Vísir - 08.09.1961, Blaðsíða 1

Vísir - 08.09.1961, Blaðsíða 1
VÍSIR Sjópróf hófust Qlafur Thors tekur sér hvíld frá störf- um til ársíoka. e morgun^ I morgun klukkan rúm- lega 10 hófust sjópróf vegna Sleipnis frá Keflavík, er sökk á dögunum suÖur í hafi. Yfirmenn bátsins voru mættir er sjóprófin hófust., Forseti dómsins, ísleifur Arnason, hafði lagt fyrir lögmann þeirra, Ölaf Þorgrímsson, hrl., að hann legði fram sem allra ýtar- legasta skýrslu frá skip- stjóranum, Bimi Hauki Magnússyni varðandi slysið og aðdraganda þess. í dómnum eiga sæti auk ís- leifs Árnasonar,; þeir Þorsteinn Loftsson, vélfræðiráðunautur Fiskifélagsins og Jónas Jóns- son skipstjóri. Sveinbjörn Jóns son hrl. v ar talsmaður vá- tryggjenda. Þá voru sem á- heyrnarfulltrúar Páll Ragnars- son og Guðmundur Gíslason frá skipaskoðuninni. Ekki um eyri. EKKERT miðar áfram í samn- ingaumleitunum stéttarfélags verkfræðinga og vinnuveit- enda þeirra. Verkfræðingar hafa ekki slegið af kröfum sínum um einn eyri, en það hafði flogið fyrir. Fundir hafa verið fáir undanfarið og er ekki vitað hvenær næsti fundur verður boðaður. Áður en skipstjórinn var kallaður fyrir dóminn, sneri dómforseti, ísleifur Árnason, sér til blaðamanna sem við- staddir voru: frá Vísi og Þjóð- viljanum. Kvaðst hann vilja beina til þeirra tilmælum dóms ins þess efnis, að hann óskaði þess að þeir birtu ekkert um rannsókn máls þessa efnislega, Framh. á bls. 5. 109 er- iend skip Mikill floti erlendra fiskiskipa er við land um þessar mundir. I fyrra- dag, er Rán fór í könn- unarferS meðfram fisk- veiðitakmörkunum, um- hverfis landið, taldi á- höfnin alls 76 togara og voru yfir 60 þeirra á veiðum við 12 mílna mörkin. Síldveiði- og móður- skipafloti Rússa við landið mun aldrei hafa verið jafn stór og nú, en skipin eru einkum út af Norðausturlandinu. — Voru talin 11 mjög stór móÖurskip og 22 síld- veiðiskip í hinum rúss- neska flota, að því er Landhelgisgaezlan skýrði blaðinu frá í gær. IÁ' Bjarni Benedikfsson gegnir störfum forsæt- isráðherra og Jóhann Hafstein störfum dóms- málaráðherra. Ólafur Thors. Bjarni Benediktsson. Eftirfarandi fregn barst blaðinu frá ríkisráðs- ritara um hádegisbilið í dag: Á fundi ríkisráðs í dag skýrði forsætisráð- herra Ölafur Thors frá því, að hann hefði í hyggju, að taka sér hvíld frá störfum frá 14. þ.m. til ársloka 1961, að læknisráÖi. Var ráð- herra Bjarna Benediktssyni falið að gegna störf- um forsætisráðherra í fjarveru Ölafs Thors. Jafnframt var Jóhann Hafstein, alþingismað- ur skipaður ráðherra í ráÖuneyti íslands og fer hann með dóms- og kirkjumál og önnur ráðherra- störf, er Bjarni Benediktsson hafði með höndum. Hvíld a5 læknisráði Johann Hafstein. — segir forsætisráðherra. I tilefni þessarar fréttar náði Vísir tali af Ölafi Thors forsætisráð- herra. Hann sagði: Ég hefi í rauninni engu sérstöku við þetta að bæta, nema þá helzt því, að enda þótt starfsdagurinn sé oft langur og stundum erilssam ur hefi ég í mörg ár aðeins einu sinni tekið mér tveggja vikna hvíld. Læknir minn ráðleggur mér nú að bæta þetta upp með lengri hvíld en venja er til það er að segja frá miðjum þessum mánuði og til áramóta. Aldrei þessu vant hefi ég ákveðið að hlýða, enda veit ég að það breytir engu um gang þjóð- málanna“. Erfitt NÚ ERU óvanalega mörg lækn ishéruð, sem ekki hefur tekizt að skipa lækna í, eða 12 alls, sagði landlæknir Sigurður Sig- urðsson, þegar Vísir leitaði eft- ir fréttum hjá honum í morg- un. Hinsvegar sitja þarna kandí- latar, sagði landlæknir, til stutts tíma, og það er ekki hægt að segja um hvort hægt yrði að fá mann í stað einhvers sem ætlaði að hætta. Það hefur verið mjög erfitt að fá lækna til þess að fara út á land. Stundum eru allir kandídatar uppteknir, þegar við þurfum að ná okkur í mann. Þrjú héruð eru alveg læknis- laus, Flatey, Djúpuvíkurhérað og Bakkagerðishérað í Borgar- firði eystra. Þessi mál eru í athugun hjá mér og öðrum viðkomandi að- ilum, sagði landlæknir Ég mun væntanlega skila álits- gerð um þessi mál næstu daga. 1S km raflína að SkégaskóEa. Raforkumálaráðherra, Ing- ólfur Jónsson, hefur brugðizt skjótt við til lausnar þeim vanda sem steðjað hefur að skólanum að Skógum, vegna brunans i rafstöðinni þar. Hefur ráðherrann lagt fyrir Eirík Briem rafmagnsveitu- stjóra að sjá um að þegar í stað verði lögð raflína frá raf- línukerfi Sogsins til skólans. Framh. á 5. síðu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.