Vísir - 25.01.1961, Side 4

Vísir - 25.01.1961, Side 4
4 VISI h . ðvikudaginn 25. janúar 1ÍH31 Það er í raun og veru til minnkunar að setjast niður og skrifa aðeins stutta viðtalsgrein um hann Jóhannes Erlendsson, símstöðvarstjóra á Torfastöð- um í Biskupstungum, minna en tuttugu arka ævisaga ætti þar ekki að koma til greina, því víst er um það, hann man tímanna tvenna: Meðreiðarsveinn Jóns Ás- geirssonar á Þingeyrum, leik- félagi Ólafs Bjömssonar í ísa- fold og Georgs Ólafssonar bankastjóra og heimagangur á æskuheimilum þeirra, verzlun- arþjónn í Fjalakettinum hjá Breiðfjörð gamla, verzlunar- maður, bókhaldari og ferða- skrifstofustjóri í Thomsens Magasini, kennari og sýslu- skrifari, kaupmaður, en síðast én ekki sízt heimilismaður og heimagangur hjá frændfólki sínu í Unuhúsi um Iangt árabil, þar sem hann hitti ýmsa af and- ans mönnum þjóðarinnar á gelgjuskeiði, orkti sjálfur Ijóð, og hefur líldega myndað undir- stöðu atómkveðskapar Islend- inga, ásamt öðrum góðum mönnum. Á undanförnum 15 árum hefir Jóhannes sagt mér ýmis- legt fróðlegt, skemmtilegt og • ævintýralegt frá viðburðaríkri ævi, á milli þess, sem við höf- um hnakkrifist í símanum, eins og vera ber um góðkunningja, ekki sízt þegar annar er sím- stöðvarstjórinn en hinn öðrum þræði fréttaritarinn, sem þarf tafarlaust að ná sambandi við blaðið. Þessi hlédrægi heiðursmaður er nú á 77. aldursári. Það þýð- ir víst lítið að biðja hann um blaðaviðtal, en hérna um dag- inn, þegar hann sat í stofu minni og sagði mér ýmislegt frá gömlum.og góðum dögum, tók eg blýantinn og byrjaði að krota niður ýmislegt af því, sem hann sagði mér, og eg hélt áfram að skrifa, eftir að hann va'r farinn, samkvæmt minni og ef til vill hef eg tekið eitt- hvað með af þvi, sem hann hefir sagt mér áður, en sann- leikurinn er sá, að það er mik- ill vandi að velja og hafna, er rita skal stutt blaðaviðtal við Jóhannes Erlendsson. Með hund og hest til hvorrar handar. — Hvað segir þú mér frá Þingeýrum, æskuheimili þínu þar og hestamanninum, dýra- lækninum og vínmanninum góða Jóni Ásgeirssyni? — Ja, eg er nú fæddur á Brekku í Þingi og foreldrar mínir bjuggu stutt á Þingeyr- um í æsku minni. Þar voru þá 4 ábúendur: Jón Ásgeirsson, Hallgrímur Hallgrímsson, sem siðar varð stórbóndi að Hvammi í Vatnsdal, Eyþór Benediktsson, sem síðar bjó á Hamri á Ásum, tengdafaðir Þórðar Kristleifs- sonar og svo bjó faðir minn *■ þar. Eg hafði nú ekki mikið af Jóni að segja, hann var oft að heiman. Stundum lét hann okkur strákanS þó ríða með sér um nágrennið, í Þingeyrarsel eða vestur að Bjargós. Það, var gaman að slíkum túrum, Jón var afskaplega mikill og góður hestamaður og dýravinur mik- ill. Stóri hundurinn hans, hann Cesar, var ákaflega hændur að Jionum og það voru hestar hans líka. Það var ekkert óalgeng sjón á þeim á um í Húnaþingi, að ferðamenn sæju Jón á Þing- eyru: þar sem hann hefði fleygt sér niður og sofnað, og fast upþ að honum kúrðu Ces- ar annars vegar og reiðhestur- inn hins vegar og veittu hon- um skjól og yl. Þetta lýsir nokkuð hvern mann Jón hafði að geyma. Leikbræður við Austurstræti. — Hvenær fluttir þú svo til höfuðstaðarins? — Þegar eg var 12 ára gam- all. Þá bauð Una Gísladóttir, föðursystir mín, föður mínum, að eg mætti koma suður og dvelja hjá þeim hjónum. Maður smáhækkaði Eg byrjaði að vinna þar í vinkjallaranum, við afhendingu á vínföngum og í gosdrykkjagerð. — Voru nokkrar hömlur á vínsölunni? — Einu hömlurnar þar í kjallaranum voru þser, að menn gátu ekki fengið keyptar minna en 4 flöskur af Carlsberg í einu. Þetta svarar til þess, að mað- ur fær ekki keypt minna en heilflösku af brennivíni á áfengisútsölum ríkisins nú til dags. Mikið um breytingar hjá Thomsen. Nú voru foreldrar mínir fluttir suður, og eg bjó nú hjá og h úmsótti þá kunmhgjana. Stundum bjó eg . hjá Unu en stundum hjá Andrési Björns- syni. Andrés átti á þessum ár- um heima við Laugaveginn, fyrst í húsi Jónatans Þorsteins- sonar, þessu sem brann 1918, og síðar átti hann heima neðar við Laugaveginn. Stundum skruppum við niður á litla veitingastofu við Hverfisgötu, rétt fyrir innan Klapparstíg,, að mig minnir. Það var Norð- maður, sem var veitingarmaður- inn, og þar voru tíðir gestir Árni Pálsson, Indriði miðill og fleiri góðborgarar. Nú en stund- um vorum við í bindindi. Jóhannes Erlendsson var sjúklingur á árunum 1912— 1915 og hefir hann sagt mér Um ATOM ^œtt vú Jóhannes Erlentísson í UNUHÚSI á JJorfaitö&Mn, iem man tvenna tímana eira hennar var Guðmundur Jóns- son, lyfjafræðingur, og sonur þeirra Erlendur í Unuhúsi. Þau hjónin áttu þá heima í Austur- stræti 5, hjá Ólafi Sveinssyni, gullsmið, og kom það af sjálfu sér að við Georg, sonur Ólafs, síðar bankastjóri, lékum okkur saman, enda vorum við bekkj- arbræður í barnaskólanUm. j • Annar félagi minn var Ólafur Björnsson í ísafold, síð- ar ritstjóri. Hann átti heima beint á móti, en þar á heimili : Björns ritstjóra var eg heima- { gangur þessi árin. Það ríkti á- , vallt hinn bezti kunningsskapur ■ á milli mín og þessara góðu æskufélaga minna, meðan þeir lifðu. — Eg byrjaði strax að læra að spila á orgel, þegar eg kom suður, Una og Guðmundur keyptu sænskt orgel sem hét Arnesen eða eitthvað svoleiðis verksmiðjunafn var á því. Fyrst lærði eg hjá Jónasi Páls- syni, Borgfirðingi sem fór til Ameríku. Síðan hjá Brynjólfi Þorlákssyni, þangað til hann sagðist ekki geta kennt mér meira. Hann fór líka til Ame- ríku, og þar lentu þessir orgel- kennarar mínir víst í svæsinni blaðadeilu — ekki út af mér samt. í Fjalakettinum og hjá Thomsen. — Segðu mér eitthvað frá verzlunarstörf unum ? — Séra Jóhann fermdi mig 14 ára, og þá fór eg strax að vinna við verzlun Valgarðs Breiðfjörð, í Fjalakettinum sem nú er Aðalstræti 8. Þetta var víst árið 1897. Vinnutíminn var frá 7 á morgnana til 10 á kvöldin og skroppið heim til að háma í sig mat og drykk, Kaup- ið hækkaði uþþ í 25 krónur, þennan tíma sem eg var hjá Breiðfjörð. En um aldamótin fór eg að vinna í Thomsens Magasíni en þar var vinnutím- inn „áðeins“-10 tímar og byrj- unarkaupið 40 krónur, sem Jóhannes Erlendsson. þeim, fyrst í Unuhúsi sem var byggt árið eftir að eg kom til hennar, en síðan bjuggu þau annarsstaðai'. Svo var eg fluttur upp á kontórinn. Síðasta sum- arið sem eg vann hjá Thomsen gerði hann mig að einskonar forstjóra fyrir ferðaskrifstofu sinni, sem hann kallaði „Turist- afdeling“. Við leigðum út hesta og léttivagna og þar var allt á ferð og flugi, einkum þó um helgar. — Thomsen var geð- þekkur maður en sumir sögðu að honum væri ýmislegt betur gefið en kaupmennska. Hann var með sífelldar breytingar, sem ekki stóðu ávallt til bóta. — Hve lengi varstu hjá Thomsen? — Vorið 1906 giftist Sigur- laug systir mín séra Eiríki Stefánssyni, frá Auðkúlu, sem þá fékk veitingu fyrir Torfa- ýmislegt frá þeim árum, sem eg hirði ekki um að rekja hér, þótt ýmislegt sé sögulegt við þá lífsreynslu hans. Hjá ýmsum húsbændum. — Hvenær gerðist þú svo sýsluskrifari hjá Björgvin Vig- fússyni? — Skömmu áður en eg veikt- ist, hafði eg dvalið á Efra- Hvoli um tíma og kennt sonum sýslumannsins Einari og Páli að leika á orgel. Mér féll vel við heimilisfólkið þar, og' nokkru fyrir 1920 gerðist eg svo sýslu- skrifari hjá Björgvin og einnig annaðist eg símstöðina þar. Þar dvaldist eg svo, þó ekki al- veg. óslitið, þar til Björgvin lét af störfum og raunar lengur við símagæzluna. Þá vann eg við kaupfélagið á Hvolsvelli og dálítinn tíma hjá Birni sýslu- manni, eftir að hann kom til sögunnar. Árið 1945 kom eg svo að Torfastöðum og tók við símanum og þann starfa hef eg enn með höndum og fellur vel, eftir atvikum. Eg spurði nú Jóhannes: — Heyrðu Jóhannes Erlendsson, eg veit að Björgvin sýslumaður var góður embættismaður, ræðakarl og mildur í dómum. Nú. langar mig til að spyrja þig, sþrn' fyrrverandi skrifara hn , eftirfarandi saga sé sönn: Það er sagt að nokkru áð’i en Þverárbrúin var vígð hér á ávunum, hafi sýslumað- urmn hr: gt suður í Stjórnar- vrð :ð fram á það að veita mætM ’anda“ átölulaust ví<Ts1udaginn, þar sem vitað væn ?ð bruggað væri á öðrum hve’-ium bæ í héraðinu. Kann- ast þú P-T-ryerandi sýsluskrif- ari í Rangárvallasýslu, nokkuð við þetta? „Hafið þið pláss? .... “ — Nei eg kannast hreint ekkert við þetta og skil ekki í því, að þetta eigi við rök að styðjast. ’ _______ — Var ekki bruggað? — Jú. Biörn Blöndal kom og tók bruggara. — Vo-u þeir dæmdir. — Eg man nú ekki beinlínis ef-tir því, geri samt ráð fyrir því. Sagan segir ennfremur, að Stjórnarráðið hafi rumskað ó- þyrmilega við og hringt í allar áttir og lagt að sýslumönnum að taka bruggarana. Þá á t. d. sýslumaðurinn í Húnavatns- sýslu að hafa sagt: „Hafið þið pláss fyrir hálfa Húnavatns- sýslu, þarna fyrir sunnan?“ Jóhannes segist ekkert vita um þetta og þar með er það mál af dagskrá, enda langar mig til þess að spyrja hann dá- lítið um skáldin í Unuhúsi og Jóliannes heldur áfram: — Ja, það var nú lítið um skáld þar framan af. Una varð ekkja um aldamótin, eða upp úr þeim. Erlendur var þá ung- ur. Hann varð svo bréfberi en vann síðan lenei á lögreglu- skrifstofunni og síðast toilskrif- stofunni. Þau feðginin voru ó- sköp fátæk, og Una fór að hafa smá greiðasölu. En hún gat eng- um úthýst, eða neitað um mat og var þá ekki verið að spyrja. að því hver svangur væri. Jú, eg man eftir einu skáldi, sem. upp úr aldamótunum bjó lengi hjá henni. Það var Einar Páll Jónssonar, sem síðar varð rit- stjóri í Winnipeg. Hann var skemmtilegur maður. Hann orti brúðkaupsljóð til sr. Eiríks og Sigurlaugar systur minnar, er þau giftust. Síðar var hann. kaupamaður hjá þeim eitt sum- ar. Það var ekki fyrr en löngu seinna, að hin ungu skáld urðu kunningjar Erlendar og Frpmh. á 9. SÍðU. stöðum og fluttu þau þangað á- | samt foreldrum mínum. Um j haustið bað sér Eiríkur mig að taka að mér baýnakennslu í Biskupstungúm og kenndi eg þar um veturinn. Og næstu ár sneri eg mér að því að kenna, aðallega orgelleik á veturna og vinna í kaupavinnu á sumrum. Stundum voru beir í bindimli — Stundiurí fkrápp eg í bæinn Unuhús við Garðastræti. tAr kAýV .- t.’Vj'

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.