Vísir - 17.05.1961, Page 3
Miðvikudaginn 17. maí 1951
VSljSíIfB
MitoSvar verzlana og þjónustu —
jia& er framti&in — en kostar miki&.
TVEIR Reykvíkingar sóttu
í byrjun mánaðarins ráð-
stefnu þá í Osló, sem haldin
var í fyrsta sinn og nefnist
„Skandinavisk butikksenter
konferanse" og fjallaði um
nýtízku Verzlanahverfi eða
miðstöðvar í borgum á Norð
urlöndum. Það voru þeir
Sigurður Magnússon fram-
kvæmdastj. Austurvers og
Jósep Reynis arkitekt,
Vísir hitti Sigurð að máli
í gær og bað hann segja frá
því helzta, sem gerðist.
— Við íslendingamir sótt-
um ráðstefnu þessa með fyr
irgreiðslu Iðnaðarmálastofn
unar íslands, en þó ekki á
hennar vegum, heldur ferð-
uðumst við á eigin eyk, þar
eð við höfum báðir persónu-
legan áhuga á að kynnast
þessum nýju hverfum á ná-
grannalöndunum í þeirri
von, að slíkar verzlanamið-
stöðvar verði einnig að veru
leika hérlendis. Þetta var
fyrsta ráðstefna af slíku
tagi, sótt af 70—80 fulltrú-
um frá öllum Norðurlöndun
um, stóð yfir dagana 2.—4.
maí, en í framhaldi af henni
voru ferðir farnar til höfuð-
borga Danmerkur og Sví-
þjóðar og skoðuð hin nýju
hverfi þar. Ég hafði aðeins
tíma til að fara ferðina til
Stokkhólms.
— Hver er annars aðdrag
andinn að þessari ráð-
stefnu?
— Upptök þessara verzl-
anamiðstöðva voru í Banda
ríkjunum og kallast þau þar
„shopping center“. En á ár-
unum eftir heimsstyrjöldina
varð mikil útþenzla í stærri
borgum á Norðurlöndum, og
farið var að skipuleggja stór
íbúðahverfi, útborgir, með
sem mestu nútímasniði og
þægindum, og í höfuðborg-
um Norðurlanda og öðrum
stærri borgum fóru að rísa
slíkar miðstöðvar, verzlanir
af öllu tagi og hverskonar
þjónusta samankomið á til-
teknu svæði í hjarta hinnar
nýju íbúðahverfa. Svíar
hafa skarað fram úr á þessu
sviði, og einkum í Stokk-
hólmi gefur að líta hin full-
komnustu slík hverfi á Norð
urlöndum. Það er feikilega
kostnaðarsamt að byggja
upp þessar verzlanamið-
stöðvar og í rauninni ekki
mögulegt nema með tilstuðl
an opinberra aðila og pen-
ingastofnana, enda hafa
komið úr þeirri átt lán, sem
nema 60—70% kostnaðarins
í hinum löndunum. Lang-
stærsta og fullkomnasta
verzlanamiðstöðin er í borg
arhverfinu Farsta í Stokk-
hólmi, og hefir hún kostað
ekki minna en 40 millj. kr.
(um 300 millj. kr. ísl.).
Þarna eru allar hugsanlegar
verzlanir á einum stað, einn
ig hverskonar þjónusta, svo
að hverfisbúar þurfi ekki
neitt að sækja út fyrir sitt
hverfi. Það er því í mörg
horn að líta, við slíka upp-
byggingu og þarf stórt
svæði til og ekki sízt að sjá
fyrir nægilegum bílastæð-
um. Mótbára gegn slíkum
miðstöðvum hefir m.a. ver-
ið sú, að þarna hljóti að
gæta nokkurrar einokunar í
stofnun verzlana, og því hef
ir í hinum stærri slíkum
miðstöðvum verið gefið tals
vert frelsi og olnbogarúm,
svo að fleiri en ein verzlun
með samskonar vöru fái þar
athafnasvæði. Uppbygging
miðstöðvarinnar er venju-
lega á einni hendi eða fél-
ags, svo gætt verði samræm-
is í skipulagi, og útliti, en
síðan selt eða leigt einstak-
lingum til reksturs. Þessi
fyrsta ráðstefna var haldin
til að skiptast á upplýsing-
um og sjónarmiðum um
hvernig bezt megi takast að
byggja upp verzlanamið-
stöðvar smáar sem stórar.
Mikið herlið er á ferli í Rift-
dalnum í Kenya, þar sem hvít
kona var myrt fyrir viku. Um-
ferðabann er í gildi meðan
dimmt er.
Nú hafa borist frétti um, að
önnur kona til hafi verið myrt,
einnig hvít, en líkur benda ekki
til, að Mau-Mau hafi myrt hana.
Komin er til London nefnd
viðial
da^§in$
Sérfræðingar fluttu erindi
um skipulag og tæknileg at-
riði, kostnað og hvað eina,
sem að þessu lýtur. Sam-
ræðufundir voru haldnir,
spumingar og svör, og tóku
þátt í þeim sérfræðingar,
verzlunarráðunautar, og full
trúar frá húsmæðrum og
neytendasamtökum. Áform-
að er að slíkar ráðstefnur
verði haldnar annað veifið
framvegis.
— Eru líkindi til, að slík-
ar miðstöðvar rísi hér í
Reykjavík?
— Ég efast ekki um, að
þetta eigi að koma í framtíð
inni, einnig hér, en að sjálf-
sögðu í smærri mynd en tíð
kast erlendis, þar eð hver
verður að sníða stakk eftir
vexti. Að sjálfsögðu er einn-
ig um að ræða minni verzl-
unarmiðstöðvar meira í lík-
ingu við það sem okkur
mundi henta, og yrði bygg-
ingarkostnaður þeirra í
kringum 20 millj. ísl. króna.
manna úr hvítu Hálöndunum í
Kenya, þar sem flestir hvítir
menn búa, og vill hafa tal af
forsætisráðherranum og tjá
honum, að Mau-Mau hermdar-
verkaalda sé í uppsiglingu í
norður-héruðunum og muni fara
yfir landið sem logi yfir akur,
verði ekki gripið til róttækra
ráðstafana í tæka tíð.
Tvær hvítar konur hafa
verið myrtar í Kenya.
Útgöngubann í Riftdalnum.
„Frjáts mennmg" hefvr látið
mörg mál til sín taka.
Formadui* er mi dr. Jólianues
Nordal bankastjóri.
Aðalfundur félagsins Frjáls
menning var haldinn í VR.-hús
inu laugardaginn 13. maí sl.
Formaður félagsins, Tómas
Guðmundsson skáld, setti fund
inn og skipaði Eyjólf K. Jóns-
son fundarsjóra og Eirík Hrein
Finnbogason, fundarritara. Þá
flutti formaður, Tómas Guð-
mundsson skýrslu stjórnarinn-
ar, en að ræðu hans lokinni
flutti gjaldkeri félagsins, Lúð-
vík Gizurarson, skýrslu um
reikninga félagsins. Nokkrar
umræður urðu um skýrslu for
manns og gjaldkera, en að
þeim loknum var gengið til
stjómarkjörs, en stjórn félags-
ins skipa sextán menn auk
heiðursforseta, sem er Gunnar
Gunnarsson skáld. Þessir voru
kjörnir í stjórn: Dr. Jóhannes
Nordal, bankastjóri, Tómas
Guðmundsson, skáld, Eyjólfur
K. Jónsson, ritstjóri, Ármann
Snævarr, rektor, Einar Magnús
son, menntaskólakennari, Þórir
Kr. Þórðarson, prófessor, Bene
dikt Gröndal, ritstjóri,' Eiríkur
Hreinn Finnbogason, cand.
mag., Einar Pálsson, leikari,
Svanhildur Þorsteinsdóttir,
frú, Þorsteinn Hannesson, ó-
perusöngvari, Páll Kolka, lækn
ir, Guðmundur G. Hagalín, rit
höfundur, Baldvin Tryggvason,
framkvæmdarstjóri. Lárus
Guðmundsson, stud. theol. og
Ævar Kvaran, leikari. Endur-
skoðendur voru kjörnir ■ þeir
Guðni Þórðarson, framkv.stj.
og Þór Vilhjálmsson, lögfræð-
ingur. í fundarlok kaus hin
nýja stjórn sér formann, Dr.
Jóhannes Nordal, bankastjóra.
í skýrslu sinni rakti Tómas
Guðmundsson, skáld, helztu
verkefni félagsins frá stofnun
þess 23. marz 1957. Opinber
fundarhöld hafa verið veiga-
mikill þáttur í starfsemi fé-
lagsins, en á fundum þess hafa
oft talað erlendir gestir þess
auk innlendra ræðumanna. Af
erlendum gestum Frjálsrar
menningar má nefna ung-
verska rithöfundinn George
Dr. Jóhannes Nordal.
Faludi, sem kom hingað upp á
árs afmæli ungversku bylting-
arinnar, danska stjómmála-
manninn, Frode Jacobsen, ung
verska Stalínverðlaunahafann
og flóttamanninn, Tamas Acz-
el, indónesíska prófessorinn
Takdir Alisjahbana svo og
Þjóðverjann Dr. Köhler.
Eftir morðin á Imre Nagy
og fleiri Ungverjum beitti
Frjáls menning sér fyrir úti-
fundi á Lækjartorgi til að mót
mæla hryðjuverkunum og var
sá fundur afar fjölmennur.
Eins og fram hefur komið í
starfsemi Frjálsrar menningar
frá stofnun hennar er félagið
umfram allt stofnað til vernd-
ar og eflingar frjálsri hugsun
og frjálsri menningarstarfsemi.
Félagið er óháð öllum stjórn-
málaflokkum, en skuldbindur
meðlimi sína til jákvæðrar bar
áttu gegn hvers konar einræð-
ishyggju, ríkisofbeldi og skoð-
anakúgun.
Skv. lögum sínum á félagið
hliðstöðu með þeim menningar
samtökum er á frönsku nefn-
ast Congrés pour la Liberté de
la Culture, en þau starfa víðs-
vegar í lýðræðisríkjum. Félag-
ið er þó óbundið alþjóðasam-
tökunum að öðru en sameigin-
legri hollustu við frjálsa hugs-
un og frjálsa menningu.
TWA kaupir eða leigir 30
Boeingfarþegaþotur.
Sumar fara á 1030 km. meðalhraða.
Flugfélagið Trans World Air-
lines — TWA — hefir samið um
kaup eða leigu á 30 stórum þot-
um frá Boeing-verksmiðjunum
og mun verða stærsta flugfélag
heims, er þær verða teknar
allar í notkun.
Félagið hefir nú 47 þotur af
stærstu gerð í notkun, svo að
þotufloti þess verður með 77
þotum seint á næsta ári. Mun
TWA kaupa 26 af þotum þess-
um, en hinar fjórar verða tekn-
ar á leigu. Fyrsta þotan verður
afhent í september á þessu ári,
en hin síðasta mun verða tekin
í notkun í október árið 1962.
Verða allar þessar þotur með
hreyfla af nýrri gerð, sem gera
þær hraðfleygari og langfleyg-
ari en aðrar fluvélar af þessu
tagi. Fara hinar haðfleygu með
1030 km. hraða á kiukkustund,
en engin hægar en með 1000 km
meðalhraða.