Vísir - 03.06.1960, Blaðsíða 7
Föstudaginn 3. júní 1960
V f S I B
Enginn leikari telst
veriinr listamannalauna.
Felld niður laun þeirra sem á5ur höfðu
hlotið þau.
Úthlutun Iistamannalauna er nú lokið og liefur tekizt með
þeim endemun, að leikarar eru einir allra listamanna taldir
algerlega óverðugir þess að hljóta slík laun.
Úthlutun listamannalauna er
nú lokið og hefur tekizt með
þeim endemum, að leikarar eru
'einir allra listamanna taldir
algerlega óverðugir þess að
hljóta slík laun.
Það er mála sannast, að hlut-
ur leikara hefur alltaf verið
litill, þegar listamannafé hefur
verið úthlutað, en að þessu sinni
hefur nefndinni tekizt enn bet-
ur en ella að auðsýna mat sitt
á listum. Hún hefir ver-
ið mjög fundvís á ýmsa leiruxa,
sein engum réttsýnum manni
muiidi koma til hugar að nefna
skáld eða listamenn. Mim mega
þakka það að miklu leyti sér-
kennilegu mati formanns nefnd-
arinnar á listum, en hann hefur
vitanlega notið fulltingis komm-
únistans og framsóknarmanns-
ins við iðju sína.
Hér fer á eftir tilkynning
nefndarinnar um úthlutunina:
Úthlutunarnefnd listamanna-
íauna fyrir árið 1960 hefur lok-
ið störfum. Hafa 112 listamenn
hlotið laun að þessu sinni. í
nefndinni áttu sæti: Helgi Sæ-
mundsson ritstjóri (formaður)
Sigurður Guámundsson ritstjóri
(ritari) Bjartmar Guðmunds-
son alþingismaður og Jónas
Kristjánsson skjalavörður.
Listamannalaunin 1960 skipt-
ast þannig:
Kr. 33.220. Veitt af Alþingi:
Gunnar Gunnarsson, Halldór
Kiljan Laxness.
Veitt af nefndinni:
Davíð Stefánsson, Jóhannes
S. Kjarval, Jón Stefánsson,
Tómas Guðmundsson, Þorberg-
ur Þórðarson.
4
Kr. 20.000.
Asmundur Sveinsson, Guð-
mundur Böðvarsson, Guðmund-
ur Daníelsson, Guðmundur G.
Hagalín, GunnJau?ur Blöndal.
Gunnlaugur Scheving, Jakob
Thorarensen, Jóhannes úr Kötl-
um, Jón Engilberts, Jón I.mfs.
Kristmann Guðmundscon Ólaf-
ur Jóh. Signrðsson, Páll ísóifs-
son, Ríkharður Jónsson. Sigur-
jón Ólafsson, Snorri Hjartar-
son.
Kr. 10.000.
Agnar Þórðarson, Björgvin
Guðmundsson. Björn Th. Björns
son, Bragi Sigurjónsson, Elí-
as Mar, Elínborg Lárusdóttir,
Guðmundur Einarsson. Guð-
mundur Frímann, Guðmundur
Ingi, Gunnar M. Magnúss,
Halldór Stefánsson, Hallgrím-
ur Helgason. Hannes Pétursson,
Hannes Sigfússon, Feiðrekur
Guðmundsson, Höskuldur
Bergmál verið beðið að geta þess,
að það fáist í bókaverzlunum,
hjá Lárusi, í Kron, á Laugavegi
8 og e. t. v. viðar.
Björnsson, Indriði G. Þorsteins-
son, Jakob Jóh. Smári, Jóhann
Briem, Jón Helgason prófessor,
Jón Nordal, Jón Óskar, Jón úr
Vör, Jón Þorleifsson, Jónas
Árnason, Júlíana Sveinsdóttir,
Karl Ó. Runólfsson, Kristinn
Pétursson listmálari, Kristján
Bender, Kristján Davíðsson,
Kristján frá Djúpalæk, Magnús
Á. Árnason, Nína Sæmunds-
son, Nína Tryggvadóttir, Ól-
öf Pálsdóttir, Óskar Aðalsteinn,
Ragnheiður Jónsdóttir, Sigurður
Einarsson, Sigurður Siðurðs-
son, Sigurður Þórðarson, Sigur-
jón Jónsson, Stefán Jónsson,
Svavar Guðnason, Sveinn Þór-
arinsson, Thor Vilhjálmsson,
Vilhjálmur frá Skáholti, Vil-
hjálmur S. Vilhjálmsson, Þor-
steinn Jónsson, (Þórir Bergson)
Þorsteinn Valdimarsson, Þor-
valdur Skúlason, Þórarinn Jóns
son, Þorleifur Bjarnason, Þór-
oddur Guðmundsson, Þórunn
Elfa Magnúsdóttir, Örlygur
Sigurðsson.
Kr. 5,000.
Ármann Kr. Einarsson, Ás-
kell Snorrason, Egill Jónasson
á Húsavík, Einar Kristjáns-
son frá Jörundarfelli, Eyþór
Stefánsson, Fjölnir Stefánsson,
Friðjón Stefánsson, Gísli Ólafs-
son, Guðmundur L. Friðfinns-
son. Gunnar Gunnarsson, list-
málari, Gunnfríður Jónsdóttir,
Hafsteinn Austmann, Halldór
Helgason, Iielgi Pálsson, Hörð-
ur Ágústsson, Jóhannes Geir,
Jóhannes Jóhannesson, Jón Þór-
arinsson, Jórunn Viðar, Jökull
Jakobsson, Rósberg G. Snædal,
Sigfús Daðason, Sigurður Helga
son. Sigurður Róbersson, Skúli
Halldórsson, Sverrir Haralds-
ron listmálari, Stefán Hörður
Grímsson, Stefán Júlíusson,
Valtýr Pétursson, Veturliði
Gunnarsson, Wilhelm Back-
mann, Þorsteinn Jónssson frá
Hamri.
Úthlutunarnefnd listamanna.
launa vill að lokr.u starfi koma
eftirfarandi greinargerð á fram-
færi:
1) Fjárupphæð sú, sem nú
er ætluð íslenzkum listamönn-
um. hrekur alltof skammt og
sníður úthlutuninni svo þröng-
an stakk, að nauðsynlegum
breytingum á fyrirkomulagi
hennar verður ekki við komið.
Telur úthlut.unarnefndin' þess
vegna grundvallaratriði, að Al-
þingi hækki fjárupphæð þessa,
enda hefur hún engan veg.inn
fylgt hækkunum á fjárlögum
eða verðsveiflum þeim, sem
orðið hafa undanfarin ár. Virð-
ist leiðrétting í þessu efni ó-
hjákvæmileg, ef listamanna-
launin eiga að koma að tilætl-
uðum notum. •
2) Nefndin hefur að þessu
s.inni fækkað úthlutunarflokk-
unum um einn, en varð vegna
fjárskorts að sameina 12,000
króna flokk og 8,000 króna
flokk frá undanförnum árum í
nýjan 10,000 króha flokk Af-
leiðing þessa er sú,' að 231ista-
menn lækka nokkuð í launum,
en 33 hækka aftur á móti við
sameiningu flokkanna. Nefnd-
inni þykir miður að hafa þurft
að lækka laun af þessum sök-
um, en metur fækkun úthlut-
unarflokkanna svo mikils, að
hún taldi þessa ráðstöfun naum-
ast áhorfsmál. Aukin fjárveit-
ing til listamannalauna myndi
hins vegar gera nefndinni auð-
ið að lagfæra þetta, auk þess
sem þá yrði við komið frekari
tilfærslu listamanna millá
flokka og sömuleiðis að fækka
enn úthlutunarflokkum, en
þannig sýnist unnt að láta út-
hlutunina þjóna betur tilgangi
sínum.
Reykjavík 2. júní 1960.
Helgi Sæmundsson (sign)
Bjartmar Guðmundsson (sign
Sigurður Guðmundsson (sign)
Jónas Kristjánsson (sign)
Rekstrartekjur bæjarins
270,8 milj. 1959.
Reiknmgar Rvk. bæjar lagdir
fraim í gæs*.
Á fundi bæjarstjórnar í gær
voru lagðir fram reikningar
Reykjavíkurbæjar og fyrir-
tækja hans fyrir árið 1959.
Borgarstjóri, Geir Hallgrímsson
hafði framsögu um reikning-
inn, og gerði grein fyrir einstök
rnn atriðum hans.
Rekstrartekjur bæjarins voru
á árinu 211,3 millj. hærri en
gert var ráð fyrir í áætlun, og
var ástæðan sú, að lagt var á
útsvar 5—10% fyrár vanhöld-
um, svo sem heimild er fyrir í
lögum og eins og venja er. Þrátt
fyrir það námu óinnheimt út-
svör í reikningslok 31,9 millj.
króna.
Fjöldamorð og hand-
tökur í Tyrklandi.
Yfir 400 þingmenn í haldi. — Stúdentaíík
í fjöldagröfum og frystihúsum.
Frá Tyrklandi berast fregnir
um fjöldamorð í tíð fyrrverandi
stjórnar og handtökur.
Frá Tyrklandi berast þær
fregnir, að handteknir hafi ver-
ið nær allir þingmenn lýðræðds-
flokksins, sem var stjórnar-
flokkur í valdatíð Menderesar.
Eru það alls 403 þingmenn af
406, sem handteknir hafa verið,
og eru þeir nú allir í haldi á
ey í Marmarahafi og bíða þess,
að Dómaranefndin yfirheyri þá.
Einnig hafa verið handteknir
hátt settir menn í landher og
flota, þeirra á meðal hersliöfö-
ingjar. Kunnugt er, að hinar
þyngstu sakir munu verða born-
ar á suma þessara manna, en
þeir fá alla lagalega aðstoð til
j varnar, og eru þá örlög þeirra
undir því komin hvað sannast,
en líflátshegning liggur við
morðum og föðurlandssvikum
í Tyrklandi, en slíkar ákærur
vofa yfir sumum hinna hand-
teknu.
i Samtímis því, sem fréttirnar
bárust um handtökunarr, frétt-'
ist nefnilega, að stúdentalík
hefðu fundizt í fjöldagröfum í
Ankara og frystihúsum í
Miklagarði.
I Hin nýja stjórn í Tyrklandi
hafði, er síðast fréttist, fengið
viðurkenningu 20—30 ríkja.
Rekstrargjöld voru áætluð á
árinu rúmlega 209,1 milljón
króna, en urðu 212,2 millj. kr.,
og nema umframgreiðslur þann
,ig 1,5% af áætlunarupphæð-
inni. Það var sérstaklega tekið
fram að greiðslur vegna gatna
og holræsagei’ðar fóru 4,3 millj.
fram úr áætlun. •
Yfirleitt stóðust rekstraráætl-
anir bæjarins vel, og munar
hvergi meiru en 5,26%.
Eignaaukning bæjarsjóðs og
fyrirtækja hans nam 92,7 millj.
á árinu. Hi’ein eign var í árs-
byrjun 537,7 millj., en í árslok.
var hún 630,4 millj. kr,
Kostnaður við nýlagningu
gatna hefur aukizt með hverju.
ári undanfarið, og var á s.l. ári
127,3 milljónir krónur.
Skuldir, sem bæjarsjóður
stendur straum af, hækkuðu á.
árinu um 14,6 milljónir, Stafar
þessi hækkun eingöngu af því
að bærinn hefur orðið að leggja.
fé til ýmissa fyrirtækja sinna,
svo sem Hitaveitunnar, 12,S'
rnilljónir kr., en hún skuldar
bæjarsjóði nú 24,5 millj. Tók
borgarstjóri fram að ráðstaf-
anir hefðu verið gerðar til að
útvega Hitaveitunni lánsfé tiL
stórfelldra framkvæmda, og
taldi ástæðu til bjartsýni um.
árangur þe.irra tilrauna. Stræt-
isvagnar voru á árinu mjög
fjárfrekir vegna mikilla kaupa.
á almenningsvögnum, og lagðr.
bæjarsjóður þeim til 1,9 millj.
kr. í þeim tilgangi, auk þess
framlags, sem ráð var gert fyr-
ir í áætlun. Skulda Strætisvagn.
Góö landkynnlng...
T D F R D1 D N D I Ð
ISLOND
Fögur myndabók með íjölda
mynda af landi og þjóð. —
Góð gjöí iil vina
yðar erlendis.
Fæst í öllum
bókaverzlunum.
IC f l ANp WONOlAi* NO
Pantanir:
Davío S. Jónsson & Co. h.f.,
Sími 24333.