræðum neðri deildar um frumvarp ríkisstjórnar- innar mn innflutnings- og gjaldeyrismál í fyrradag flutti Birgir Kjaran ske- legga og rökfasta ræðu þar sem hann svaraði einkum gagnrýni og vangaveltum Einars Olgeirssonar. Birtist hér útdáttur úr þeirri ræðu. Ég mun að mestu leyti tak- marka mig við vissar staðhæf- ingar Einars Olgeirssonar enda þótt ég óttist nú, að hann sé svo sæll í sinni krepputrú, að kufl hans sé algerlega skotheldur fyrir föstum rökum, hversu skynsamleg, sem þau kunna að vera. Eg kem þá að fyrsta atrið- inu því, að haftabúskapurinn hafi skapað bætt lífskjör. Framfarir tímamia tákn. Það er alveg rétt, að það hafa miklar framfarir í efnahagsmál- um átt sér stað á Islandi á síð- ustu 15—20 árum og lífskjör manna hafa verið hér góð, hvort sem sagan á nú eftir að telja, þetta tiltölulega mesta fram- faratímabilið eða ekki. Allur heimsbúskapurinn hef- ur á þessu tímabili verið i örri framþróun og ákaflega víða hefur þjóðarframleiðslan vax- ið, ekki einungis jafnmikið og á íslandi heldur mun meira heldur en á íslandi. Á Norður- löndum jókst þjóðarframleiðsl- an á árunum 1948—1957 eitt hvað svipað og hér á landi. í Kanada mun hún hafa vaxið um 60% og í Vestui'-Þýzkalandi óx hún um hvorki meira né minna en 100%, enda var at- hafnalífið þar frjálsara en í nokkru öðru landi í Vestur- Evrópu. Tel ég allt þetta færa sönnur, að þær framfarir og þau góðu lífskjör, sem við hér höfum búið við hafa verið ekki að þakka höfunum, heldur þrátt fyrir höftin. Við lifðum hér eins og ég sagði, vel á þessum árurn, eu lífskjörin voru að vissu leiti gervibúskapur þau voru Slys í strætis- vagni. Það slys vildi til í strætis- vagni í gærdag, að fullorðin kona rann úr sæti sínu í vagn- inum og hlaut við það áverka, sem síðar reyndist vera lærbrot. Um nánari atvik slyss þessa er ekki fullkunnugt ennþá, en á einhvern máta skall konan úr sæti sínu og féll á gólfið. Kvart- aði hún þegar um eymsli í mjöðm, og var lögregla og sjúkrabifreið kvatt á staðinn. Var konan, Hrefna Ólafsdóttir, þegar flutt á Slysavarðstofuna, og kom þar í ljós að hún hafði lærbrotnað. Þetta var kl. 17,26 í gær eftirmiðdag í vagni á leið 22 (Austurhverfi). lánslífskjör, vegna þess að þau voru fengin að láni er- lendis. Þau voru nefnilega ekki framkölluðmeðeðlilegri normal framleiðslu, heldur var þeim haldið uppi með stríðsgróða, gjafafé og er- lendum lánum, sem námu hvorki meira né minna en 5000 millj. kr. frá ófriðar- árum og fram til síðustu áramóta. Einar tvísaga. Ég vík þá að annarri stað- hæfingu hv. 3. þm. Reykv. um það, að prívatkapitalisminn sé dauður hér á landi. Ég skal játa það, að einkarekstur og einka fjármagn hefur verið hart leik- ið í þessu landi á undanförn- um árum, engu síður er prívat- kapitalisminn ekki dauður úr öllum æðum hér á landi, enda finnst mér, að hv. 3. þm. Reykv. ekki alltaf vera mjög staðfast- ur í þeirri trú. Það er nú ekki nema ár lið- ið síðan, að hv. þm. fuUyrti svo orðrétt sé haft eftir Þjóð- viljanum með leyfi hæstv. for- Framh. á 2. síðu. Endurbótaáætlun íögð fram í S.-Kóreu. Stúdentar vilja hraða umbótum. Stúdentar ■' Suður-Kóreu halda áfram mótmælagöngum — til þess að fá skrið á endur- bætur og hclzt fá þingmenn til að leggja niður umboð sín. Mótmælagöngur þeirra hafa átt sér stað í Seou, Pusan og fleiri bæjum og hafa farið frið- samlega fram. Á einum stað var þó beitt táragasi. Stjórnin (bráðabirgðastjórnin) hefur lagt fram endurbótaáætlun i fimm liðum, og er tilgangurinn með henni, að koma lýðræði í landinu á traustari grundvöll. Stjórnin telur Bandaríkja- stjórn hafa komið skynsamlega fram, er byltingin var á dög- unum og ráðið heilt. Þá hefur stjórnin heitið íbúum landsins því, að við úthlutun fjár á grundvelli efnahagsaðstoðar Bandaríkjanna, skuli þess vandlega gætt, að einstakling- ar geti ekki matað krókinn, en í þessum efnum þróaðist mikil spilling undir handar jaðri Syngmans Rhees.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.