Vísir - 16.01.1961, Side 9

Vísir - 16.01.1961, Side 9
M£ruiáaginn 16. janúar 1961 VtSIR Félagið Vernd. Erfndiskafli eftir dr. Gunnbug Þór&arsoi. (Eftirfarandi erindiskafli, er höfundur flutti nýlega í út- varpsþættinum „Um daginn og veginn“, er birtur hér að ósk þeirra, sem standa að samtök- unum „Vemd“, enda hefur tæp lega verið vakin verðug athygli á starfsemi þessa félags, sem vafalaust á eftir að láta mikið gott af sér leiða.) Það mun vera í vaxandi mæli álit sálfræðinga að vinátta og kærleikur sé eitt mikilvægasta veganesti, sem foreldrar geti lát ið bömum sínum í té og sumir leita orsaka þess að menn mis- stíga sig á lífsbrautinni til bess, að beir hafi ekki fengið þá Mýju, sem þeim var nauðsvnleg á bamsaldri. Samtökin Vernd. Fyrir tæpum tveimur árum voru stofnuð samtök hér í bæn um til hjálpar þeim mönnum, sem komizt hafa í kast v.ið lög- in og þióðfélagið. Samtök þessi heita Vernd og voru það áhusa menn um fangelsismál, samtök kvenna og ýmsir aðrir aðilar, sem stóðu að stofnun þessara samtaka og er starfssvið þeirra algjörlega bundið við þá þióð- félagsborgara, sem hlot.ið hafa refsidóm eða sætt ákæru og við það miðað að stuðla að þvi að þ.eir vinni aftur traust samfé- lagsins. En þá er einn megin-tilgang- ur samtakana, að taka að sér eftirlit með fólki, sem hlotið hefur skilorðsbundinn dóm eða ákæru á er frestað. — Er hér um mjög brýn verkefni að ræða, því það er mikill ábyrgð- arhluti að senda óharðnaða ung linga eða unga menn í fangelsi innan um harðsvíraða og marg dæmda ógæfumenn — og því miður er það svo hjá okkur að miklar líkur eru til þess að slík- ir menn komi lakari menn til baka að betrunarvistinni lok- inni. — Er það ærið íhugunar- efni, sem ekki skal farið nánar út í að þessu sinni. "* Samtökin Vernd lé*u það vera sitt fyrsta verk að hafa jólafagnað fyrir þessa menn og aðra, sem hér eru meira og minna húsvilltir á götum bæj- arins og hafa sumir hverjir ekki haldið jól inni á heimili árum saman. — Og á s.l. hausti hófu samtökin starfrækslu heimilis fyrir fyrrverandi fanga hér í bænum. Samtökin hafa útveg- að þessum mönnum vinnu og fylgzt með þeim síðan. Dómsmálastjórn landsins hlýt ur að vera fengur að starfi slíkra samtaka og má vænta þess að gott samstarf takist. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem mér hefur tekizt að afla, hafa samtökin þegar aðstoðað marga menn, sem hlotið hafa fleiri en einn refsidóm, en enn- þá hafa þau ekki getað hafið þann þátt stárfsins, sem lýtur að hjálp við þá, sem hljóta sinn fyrsta refsidóm eða sæta fyrstu ákæru og eru sem sagt byrj- endur á afbrotabrautinni, en þess verður væntanlega ekki langt að bíða að sá þáttur starfs ins geti einnig hafizt. I Á aðfangadagskvöld s.l. höfðu samtökin aftur jólafagnað. — Þess má geta Reykvíkingum til verðugs lofs, að hið nýstofnaða B'i-h á i1 « |aioar aögijr ☆☆☆ EFTIR VERLJS ☆☆☆ Sagan af Oscar Hammerstein 2. ) Einhver mesti áhugamaður um söng- og leiklist í Bandríkj- unum var Oscar Hammerstein 2., sem starfaði við leikhús þar vestra um 40 ára skeið og lagði af mörkiun mikið starf í þágu söngleikja. Ljóð þau, sem hann samdi fyrir ýmsa söngleiki, hafa borizt um heim allan og vakið hvarvetna ánægju og gleði þeirra, sem kynnzt hafa. -------Óscar fæddist 1895, og var hann þriðja kynslóð leik- húsættar, sem hafði getið sér hið bezta orð á Broadway. Afi hans, Oscar Hammersiein 1., var frægur um öll Bandaríkin og raunar allan leiklistarheim- inn, því að hann átti óperuna á Manhattan, sem þekkt var um allan heim. Faðir Oscars 2., William Hammerstein, var þekktur leikstjóri og sama máli gegndi um Arthur, föðurbróð- ur hans. — — — En þótf Hammerstein-fjölskyldan stæði báðum fótum í leikhúsheimin* um, hlaut Oscar ekki uppeldz sitt í slíku mnhverfi. Þegar hann hafði aldur til, var hann sejndur 'í Co 1 unibia - h áskólan n í New York og þar lauk hann BA-prófi árið 1916. Þá var hann ekki cnn farinn að hugsa um að gera starf við leikhús að ein* um ríkasta þætti ævi sinnar0 Bókmenntasaga Framh. af 3. síðu. þennan merka brautryðjanda á sviði leiklistarinnar. Ætla mætti þó að hann og verk hans ættu heima í íslenzkri bókmennta- sögu, ef allt væri með felldu. Nokkm' af þeim fáu íslenzku leikritum, sem sýnd hafa verið í Þjóðleikhúsinu eru nefnd, en önnur ekki — er þar um eins ko.nar úrval að ræða? — að minnsta kosti verður slíkur sp.arnaður að teljast furðulegur.' Síðast er svo langt mál um Agn- J ar Þórðarson, sem ekki köm I fram sem leikritaskáld fyrr en eftir lok þess tímabils, sem á- grip þetta fjallar um, og að lokum eru nokkur orð um fram- tíð leiklistarinnar hér á landi Þetta eru aðeins lauslegar at- hugasemdir við lestur þessarar bókmenntasögu, en til þess að gera efninu fyllri skil hefði þurft meira rúm en hér er fyr- ir hendi. Það hefur ekki orðið hjá því komizt, að fara allhörð- um orðum um vinnubrögð höf- undarins, hlutdrægni hans í vali höfunda og yfirborðslega dóma. En þeim mönnum er meiri vandi á höndum en öðrum, sem taka sér fyrir hendur að skrifa fyrir skólaæskuna, og mega því bú- a$t við harðari dómum. Nokkur afsökun er höf. það að vísu, að hann kveðst í formála hafa not- ið góðrar aðstoðar nafngreindra merkismanna við endanlegan frágang handritsins, en slíkt verður aðeins til að dreifa á- byrgðinni og vekja furðu margra lesenda á því, að slík aðstoð skyldi þá ekki koma að betra haldi en raun varð á. Að lokum skal svo endurtekin sú krafa til nefndar þeirrar, sem sér um val á þeim kennslu- bókum, sem Rikisútgáfa náms- bóka gefur út, að hún gangist nú þegar fyrir því, að samin verði fullnægjandi bókmennta- saga handa framhaldsskólum, þar sem tryggt sé, að fullrar sanngirni verði gætt. Það má vel vera, að vissar klíkur telji sig ánægðar með þetta verk, enda hefur þess orðið vart á ýmsan hátt, að hér séu sterk póhtísk öfl ,að verki, sem hafa það á stefnuskrá sinni, að flokka íslenzka rithöfunda í sauði og hafra, eftir þvi hvort þeir eru innundir hjá kommúnistum eða ekki, þess hefur m. a. mjög gætt í úthlutun launa til lista- manna, eins og alþjóð er nóg- samlega kunnugt, og það er auð- vitað sjálfgefið að þessi sömu öfl reyni að nota skólakerfi landsins í hinum sama tilgangi. Það getur þvi varla verið ó- sanngjöm. krafa til Ríkisútgáf- unnar og formanns hennar sér í lagi, að staðið sé vel á verði, og bætt hið allra fyrsta úr þeim mistökiun, sem hér hafa orðið. Z. 2) Því er þó ekki að neita, að Oscar tók nokkurn þátt í leikstarfi á skólaárum sínum og hafði gaman af. Hann lék meðal annars í leikfélagi stú- denta við háskólann, og síðasta árið, sem hann var við nám, samdi hann meira að segja leik og ljóð fyrir félagið, og loks var hann sjálfur í aðalhlutverk- inu. Þó bar lítið á hæfileikum hans enn.----------Þegar Oscar hafði náð BA-prófinu, hélt hann áfram námi sínu og sneri sér að lögfræði. Lauk hann prófi í þeirri grein og starfaði síðan í eitt ár í lögfræðiskrifstofu. Virtust þá engar líkur til, að hann mundi feta i fótspor feðra sinna. Meðan hann starfaði í lögfræðiskrifstofunni, tók hann engan þátt í leikstarfi áhuga- manna eins og í skóla.--------- Loks var svo komið snemma á árinu 1918, að hann komst að þeirri niðurstöðu, að hanu ætlaði að helga sig leikhús* starfi Hann leitaði þá ráðat hjá föðurbróður símun, Arthur, sem hafði forgöngu um svið- setningu margra leikrita. Art* huri fannst Oscar nú vera far> inn að vitkast og bauðst til að hann vildi læra starfið al* mennilega. 3) Oscar afréð að þiggja gott boð föðurbróður síns, og þar með gerðist hann einskonar handverksmaður leiklistarinn- ar. Hann afréð að læra öll störf, sem vinna þyrfti og vann þá til dæmis sem leiktjaldamálari, leiksviðsstarfsmaður og raf- virki. Loks var hann látinn setja léttan gamanleik á svið, en sjálfur skrifaði hann ekk- ert, enda var það skilyrði af hálfu föðurbróður hans. — — — Síðla árs 1919 taldi Oscar sig orðinn nægilega þroskaðan til að semja leik. Þetta varð fjögurra þátta verk, sem gefið var nafnið „Ljósið“. Vestra cr venjan, að leikrit sé prófuð annars staðar en á Broadway. Ef vel gengur annars staðar, er leiðin opin til Broadway.1 Ljósið kviknaði aldrei á Broad- way, en Oscar lét ekki hugfall- ast heldur ákvað að læra af ósigriniun. ---------í stað þess að Icggja árar í bát tók hann einmitt til óspilltra málanna og samdi næst þrjá söngleiki a® öllu leyti, samdi Ijóðin hvað þá annað. Þannig fór fyrir þess* um leikjum, að þeir gengu allir vel og varð af þeim góður hagnaður og var þó ekkert sér* staklega í þá varið. En þeir færðu óyggjandi sönnur á, að Hammerstein bjó yfir hæíi- leikum, sem fóru jafnt og þétt í vöxt. (Frh.). i

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.