Vísir - 03.06.1960, Page 6

Vísir - 03.06.1960, Page 6
V í S I R WXSIR D A G B L A Ð Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: 11660 (fimm línur). Vísir kostar kr. 30,00 í áskrift á mánuði. Kr. 3,00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. Handa lamaða piltinum í Hafnar- firði söfnuiust 65 |tús. krónur. Viðar Gusðnason farinn vestui* íil lækninsjar. Ræða Krúsévs. Á laugardag flutti Nikita Krú- sév, forsætisráðherra Sovét- ríkjanna, ræðu í Moskvu, fyrstu meiri háttar ræðuna í Rússlandi, síðan hann kom heim eftir afrek sitt í París, er hann brá fæti fyrir það, að leiðtogar stórveldanna gætu ræðzt við um vanda- mál heimsins. Sem vonlegt var, hefir sú ræða vakið mikla athygil, ekki aðeins í heimalandi einvaldsherrans, heldur og um allan heim. Það er vissulega ekki ómerk- ur atburður, þegar einvalds- herra eins voldugasta ríkis heims, flytur ræðu um heims- málin, maður, sem hefir í hendi sér ekki aðeins örlög 200 milljóna Rússa, heldur og allra íbúa kommúnista- ríkjanna, og heimsins að svo miklu leyti, sem það er á 1 hans valdi að steypa honum út í tortímingarstyrjöld. Menn skyldu því ætla, að ræða slíks manns myndi hafa mót- ast af alvöru og festu, jafnvel beiskju yfir órétti, sem hann teldi land sitt hafa verið beitt. En því fór svo fjarri. Það má vera, að það séu úr- eltar dyggðir stjórnmála- manna hinna gömlu lýðræð- isríkja, að gæta tungu sinn- ar og haga orðum sínum af kurteisi en þó fullri einurð við slík tækifæri, en flestum á Vesturlöndum mun þó hafa blöskrað tónninn í ræðu hins rússneska einvaldsherra. Á hinn bóginn hefir hann sjálf- sagt fundið mikinn hljóm- grunn og talizt afrek í ræðu- list meðal Kremlmanna um allan heim, líka hér á ís- landi. Að vísu sagði Krúsév, að Sov- étríkin myndu halda áfram að vinna að því að draga úr spennu í heimsmálunum, þó að slík yfirlýsing orki nú orðið á fólk eins og smekk- leg öfugmæli. Ennfremur sagði Krúsév, að „ríki yrðu að virða fullveldi hvers ann-' ars“, að öðrum kosti gæti slíkt leitt til styrjaldar. Það eru ekki ýkja mörg ár, síðan Krúsév lét heri sína virða fullveldi Ungverja- lands svo rækilega, að þar var uppreist þjóðarinnar gegn böðlum sínurn kæfð í blóði. Það er sem sé ekki sama, hvers fullveldi á að virða. 1 Það kann að virðast gömul og margendurtekin saga, með hverjum hætti Rússar hafa virt fullveldi Póllands og Eystrasaltsríkjanna. En j kommúnistar um allan heim klappa og hrópa húrra, þeg' ar þeirra helzti leiðtogi, sjálfur einvaldsherra Rússa lætur slíkt og þvílíkt út úr sér. Eins og blaðalesendum mun reka minni til, létum við und- irritaðir frá okkur fara fyrir tveimur mánuðum nokkur á- skorunarorð fyrir hönd bekkja- systkina Viðars Guðnasonar, Háukinn 8, Hafnarfirði, hjálpar og sjúkradvalar vestanhafs, en að dómi sérfræðinga var honum nauðsynlegt að fá slíka hjálp. Söfnunin hefur nú staðið yfir í þessa tvo mánuði og undir- tektir verið einstaklega góðar, og því viljum við og bekkjar- systkini Viðars þakka þeim fjöl- mörgu, sem lát.ið hafa fé af mörkum um okkar hendur til styrktar. Nemur sú upphæð samanlagt um 65 þús. krónum. Jafnframt er okkur kunnugt um, að margar og stórar upp- hæðir hafa safnazt eftir öðr- um leiðum og verið afhentar foreldrum piltsins beint. Við viljum gleðja alla hina mörgu góðu gefendur með þeirri frétt, að Viðar er fyrir nokkru farinn vestur og dvelur nú á Mayo Clinic í Rochester í Minnesota í Bandarikjunum og hafa borizt af honum mjög uppörvandi fréttir. Við undirritaðir og bekkja- systkini Viðars, gagnfræðingar úr Flensborgarskóla vorið 1959, viljum hér með láta í ljós inni- legar þakkir þeirra til allra, sem styrkt hafa okkur við þessa söfnun og látið fé af hendi rakna. Hafnarfirði, 29. maí 1960. Garðar Þorsteinsson Stefán Júlíusson. Samkomulag um verð á humar og flatfiski. lliftinarinit verði £lokkaður. í fyrradag náðist sanikomulag milli Landssambands ísl. útvegs manna annars veyar og Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsana og fiskvinnslustöðva é. vegum S. I. S. hins vegar um verð á humar og flatfiski til áramóta. Verðið á humar £ 1. flokki er kr. 7.25 kg. og í II. flokki kr. 3.75. Humar hefur ekki áður verið flokkaður, en £ 1. flokki er nú ferskur og heill humar, sem gefur 30 gr. liala og þar yfir, en 2. flokkur er smærri humar eða brotinn. Ef lialinn er 7 cm langur eða minni, er ekkcrt verð ákveðið. Samkomul. varð um eftirfar- andi verð á flatfiski, sem getur þó breytst, ef dragnótaveiðar verða leýfðar: A-flokkur: Rauðspetta % Ibs. og þar yfir, 4.30 kr. á kg. Rauðspetta 250 gr. — % Ibs. kr. 1.05 á lcg. Sólkoli %. lbs'. og þar yfir kr. 3.25 á kg. Sólkoli 250 gr. — % lbs. kr. 1.05. Lang lúra og stórkjafta 300 gr. og þar yfir kr. 2.30 á kg. Lúða 1 til 1V2 kg. kr. 4.75 á kg. Lúða 1% kg. og þar yfir kr. 5.65 á kg. í B-flokki er verð á öllum tegundum flatfisks % hlutar af verði A-flokks. Leitað að Kínverjum í Kanada. Kanadíska lögreglan hefur framkvæmt víðtæka leit í Kín- verjahverfum fimm helztu borga Kanada. Leikur grunur á, að starf- andi sé félag, sem smyglar Kín- verjum t,il landsins fyrir æri£ gjald á manna, svo a£ 10—15,000 Kínverjum hafi komizt til landsins með þessum hætti á síðu'stú tíu árum. Furiislag Rétttrúuðum kommúnistum finnst líka, að Krúsév sé bráðfyndinn, og líklega hafa þeir hlegið dátt, er hann sagði í stórpólitískri ræðu sinni, að „vegurinn til hel- vítis væri lagður góðum á- formum, og þar myndi Eis- enhower forseti lenda“. Það þarf sérstaka tegund kímni- gáfu til þess að iáta slíkt út úr sér, og virðist Krúsév sá eini af leiðtogum stórveld- anna, sem hana hefir, og yf- irleitt viðhefur hann munn- söfnuð, sem nú er orðinn al- kunnur af ræðum hans. Hitt er svo smávægilegra, og ætti engum að koma á óvart, er Krúsév sagði, að störf Eisen- howers forseta væri tvenns- konar, annars vegar goif- leikur, hins vegar embættis- feksturinn, og væri hinn síðarnefndi aukaatriði. Klunnaleg tilraun til fyndni og ruddaskapar einkenndu þessa ræðu hins rússneska einvaldsherra. Það er á fárra færi að vita, kímni. hver sé hinn raunverulegi tilgangur Krúsévs með slíkri ræðu. Sumir telja, og er sú tilgáta næsta sennileg, að með þessu hyggist Krúsév gera núverandi Bandaríkja- forseta hlægilegan, og þar með floklc hans, í því skyni að hafa einhver áhrif á for- setakosningarnar, sem fram eiga að fara seint á þessu ári. Hér skal ekki reynt að spá neinu um úrslit forseta- kosninganna í Bandaríkjun- um. Það innanlandsmál út- kljá Bandaríkjamenn sjálfir í kjörklefanum, fyrirbæri, sem er óþekkt í Sovétríkjun- um. En þó er sennilega ó- hætt að spá því, að ræða Krú- sévs og klunnaleg fyndni hans muni engu þar um þoka. En það er óhugnanlegt að velta því fyrir sér, að Krúsév og menn með samskonar hug- arfari skuli hafa það í hendi sér, hvort mannkyninu verði tortímt eða ekki. Og það er rétt, sem sagt er, að ofbeld- Ohio-háskóli sendir Há- skóla íslands bókargiöf. Þetta eru dómasöfn Háskólabókasafni barst ný- Iega mikil og verðmæt bóka- gjöf bandarískra dómasafna og annarra lögfræðirita. Eru bækur þessar gefnar af Ohio Northern University fyrir atbeina prófessors Eugene N. Hanson, deildarforseta við laga- deild þess háskóla. Auk þess hefir háskólabókasafni nýlega borizt góð gjöf lögfræðirita frá bókasafni Upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna hér á landi. Er isaðgerðir stórvelda og á- byrgðarlaust tal liðsodda þeirra eru leikur að eldi. En það eru fyrst og fremst stjórnarherrarnir í Kreml, sem þann leik stunda. Meðan vesturveldin og aðrar frjáls- ar þjóðir standa saman, er þó vonandi, að sá leikur breytist ekki í alvöru. og öainur lögfræðirit. háskólabókasafni og lagadeild ’ háskólanns mikill fengur að þessum ágæti bókagjöfum. Prófessor Eugene N. Hanson hefir dvalizt hér á landi ásamt (fjölskyldu sinni síðan í febrú- . ar fyrir miliigöngu Fulbright- ’ stofnunarinnar. Hefir prófess- orinn haldið hér námskeið í bandarískum skaðabótarétti fyrir laganema og lögfræðinga. Hefir hann kennt með svipuðu sniði og tíðkast við bandaríska lagaskóla, og mun þetta vera ein fyrsta tilraunin, sem gerð er á Norðurlöndum með slíka kennsluaðferð. Hefir tilraun þessi heppnazt mjög vel og skapað fjölbreytni í lagakennsl- unni. Auk þess hefir prófessor. Hanson haldið almenna fyrir- lestra vikulega um efni, sem varða bandaríska stjórnskipun og félagsmál. (Frétt frá Háskóla íslands). Föstu.daginn 3. júní 19.60 Vettvangur konunnar. „Borgari" skrifar Bergmáli: „Eg hlustaði á þáttinn „Spurt og spjallað" í útvarpssal á dög- unum, þegar rætt var fram og aftur um störf kvenna á heimil- um og utan heimila. Ekki veit ég hversu gagnlegt svona rabb er, en óneitanlega kemur þar þó sumt fram, sem virðist vel hugs- að og þaulhugsað, en ýmislegt líka vanhugsað og lítið er á því að græða, er bornar eru fram staðhæfingar sem virðast eiga að vera til rökstuðnings, en þyrftu þó að ræðast frekara, en það þó ekki gert. Þannig var á það bent af annarri konunni, sem tók þátt í þessu spjalli, oð konur hefðu eitt sinn sýnt hvað þær gátu ver- ið samhuga og duglegar, en það var þegar þær fengu fjórar kon- ur kjörnar í bæjarstjórn Rvíkur, og það állsnemma á þessari öld. Mikið rétt. Þetta voru ágætar og vel metnar konur, en þessi sigur hefur bara aldrei endurtekið sig. Þessar ágætar konur hafa vafa- laust reynzt jafnvel — hvorki betur eða verr — en bæjarstjórn- arfulltrúar af hinu kyninu, en sigurinn leiddi ekki til að konur fengju áfram sæti í bæjarstjórn í neinu hlutfalli við kjósenda- fjölda kvenna. Aðeins stöku kon- ur hafa haldið uppi merki kvenna hér í bæjarstjórn og á Alþingi og að visu gert það með sæmd, — en sannar það, hve fá- mennar konur eru í bæjarstjórn og á Alþingi ekki einmitt það, að þær telja sinn vettvang heimil- in? Vettvangm’, sein gleymdist. En í þessu skrafi í útvarpssal gleymdist að minnast á annan vettvang, utan heimilanna, þar sem konur hafa fundið ærið starfssvið fyrir þá umframorku, sem þær hafa yfir að ráða eftir unnin heimilisstörf, og það, hve þær hafa staðið sig þar, já, unnið stórvirki, sannar að einmitt þar er starfsvettvangur, sem konum er að skapi, þeim, sem vilja gott gera. Hér er átt við hið mikla starf konunnar i þágu slysa- varna, bindindisfélög og kirkju- leg félög og fleiri mætti sannar- lega líka nefna. Ekkert var á þetta minnzt. En réttilega, að konur hafa jafnan rétt til að koni ast í bæjarstjórn og á þing, standi hugur þeirra til þess. — Borgari.“ Melpláss í Skaftafellssýslu. Eftirfarandi fcréf hefur blað- inu borizt frá Þórði Þorsteins- syni á Grettisgötu 35 hér í bæ: „Mig langar til að biðja yður að rugla ekki saman i blaði yðar örnefnunum „Skjaldbreiður" og „Skjaldbreið". Þau eru fjarskyld. Skjaldbreiður er fjail í Árnes- sýslu, en Skjaldbreið er (eða var) melpláss austur í Skafta- fellssýslu (þar stendur í gömlum kirkjumáladaga XII hestar mels í Skjaldbreið). Græða þessi mun hafa eyðzt í jökulhlaupi, en ekki veit ég hvort hún hefur gróið upp eftui'. Mér þykir alltaf leiðinlegt, þeg- ar gömlum og góðum örnefnum er brjálað, en mér liggur í léttu rúmi, þó þið Guðjón Teitsson deilið um skipsheitið.-* „Hesturinn okkar.“ Vegna umkvörtunar eins les- anda Bergmáls, sem gekk erfis- lega að ná í eintak af nýja tíma- ritinu „Hesturinn okkar“, hefur

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.