Vísir - 25.11.1960, Blaðsíða 3
Föstudaginn 25. nóvember 1960 VÍSIB
3
LETTM ETI
Það er ennþá sól
og sumar sums
staðar á Ítalíu,
eins og þessi
mynd. gefur til
kynna. Þetta er
Pier Angeli
ítalska leiklcon-
an, sem getið
hefur sér livað
mesta frægð vest-
an hafs, og sonur
hennar. Hún er
gift söngvaranum
Vic Damone, en
hjónaband þeirra
hefur verið held-
ur óhamingju-
samt að undan-
förnu. Hún flýði með drenginn til heima-
landsins, og um hríð gerðist ekkert. En svo
barst það til eyrna Damone, að hún væri far-
inn að sjást einum of oft í fylgd með ítalska
leikaranum Maurizio Arcna. Damone beið
ekki boðanna og hraðaði sér til Ítalíu, þar
sem hann hyggst taka aftur upp þráðinn þar
sem frá var horfið. Og hver getur reyndar
láð honum þótt hann sé afbrýðissamur?
James Mason leikur „vin“ 12 ára
stúlku í „Lolitr.
Urri þessar mundir
er verið að vinna að
undirbúningi myndar-
innar Lolitu, sem er
gerð eftir samnefndri
bók eftir Nabokov.
Bókin fjallar um und-
arlegt efni. 12 ára
gamla stúlku og full-
orðinn mann, og sam-
bandið milli þeirra.
Það var leitað til
margra leikara til þess
að fara með hlutverk
hins fullorðna manns,
sem er mörgum sinnum
eldri en stúlkan, þeirra
á meðal Sir Laurence
Olivier og David Niv-
en, auk margra ann-
arra. En það gekk ekki
sem bezt að fá hinn
rétta mann í hlutverk-
ið, þótt nú hafi það
tekizt. Það er James
Mason, hinn góðkunni,
brezki leikari sem mun
hafa orðið fyrir valinu.
Hann hefur, sem kunn-
ugt er leikið í mörgum
góðum myndum, sér-
staklega á meðan hann
starfaði enn í Englandi.
Þá lék hann í myndum
eins og „Odd Man
Out“, sem af mörgum
er talin ein bezta mynd
hans. En undanfarin
ár hefur hann leikið í
Hollywood, enda er það
almennt talið betra fyr-
ir pyngjuna, bæði með
tilliti til kaups og
skatta, að starfa þar.
Með hlutverk hinnar
12 ára gömlu stúlku
fer 14 ára gömul sjón-
varpsstjarna, Sue
Lyon, frá Los Angeles.
Vafalaust verður þetta
mjög athyglisverð
mynd, eins og bókin,
þótt sumum kunni að
finnast, að þér sé
gengið einum of langt.
☆
Miðaldra er maður-
inn, þegar hárvöxtur-
inn minnkar og maður-
inn tekur í þess stað
að vaxa um miðbikið.
,J>að er ódýrara en að láta stoppa þá upp“.
Svört eða hvít?
Bandaríska söngkon-
an Eartha Kitt hefur
dvalið í London und-
anfarnar vúkur, þar
sem hún hefur m. a.
komið fram í nætur-
klúbbnum „The Talk
of the Tovvn“. Hún er
þar með eiginmanni
sínum, Bill MacDonald, sem er fasteignasali.
Eins og við var að búast ,hefur hin þeldökka
söngkona vakið mikla athygli fyrir söng sinn.
Hún hefur verið spurð að því hvort það muni
ekki valda erfiðleikum fyrir börn hennar í
framtíðinni, að hún er dökk og hann hvítur.
„Ef börnin eru rétt upp alin, þá læra þau
að lifa með öðru fólki, alveg eins og hver
önnur börn.“ En það sem vakti meiri athygli
var sú yfirlýsing söngkonunnar, að hún von-
aðist til þess að eiga von á erfingja áður en
hún færi frá London, — fyrir jólin. Myndin
hér að ofan er af liinum nýgiftu hjónum.
Maður nokkur í
Chicago, John Hagerthy
að nafni, fékk dóm
fyrir að hafa í öl-
vímu, kvatt slökkvi-
liðið á vettvang, til
þess að lækna í sér
magabrunann sem staf-
aði af drykkjunni.
☆
Það logaði 80
min. t pípunni.
. .Nýlega var haldin
hin árlega keppni pípu-
reykingamanna í Pen-
sylvaniu í Bandaríkj-
unum. Sá hét Richard
Austin sem vann keppn
ina að þessu sinni, en
samt tókst honum ekki
að slá heimsmetið. Til-
skilið er í þessai’i
keppni, að ekki sé not-
uð nema ein eldspýta.
Austin tókst að halda
logandi í pípu sinni 1
klst. 20 mín. og 10 sek.
Heimsmetið er hins
vegar 2 stundir 5 mín.
og 7 sek. Alls tóku 22
þáttakendúr í þessari
keppni nú, þar af voru
þrjár konur.
Asnmn og
aurarntr.
Mjög óvenjulegur
atburður kom fyrir á
ítaliu fyrir ekki löngu
síðan. Maður nokkur
gekk inn í hesthúsið
sitt — að vísu til að
huga að asnanum sín-
um. Maðurinn tók af
sér jakkann og hengdi
hann á nagla. Eftir
nokkra stund varð hon-
um litið upp. Asninn
hafði þá rifið jakkann,
náð úr honmn veski
mannsins, úr veskinu
hafði hann náð pen-
mgaseðlum — í allt
500.000 lírum. En mað-
urinn kom fjármunum
sínum of seint til bjarg
Tvíkvænismaðurinn
sagði við dómarann:
„Þér verðið þó að við-
urkenna, herra dómari,
að eg er einn af þeim
fáu mönnum sem á tvo
betri helminga.“
ar, því að asninn hafði
þegar gætt sér á
450.000 þeirra. Hver
segir, að asninn hafi
ekki haft fjármálavit.
Maður nokkur kom
akandi á nýjustu gerð
af amerískum bíl inn á
benzínstöð og sagði við
afgreiðslumanninn:
„Fylltu fyrir mig
tankinn“.
Eftir stundarkorn
sneri afgreiðslumaður-
inn sér að bíleigand-
anum og sagði: „Held-
urðu að þú drepir ekki
á honum. Annars get eg
aldrei fyllt tankinn.”
Árangur er bezti
mælikvarði á þá sem
væru ekkert án árang-
urs.
Ems dauöi,
annars brauÖ.
Þegar gleðikvenna-
húsunum á Ítalíu var
lokað, urðu margar
ungar stúlkur at-
vinnulausar, og nýlega
var gerð um þetta
mynd á Ítalíu. Með að-
alhlutverkin fara
Simone Signoret og
Emanuelle Riva, en
hlutverk karlmann-
anna eru í höndum
Marcello Mastroianni
(sem mörgum er
kunnur hér). Auk þess
kemur maðurinn sem
samdi „Volare" Dom-
enico Modugno, fram
sem söngvari í mynd-
inni.
Ættarhöfðinginn frá
Nýju Gíneu kom um
borð í millilandaflug-
vélina. Flugþernan
rétti honum matseðil-
inn. Hann horfði lengi
á hann og sagði svo:
Gæti ég ekki fengið
farþegalistann?“
Draumurinn
rættist.
William Tyler heitir
hann, og hefur alla
ævi verið burðarkarl á
járnbrautarstöð. Það
var alltaf draurnur
hans að verða svo rík-
ur að hann gæti tekið á
leigu einkajárnbraut-
arvagn og ferðast í
honum þvert yfir
Bandaríkin. En árin
liðu, og Tyler bjó alltaf
við fátækt. Er hann
var orðinn of gamall
til að bera töskur,
hætti hann að vinna
og lifði á eftirlaunum
sínum, sem vissulega
leyfðu ekki slíkan
munað. En svo vann
Tyler gamli 150.000
dali í happdrætti, og
er síðast fréttist hafði
hann tekið á leigu
skrautbúinn járnbraut-
‘arvagn fyrir 15.000
dali og var á leið þvert
yfir Bandaríkin með
konu sinni og sex vin-
um sínum.
★
Skrítin bréfa-
skipti.
Maður nokkur var
lengi búinn að senda
viðskiptavini sínum
reikning, án árangurs.
Loks greip hann til síð
asta ráðs. Hann sendi
rukkunarbréf, og með
bréfinu sendi hann
mynd af lítilli dóttur
sinni. Undir myndinni
stóð: „Ástæðan fyrir
því að ég get ekki
borgað.“
Skömmu seinna
barst honum svarbréf,
og ' umslaginu var
mynd af ungri, fallegri
stúlku ; bikinibaðföt-
um. Undir myndinni
stóð: „Ástæðan fyrir
því að.ég get ekki beð-
ið.“
Annouchka heitir
hún þessi fallega
i stúlka, sem að undan-
| förnu hefur verið mik-
ið í fréttunum. Hún
! er nefnilega af mörg-
jum talin líklegust til
*þess að verða eigin-
j kona Karim Aga Khan,
" sem er sennilega einn
ríkasti maður í heiminum, þótt liann sé rétt
nýslopinn úr skóla. Þau hittust fyrst á bað-
strönd við Miðjarðarhafið, og er hann sagði
henni hver hann var, hélt hún að hann væri
að gerá grín að sér. En það kom von bráðar
í Ijós, að svo var ekki, og síðan hafa þau
verið óaðskiljanleg. Þau hafa farið saman á
skíði í Sviss, vatnaskíði á Miðjarðarhafinii,
og komið saman í ótal boð og veizlur. Ann-
ouchka er í menntaskóla, og nú mun hún
dvelja við nám í húsi Karims „Chateau de
l‘Horizon“.