Vísir


Vísir - 28.11.1960, Qupperneq 3

Vísir - 28.11.1960, Qupperneq 3
Mánudaginn 28. nóvember 1960 TfSIB Nýjar Loga bækur Benni í Indó-Kína er bráðsnjöll bók um flugævintýri Benna og félaga. — Benni er nafn, sem allir íslenzkir drengir þekkja. Benni í Indó-Kína er óskabók allra drengja. Shtrley verður ftugfreyja Konungar geimsins segir frá hinu ævintýraríka starfi, sem flestar stúlkur þrá. Shirley verður flug- freyja er vafalaust bókin , sem allar stúlk- nr aska ser. er önnur bóldn í bókaflokknum um geimferðaævintýri Rex Clintons. — Til- valin gjöf fyrir unglinga sem unna nýj- um og spennandi ævintýrum. Eg hefi valið að ræða við ykkur um geðvernd barna. Það mál hefir ekki verið ýkja mikið kynnt hérlendis og geri eg mér því vonir um, að ekki sé borið á bakkafullan lækinn, þó að lítið eitt sé frá því sagt. Geðvernd er einn þáttur al- mennrar heilsugæzlu eða heil- brigðisvama. Segja má að heil- brigðisvarnirnar séu tvenns Jconar: andleg heilsuvernd, — «ða geðvernd —, og líkamleg heilsuvernd. Langt er orðið síð- an við íslendingar tókum að sinna líkamlegri heilsuvernd og skipuleggja þau mál. Margir snætir menn hafa þar lagt hönd á píóginn, miklu fé hefir verið varið, enda getum við stært okkur af góðum árangri. Þorri manna er orðinn býsna vel að sér um líkamlega sjúkdóma, veit hvernig á að verjast þeim og hvað ber að gera, ef sjúk- dóms verður vart. Baráttan gegn líkamlegum sjúkdómum hefir á seinni árum snúizt meira og meira í þá átt að koma í veg fyrir að sjúkdómar yrðu til. Mæður fá fræðslu um meðferð ungbama. Árlega flykkjast þús- undir ungra íslendinga til bólu- setninga og almennrar heil- brigðísskoðunar. Gleðilegt er til þess að vita að við höfum rétt svo úr kútnum í þessum efnum, að við megum þar teljast meðal fremstu menningarþjóða. Allt værí þetta gott og blessað og nægilegt ef maðurinn væri ein- ungis líkami, eða ef afleiðing líkamsheilsu væri ætíð andleg heilsa. Þessu er þó ekki alltaf þann veg farið. Hægt er að vera líkamlega hraustur og eiga þó við andlega vanheilsu að stríða. Geðræn vandamál geta engu að síður náð að þróast, þó að lík- áminn sé hraustur og vel nærð- ur. Nauðsyn andlegrar heilsuverndar. Það er eiginlega fyrst nú, að mönnum er farið að verða ljóst, að nauðsynlegt er að skipu- leggja andlega heilsuvernd eins vandlega og rækilega og þá lík- amlegu eigi heilbrigði þjóðar- innar og velferð að verða velj borgið. Þar eigum við mikið verk fyrir höndum og dýrt, þó að dýrara verði til lengdar að vanrækja það. Almenningur þarfnast fræðslu. Fræðslu um andlega sjúkdóma og hug- vandamál. Fólk þarf að vita hvenær ástæða er til að það leiti sér lækninga. Því þarf að verða ljóst að heimskulegt og hættulegt er að fara í felur með jafnrétti á við þá líkamlegu. Ennþá hljóma orðin „Kleppur“ og „klepptækur“ nokkuð sér- staklega í eyrum flestra íslend- fésta á sig sjúkdómsheitið Vísir varft þess var, þegar Sigurjón Björnssan hafði flutt í útvarpið — þ. 21. okt. sl. —- erindi það, sem hér fer á eftir, að margir töldu það svo merkilegt, að rétt væri að það birtist á prenti. Hefir blaðið því fengið leyfi til birtingarinnar. — Millifyrir- sagnir eru blaðsins. sniðið eftir getu þeirra. Við horfum á hegðunarvandkvæðin vaxa ár frá ári, það eru oft við- brögð lítilmagnans, sem situr skuggamegin í tilverunni. Og jvið höfumst ekki að. Jafnvel foreldramir sjálfir rísa ekki til andmæla, því að. þá getur það orðið lýðum ljóst að þau eiga aumingja, sem; getur ekki lært. Við gleymum því tíðast að bak 'við sýndarhjúp sljóleikans, námsleiðans, uppreistarinnar eða hvað við viljum kalla það, j búa iðulega grimm örlög, sem bitnuðu á saklausum. [ Vissulega et afstöðubreyting- GEÐVERND andleg mein sin og fyrirverða sig fyrir þau. Og það þarf að láta því nægilega aðstoð í té. Það þarf að kenna fólki að verjast þessum sjúkdómum og fyrst og fremst þarf að koma í veg fyrir að þeir verði til, þar sem það stendur í mannlegu valdi. Firrur og hjátrú. Þar er eg kominn að geðvernd barna, því vitað er að flestar geð- og hugveilur eiga sér upp- tök í bernsku. Grundvöllurinn undir öllum raunhæfum aðgerð- um í geðverndarmálum er af- staða þjóðarinnar til andlegra meinsemda. Eins og að líkum lætur eigum við þar við margs konar hleypidómafirrur og hjá- trú að stríða, sem nauðsynlegt er að uppræta. Mjög skortir á að við veitum geðrænni veiki ,,móðursýki“. Og hvað dettur inga. Og fáir mundu vilja láta mörgum i hug að það sé raun- veruleg veiki, sem hægt sé að lækna og sem þurfi að lækna? Við erum sammála um að heila- himnubólga sé hættulegur og alvarlegur sjúkdómur og sízt dettur okkur í hug að hafa hann í flimtingum. En þegar sá sjúk- dómur skilur eftir sig spor sín sem greindarskortur, hættir okkur við að kalla það heimsku. I' Menjar erfða eða áfalla. ; Erfiðlega gengur að reisa þeim sjúklingum hæli, nema þá helzt ef þeir eru algjörlega ó- sjálfbjarga. Við látum hin treggreindu börn okkar, sem 'bera saklaus menjar erfða.eða áfalla, flækjast í barnaskólun- ■ um okkar, þar sem ekkert er ar þörf á öllum þeim sviðum, sem að geðvernd lúta. Á það verður vart lögð nægileg á- herzla. Örlítið skref í áttina. Með opnun geðverndardeild- jar fyrir börn í Heilsuverndar- stöð Reykjavíkur hefir verið stigið örlítið skref í áttina til skipulagningar geðverndar- mála. En það er aðeins fyrsta sporið af mörgum sem taka þarf. Er þar fyrst til að taka, að deild þessi er ekki opin öðr- um en Reykvíkingum. Næsta stig þyrfti að vera að koma á fót fullkominni rannsókna- og lækningastöð fyrir allt landið. Og það er heldur ekki nóg. Lækninga- og rannsóknastöð getur ekki hjálpað nema nokkr- um hluta þeirra barna, sem ‘ þangað er leitað með. Hún getur e. t. v. rannsakað þau öll, en að því er lítið gagn, ef börnin eru svo send heim að lokinni rannsókn, og allt situr í sama farinu eftir sem áður. Eg vil útskýra mál mitt nokkru nán- ar. Geðverndardeildin getur aðeins hjálpað þeim börnum, sem eiga heimili í Reykjavík og geta komið þangað lækninga- tíma einu sinni eða oftar í viku. Þau börn, sem haft geta not af þessari lækningu þurfa að hlýta eftirtöldum skilyrðum: 1) Þau þurfa að geta búið heima hjá sér, 2) þau þurfa að eiga foreldra eða aðra vandamenn, sem hægt er að eiga nána sam- vinnu við, 3) þau mega ekki vera hald- in öðrum sjúkdómum en vægri taugveiklun af ein- hverju tagi, 4) og þau þurfa að vera til- tölulegá ung að aldri. Mörg er ekki hægt að aðstoða. Þau börn, sem ekki er unnt að aðstoða með þessu móti, eru mörg. Kemur þar til greina bæði sjúkdómur barnsins og umhverfi. Rannsókna- og lækn- ingastöð þarfnast því nokkurra hjálparstofnana, eigi hún að nýtast fyllilega. Það kann ef til vill að virðast fánýtt að þvlja hér upp óskalista, en hann ætti þó að geta sýnt okkur betur en annað, hversu skammt við erum á veg komin í geðverndarmál- unum. Sjúkdómi sumra barna er þann veg háttað, að ekki er unnt að rannsaka þau að fullu, nema því aðeins að hægt sé að fylgjast með öllu atferli þeirra um nokkurt skeið. Fyrir þau börn þyrfti að koma upp sjúkra- deild í sambandi við rannsókna- stöðina. Öðrum börnum er unnt að hjálpa ef þau eiga þess kost að Framh. á 9. síðu.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.