Vísir - 04.05.1960, Side 3

Vísir - 04.05.1960, Side 3
Miðvikudaginn 4. maí 1960 VÍSIR Er í aEþjóBíegri virðíngarstöiu og hefur um sig hiri starfsfóíks. Dr. Árni Friðriksson segir frá alþjoða haf- rannsóknaráðinu, verkefnum þess og starfi. Þeir eru ekki margir íslend- íngarnir, sem ríkt hafa í kon- ungshöllum og í fljótu bragði munu það þykja öfugmæli og öfgakennt ef því yrði slegið föstu að dæmi til þess arna finnist í dag. En samt sem áður er þetta staðreynd, enda þótt hér sé ekki um konung né stjórnandi valda- manna að ræða. Þó situr þessi maður í meiri virðingarstöðu, en flestum löndum vorum hef- ur verið falið að gegna í okkar samtíð, enda fengin konungs- höll til umráða. Maðurinn er dr. Árni Friðriksson fiskifræð- ingur og bústaður hans er höll Danakonunga í Charlottenlund. Það var mikill heiður fyrir íslendinga þegar íslenzkur mað- ur var valinn í aðalritarastarf Alþjóðarannsóknarráðsins fyr- ir nokkrum árum, en það jafn- gildir í okkar vitund, sam- kvæmt málvenju, framkvæmda- stjórastarfi. Þetta val í starfið sýnir einnig glöggt mat annarra þjóða á vísindamennsku og hæfileikum dr. Árna, og þeim mun fremur sem krafist er mikillar yfirsýnar á öllum að- kallandi vandamálum og full- kominna skipulagshæfileika af þeim, sem í þetta starf er val- inn. Alþjóða hafrannsóknarráðið (Conseil Permanent Inter- national pour l’Exploration de la Mer) hefur haft aðsetur í Kaupmannahöfn frá því er það var stofnað fyrir um það bil 60 árum, og síðastliðin 25 ár hefur það haft þriðjung konungshall- arinnar í Charlottenlund til um- ráða fyrir starfsemi sína. Höllin var einkum sumarbústaður konunganna, en sumir bjuggu þar allt árið, eins og t. d. Frið- rik konungur VIII. Út úr skrif- stofuglugga dr. Árna blasir við minnismerki sem íslendingar og Danir reistu sameiginlega til sminningar um Frðrik VIII. og drottningu hans árið 1938, en hann mun í augum íslendinga hafa verið ástsælastur allra konunga, sem ráðið hafa ríkjum yfir landi voru. Dr. Árni kvaðst sjálfur hafa verið viðstaddur athöfnina þegar minnismerkið var afhjúpað. En nú er slotið í Charlotten- lund, sem stendur á friðsælum stað í fögrum skógarlundi ekki lengur höll Danakonunga. í dag er það ríki íslendingsins dr. Árna Friðrikssonar og þeirrar stofnunar sem hann fer með framkvæmdavald fyrir. Þar hefur hann fjölmargar vistar- verur til umráða og heila hirð starfsfólks í kring um sig. Þegar fréttamaður Vísis var á ferð í Khöfn fyrir nokkrum dögum, brá hann sér á fund dr. Árna í konungshöllinni í Char- lottenlund og bað hann að segja lesendum blaðsins nokkuð frá Alþjóða hafrannsóknaráðinu, megintilgangi þess og störfum. Árni varð vel við þeirri mála- leitan og fer frásögn hans hér á eftir: „í lok síðustu aldar þegar gufutogarar voru búnir að starfa um mannsaldur í Norðursjónum fór að bera á því að veiðin þar fór minnkandi og var þá kallað- ur saman fundur vísindamanna í Stokkhólmi til að koma á al- þjóða samvinnu um rannsóknir á ofveiðum og ráð gegn þeim. Þetta var árið 1889. Sextán lönd aðilar. Árið 1901 var haldinn annar fundur í Stokkhólmi á fram- haldi af þessum, og sá þriðji í Khöfn 1902, en þá var Alþjóða hafrannsóknaráðið stofnað formlega. Það hefur því starfað látlaust í nær 60 ár og staðið af sér tvær heimsstyrjaldir. Hafrannsóknaráðið er nú stærra en nokkru sinni fyrr, i því í því eru nú 16 lönd og hafa 3 þeirra komið inn síðan eg tók hér við störfum fyrir rúmum 6 árum. Innan vébanda þess eru öll lönd sem sækja sjó í austan- verður Norður-Atlantshafi, en starfssvið ráðsins nær frá Barentshafi til Vestur-Græn- landsmiða og frá ísröndinni suður að Miðjarðarhafslínu. j í ráðinu eru 32 fulltrúar, tveir frá hvoru landi, íslenzku fulltrúarnir eru Davíð Ólafsson | og Jón Jónsson. Ráðið heldurj fund á hverju ári, þar sem auk fulltrúanna, koma sérfræðing- ar frá öllum löndunum, og eru þá einnig margir gestir frá lönd- urn og alþjóðastofnunum utan ráðsins, víðsvegar að úr heim- inum og tala vísindamanna á fundum þessum hin síðari ár hefur vanalega verið um 150. Ráðið velur miðstjórn (Buro) og í stjórninni hafa verið 5 menn, sem nú er fjölgað upp í 7. Forseti miðstjórnarinnar er nú franskur vísindamaður, en síðan eg kom hingað hefur verið enskur, norskur og danskur forseti. Miðstjórnin velur aðal- ritara. íslendingur formaður alþjóðanefndar. Aðalstörf ráðsins fara fram í nefndum, sem nú eru nær 20 að j tölu. Ein þeirra fjallar t. d. um Höll Danakonunga í Charlotenlund, þar sem Alþjóða hafrann- sóknaráðið hefur nú aðsetur. um og verkaskiptingu komandi árs. Milliríkjadeilur til úrlausnar. Það hefur tíðkast allmikið upp á siðkastið að ríkisstjórnir sendi ráðinu erindi til umsagn- ar og úrlausnar. Af slíkum erindum skal nefna tvö: Síldveiðarnar í sunnan- Það er víðar en í Charlottenlund, sem íslendingar hafa uniráð yfir fögrum húsakynnum í Khöfn. Þess má t.d. geta að Flug- félag íslands hefur bækistöð sína úti á Vesturbrú, f mikilli og fagurri byggingu í lijarta borgarinnar og hefur þar betri að- stöðu en flestar aðrar ferðaskrifstofur í Khöfn, enda þótt stærri séu og hafi meira umleikis. Þess má ennfremur geta að í skrif- stofu Flugfélags Islands liggja jafnan frammi íslenzk blöð og þangað leita landar, búsettir í Höfn, til að lesa blöðin og taka spjall saman. Þetta er því orðið að einskonar miðstöð íslendinga í borginni. Myndin hér að ofan er af húsinu þar sem Flug- félagið hefur bækistöð á neðstu hæð. Dr. Arni Friðriksson við skrifborð sitt í Charlottenlund. rannsóknir í Norðurhöfum, allt suður að Norðursjó og' formað- ur hennar sem stendur er Jón Jónsson. Önnur fjallar um Norðursjóinn, sú þriðja um suð- urhluta Norður-Atlantshafsins, sú fjórða um Eystrasalt, ein er helguð síld, önnur þorskfiskum, þriðja sardínum. Þá er nefnd um laxfiska, skeldýr, humar og fleira, um sjórannsóknir, svif- rannsóknir, fiskikýrslur svo eitthvað sé talið. Ráðið hefur um hönd mjög umfangsmikla útgáfustarfsemi, gefur m. a. út 6 tímarit, auk margs annai-s. Helztu viðfangsefni líðandi stundar. Meginviðfangsefni fundanna ’Wur frá öndverðu verið að samræma fiskirannsóknir land- anna, gæta þess að aðalverkefn- unum sé gerð sem bezt skil og koma í veg fyrir að eyða fé og tíma í óþarfa tvíverknað. Á fundunum koma allar nefndirnar saman og gera grein fyrir verkefnum og viðhorfum líðandi árs, en um leið eru lögð sem glöggust drög að rannsókn- |verðum Norðursjó og þorskveið arnar í Barentshafinu. Enskir vísindamenn héldu því fram að smásíldarveiðar Dana og Þjóð- verja til bræðslu bæru ábyrgð- ina á veiðileysinu við East Anglia og tók ráðið að sér að kanna hvað satt væri í þessu. Á árunum 1957 og ’58 leigðum við skip og menn til að merkja síld í Norðursjónum og voru merktir um 30 þúsund fiskar. Árangurinn af merkingunum hefur orðið sá að ekki verður séð að síldveiðarnar við megin landið, þar sem einungis 15— 15% af síldarmagninu veiðist árlega, sé orsök síldarleysisins við East Anglia. Ei-indið um þorskinn í Bar- entshafinu, en það kom frá Norðmönnum, er enn í rann- sókn. Nefnd sérfræðinga hefur haldið 3 fundi til að ræða þetta vandamál og vinna úr mikil- vægum efnivið, sem fyrirfinnst í ýmsum löndum. Nefndin hefur ekki lokið störfum enn, en von til þess að hún geri það á næst- unni. j Að sjálfsögðu hefur ráðið nána samvinnu við ýmsar aðr- ar alþjóða stofnanir, svo sem föstu nefndina í London (Perm- anent Commission), Matvæla- stofnun Sameinuðu þjóðanna (F.A.O.) og Fiskirannsókna- stofnun Norðvestur-Atlants- hafsins (Scnaf). Ákveðið er að næsti fundur Alþjóðahafrannsóknaráðsins verði í Moskvu dagana 19.—28. september n. k. Hefur sú venja haldizt að tvö af hverjum þrem árum eru fundir ráðsins haldnir á aðsetursstað. þ. e. Khöfn, en þriðja árið í einhverju landi, sem aðild á að ráðinu, að þessu sinni Rússlandi." Þ. J. Smáauglýsingar Vísis eru vinsæiastar. Taflan á minnismerki því sem íslendingar og Danir reistu yfir kcnungshjónin Friðrik VIII. og drottningu bans fyrir utan konungshöllina í Charlottenlund árið 1938. Við þá athöfn var dr. Árni viðstaddur, en mun ekki hafa rennt grun i að það þá að hann myndi sjálfur verða húsráðandi í húsakynnum konung- anna. 8 K0NUNGSHÖLL

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.