Vísir - 19.06.1961, Qupperneq 5
■ Mánudagur 19. júní 1961
V I S 1 R
5
HTi r_3
W/////A \ \ Z/////////A _ Z////////A \ l ZZ///Æ
Vilhjálmur Einarsson hlaut
forsetabikarinn
á móti sem einkenndist af
vondu veðri og miðlungsafrekum.
17. júnimótið var að þessu
sinni lieldur dauft, og fátt um
nokkur afrek sem orð er á ger-
andi. Kemur þar tvennt til, og
var annað alls ráðandi fyrri
daginn, og það var kalt veður og
hvasst, svo vart gátu talizt að-
stæður til að halda frjálsíþrótta-
mót. Bitnaði þetta á flestum
keppendum, og vegna veðurs
varð að fresta þremur greinum
til næsta dags, 110 m grinda-
hlaupi, hástökki og stangar-
stöökki. í öðrum greinum hafði
þetta þau áhrif, að árangur get-
ur vart talizt löglgur, s. s. í
stökkum og 100 m hlaupi, en
þar er óhætt að segja, að allir
keppendur hafi fengið 2—3/10
úr sek. betri tíma en efni stóðu
til. Hins vegar, að flestir kepp-
endur virðast nú vera í lélegri
æfingu en oft áður, og sumir
sem hingað til hafa sett mest-
an svip á mótin eru nú erlend-
is ok tóku því ekki þátt.
í heild sinni var mótið mun
svipminna en oftast áður, og
má gera ráð fyrir, að það sé að
nokkru leyti fyrirboði um það
sem verður í sumar. Áhugi virð-
ist ekki eins mikill hér í Rvík
og á undanförnum árum, en fer
aftur á móti vaxandi úti á landi.
Fyrri daginn hófst keppni kl.
5 og var þá fyrst keppt í 100 m
hlaupi. Keppendur voru all-
margir og var hlaupið í tveim-
Úrslitin í 100 m. hlaupinu.
Talið frá vinstri. Valbjörn
Þorláksson, Í.R., sem sigraði
á 10,8 sek. Grétar Þorsteins-
son, Á., Einar Frímannsson,
K.R., Ólafur Unnsteinsson,
H.S.K. og Guðmundur Guð-
jónsson. Á myndina vantar
Guðjón Guðmundsson. —
Hlaupið var í allsterkum
kmeðvindi.
ur riðlum, en síðan var hlaup-
inn úrslitariðill.
Úrslit:
1. Valbjörn Þorláksson, ÍR,
10,8 sek. 2. Grétar Þorsteinsson,
Á, 11.1 sek. 3. Einar Frímanns-
son, KR, 11.1 Sek.
í 1500 m hlaupi voru þátt-
takendur 4, en veður illt til
hringhlaupa og árangur eftir
því.
1. Kristleifur Guðbjörnsson,
KR, 4.15.4 mín. 2. Agnar Leví,
KR, 4.21.0 mín. 3. Eðvarð Sig-
urgeirsson, KA, 4.22.3 mín.
í þrístökki sigraði, eins og
við var búizt, Vilhjálmur Einars
son, og stökk nú 15.67 m, sem
er prýðilegur árangur. Hins veg
ar var vindur of mikill, en til
frádráttar verður að telja kuld-
ann, sem ætíð háir slíkum grein
um — og reyndar spretthlaup-
um líka — og veldur oft togn-
unum og meiðslum. — 2. Ólaf-
ur Unnsteinsson, HSK, 14.03 m
3. Þorvaldur Jónasson, KR
13.98 m.
Ræða forsetans -
Frh. af 9. s.
til Rafnseyrar. Hér á hlað-
inu stendur bautasteinn Jóns
Sigurðssonar. Steinninn stóð
lengi uppi á holtinu fyrir of-
an túnið og beið síns hlut-
skiptis. Það eigum vér mest
síra Böðvari Bjarnasyni að
þakka, sem gerði sér mjög
annt um staðinn og minn-
ingu Jóns Sigurðssonar, að
þetta viðfangsefni, er svo
vel leyst til frambúðar. —
Steinninn er ótilhöggvinn,
mótaður af náttúrunni og
sómir sér mjög vel með and-
litsdráttum þjóðhetjunnar,
dregnum á skjöld og sverð
á bak við. Vér sjáum hér
einnig nýbyggt hús, sem er
prestsetur og á að verða
barnaskóli fyrir sveitir Arn-
arfjarðar. þegar það er full-
gert, og athvarf, svo ekki
þurfi að úthýsa pílagrímum.
Hér er enn ýmislegt ógert
til að staðurinn verði það
höfuðból, sem minningunum
er samboðið, kapellu þarf
að reisa, íbúð vantar fyrir
ábúanda — og hvammurinn
hér er mjög vel fallinn til
skógræktar, utan túns, þegar
búið er að friða har.n. Eg
mun hér engar tölur telja
né áætlanir, en það ei von
vor, að gullpeningur Jóns
Sigurðssonar og hátíðar-
merkið, sem selt er um land
allt, hrökkvi ldngt til að
ljúka þeim umbótum, sem
fyrst voru ráðgerðar hér í
sambandi við lýðveldis-
stofnunina. Fyrir það þakka
ég þing og stjórn.
Það er þjóðin í heild, sem
endurreisir staðinn, nú á
hálfrar annarrar aldar af-
mælinu með mikilli virðing
og stórri þökk. Það getur
enginn gert sér grein fyrir
því, hvernig nú væri ástatt
um hag þjóðar vorrar, ef hún
hefði ekki eignast Jón Sig-
urðsson, þegar mest lá við.
Það verður ekki stungið svo
skóflu í jarðveg og sögu ís-
lenzkrar viðreisnar, að ekki
komi niður á æfistörf Jóns
Sigurðsonar. Hið hálfdanska
amt hefur breyzt í íslenzkt
ríki. Jón Sigurðsson er
ímynd íslendingsins eins og
hann getur verið mestur og
beztur. Guð gefi, að oss og
komaridi kynslóðum auðnist
að varðveita þ.að, sem áunn-
ist hefir, og halda áfram
stefnu hins „gróandi bjóð-
lífs, sem þroskast á guðsrík-
is braut“.
Afmælisdagur Jóns Sig-
urðssonar er vor þjóðhátíð-
ardagur, dagur einingar og
bróðernis. Eg vil ljúka máli
mínu með því, að fara með
upphaf þess kvæðis, sem
Hannes Hafstein orti til
flutnings hér á Rafnseyrar-
hátíð fyrir fimmtíu árum:
Þagnið dægurþras og rígur!
Þokið, meðan til vor flýgur
örninn mær, sem aldrei
hnígur,
íslenzkt meðan lifir blóð.
Menning kappans, mest sem
vakti
manndáð lýðs og sundrung
hrakti,
fornar slóðir frelsis rakti,
fann og ruddi brautir þjóð.
Fagna, ísland, fremstum
hlyni
framar þins á nýrri öld,
magna Jóni Sigurðssyni
sigurfull og þakkargjöld!
Vér tökum öll undir ein-
um rómi. Lífi minning Jóns
Sigurðssonar með þjcð vorri!
Vilhjálmur hlaut forsetabik-
arinn fyrir þetta afrek sitt, sem
gefur flest stig eftir stigatöfl-
unni.
í kúluvarpi sigraði Guðmund
ur Hermannsson, svo sem við
var búizt, en Gunnar Huseby
náði líka ágætum árangri.
1. Guðmundur Hermannsson,
KR, 15.43 m. 2. Gunnar Huse-
by, KR, 15.06 m. 3. Friðrik Guð
mundsson, KR, 14.43 m.
Kringlukast: 1. Hallgrímur
Jónsson, Á, 48.68 m. 2. Friðrik
Guðmundsson, KR, 46.84 m. 3.
Þorsteinn Löve 44.26 m.
í 1000 m boðhlaupi sigraði
sveit Ármanns, fékk tímann
2.10.5 mín., en í henni voru:
Sigurður Lárusson, Hjörleifur
Bergsteinsson, Grétar Þorsteins
son og Þórir Þorsteinsson. —
Bl. sveit, 2.13.9 mín.
í gær, sunnudag hélt mótið
áfram kl. 2. Veður var þá all
gott til keppni, og miklum mun
betra en fyrri daginn. Enginn
sérstakur árangur náðist þó.
400 m grindahlaup: 1. Hjör-
leifur Bergsteinsson, Á, 62.0
sek. 2. Jón Guðlaugsson, HSK,
74.4 sek.
110 m grindahlaup: 1. Guð-
jón Guðmundsson, KR, 15.8 sek.
2. Sigurður Lárusson, Á, 16.1
sek.
200 m hlaup: 1. Grétar Þor-
steinsson, Á, 23.4 sek. 2. Þór-
hallur Sigtryggssn, KR, 24.5
sek. 3. Már Gunnarsson, ÍR,
24.8 sek.
800 m hlaup: 1. Svavar Mark-
ússon, 2.01.1 mín. 2. Þorvarður
Björnsson, KR, 2.17.5 mín.
Langstökk: 1. Vilhjlmur Ein-
arsson, ÍR, 6.94 m. 2. Einar Fri-
mannsson, KR, 6.93 m. 3. Þor-
varður Jónasson, KR, 6.53 m.
Spjótkast: 1. Valbjörn Þor-
láksson, ÍR, 58.06 m. 2. Jóel Sig
urðsson, ÍR, 54.08 m. 3. Kjart-
an Guðjónsson, KR, 49.28 m.
Sleggjukast: 1. Friðrik Guð-
mundsson, KR, 46.09 m. 2. Jó-
hannes Sæmundsson, KR, 45.58
Frh. á 13. síðu.
I