Vísir - 15.06.1961, Qupperneq 5
Fimmtudagur 15. júní 1961
VISIR
Baldur í stií-
dentsprúfi
Eg átti leið yfír Menntaskólalóðina í gær, og í
fljótu bragði sýndist þar ekkert sérstakt á sevSi.
Rétt einn og einn hoppuSu þar út og inn, svo aS
mér datt ekki annaS í hug en aS öll próf væru á
enda aS sinni. En svo rakst ég á Baldur. HvaSa
Baldur? Baldur Georgs
— Hvð getur þú verið að
gera hér Konnalaus?
— Eg er að reyna við
stúdentspróf og er helzt ekki
viðmælandi, því að eg á að
ganga upp eftir nokkrar
mínútur í síðasta prófinu.
Það er í sögu, og eg kann
bara ekkert í þessu.
— Ja, á dauða mínum átti
eg von — en ekki þér í stúd-
entsprófi. Er þetta annars
að komast í tízku, að gamlir
menn setjist á skólabekk
með börnum og ungviði. Þú
hefir máske gizkað á, að
þetta gæti varla verra verið
en að láta Konna vera sí og
æ að spyrja þig út úr hinu
og þessu, sem þú getur ekki
svarað. Alténd sértu þá laus
við hann á meðan.
— Já, blessaður minnstu
ekki á hann, strákgreyið.
Hann er nú læstur inni í
skáp heima og verður að
þegja á meðan. Nú er það
alvaran, sem gildir, enda
þótt eg færi út í þetta hálf-
gert að gamni mínu. En nú
er að duga eða drepast.
— Ertu þá smeykur við
að falla? Hvar ertu annars
búinn að standa lengi í þessu
stríði? /
— Það var í febrúar í
fyrra, sem ég lét til skarar
skríða með að lesa undir
Baldur á Menntaskóla-
hlaðinu, niðursokkinn í stíla-
kompu, úskrifaða með ár-
tölum og helztu viðburðum
úr mannkynssögunni.
Konnalausan.
stúdentspróf, 16 árum eftir
að eg sat síðast á skólabekk,
í Gagnfræðaskólanum í
Franska spítalanum. Svo hef
ég nú setið við þetta í flest-
um frístundum, tók fyrstu
prófin í fyrra, flest nú í vor
Konni læstur
inni i skáp.
og fæ að geyma tvö til
haustsins, dönsku og latínu.
Vinnuveitandi minn gaf mér
aukasumarfrí einn mánuð nú
vegna aðalprófsins.
— Hefirðu virkilega lesið
mestalla lærdómsdeildina á
rúmu ári meðfram vinnu?
— Já, eg hef'unnið nokkur
ár á skrifstofu verksmiðj-
unnar Pólar og hafði alls
ekki efni á að segja starfinu
lausu til að glíma við próf-
lesturinn. Hef orðið að vinna
fyrir fjölskyldu minni, siáðu.
Mest af hef eg puðað við
þetta á eigin spýtur, hef
ekki haft ráð á að taka einka-
tíma nema að takmörkuðu
leyti. /
— Heldurðu, að þú náir
prófinu?
— Eg er nokkurn veginn
viss um það að þola lítilfjör-
Iegustu einkunnir í þeim
greinum, sem eftir eru. Óg
get ekki annað en gert mér
að góðu að „skríða í gegn“.
— Ertu „nervös“ eins og
hinir krakkarnir?
Framh. á 11. síðu.
Þetta er „kalda borðið“ sem Axel Sigurðsson framreiddi fyrir veiðimcnnina um síðustu
helgi.
„Mávahlíð", hin ný[a - og eina -
matsala í ¥estmannf eyjum.
I Vestmannaeyium
hefur veriÖ opnaður nýr
greiðslusölustaður, sem
ber nafnið Mávahlíð. Er
hann til húsa, þar sem
verið hefur mötuneyti
Ársæls Sveinssonar á
vetrum. Hafa farið fram
gagngerar endurbætur
á húsnæðinu að undan-
förnu, og munu þátttak-
endur í sjóstangaveiði-
mótinu um síðustu helgi
hafa verið með fyrstu
gestum sem þar var
veittur beini.
Á undanförnum árum hef-
ur eina gistihúsið í Eyjum
verið „Hótel HB“. Það hætti
hinsvegar störfum 1. júní s.l.
Þátttakendur í veiðimóti því
sem haldið var í Eyjum í
fyrra dvöldu þá þar. Hins
vegar var sýnt, er vitað var
að sá staður myndi ekki
starfa lengur, að einhverjar
ráðstafanir yrði að gera, til
þess að hægt væri að veita
viðtöku gestum á hinu al-
þjóðlega stangaveiðimóti
sem upphaflega var fyrir-
hugað, auk annarra gesta
innlendra, og útlendra, er
leggja leið sína til Eyja í
sumar.
Því réðust þrír Vest-
mannaeyingar, þeir Axel
Lárusson, skókaupmaður,
Steinar Júlíusson, umboðs-
maður Flugfélagsins í Eyj-
um, og Þórhallur Jónsson,
verkfræðingur, sem allir eru
miklir áhugamenn um sjó-
stangaveiði og eiga sæti í
stjórn Sjóstangaveiðiféllagi
Vestmannaeyja, í að koma á
fót greiðasölu sem jafnframt
gæti tekið við fólki til gist-
ingar.
Fyrir valinu várð, eins og
áður segir, mötuneyti það
sem Ársæll Sveinsson hefur
haft fyrir starfsfólk sitt á
undanförnum vertíðum. Þar
eru tveir matsalir, auk
nokkurra svefnstofa. Fram-
kvæmdir við endurbætur
hófust fyrir síðustu mánaða-
mót, og var allt húsnæðið
endurbætt svo sem mest
mátti verða, auk þess sem
fengin voru tæki í eldhús.
Er staðurinn nú allur hinn
vistlegasti, svo sem hinir
fyrstu gestir geta borið um.
Er blaðamaður Vísis ræddi
við forráðamenn „Máva-
hlíðar“ um síðustu helgi,
lögðu þeir mikla áherzlu á,
að það sem fyrst og fremst
vekti fyrir þeim, væri að
annast matsölu. Hafa þeir
ráðið til starfa í eldhúsi
Axel Sigurðsson, ,matsvein,
og mun hann starfa þat í allt
sumar, meðan opið verður.
Afstaða til að taka á móti
fólki til gistingar í „Máva-
hlíð“, er hinsvegar nær
einskorðuð við hópa, 4—10
Framli. á 11. síðu.
----------------------i-----
Vegir og vegleysur.
i
Tivoligarðurinn í Kaup-
mannahöfn var gerður að
umtalsefni í þessum dálki í
síðustu viku og borið hól á
hann að verðugu. En hér í
Reykjavík er einnig garður
með sama nafni og skemmti
garður líka. En sá; er mun-
urinn á að þar sem Tivoli
Hafnar er höfuðprýði borg-
arinnar, nálgast okkar Tivoli
það að vera höfuðskömm
Reykjavíkur. Þetta er sterkt
tekið til orða, en ef einhver
vill sannfærast af eigin raun
þarf hann ekki annað en
skoða staðinn. Þar er allt í
ótrúlegri hrörnun, niður-
níðslu og vanrækslu. Njólar
og annað illgresi er hinn
mest áberandi gróður, tjörn-
in forarpollur, gangstígai
óþrifalegir, hús ómáluð og
hrörleg og annað eftir því. í
útjaðri garðsins er dans-
staður, sem gengur undir
nafninu Vetrargarðurinn. —
Ekkd hef ég verið þar á
dansleik, en ef dæma má
eftir sögusögnum og blaða-
skrifum mun það heldur
dárlegur staður.
Hver mundi svo trúa þvi
í að óreyndu að þessi stað-
ur er á vegum eins af kunn-
ari íþróttafélögum bæjar-
ins? Reksturinn mun að
vísu leigður út, en það er H1
lítilla bóta. Nú vdll einnig
svo til að lega staðarins er
í einni aðal þjóðleið útlend-
inga til borgarinnar, þeirra,
sem koma hingað flugleiðis
með Flugfélagi íslands. Og
ekki nóg með það, heldur
blasdr hann við mjög vel frá
Hótel Garði. í tilefni af
komu Noregskonungs var
rækilega hreinsað til á
óþrifasvæðum við höfnina
og víðar og allt gott um það
að segja. Það var slæmt að
leið hans hátignar skyldi
Framh. á 11. síðu.
I