Vísir - 19.06.1961, Side 16
VfSIR
Mánudagur 19. júni 1961
HátíöahðSiium víða aflýst
Banaslys á
Akureyri.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í morgun,
Banaslys varð á Akureyri síð
degis s.l. föstudag.
Adragandinn að'slysinu varð
með þeim hætti að ökumaður
sorpbifreiðar bæjarins Vil-
hjálmur Sigurðsson, Þingvalla-
stræti 8 var að flytja sorp á
haugana um kl. hálf sex leytið
síðdegis á f.östudaginn. Þegar
þangað kom var maður, sem
venjulega vinnur þar að því að
slétta úr sorpinu, hættur vinnu
og farinn á brott. Fyrir bragð-
ið er ekki vitað hvernig slysið
vildi til, en talið að Vilhjálmur
heitinn hafi eitthvað verið að
vinna við skúffuna á bílnum
sem flytur sorpið upp í hann,
en klemmst þá undir lestarlok-
inu og beðið við það bana.
Vegfarandi sem átti leið
framhjá veitti bílnum athygli,
gekk að honum og fann þá Vil-
hjálm látinn. Talið er að nokk-
ur stund hafi liðið frá því slysið
vildi til og þar til komið var
að bílnum.
Vilhjálmur heitinn var mað-
ur um fimmtugt.
Guölaugur sviptur
réttindum.
Hæstiréttur hefur svipt Guð-
laug Einarsson héraðsdómslög-
mann réttindum til að flytja
mál fyrir Hæstarétti.
Þessi réttindi fékk Guðlaugur
eftir lagaákvæðum sem segja,
að héraðsdómslögmaður, sem
flutt hefur 40 mál fyrir undir-
rétti megi fylgja málum sínum
eftir til Hæstaréttar og flytja
þau þar.
Sem kunnugt er flutti Guð-
Iaugur málið fyrir Magnús
Guðmundsson lögregluþjón,
„morðbréfamálið“ svokallaða
og var þá málið tekið af honum
og lögfræðingurinn ávíttur.
Bílalesf föst
Frá fréttaritara Vísis.
Húsavík í morgun.
Veðrið hér þann 17. júní var
eitt hið versta er menn muna
hér á þeim degi. Úrhellis rign-
ing með norðaustan kulda og
stormi kom í veg fyrir að liá-
tíðahöldin færu fram úti og að
messu lokinni fóru hátíðahöld-
in fram í samkomuhúsinu.
Svo kalt var í 'æðri að snjó-
aði til fjalla og sums staðar í
byggð. Á aðfaranótt sunnudags
tepptist langferðabíll á leið til
Húsavíkur ásamt 14 öðrum bíl-
um og komust þeir ekki leiðar
sinnar fyrr en ýta var fengin
til að ryðja þeim leið gegnum
snjódyngjurnar.
Kalt var einnig í Mývatns-
norðanlands.
Heljarveður var um allt norð
anvert landið á þjóðhátíðardag-
inn og þess vegna féllu hátíða-
höld víðast hvar niður eða var
frestað þar til í gær.
Víða snjóaði til fjalla og í
gærmorgun voru fjöll hvít nið-
ur í miðjar hlíðar.
Frá ísafirði var Vísi símað í
morgun að þar hafi verið norð-
an hvassviðri og rigning 17.
júní og öll hátíðarhöld fallið
niður af þeim sökum. Um
Sigríður Hagalín var f jallkonan í ár.
Ljósm. Vísis O.Ó.)
Víða kuldi og
snjór
kvöldið voru dansleikir í sam-
komuhúsunum, en það var líka
allt og sumt. Þar snjóaði í efstu
brúnir.
Úr Húnavatnssýslum var
Vísi símað að þar hafi verið
kuldahret eins og þau koma
verst á vorin, úrhellisrigning og
kuldi með snjókomu til fjalla.
í gærmorgun voru bæði Víði-
dals- og Vatnsdalsfjöll og fleiri
fjöll norður þar hvít niður í
miðjar hlíðar. Bændur í Húna-
þingi telja þetta vor óvenju
fremur kalt og segja að hvert
hretið hafi rekið annað frá því
á hvítasunnu.
Á Siglufirði var sama veður,
úrhellisrigning og kalsi með
snjókomu til fjalla. Þar féllu
öll hátíðahöld niður.
Á Akureyri gerði versta veð-
ur. Tók að kólna strax á föstu-
dagskvöldið, en síðan fór það
versnandi, en samt hófust 17.
júní-hátíðarhöldin á tilskildum
tíma um morguninn og stóðu
fram eftir degi, að þeim var
slitið um kl. 3.30 e. h., vegna
foráttuveðurs. í gærkveldi hóf-
ust þau samt aftur í skaplegu
veðri með skemmtun á Ráð-
hústorgi, gamanvísnasöng, gam-
anþætti, tvísöng og kórsöng og
loks dansleilc á torginu, er stóð
til miðnættis.
Bæði við Eyjafjjörð og í Þing-
eyjarsýslum snjóaði niður í
miðjar hlíðar. Á Mörudal á
Fjöllum var snjókoma og þar
komst hitinn niður í frostmark,
en á Akureyri í 2 stig aðfara-
nótt sunnudagsins.
í Grímsey var versta veður,
8—9 vindstig og úrkoma að
sama skapi. Þar lágu um 30
síldveiðiskip í vari, öll norsk
nema eitt.
sveit og hið versta veður. Fjall-
ið Vindbelgur þar í sveit var
hvítur að rótum og hafði engan
snjó tekið úr honum í gær. í
morgun var hins vegar komið
hlýviðri með sól og sunnan-
vindi.
Síldveiði á Húnaflóa
í nótt.
Á laugardaginn þann 17. júní
lágu öll síhlarskipin í vari inn
á fjörðum. Allt frá Vestfjörð-
um austur á Eyjafjörð. Mikill
fjöldi skipa var á Siglufirði
bæði íslenzk, norsk og finnsk.
Upp úr hádegi í gær tók veðrið
að ganga niður og héldu skipin
þá strax út og tóku nær allir
strikið djúpt á Húnaflóa, þar
sem síldin fékkst í byrjun vik-
unnar. í gærkvöldi byrjuðu
þeir svo að kasta og í nótt voru
23 skip búin að fá síld og sum
komin á leið til Siglufjarðar.
Fyrstu bátarnir komu þangað
í morgun. Var ræst út til sölt-
unar á tveimur söltunarstöðv-
um, þar sem síldin er nokkru
feitari en hún var um daginn.
Gert er ráð fyijir að frysta
eins og tök eru á, en annað fer
í bræðslu í Rauðku sem hefur
fengið undanþágu til að taka á
móti sild og hefja bræðslu, en
enn er ekki búið að semja við
Sildarverksmiðjur ríkisins. —
Ekki fara samt allir bátarnir til
Siglufjarðar heldur dreifast á
nokkrar hafnir. Sumir fara til
Frft á bls. 5
Alvarlegt
umferöarslys.
Tólf ára gömul stúlka meidd-
ist mikið, er hún varð fyrir bif-
reið á gatnamótum Lönguhlíð-
ar og Miklubrautar sl. föstu-
dagskvöld laust fyrir kl. 9.
Telpan, Margrét Benedikts-
dóttir Blönduhlíð 20 var á leið
yfir Miklubraut þegar tófreið
bar að á mikilli ferð, og virðist
hvorugt hafa gætt sín sem
skyldi, telpan eða ökumaður-
inn. Ökumaðurinn kvaðst hafa
séð hana of seint, og varð telp-
an fyrir miðjum bílnum en síð-
an kastaðist hún í götuna fyrir
framan hann, mikið slösuð.
Að því er lögreglan tjáði Vísi
mun bifreiðin hafa verið á mik-
illi ferð því löng hemlaför voru
á götunni eftir áreksturinn.
Margrét var strax flutt í
Slyðavarðstofuna og þaðan í
sjúkrahús Hvítabandsins, þar
sem hún liggur nú. Meiðsli
ænnar hafa ekki verið að fullii
:önnuð ennþá,
,//11 Iii
/ I IlL' i1
Veðurhorfur: /j
S og SV-kaldi,
skýjað og