Vísir - 16.09.1960, Blaðsíða 1
12
síður
q
t\
I
y
12
síður
50. árg.
Föstudaginn 16. september 1960
207. tbl.
Portúgalar óttast m, ú ókyrrðin
i Kongó geti breiÓst til Angola.
Hafa aukið herlið sitt þar undanfarið,
svo að lítið hefir borið á.
Mákvssmar gætur baföar á þefm blökku-
möstnum, sem kynnu að gerast foringjar
uppreistar.
Hér sjást þeir Kasavubu og Lumumba, meðan þeir voru enn
vinir.
Segist ekki hafa orðið
var við Rán.
Bedford neitar ákæru. Skotið var
Ijóskúlum að togaranum og morsað
til hans án árangurs.
Réttarhöldunum í máli skip-
stjórans á Wyre Mariner, Percy
Bedford lauk ekki í gær og verð
ur þeim haldið áfram í dag. Er-
lendur Björnsson, bæjarfógeti á
Seyðisfirði sagði við Vísi í morg
un að hann byggist við því að
dómur yrði kveðinn upp í mál-
inu í dag.
Skipstjórinn hefur neitað á-
kærunni og segist ekki hafa orð
ið var við gæzluflugvélina Rán 1
á umræddum degi; þann 7. júlí.
og ekki farið inn fyrir 12 mílna J
mörkin, sámkvæmt mælingum
með Loran og Deccatækjum.
Aðspurður sagðist hann aldrei
hafa farið inn fyrir þriggja eða
fjögurra mílna landhelgina þeg-
ar þær voru í gildi. Bedford
skipstjóri er fimmtugur að aldri
og hefur veitt á íslandsmiðum
nær eingöngu á svæði frá Vest-
manna eyjum að Langanesi í 27
ár. Aðspurður kvaðst hann bera
virðingu fyrir mælingum ís-
lenzku varðskipanna en kvað
það vera álit sitt að erfitt væri
að gera nákvæmar staðar-
ákvarðanir úr flugvél.
Þá sag'ði Bedford, að hann
hefði heldur látið togarann
Lord Lloyd sökkva en fylgja
Frarnh. á 2. síðu.
Kunnu sérfræðingar
Lúðvíks íslenzku ?
Fáránleg rök kommúnista vegna
álits norska hagfræðingsins.
Kommúnistar og fylgifiskar þeirra meðal framsóknar-
manna eru sárreiðir samvinnunefnd launþega fyrir að hafa
fengið norskan hagfræðing til að segja álit sitt á efnahags-
ráðstöfunum ríkistjórnarinnar. Eru bað helztu rök Þjóð-
viljans í morgun, að þessi maður hafi ekki kuunað íslenzku!!
Ýmsir hljóta því að spyrja, hvort þeir hafi kunnað íslenzku,
sérfræðingarnir, sem vinstri stjórnin hans Lúðvíks Jóseps-
sonar fékk á sínum tíma til að koraa til landsins. Hætt er
við, að erfitt reynist að fá erlenda menn til að segja álit
sitt á málefnum okkar hér, ef það er aðalskilyrði, að þeir
kunni íslenzku.
Það eru gildar ástæður fyrir
því, að engar fréttir eru símaðar
frá Angala, nýlendu Portúgala
á vesturströnd Afríku — þar er
algert fréttabann.
Nýlendustjórn Portúgala
tekst þó ekki að girða alveg
fyrir, að frétt.ir berist úr land-
Rússar reknir
frá Tíhet.
Kínversku yfirvöldin í Tíbet
hafa skipað sovézkum tækni-
fræðingum og ráðgjöfum að
hafa sig á brott úr landinu.
Þetta er haft eftir kaup-
mönnum, sem eru nýkomnir frá
Tíbet til Indlands. Er talið, að
um 300 Rússar hafi yfirgefið
Tíbet samkvæmt skyndilegri
skipun frá Peking. Rússarnir
voru upphaflega kallaðir til
Tíbet til að aðstoða við „endur-
reisn“ Tíbetríkis eftir síðustu
uppreistartilraun andkommún-
ista.
Frakkar drepa 92
skæruii&a.
Franskar hersveitir liafa átt í
fimm daga viðureign við serk-
neska uppreistarmenn í Aures-
fjöllum.
Segir franska herstjórnin, að
barizt hafi verið af mikilli
hörku, enda hafi endalokin
orðið sú, að 92 uppreistarmenn
■’ voru felldir, fimm teknir hönd-
i um oa 20 menn að auki, sem
I
j grunaðir voru um að veita þeim
I aðstoð.
inu, því að þrátt fyrir strangt
landamæraeftirlit komast menn
yfir til næstu landa. Fréttamað
ur frá United Press, sem starf-
andi er í Kóngó, hefur rætt við
blökkumann, sem kominn er
fyrir skömmu frá Angola.
Seg.ir fréttamaðurinn, að
Portúgalar hafi veitt svertingj-
um enn minni réttindi en aðr-
ar nýlenduþjóðir, svo að ný-
lendubúar eigi þess vegna erf-
iðara með að ,,vakna“. Menntun
er einnig mun minni en t. d. í
Kongó, en þar urðu það e.inmitt
hinir menntaðri svertingjar, er
tóku upp merkið gegn nýlendu-
veldi Belga.
Þrátt fyrir þetta örlar á þjóð-
ernsbaráttu í nýlendunni, en
Portugalar eru fljótir.að komá-st
að því, ef e.inhver slík[,hreyfih;g
er uppi. Handtaka þéir jafnóð-
um þá, sem upp kemsf um, að
j hvetja til þess, að frelsiskröfur
séu settar fram. Þessum mönn-
| um er síðan komið fyrir á af-
skekktum stöðum, þar sem nán-
ar gætur eru á þeim hafðar,
þótt ekki sé hægt að segja, að
um fangabúðir sé að ræða.
En Portúgalar telja ekki,
að þessar ráðstafanir nægi
einar, því að jafnframt hafa
þeir flutt aukið herlið til ný-
lendunnar, svo að þar mun
nú ekki vera færri menn en
25,000.
7 • \
Baltika, rússneska skemmtiferðaskipið, sem Krúsév fer með
vestur um haf, fór á sunnudag um Ermarsund. Myndin var þá
tekin úr flugvél.
Glundroðinn eykst í Kongó:
Boðað til þingfundar
- þinghús umkringt.
IJlvarpið boðaði til skyndi-
fnndar i morgun.
íslendingar
*
unnu Ira.
Islendingar unnu úrvalslið
frá Cork á írlandi með fjórum
mörkum gegn tveimur í gær.
Skilyrði á leikvelli voru
slæm. Það hafði nýlega rignt
og völlurinn var linur og
blautur. Ellert Schram og Jak-j
ob Jakobsson voru beztu mennj
liðsins. I
í morgun boðaði útvarpið í
Leopoldville til skyndifundar
þingsins til að hlýða á boðskap
æðsta manns ríkisins.
Ekki var þess getið, hver væri
æðsti maður ríkisins, en þessi
tilkynning kemur illa heim við
þá tilkynningu Mobutos ofursta,
að hann hefði svift þingmenn
umboði og sett ráðherra alla af,
auk forseta landsins.
Hersveiiir voru látnar slá
hring um þinghúsið í Leopold-
ville í morgun, og komu her-
menn í veg fyrir, að menn kæm-
ust inn í það. Er talið. að það
hafi verið gert samkvæmt fyrir-
skipunum Mobutos.
í fyrri fregnum sagði -svo:
Erfitt er að gera sér grein
fyrir því, hve hefir imdirtökin í
Kongó, en ekki er komin kyrrð
á þar.
Lumumba var í gær sýnt
banatilræði, en hermenn frá
Ghana skutu honum undan,
svo að menn úr Kongóhernum
náðu ekki til hans. Er óljóst,
hvar Lumumba er nú niður-
kominn, en fregnir herma, að
menn Mobutos hafi flutt hann
heim til hans og gæti hans þar.
Sendiráð Sovétríkjanna og
annarra kommúnistaríkja eiga
að vera á brott úr Kongó í
kvöld, að því er Mobuto fyrir-
skipaði í fyrradag, en -í gær
voru sendiráðin opin eins og
áður og enginn maður sýndi.á
sér farársnið. .Virðast völd Mc-
butos þvf engan veginn éins
trygg og hann vill vera íáta..