Vísir - 04.05.1960, Blaðsíða 12

Vísir - 04.05.1960, Blaðsíða 12
Miðvikudaginn 4. maí 1960 SAMVEIDIS STEFNAN Rœtt ver&ur étfomiJega um kynþátiasiefnu Suður.-Mríku. Það varð ofan á í gær á fyrsta degi Samveldisráðstefn- unnar brezku, að taka ekki á dagskrá kynþáttastefnu ríkis- jstjórnar Suður-Afríku, en Louw utanríkisráðherra SA. Iýsti yfir því, að ekkert væri til fyrirstöðu að ræða málið óformlega, og væri hafinn und- Irbúningur að slíkum viðræð- um. . Ekki var fyllilega ljóst í morgun hvort v.iðræðurnar yrðu milli einstakra ráðherra eða hvort þeir ræddust við all- ir saman, en augljóst er að þessar viðræður fara ekki fram fyrir opnum tjöldum. Þessu er ekki vel tekið í blöðum. Þar kemur m. a. fram, að forsætisráðherrarnir geri sér tæplega ljóst hve þungi al- menningsálitsins í himinum sé mikill í þessu máli og það geti Ölvun i Eyjum. haft alvarlegar afleiðingar, að ræða málið ekki einarðlega og fyrir opnum tjöldum, og eitt blaðið segir, að MacMillan virðist hafa tekist að bæg/ja frá þeirri hættu — í bili — að samvedið tvístraðist, en áður hefur komið fram, að menn óttuðust að S.-Afrika myndi segja sig úr samveldinu, ef málið yrði tekið á dagskrá — og sögðu þá stöku blöð, að það yrði þá svo að vera. Macmillan gerði grein fyrir b^orfum á alþjóðavettvangi í gær og ií dag mun Lloyd segja frá Norður-Atlantshafsbanda- lagsfundinum í Miklagarði, en honum er lokið, og lokatilkynn ing um hann birt í dag. Gaulle kominn heim. De Gaulle kom heim í morg- un að aflokinni 17 da^a ferð til Bandaríkjanna, Kanada, Frönsku Guyana og eyjanna Martinique og Guadaloupe. Honum var fádæma vel tekið hvarvetna og ræða blöð hvar- vetna mikið um ferð hans. ■—- Kemur þar fram, að hrifni manna á De Gaulle virðist meiri en í Frakklandi. Þar við- urkenna að vísu allir, að hann sé mikill maður og mikill leið- togi, en einhver tregða í seinni tíð hjá mörgum, að láta hrifn- ina í ljós, enda bitna ýmsar ráðstafanir hins opinbera þungt á mörgum og þær allmjög gagn- rýndar. Undir niðri viðurkenna allir, að hann hafi bjargað frá framhaldsöngþveiti og ef tii vill hruni. Fleiri erl. ferðamenn vænt- anlegir en áður. faistfing að Mývaíni pönluð víðv vegar lir heiminuin. Verja á 8.3 millj. dollara í ár til Barnahjálpar Sþ. Stærstu f járveitingar til útrýanitngar mýraköldu. Framkvæmdastjórn Barna- ijálparsjóðs Sameinuðu þjóð- inna, en hana skipa fulltrúar 30 sjóða, ákvað nú í vikunni að /erja nærri 8.3 milljónum doll- »ra til framkvæmda á um 80 imbótaáætlunum í þágu bama fjórum heimsálfum, Meira en helmingur fjárins Aðeins 3 frostnætur í aprílmánuði. Aprílmánuður var hlýr og fremur rakur. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstof- unni var meðalhitinn 4.6 st. (vanal. 2.3 st.). Úrkoman varð 7.6 um og er það % meira en í meðallagi. 28. apríl gerði mikla skúr, eina þá mestu, sem hér hef- ur komið. Þá varð úrkoman 9.4 mm á einni klst., en mest hefur hún orðið hér 10 mm. Frost var aðfaranótt 30. apríl, en annars hafði ekki komið frost eftir miðjan mánuð og frostnætur voru aðeins 3 í mánuðinum. Mest varð frostið 1.8 stig. Fremur lítið var um sól- skin, samtals 122 klst. (135 vanal.) og því aðeins undir meðallagi. verður notaðuur til þess að hefta útbreiðslu og uppræta mýraköldu (malariu). 24% fjárins verður notað til þess að koma í veg fyrir næringarskort og um 20% til heilsubóta al- mennt. Stærsta fjárveitingin, 985 þúsund dollarar, fer til upp rætingar mýraköldu í Tyrk- landi. Leikhúsin. Þjóðleikhúsið sýnir „f Skál- hoIti“ eftir Guðmund Kaniban. í kvöld, á föstudagskvöld verð- ur frumsýning á gamanleikn- um „Astir og stjórnmál“ eftir Terenle Rattigan, „Hjónaspil“ á laugardag og „Kardimommu- bæinn á sunnudag. Leikfélag Reykjavíkur sýn- ir í kvöld „Deleríum búbónis", og fara sýningar á því að nálg- ast hundraðið. í Kópavogsbíói sýnir Leikfé- lag Kópavogs í kvöld „Alvöru- krónuna 1960“ eftir Túkall. Annað kvöld verður svo sýn- ing i Sjálfstæðishúsinu á reví- unni „Eitt lauf“. IBbiei verður að iara varlcga. Nú er vertíð að Ijúka í Vest- tnannaeyjum, og flestallt land- £ólk farið þaðan, sem þar á ekki heima. Bátar liggja allir í höfn og yá og þys atvinnulífsins að fajra út. Ölvun er töluverð hjá sjómönnum og öðrum þessa dagana, og virðast þeir vera að drekka úr sér hrollinnj eftir vosbúðina og vökuna undan- farið. Um 250 manns bafa ver- ið sektaðir fyrir ölvun siðan um áramót, og er það óvenju- mikið, en mest hafa 20 manns verið færðir í húsakynni lög- reglunnar á einum degi til gist- ingar. Húsaskjól er að vísu ekki “nægjanlegt fyrir þennan fjölda, en Vestmannaeyingar eru sátt- fúsir og tillitssamir við náung- ann, og því er það að þeir skipta niður nóttinni í fangahúsinu og rýma eldri gestir þar jafnótt og nýir koma, sem gistingar þurfa. Óku út af og meiddust. Akureyri í morgun. Tveir bændur úr Svarfaðar- dal voru á leið heim til sín frá Akureyri laust fyrir hádegi í gær. Svo illa tókst til að jepp- inn, sem þeir voru í lenti í lausa möl og fór á mikilli ferð út í skurð móts við Dvergastein í <ilæsibæjarhreppi. Mennirnir tveir slösuðust all- mikið. Hlaut annar áverka á köfði og skarst mikið af rúðu-l brotum. Hinn meiddist á hendi. | Voru þeir fluttir í sjúkrahúsið á Akureyri. Sá er meiddist á! diÖfði varð eftir á sjúkrahúsinu t «fi hinn fékk að fara heim. I Frá fréttaritara Vísis. — Akureyri í fyrradag. Búizt er við meiri ferða- mannastraumi að Mývatni í sum ar en nokkru sinni áður, og er ekki að efa, að á gistihúsun- um tveim verður þröngt setinn bekkurinn sumarlangt. Lítil veiði hefir verið í Mý- vatni að undanförnu, þótt reynt Þingið í Kuala Lumpur kaus nýjan þjóðhöfðingja í sl. viku, þar sem hinn fyrri, Tenku Ad- bul Rahman, andaðist 1. apríl. Fyrir valinu vrað Sir. Hisa- muddin Alam Sham Alhaj, 62ja ára gamall. Hann hafði verið varamaður þjóðhöfðingjans frá því að Malakkaskagi fékk sjálf- stæði 31. ágúst 1957. hafi verið. Vatnið er enn á ísi og fært á jeppum yfir það. Sól- skin og stillur hafa verið dag hvern, en frost á hverri nóttu, upp í 7 stig. Bílfært um Mý- jvatnsheiði og um Reykjadal, en þungt færi austur um Hóls- jfjöll, nema á nóttunni, þegar frost er. Mjólk er flutt tvisvar í viku til Húsavíkur, en jferðir verða 3. Ekki hefir mikið orðið vart við mink í sveitinni í vetur, en um daginn gerði snjóföl, og þá sáust mörg för eftir hann, enda þótt enginn næðist. Um síðustu helgi lék Leikfé- lag Húsavíkur „Deliríum bú- bonis“ í Skjólbrekku fyrir fullu húsi, og þar verður um helgina haldið hið árlega hjónaball. Flugvöllurinn á Kópaskeri hefir verið ófær að undanförnu sökum aurbleytu, en lítill sjúkraflugvöllur er sunnan við kauptúnið, og hefir verið not- azt við hann. Björn Pálsson kom þangað síðast í fyrradag að sækja sjúkling. Byrjuð er vegagerð norðan- lands, en á vegum í Skagafjarð*- arl, Eyjafjarðar- og Þingeyjar- sýslum er nú leyfður hámarks- þungi bíla 5 tonna öxulþungi, en allt að 714 tonn af flutningi. Farah drottning á að halda sig heima. Farah, sem gengur með barni, á að dvelja heima, samkvæmt fyrirmælum hirðlæknisins, meðan keisarinn fer í opinbera heimsókn til Svíþjóðar, Belgíu og Austurríkis í maí n. k. Myndin var tekin um helgina er þcssi Grindvíkingur var að koma úr róðri á trillunni sinni. Aflinn er kannske ekki mikill að vöxtum, miðað við 'það sem veiðist í net, en kostnaðurinn er heldur ekki sambærilegur. Munið, ið þeir sem gerast áskrifendur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. Látið hann færa yður fréttir og annað lestrarefni heim — án fyrirhafnar af yðar hálfu. Sími 1-16-60.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.